Morgunblaðið - 15.10.1991, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓTTIRÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
B 3
KNATTSPYRNA / EVROPA
Enn tapar Bayern í Munchen:
Versta byrj-
un Bayem í
Qórtján ár
Þjálfaraskipti hjá félaginu höfðu ekkert að segja.
Dortmund vann stórsigur, 3:0, í Munchen
SÖREN Lerby, nýráðinn þjálfari hjá Bayern Múnchen, var ekki
brosmildur er hann gekk af leikvelli á Olympíuleikvanginum í
Múnchen, þar sem Bayern mátti þola sitt fjórða tap í vetur -
þegarfélagiðfékk leikmenn Dortmund íheimsókn. Lerby, sem
tók við starfi Jupp Heynckes þremur dögum fyrir leikinn, sá
knöttinn hafna þrisvar í netinu hjá sínum mönnum, án þess að
þeir næðu að svara fyrir sig. Bayern er nú í þrettánda sæti í
þýsku úrvalsdeildinni og hefurfélagið ekki byrjað svo illa ífjórt-
án ár. Heynckes missti sitt starf eftir 1:4 tap gegn Stuttgart
Kickers um síðustu helgi.
Það var Michael Rummenigge,
fyrrum leikmaður Bayern,
sem opnaði leikinn fyrir Dortmund
á 25. mín. og tveim-
Frá ur mín. eftir leikshlé
Jóni Halldóri skoraði landi Ler-
Garðarssyni bys, Flemming
iÞýskalandi Povlsen, annað
markið og rétt fyrir leikslok urðu
leikmenn fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark. Gerald Hillringhaus,
markvörður Bayern, hljóp þá út úr
vítateig til að spyrna knettinum frá
- knötturinn hafnaði á í Miinch,
vamarmanni Bayern, og af honum
fór knötturinn til baka - beint í
mark BayerQ af 30 m færi. Það
undirstrikaði aðeins þá óheppni sem
hefur verið í herbúðum Bayern í
vetur.
„Eins og allir hjá Bayern er ég
mjög sleginn. Við vonuðumst svo
sannarlega eftir betri úrslitum,”
sagði Sören Lerby. „Okkar vanda-
mál er hvað við missum knöttinn
fljótt frá okkur. Það er mikið og
erfitt verkefni framundan.”
Mesta vandamál Bayern í vetur
hefur verið hvað margir lykilmenn
félagsins era meiddir. Bayern hefur
leikið án sjö fastamanna að undan-
fömu. Það eina sem menn gátu
glaðst yfir um helgina, var að lands-
liðsmennirnir Olaf Thon og Thomas
Strunz eru byijaðir að æfa aftur.
Lerby fær kaldar kveðjur
Blöð í Þýskalandi sendu Lerby
kaldar kveðjur eftir leikinn og settu
út á leikaðferðina-sem hann not-
aði, en í fyrsta skipti í mörg ár lék
Bayem án þess að vera með „swee-
per” - og var vörn liðsins eins og
gatasigti. Leikur Bayern var afar
lélegur og fengu leikmenn liðsins
ekki marktækifæri. Blöðin benda á
að Lerby sé ekki með þjálfarapróf
FOI_K
■ JACK Walker, eigandi Black-
burn Rovers og sá sem fékk
Kenny Dalglish til félagsins, er
þrítugasti ríkasti maður á Stóra
Bretlandi og sá ríkasti í knatt-
spyrnuheiminum.
■ WALKER er sextugur. Hann
rak fyrirtæki í stáliðnaði; stofnaði
það 1948 og hafði þá fjóra menn í
vinnu. Hann seldi svo fyrirtækið,
Walker Steel, í fyrra fyrir 330 millj-
ónir punda — andvirði tæplega 34
milljarða íslenskra króna. Eignir
Walkers eru alls metnar á rúma
37 milljarða ÍSK.
■ WALKER er frá Blackburn
og hélt með liðinu sem strákur.
Hann keypti síðan félagið í fyrra
eftir að hann seldi fyrirtæki sitt.
■ ÞEGAR hefur verið hafist
handa við breytingar á leikvangi
félagsins, Ewood Park, en þeim
lýkur eftir tvö ár. Þá verður pláss
fyrir 25-30 þúsund áhorfendur, alla
í sætum.
■ KENNY Dalglish fær tíu millj-
ónir punda til að kaupa leikmenn
strax, ef hann vill. „Peningar verða
til reiðu, en ég opna samt ekki neina
botnlausa hít, sem menn geta geng-
ið endalaust í,” sagði Walker.
■ RAY Harford, fyrram stjóri
Luton og Wimbledon, var ráðinn
aðstoðarmaður Dalglish. Þjálfarar
verða einnig Tony Parkes, sem
hefur stjómað liðinu frá því í haust
er Don McKay var rekinn, Jim
Fernell, fyrram markvörður hjá
Liverpool, og Asa Hartford, fyrr-
um leikmaður Man. City og WBA.
■ HUNDRUÐ áhangenda Black-
burn mættu á æfingu hjá félaginu
í gærmorgun til að sjá nýja stjórann
að störfum, en hann var ekki á
staðnum. Hafði lofað að spila
ágóðaleik í Skotlandi í gærkvöldi
og var farinn þangað!
Povlsen
sektaður
Danski landsliðsmaðurinn Flemming
Povlsen, sem leikur með Dortmund
var sektaður um 70 þús. ísl. kr. á dögunum
- af forráðamönnum félagsins. Sektin renn-
ur í sjóð leikmanna Dortmund. Ástæðan
fyrir því var að Povlsen var mjög óhress
með að vera á varamannabekknum og lét
hann óánægju sína í ljós í blaðaviðtali.
Hann sagði að hann væri betri leikmaður
en Frank Mill og Stephane Chapuisat, sem
væru í byijunarliðinu. Menn vora ekki án-
ægðir með þessi ummæli.
Lægri laun hjá Bayern
I eikmenn Bayern hafa ekki í fjórtán ár
* fengið eins litlar tekjur í aukagreiðslur
og nú í byijun keppnistímabilsins. Leikmenn
félagsins fá 35 þús. ísl. krónur fyrir hvert
stig sem þeir fá í úrvalsdeildinni. Þeir hafa
aðeins fengið 12 stig af 36 mögulegum, sem
hefur gefið þeim 420 þúsund kr. af þeim
1,26 millj. króna. sem í boði hefur verið.
og að hann hafi því enga reynslu.
Mikill urgur er í mönnum og vilja
margir að Uli Höness, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sé næstur
til að taka pokann sinn.
Glæsimark Goldbæk
Það voru fleiri Danir í sviðsljósinu
í Þýskalandi á laugardaginn en
Sören Lerby og Flemming Povlsen.
Bjarni Goldbæk hjá meistaraliði
Kaiserslautern skoraði sigurmark
meistarana með þrumufleyg af 20
m færi á síðustu mínútu gegn Bay-
er Leverkusen, 2:1.
Eyjólfur á miðjunni
Eyjólfur Sverrisson lék á miðj-
unni hjá Stuttgart, sem mátti þola
tap, 4:3, í Nurnberg. Hann tók hlut-
verk landsliðsmannsins Matthias
Sammers, sem var í leikbanni.
Eyjólfur náði ekki að skora.
Arie Haan, fyrrum þjálfari Niirn-
berg, sem var rekinn frá Stuttgart,
hringdi frá Belgíu til Núrnberg, til
að senda leikmönnum Númberg
baráttukveðju. Þjálfari félagsins er
Willí Entenmann, sem var einnig Flemming Povlsen skoraði lék á nýju með Dortmund og skoraði mark á
rekinn frá Stuttgart. Ólympíuleikvanginum í Munchen.
Kenny Dalglish til Rovers
Leikmenn félagsins buðu hann velkominn með 5:2 sigri á Plymouth
Kenny Dalglish aftur í sviðsljós-
inu — nú í Blackbum.
.KENNY Dalglish, fyrrum leik-
maður og framkvæmdastjóri
Liverpool, hefur tekið við
stjórninni hjá 2. deildarfélag-
inu Blackburn Rovers, sem
lék síðast í 1. deild fyrir 25
árum.
Gengið var frá ráðningu hans
á laugardaginn fyrir leik
Blackbum og Plymouth. Leik-
menn félagsins buðu hann vel-
kominn með því að vinna stórsig-
ur, 5:2, og skoraði David Speedie
tvö mörk. Speedie var síðasti leik-
maðurinn sem Dalglish keypti til
Liverpool, en hann hætti þar sem
framkvæmdastjóri í febrúar sl.,
eða eftir að ljóst var að hann
þoldi ekki pressuna sem fylgdi
starfinu. Önnur gömul kempa,
Simon Garner, skoraði einnig tvö
mörk.
„Ég hef náð mér fullkomlega
og er tilbúinn að gefa krafta mína
f að reyna að koma Blackburn upp
í 1. deild, eða áður en ný úrvals-
deild hefst næsta keppnistímabil,”
sagði Dalglish, sem er fertugur,
og gerði fjögurra ára samning við
Blackbum. Skv. fréttum verður
hann með 5.000 pund í vikulaun.
Dalglish fór frá Liverpool þegar
aðeins fimm mánuðum var lokið
af fimm ára samningi. Félagið
hefur farið fram á 500 þús. pund
í bætur frá Blackburn, en Liverpo-
ol varð að borga Glasgow Rang-
ers þá upphæð til að fá Graeme
Souness frá félaginu, en hann tók
sem kunnugt er við af Dalglish.
í gær var talið að Liverpool sætt-
ist á 300.000 pund, frekar en að
málið fari fyrir dómstóla.
Tilboðið frá Blackburn er ekki
það fyrsta sem Dalglish fær um
þjálfun, eftir að hann hætti hjá
Liverpool. „Ég tók hinum ekki,
en þetta starf hentar mér,” sagði
stjórinn. Sögusagnir hafa lengi
verið í gangi um að hann væri á
leið til félagsins, en fram kom á
laugardag að samkomulag náðist
ekki milli hans og eiganda þess
fyrr en á föstudagskvöld.
Dalglish var stjóri Liverpol í sex
ár, og undir stjórn hans varð liðið
þrívegis enskur meistari, tvívegis
bikarmeistari og vann góðgerðar-
skjöldinn þrisvar.