Morgunblaðið - 15.10.1991, Page 7
B 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROt IIRpRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
Barátta og
sterkvöm
- skóp sigur Grindvíkinga gegn Haukum
STERKUR varnarleikur og mikil
barátta færði Grindavíkingum
bæði stigin í leiknum við Hauka
á laugardag. Haukar sem hófu
keppnistímabilið með fræknum
sigri á Val náðu sér aldrei á
strik gegn ákveðnum Grindvík-
ingum sem unnu 90:74.
Mike Dizaar skoraði fyrstu
stigin á Strandgötunni með
því að troða knettinum í körfuna
með tilþrifum og var
það í eina skiptið í
Frosti leiknum sem hei-
Eiðsson maliðið náði forys-
skrifar tunni. Haukar skor-
uðu ekki í næstu fimm mínútur en
gestirnir með Dan Krebbs sem
besta mann sigldu fram úr. Það var
ekki fyrr en Eggert Garðarsson
kom inn í liðið í stað Dizaar á loka-
mínútum hálfleiksins í stöðunni
27:40 að hlutirnir fóru að ganga
til betri vegar hjá heimamönnum
og munurinn í leikhléi var aðeins
sex stig. Haukar náðu einu sinni
að jafna, 46:46 en þijár þriggja
stiga körfur í röð frá Rúnari, Berg
og Pálmari komu Grindavík aftur
í þægilega forystu. Haukarnir náðu
nokkrum sinnum að minnka mun-
inn í þtjú stig en nær komust þeir
ekki. Lokamínúturnar voru eign
Grindvíkinga og munurinn í lokin í
stærra lagi miðað við- gang leiks-
ins, eða sextán stig.
Dan Krebbs var mjög. atkvæða-
mikill og styrkasta stoðin í jöfnu
liði Grindavíkur. Guðmundur, Berg-
ur og Rúnar áttu allir góða kafla
og Pálmar fann sig vel á ljölunum
í Strandgötunni, sem leikstjórnandi
gegn sínum gömlu félögum.
Bræðurnir Pétur og Ingvar voru
bestu menn Hauka. Jón Órn fékk
að þessu sinni lítinn frið. Dizaar
sýndi stundum skemmtileg tilþrif
og á án efa eftir að reynast liðinu
dijúgur þegar fram í sækir. Hann
náði hins vegar lítið að setja mark
sitt á þennan leik. „Sú barátta sem
við sýndum gegn Val var ekki til
staðar í þessum leik. Grindvíkingar
eiga hrós skilið fyrir varnarleikinn.
Það þarf að laga ýmsa hluti hjá
okkur og Bandaríkjamaðurinn á
eftir að verða mun drýgri,” sagði
Ólafur Rafnsson, þjálfari Hauka
eftir leikinn.
Oruggt hjá
Keflvíkingum
KEFLVÍKINGAR sigruðu Þórs-
ara nokkuð örugglega í fyrsta
körfuknattleiksleik vetrarins á
Akureyri á sunnudagskvöld.
Það var greinilegt á leik beggja
liða að talsverður haustbragur
var á leik þeirra og augljóst að
það á eftir að fínpússa ýmis-
legt í leik þeirra.
Leikurinn fór mjög rólega af stað
og sem dæmi um það var stað-
an eftir 5 mínútna leik, 4:2. Hittni
leikmanna var af-
arslök á upphafs-
mínútunum, en
Benjaminsson varnir liðanna sýndu
skrifar góða baráttu og
kom það einnig í veg fyrir góða
skorun. Þórsara höfðu frumkvæðið
í leiknum fram í miðjan hálfleikinn,
en þá tóku Keflvíkingar við sér og
fóru að spila af meira öryggi og
juku forskot sitt jafnt og þétt fram
að leikhléi.
Hingað og ekki lengra
Síðari hálfleikur var mun fjör-
ugri en sá fyrri og reyndu Þórsarar
allt hvað þeir gátu til að vinna upp
forskot gestanna. Um miðjan hálf-
leikinn höfðu þeir minnkað muninn
niður í 6 stig. En nær hleyptu Kefl-
víkingar heimamönnum ekki -
sögðu; hingað og ekki lengra, og
settu upp í hærri gír og keyrðu sig-
urinn heim og var munurinn 21
stig er upp var staðið.
Þórsarar virtust mjög tauga-
strektir í þessum leik og eiga að
geta betur en þeir sýndu. Banda-
ríski leikmaðurinn, Micael Ingram,
virtist geta skorað þegar hann vildi
en tapaði boltanum hins vegar oft.
Sturla Örlygsson átti ágætis spretti,
en aðrir léku undir getu.
Það sama á við um lið Keflvík-
inga, sem voru taugastrektir í upp-
hafi, en er á reyndi sýndu Johnatan
Bow og Jón Kr. Gíslason hversu
þeir eru megnugir og voru þeirra
langbestu menn.
Jón Kr. Gíslason lék mjög vel með
Keflvíkingum.
Morgunb'aðið/Sveirir
Grind víkingurinn Guðmundur Bragason býr sig undir að senda knöttinn í
körfu Hauka í leiknum á laugardag.
Meistar-
arnir
unnuá
Króknum
FYRSTI heimaleikur Tindastóls
í urvalsdeild körfuboltans fór
fram á sunnudaginn, er ís-
landsmeistarar Njarðvíkinga
komu í heimsókn og sigruðu.
Meistararnir gerðu 86 stig en
heimamenn 78. Valur Ingi-
mundarson fór á kostum gegn
sínum gömlú félögum og gerði
46 stig.
Frá Birni
Björnssyni á
Sauðárkróki
Leikurinn hófst með mikilli bar-
áttu, og var ljóst að hvorugt
liðið ætlaði að gefa neitt eftir.
4 Skiptust liðin á að
hafa forystuna,
jafnt var á mörgum
tölum, en oftast var
munurinn tvö stig,
mestur í fyrri hálfieik sex stig.
Njarðvíkingar áttu ekkert svar ,
við stórleik Vals Ingimundarsonar,
sem var yfirburðamaður í liði Tinda-
stóls, og hafði gert 29 stig þegar
flautað var til leikhlés. ísak Tómas-
son var hins vegar besti maður
Njarðvíkinga og skoraði 21 stig í
þessum hluta leiksins. Þá var Rob-
inson geysisterkur undir körfunni
og Tindastólsmönnum erfiður þar.
í síðari hálfleik tóku Tindastóls-
menn strax forystuna og höfðu
undirtökin mest allan tímann en
misstu Ivan Jonas út af með fimm
villur þegar á sjöttu mínútu hálf-
leiksins, en síðan þá Einar Einars-
son og Kristinn Baldvinsson fljót-
lega eftir miðjan hálfleikinn. Á
næst síðustu mínútu komust Njarð-
víkingar yfir, eftir að leikurinn hafði
verið í járnum, og sunnanmenn
héldu fengnum hlut.
Leikurinn var í heild skemmtileg-
ur, en slök dómgæsla kom í veg
fyrir að liðin gætu sýnt sínar bestu
hliðar. Dómararnir misstu mjög
fljótlega tök á leiknum.
Þess má geta að Teitur Örlygsson
lék ekki með Njarðvíkingum. Hann
meiddist lítillega á fæti gegn
Skallagrími á föstudag, og lagðist
svo í flensu. Teitur sagðist í gær,
vonast til að geta leikið gegn KR
á föstudag.
Reynsluleysi
Hólmarar unnu Borgnesinga í nágrannaslagnum á Vesturlandi
LEIKMENN Snæfells frá Stykk-
ishólmi nýttu vel eins árs
reynslu sína í úrvalsdeildinni
þegar þeir sigruðu nýliðana úr
Skallagrími á heimavelli í Bor-
garnesi á sunnudag, 69:75.
„Við áttum seinni hálfleikinn
og ef hann hefði verið nokkrum
mínútum lengri er ég viss um
að sigurðinn hefði verið okk-
ar,” sagði Birgir Mikaelsson,
þjálfari Skallagríms.
Birgir sagði að Snæfellingar
hefðu komið ákveðnir til leiks
í fyrri hálfleik og náð að slá heima-
menn út af laginu.
theodór Kr. „Við lékum því langt
Þóröarson undir getu um tíma.
skrifar Okkur vantar leik-
reynslu og það tekur
tíma að aðlaga sig hinni hörðu
keppni í úrvalsdeildinni. Þegar við
erum komnir á ferðina og á góðum
degi eigum við eftir að sýna tenn-
urnar. Við getum unnið hvaða lið
sem er,” sagði Birgir.
Hátíðarstemmning var í troðfullu
íþróttahúsinu í Borgarnesi þessum
fyrsta heimaleik Skallagríms í úr-
valsdeildinni. Fyrir leikinn var
formleg afhending á nýrri tímatöflu
sem Sparisjóður Mýrasýslu og
Kaupfélag Borgfirðinga gáfu. Til-
standið hafði greinilega ekki góð
áhrif á nýliðana. Þeir voru slakir í
upphafi leiksins, virkuðu tauga-
spenntir, en Snæfellingar gengu á
lagið og tóku strax forystuna. Karl
Guðlaugsson stal boltanum af Borg-
nesingum þrisvar í röð snemma
leiks og varð það ekki til að auka
sjálfstraustið hjá nýliðunum.
Snæfell var komið með sextán
stiga forystu í leikhléi. Skallagrím-
ur skoraði fyrstu fjögur stigin í síð-
. ari hálfleik en Snæfell svaraði með
átta stigum í röð og komst í 20
stiga foi-ystu. Eftir það löguðu
heimamenn vörnina og söxuðu
smám saman á forskotið og síðustu
mínúturnar voru spennandi. Á loka-
mínútunni var forysta gestanna
komin niður í fjögur stig en þeir
luku leiknum af miklu öryggi og
sigruðu með sex stiga mun, 75 stig-
um gegn 69.
Sigur Snæfells var verðskuldað- 4
ur. Bakverðir liðsins, Karl Guð-
laugsson og Bárður Eyþórsson, áttu
stórieik og höfðu bakverðir Skalla-
gríms ekki roð við þeim. Þeir skor-
uðu grimmt úr hraðupphlaupum
gegn seinum Borgnesingum og
hittu vel úr þriggja stiga skotum.
Þá var vörn þeirra góð og Banda-
ríkjamaðurinn Tim Harvey sterkur.
Borgnesingar höfðu yfirburði inni
í vítateignum. Þar munaði mest um
Rússann í liði þeirra, Maxím Krúp-
atsjev, sem er yfirburðamaður í lið-
inu. Eggert Jónsson og Birgir Mika-
elsson áttu góðan seinni hálfleik.
íkvöld
UMFG og Valur leika í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
Grindavík í kvöld kl. 20.