Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA
Fyrsti landsleikur íslands og Kýpur í knattspyrnu á morgun:
Mikilvægur leikur
- segirÁsgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, um viðureignina sem fram fer í Larnaca
Atli Helgason
Fyrsti
leikur
Atla
Atli Helgasonar, fyrirliði ís-
landsmeistara Víkings í
knattspyrnu, leikur fyrsta lands-
leik sinn á morgun, þegar ísiand
mætir Kýpur í Larnaca.
Ásgeir Elíasson, landsliðs-
'‘þjálfari tilkynnir byrjunarliðið í
dag, en í gærkvöldi hafði hann
ekki ákveðið hvor byrjaði í
marki, Birkir Kristinsson eða
Friðrik Friðriksson, en hann
ætlar að skipta hálfleikjunum á
milli þeirra.
Valur Valsson verður aftasti
maður í vörn, en Sævar Jónsson
og Atli Helgason miðverðir fyrir
framan hann. Andri Marteins-
son og Baldur Bjamason verða
á vængjunum, en Þorvaldur
Örlygsson, Sigurður Jónsson og
Arnór Guðjohnsen á miðjunni
og verður Arnór þeirra’ fremst-
ur. í framlínunni verða síðan
. Hörður Magnússon og Eyjólfur
Sverrisson.
Varamenn fyrir utan vara-
markvörð verða Kristinn R.
Jónsson, Ólafur Kristjánsson,
Hlynur Stefánsson og Atli Ein-
arsson.
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu leikur vináttulandsleik
við Kýpur hér í Larnaca á Kýpur
á morgun. Þetta verður annar
leikur liðsins undir stjórn Ás-
geirs Elíassonar, landsliðs-
þjálfara. „Þetta er mjög mikil-
vægur leikur að mörgu leyti og
reyndar skiptir mikiu máli að
fá sem flesta leiki í undirbún-
ingnum fyrir meiri og stærri
verkefni,” sagði Ásgeir við
Morgunblaðið um viðureignina
á morgun.
Fimm breytingar eru á hópnum
frá landsleiknum gegn Spáni
og sagði Ásgeir að það væri af hinu
góða, því þá gæti
Steinþór hann gefið fleiri
Guðbjartsson mönnum tækifæri
skrifar og skoðað fleiri leik-
iráKýpur menn
Afmarkaður hópur
„Ég valdi nokkuð stóran hóp fyr-
ir verkefni haustsins og það er
nauðsynlegt því ljóst er að atvinnu-
mennirnir eiga erfitt með að fá sig
lausa í vináttuleiki. Ég lít á leikina
fram yfir viðureignina gegn Frökk-
um fyrst og fremst með þeim aug-
um að kynnast mannskapnum og
að strákarnir kynnist mér og mínum
hugmyndum. Nú eru Sigurður Grét-
arsson, Guðni Bergsson, Pétur
Ormslev, Kristján Jónsson, Grétar
Einarsson, Hilmar Sighvatsson, Ól-
afur Gottskálksson og Ormarr Ör-
lygsson fyrir utan og svo eru menn
í U-21 árs landsliðinu eins og Rúnar
Kristinsson og Arnar Grétarsson
og jafnvel fleiri ekki með, en ég
ákvað að nota ekki strákana í U-21
árs liðinu fyrr en eftir leikinn gegn
Frökkum. Þeir spila líka gegn
Frökkum og þá fæ ég vonandi tæki-
færi til að sjá þá betur, en að öðru
leyti koma ekki fleiri til greina að
svo stöddu.”
Loka svæðum framarlega
Þetta verður fyrsti landsleikur
íslands og Kýpur í knattspyrnu og
sagðist Ásgeir ekkert vita um mót-
heijana. „Ég veit í raun ekki út í
hvað við erum að fara, en ég geri
ráð fyrir að Kýpurmenn séu svipað-
ir og Grikkir og Tyrkir. Ég sá Tyrk-
ina í sumar og á dögunum var ég
með Framarana gegn grísku liði í
Amór fyrirliði
Arnór Guðjohnsen verður fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu
í landsleiknum gegn Kýpur á morgun. Þetta verður í fyrsta sinn
sem Amór verður með fyrirliðabandið, en hann hefur leikið á fjórða tug
landsleikja með fjórum fyrirliðum; Marteini Geirssyni, Ásgeiri Siguivins-
syni, Atla Eðvaldssyni og Sævari Jónssyni. Sævar er eini leikmaðurinn í
hópnum, sem hefur verið fyrirliði landsliðsins.
Amór er þriðji fyrirliði liðsins í jafnmörgum leikjum. Atli Eðvaldsson
var fýrirliði gegn Dönum í byijun september og Sigurður Grétarsson
stjórnaði liðinu í fræknum sigri gegn Spánveijum í lok september.
Keflvíkingar í við-
ræðum við Júgóslava
Keflvíkingar em að vinna í því
að fá júgóslavneskan leik-
mann fyrir næsta keppnistímabil.
Umræddur leikmaður er 25 ára
varnarmaður og leikur nú með
1. deildarliði í Vín í Austurríki og
er laus þaðan 1. desember. Hann
hefur mikinn áhuga á að leika hér
á landi. Hann lék áður í sama liði
í Júgóslavíu og Marco Tanasic,
sem leikur áfram með ÍBK.
Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, stjórnar liðinu í annað sinn á morgun:
„Eg lít á leikina fram yfir viðureignina gegn Frökkum fyrst og fremst með
þeim augum að kynnast mannskapnum og að strákarnir kynnist mér og mínum
hugmyndum.
Evrópukeppninni, þannig að ef
ágiskunin reynist rétt erum við að
fara að leika við snögga menn með
góða boltameðferð. Með það í huga
legg ég áherslu á að loka svæðum
eins framarlega og unnt verður í
vörninni, en í sókninni verður áfram
reynt eins og gegn Spánvetjum að
halda boltanum og sækja stíft, þeg-
ar tækifæri gefst.”
ÍÞRÖmR
FOLK
■ GUÐMUNDUR Pétursson,
formaður landsliðsnefndar og vara-
formaður KSÍ, og Haraldur Stur-
laugsson, fyrrverandi landsliðs-
maður frá Akranesi, fengu ekki
töskur sínar við komuna til Kýpur
í fyrrinótt. Þær urðu eftir í London
og eru ekki enn komnar, en ein
óþekkt taska flæktist hins vegar
með til Kýpur. Hún var send aftur
til London.
■ KJARTAN Steinbach, dómari
í handknattleik, er með fyrirlestra
um dómaramál í Nikósíu á Kýpur
þessa viku. Hann mætti einnig
töskulaus á svæðið en fékk farang-
urinn með öllu kennsluefninu í gær
skömmu áður en fyrsti fyrirlestur-
inn hófst.
■ ÍSLENSKA landsliðið flaug í
einni lotu til Larnaca á Kýpur, en
skipt var um vél í London. Ferða-
lagið tók hálfan sólarhring.
■ FRAMARARNIR Kristinn R.
Jónsson og Baldur Bjarnason
bættust í hópinn í London ásamt
Sigurði Jónssyni, Þorvaldi
Orlygssyni, Arnóri Guðjohnsen
og Eyjólfi Sverrissyni.
■ LANDSLIÐIÐ æfði á leikvell-
inum í gær í flóðljósum og 25 stiga
hita. Gert er ráð fyrir ámóta veðri
á morgun.
■ SIGURÐUR Jónsson er með
samning við Puma og fær skó hjá
fyrirtækinu. Hann hringdi á
fimmtudag og sagði að sig vantaði
par, en fékk þau svör að það væri
svo mikið að gera að hann gæti
ekki fengið skóna fyrr en einhvem
tímann í næstu viku. „Það er greini-
lega ekki sawia Jón og séra Jón,”
sagði Sigurður um málið. „Ef ég
hefði verið fastamaður í liði Arsen-
al hefðu þeir komið með skóna um
leið.”
■ ARNÓR Guðjohnsen og félag-
ar hans í Bordeaux léku æfinga-
leik við Brest um helgina og töpuðu
3:1. Ekkert var leikið í frönsku
deildinni vegna landsleiks Frakka
og Spánverja.
■ GUÐMUNDUR Torfason lék
með St. Mirren í skosku úrvals-
deildinni um helgina er liðið tapaði
0:1 fyrir Hibernian á heimavelli.
■ SIGURÐUR Grétarsson lék
ekki með Grasshoppers er liðið
tapaði fyrir Xamax 0:1, í sviss-
nesku knattspyrnunni um helgina
vegna meiðsla. Hann meiddist í
nára á æfingu í síðustu viku.
■ STEFAN Edberg sigraði á
þriðja mótinu í röð um helgina; að
þessu sinni stórmót innanhúss í
Japan. Hann vann Bandaríkja-
manninn Derrick Rostagno í úr-
slitum, 6:3, 1:6, 6:2 í úrslitaleik á
96 mín. og hlaut 122.700 dollara
fyrir vikið — tæplega 7,4 millj. ISK.
■ SVIAR sigruðu í keppninni um
Dunhill bikarinn í golfi, sem lauk í
St. Andrews í Skotlandi um helg-
ina. Þeir sigruðu Suður Afríkubúa
í úrslitum, 2:1. Anders Forsbrand
(68) sigraði John Bland (69), Per-
Ulrik Johansson (74) tapaði fyrir
David Frost (68) og Mats Lanner
og Gary Player urðu jafnir, léku
báðir á 74 höggum, en Svíinn sigr-
aði á fyrstu holu í bráðabana.
Svíarnir fengu 100.000 pund hver
í verðlaun, um 10,3 milljónir ISK,
og liðsmenn Suður-Afríku helm-
ingi minna.
■ SANDY Lyle sigraði á fyrsta
móti sínu í þijú um ár, er hann lék
best allra á opna BMW mótinu í
Miinchen. Skotinn lék á 268 högg-
um, 20 undir pari.
■ FJÓRIR af bestu leikmönnum
Skota verða ekki með í leiknum
gegn Rúmeníu í Evrópukeppninni
í knattspyrnu á morgun vegna
meiðsla; framheijarnir Mo Jo-
hnston og Ally McCoist, varnar-
maðurinn Steve Nicol, og miðju-
maðurinn Murdo MacLeod.
GETRAUNIR: 11X 111 2X1 122 LOTTO: 12 18 22 25 31 + 37
4-