Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 10

Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 Þrívídd er galdurinn í nýju spili þar sem reynir á hugmyndaflug og útsjónarsemi „FÓLK er hætt að nota frístundirnar án þess að nota heilabúið. Nú vilja menn láta reyna á hugann hvort sem þeir eru að spila, lesa eða gera annað sér til dægradvalar.” Það er Matt Mariani, framkvæmdastjóri spilaframleiðslufyrirtækisins Abalone, sem hefur þessar hugmyndir og rökstyður þær af töluverðum sannfær- ingarkrafti. Daglegt líf hitti hann að máli er hann var staddur í Reylyvík fyrir skömmu til að kynna nýtt spil, Pyramis. Matt leggur á það áherslu að nútímafólk vilji sífellt læra meira. „Spil og leikir er upplagt tækifæri til þess,” segir hann, „þvi það er skemmtilegast að læra í leik. En sjáðu nútíma ferðamenn. Þeim nægir ekki lengur að liggja á sömu sólarströndinnrí tvær vikur. Þeir vilja fara til fjar- lægra staða, kynnast öðrum þjóð- háttum og ólíkri menningu, og læra framandi tungumál.” Viljum hugmyndir! Á síðasta ári kom út spilið Abal- one, sem hlaut ýmis alþjóðleg verð- laun og hefur í sumum bandarískum skólum verið notað sem kennslu- gagn. í kjölfarið var samnefnt fyrir- tæki stofnað, sem vinnur að þróun og framleiðslu spila. Þá eru til al- þjóðasamtök Abalone-leikmanna, og haldin eru landsmót og heims- meistaramót í Abalone. „Við viðum að okkur hugmyndum að nýjum spilum og einnig nýjum spilareglum fyrir Abalone.” — Til hvers nýjar reglur? Verða þær ekki til að rugla fólk í ríminu? „Það heid ég ekki, annars værum við ekki að þessu,” segir Matt og glottir örlítið. „Það er til ótrúlegur fjöldi fólks, sem dundar sér við alls konar uppfinningar heima hjá sér, en kemur hugmyndum sínum aldrei á framfæri utan veggja heimlisins. Við viljum reyna að ná til þessa hóps og höfum meira að segja hug- myndasamkeppni í gangi um nýjar leikreglur fyrir Abalone.” — Geta allir tekið þátt í henni? „Já, og það væri gaman að fá hugmyndir frá íslendingum, því ég veit að hér eiga margir þetta spil. Nýlega settum við á markað spilakúlur í nokkrum litum, sem notaðar eru í upprunalega spilinu. Upphaflega voru kúlurnar gerðar til að verða við óskum þeirra sem vildu fá litaðar kúlur í stað svartra og hvítra. Fólkið vildi hafa kúlurnar í stíl við gluggatjöld eða húsgögn og það eru ótrúlega margir sem hafa spilið sem stofustáss þegar þeir eru ekki að nota það! í framhaldi af þessu kom upp sú hugmynd að gera spilið, sem hingað til hefur verið tveggja manna, þann- ig úr garði að leikmenn gætu verið fleiri. Við létum fjöldaframleiða marglitar kúlur, sem fólk getur keypt til viðbótar við gamla spilið sitt ef það vill.” Reynir á einbeitingu Matt er augljóslega stoltur af fyrirtækinu sem hann stýrir og seg- ir það einkennast af krafti og nýjum hugmyndum. Sérstaklega er hann stoltur af því að framleiða ekki spil „fyrir þá sem nenna ekki að hugsa”, eins og hann orðar það. Nýjasta afkvæmi fyrirtækisins heit- ir Pyramis og virðist við fýrstu sýn flókið stærðfræðidæmi. „Nei, nei, þetta er ekki bara fyrir stærð- fræðinga,” segir Matt hughrey- standi þegar hann greinir vott af örvæntingu í andliti viðmælanda síns. „Þrívídd og útsjónarsemi er galdurinn að baki þessa spils. Það reynir vissulega á einbeitingu og menn geta ekki spilað þetta með hálfum huga, enda er það yfirlýst stefna okkar að gera spil sem reyna á hugann.” Mennirnir sem hönnuðu Pyramis eru Murray Gould doktor í tónlistar- fræði og Jim Longacre lögfræðing- ur. Báðir hafa áður unnið að ýmiss konar hönnun, bæði á leikföngum og spilum, en Jim Longacre fór í framhaldsnám í rafmagnsverkfræði eftir að hafa lokið lögfræðinámi. „Þessir menn eru dæmi um uppfinn- ingamenn, sem leynast alls staðar. Þeir geta verið ungir, gamlir, mikið eða lítið menntaðir, karlkyns eða kvenkyns. Það skiptir ekki máli, en við viljum kynnast þeim!” ■ Brynja Tomer Morgunblaðið/Sverrir Matt Mariani hugleiðir næsta leik í þrívíddarspilinu Pyramis. Þú kemst um sídir til sjóvar jafnvel þó þú farir krókaleiðir TILBOÐ Matar- og kaffistell, 33 hlutir. Úr hvítu ópalgleri. 6 stk. af hverju, bollum, undirskálum, kökudiskar og djúpir og grunnir diskar. 2 skálar 12 og 20 cm. í þvermál. Einnig fylgir vönduð hitakanna í stíl. Aðeins kr. 3990 fyrir allt þetta! Quelle STÆRSTA POSTVERSLUN EVROPU 4a "anta Þ*ntul sím/e/ðls nartina 50200 VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI SÍMI 91-50200 AFRÍSKUR MÁLSHÁTTUR Land Höfuðborg Antigua og Barbuda St. John’s Bangladesh Dhaka Chad Ndjameina Curacao Willemstad Gambia Bandjul Honduras Tegucigalpa írak Bagdad Kongó Brazzaville Laos Vientiane Lesotho Maseru Maldives-eyjar Male Mauritanía Nouakchott Mósambik Maputo Nepal Katmandu Panama Panamaborg Quatar Doha Saudi-Arabía Riyad Sierra Leone Freetown Surinam Paramaribo Sri Lanka Colombo Trinindad og Tobago Port of Spain Úganda Kampala Uruguay Montevideo Samdráttur í leiguflugi Svía Á FYRSTU sex mánuðum ársins 1991 dróst leiguflug í Svíþjóð sam- an um 20%. Það varð einkum fækk- un á flugi til Krítar, London og Rhodos en lítilsháttar ijölgun var til Majorka. Spánn er vinsælasti staður sænskra í leiguflugi og flest- ir sóttu Kanaríeyjar heim. ■ Bílaumferð bönnuð í miðbnrg Rómar NÆSTU tvo mánuði verður mið- borg Rómar lokuð fyrir einkabí- laumferð. Til þessa er gripið vegna mikillar mengunar sem ógnar ýms- um sögufrægum byggingum þar. Um eitt hundrað þúsund bílar keyra um miðborgina að öðru jöfnu. Nú mega aðeins íbúar á svæðinu og opinberir embættismenn aka þar og verða að hafa til þess sérstakt leyfi. ■ UM FERDAL0G Lelðsögubðk um Madrid LEIÐSÖGU- RIT Um Madrid og merkisborgir Spánar er ný bók Fjölva. Texti er eftir Jónas Kristj- ánsson rit- stjóra og myndir tók Kristín Hall- dórsdóttir en þau sáu um allar fyrri bækurnar í þessum flokki, sem hafa verið um Kaupmannahöfn, London, Amsterdam, París og New York. I bókinni eru upplýsingar um hótel og veitingastaði á stöðunum og ýmsir aðrir fróðleiksmolar, sagt frá merkum stöðum og sögufræg- um. Margar myndir eru í bókinni sem er í handhægu broti og með þykkum kápuspjöldum. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.