Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 11

Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 C 11 Nýr ferðalangur er forvitinn, froðleiksfús on veraldarvanur „SEGÐU mér hverjir vinir þínir eru og ég skal segja þér hver þú ert.” I bandaríska ferðablaðinu Conde Nast Traveler las ég nýverið grein þar sem orðtakinu var breytt „ Segðu mér hvert þú ferð í frí og ég skal segja þér hver þú ert.” Kannski fullmikil einföldun en greinin snýst um að það fari ekki milli mála að ferðavenjur og þarfir séu að breytast, einkum á Vesturlöndum; hinn nýi ferðalangur hefur aðrar hugmynd- ir um hvernig og hvar hann vill vera í leyfum sínum. Ferðalangar á öllum aldri í Banda- JJJ ríkjunum, Evrópu og ef til vill víðar ■■d eru sem sagt að leita nýrra leiða. 5 Ekki þó ódýrari, ferðalög eru að verða Ui þýðingarmeiri þáttur í lífi nútíma- manns á Vesturlöndum en fyrr og hann er tilbúinn að greiða fyrir þau. Ferðalög eru númer þrjú á neyslulista jj Vestur-Evrópubúa og Bandaríkja- IU manna, á eftir húsnæði og fæði — og Ub merkilegt nokk á undan bílnum. Þeir vilja ævintýralegri staði, meira upplýsandi ferðir, þeir vilja ekki ferðast í stórum hópum og láta leiða sig áfram eins og börn í bandi og fá staðlaðar upplýsingar. Þeir vilja koma heim fróðari í orðsins fyllstu merkingu. Þeim nægir ekki að liggja vikum saman á strönd til að safna brúnku á kroppinn og vísi að bjórvömb. „Sólarlanda- ferðir eru ekki að syngja sitt síðasta en í þær fara í framtíðinni í langmestum mæli fjölskyldur og eldra fólk. Hinir yngri og miðaldra hafa meiri löngun í nýtt og fram- andi umhverfi og vita sem er að það er óhollt að liggja í sól daginn út og inn," segir í grein eftir þekktan ferðfrömuð í prýði- legri handbók Wexas-ferðaklúbbsins í Bret- landi. Nýju ferðalangarnir vilja vita hvar þeir eru, komast í kynni við íbúana ekki aðeins sem einhveija skrítna innfædda heldur sem gestgjafa sína. Glansinn er að fara af ferð- um sem byggjast á að allir í stórum hóp séu alltaf saman, þar sem fæstir voga sér út fyrir hótelið hvað þá heldur að borða af réttum í viðkomandi landi. Fólk í slíkum ferðum gæti verið hvar sem er og fer svo í mesta lagi í rútuferðir um nágrennið og starir stóreygt og hálf óttaslegið á „fram- andleikann”. Þeir hafa vanist að aðrir sjái um allt, tíni saman töskur skipti peningun- um og fari með þá á föstu sömu staðina þar sem þeir geta helst borðað svipaðan mat og heima hjá sér og þurfa ekki að ótt- ast að ráði að fá í magann. I stuttu máli er að rísa upp nýr ferðalang- ur, hugmyndaríkari og sjálfstæðari og ver- aldarvanari. Hann vill ekki aðeins gera meira, hann vill lifa heilbrigðara lífi í leyfum sínum, og sjá og skoða með sínum augum Nýi ferðalangurinn vill ekki endilega vera aleinn á ferðalögum, heldur í minni hópum. Og það er líka misskilningur að hann eða þeir sem leita inn á fáfarnar slóðir, oft ein- ir síns liðs, séu ofboðslega hugrakkir. Þeir eru öðru fremur ákaflega gætnir. Það er innbyggð varfærni í þá og þeir tefla ekki svo glatt á tvær hættur. Það sem kann að virðast hugrekki eða jafnvel ofdirfska í augum þeirra sem enn vilja gamla ferðamát- ann er einfaldlega árangur af því að ferða- langurinn hefur unnið sína heimavinnu. Hann skipuleggur af kostgæfni og af því hann hefur lesið sér til verður eðlilegur sveigjanleiki í skipulaginu. Hann er raunsær og veit hvað hann getur og vill og hversu langt má ganga. Þessi ferðalangur flanar ekki út í vitleysu en skapgerð og almenn afstaða skiptir máli. Hann er sjálfum sér nógur og bjart- sýnn að eðlisfari - eða hefur ræktað þá eiginleika án verulegrar fyrirhafnar. í hans augum er flaska til dæmis hálffull en ekki hálftóm. Hann býst ekki alltaf við óhöppum, svo sem að botnlanginn springi þegar hann er fjarri heimaslóðum eða hann beinbijóti sig. Hann veit sem er að líkur á óhöppum eru ekki meiri á ferðalögum. Hann er ekki með hugann bundinn við að eitthvað geti dunið yfir, fyrr en það verður. Þess vegna er hann heldur ekki kvíðinn og hefur því enga ástæðu til að „sýna” hugrekki. í hans augum verður ferð aldrei hversdagsleg vegna þess að hann er í senn forvitinn og. fróður og þess vegna kemur honum alltaf margt á óvart. Hann sér í smáatvikunum ævintýri og komi þær stundir að hann verði gripinn leiðindum tekst hann á við það að kveða þau niður og finnst það spennandi og verðugt viðfangsefni. ■ Jóhanna Kristjónsdóttir en ekki gegnum annarra gleraugu. Hann er ekki ginnkeyptur fyrir tilbúnum ferða- mannaveislum eða sviðsettum þjóðháttasýn- ingum. Bæklingar með unaðslegum lýsing- um á þægindum hótelherbergja, hvað þá heldur myndir af þúsundum sem liggja í kös á vinsælustu baðströndinni vekja hroll hjá honum. En hann er ekki meinlætamað- ur og vill búa búa vel á ferðum sínum þar sem það er í boði, ef ekki kærir hann sig kollóttan. Hótel Mamounia Danadrottning svaf fyrir 150 úús. á Mamounia í FERÐABLAÐI danska blails- ins Politiken segir frá því að Margrét Danadrottning og Hin- rik prins hafi sofið fyrir um 150 þúsund krónur á því fræga hót- eli Mamounia í Marrakesh í Marokkó þegar þau brugðu sér þangað í heimsókn fyrir skemmstu. Bjuggu þau hjónin í einbýlishúsi hótelsins sem er 540 fermetrar að stærð og höfðu einkasundlaug og stóran garð til að spássera í. Tekið er fram að í húsinu séu „ nokkrar rúmgóðar stofur” og þijú baðherbergi. Þau höfðu sérstakt starfslið sér til þjónustu og gátu far- ið um sérstök neðanjarðargöng ef þau vildu komast inn í aðalbyggingu hótelsins. Sauðsvartur almúginn og jafnvel þeir sem eru sæmilega loðnir um lófa eiga þó kost á ljómandi viðráðan- legu herbergjaverði á Mamounia, frá 7.800 kr. fyrir eins manns herbergi og er það svipað og á Hótel KEA á Akureyri og upp í tólf þúsund krónur. Þetta frægasta hótel Afríku verð- ur kynnt í Ferðablaðinu síðar í vetur. Nýr flugvöllur við Aþenu GRIKKIR eru að hefja byggingu nýs flugvallar. Hann verður í Spörtu sem er 25 kílómetra frá Aþenu í austur. Hjá Taomi helladrottningu í Petra „VEISTU hvað mig langar mest til? Að börnin mín læri að lesa. Ég hef aldrei lært að lesa en ég kann latncsku tölustafina. Það kemur sér vel því stundum finn ég dýrindis forngripi í fjöllunum og sel þá ferða- mönnum. Þeir borga mikið. Þeir eru svo ríkir að þeir biðja ekki einu sinni um afslátt. Það skil ég ekki. En þeir kunna ábyggilega allir að lesa. Líklega eru þeir þess vegna svona ríkir.” Taoini hellafrú hrópaði til barnanna að kveikja undir katlinum. Innan tíðar bar drengurinn fram te í glösum sem trúlega hafði gleymst að þvo áður. En teið bragðaðist vel og Taomi lék við hvern sinn fingur. ■g ÉG var í einum hella Petra í Jórdaníu. Petra er rós- rauða borgin, jafngömul tímanum að því er einn ferða- maður lýsti henni. Ég hafði komið frá Amman um morguninn og eftir að inn í íjallaborgina kom langaði 5 mig að skoða hellana sem virtust örlitlir frá jörðu ^ séð. Khalil leiðsögumaður var öldungis hlessa, liann ■gp vildi sýna mér rústir og hof og súlur og æfa sig í enskunni sinni. „Ég kann ekki ensku til að segja þér o frá hellunum.” En lét undan og við príluðum upp. JJJj ÞEGAR efst kom upp á ægiháan hamarinn var eyði- mörkin hvert sem litið var utan þar sem nýja Petra blasti við. Niðri í fjallaborginni innan hamra- veggjanna sáust örverur og dvergúlfaldar á stjákli. Ég kíkti inn hellana þó litlir væru um sig báru þeir augljós merki að búið var í sumum. Khalil sagði að húsráðendur væru niðri að selja „forngripi” og bjóða ferðamönnum á úlfalda- bak. Á LEIÐINNI niður gekk Taomi fram á okkur. Hún var á leiðina í hellinn sinn. Hún greip í hönd mér og bauð mér heim. Fyrir framan hann var slétt hella og þar stóð tjald- ið. Sægur af börnum var að leik, óhrein og sum berröss- uð. Sjálf var Taomi klædd í snjáðan en skrautlegan síðan kyrtil. Hún bauð mér að setjast á þunnar sessur og svo röðuðu börnin sér í kringum hana. Þarna voru kassar, flík- ur og vaskafat og prímus og fábrotin eldunaráhöld. TAOMI sagðist eiga mann sem ætti úlfalda og svo áttu þau öll þessi börn hún mundi ekki töluna. „ Ég kann ekki almennilega að telja, enda gerir það ekkert fyrst ég kann tölustafina,” sagði hún hróðug. DRENGURINN bjó til nýjan uppáhelling og Taomi vildi vita á mér deili. Hvers vegna var ég að príla í hömrunum? Og hvers vegna börnin mín væru ekki með mér? Ég reyndi að útskýra að þau væru komin nokkuð á legg. Hún band- aði frá sér. Full vandlætingar. „Móðir á aldrei að fara frá börnunum sínum.”Þar með var það útrætt mál. ÞAÐ var farið að skyggja þegar við kvöddumst og lögðum Taomi með tvö af börnunum. af stað niður. Henni fannst verst það var of áliðið til að ég gæti hitt manninn hennar og séð þeirra sóma úlfalda. í kveðjuskyni sýndi hún mér leirkolu og armband og ég þóttist viss um að hún vildi að ég keypti þetta fyrir gest- risnina. Óekki. Þetta var gjöf og hún bað mig hugsa til sín þegar ég bæri armbandið. VIÐ fórum eyðimerkurveginn til Amman. Það var komið myrkur og aðeins ljósin á bílnum lýstu leið. Ég steinsofn- aði ogdreymdi að ég væri að drekka te með Taomi í hamra- helli Petru. ■ Jóhíuma Kristjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.