Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 13

Morgunblaðið - 29.11.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVBMBER 1991 C 13 K E N Y A Spennandi kostur fyrir feröaþyrsta fslendinga nær þeir fá nóg. Það er ekki okk- ur að kenna ef þeir borða yfir sig,” bætti hann við og brosti enn breið- ar. Eftir ánægjulegar skoðunar- ferðir seinni daginn, m.a í Karen Blixen-safnið og Bomas of Kenya, bauð forstjóri Lonhro Hótel-keðj- unnar, Perry Hennessay, til veislu heima hjá sér. Þegar komið var inn fyrir rammgert hlið tóku á móti okkur þrír stæðilegir sheffer- hundar. Við þorðum ekki, fyrir okkar litla líf út úr bílunum fyrr en húsráðandi hafði króað hund- ana af inni í bílskúr og gefið skip- un: „ekki drepa”. Að því búnu ÞEGAR hugsað er til Afríku kemur eflaust fyrst í huga fá- tækt og hungurneyð af mynd- um í sjónvarpi eða blöðum. En Afríka er ekki bara fátækt, þó hún sé óneitanlega hluti af dag- legu lífi þorra íbúa. Sé litið fram hjá fátækt, sem víða blas- ir við, er Kenýa kjörin fyrir þá, sem fýsir að víkka sjón- deildarhringinn, kynnast nýrri þjóð, nýjum menningarsiðum og ekki síst nýjum ferðamáta. í Kenýa er fátækt og ríki- dæmi, strendur og safarí og mis- munandi loftslag eftir því hvar er verið. Höfuðborgin Nairobi er inni í landi, í 1.670 m hæð yfir sjó, þar er þægilegt loftslag, um 25 stig á daginn og 15 á næturn- ar árið um kring. Kenýa er á norðausturströnd Afríku, rétt sunnan miðbaugs. Vinalegt við- mót mætir manni hvarvetna og orðið „jambo” halló er kunnuglegt eftir fyrsta daginii. Opinber tunga innfæddra er swahili en enska er mörgum töm. Breskra áhrifa gætir víða þó hátt í 30 ár séu síðan landið losnaði undan yfir- ráðum Breta. í Kenýa er allt af öllu sem ferðamenn langar að sjá og reyna, eins og við, nokkrir útvaldir ís- lendingar, komumst að í ferð þar fyrir skömmu en Kenýa er nýr áfangastaður fyrir ferðaþyrsta íslendinga. Hafa Flugleiðir og Kenya Airways sameinað kraft- ana til að gera þennan „fjarlæga” draum að veruleika. Og fyrir milli- göngu Inga Þorsteinssonar, ræð- ismanns Islands í Nairobi, hafa tekist samningar við ýmsa í veit- inga- og gistihúsarekstri suður frá. Ekkert okkar sjö vissi við hvetju var að búast þegar lagt var í’ann enda hafði ekkert okkar komið til Afríku fyrr. Á rúmri viku gerðum við það sem „hefð- bundnir” túristar gera á 2 til 3 Kíkt inn í masai-þorp. vikum enda var meðalsvefn ekki nema um þrír tímar á sólarhring. Nú bjóðast íslendingum í fyrsta sinn þaulskipulagðar ferðir um Kenýa á vegum Path-fyrirtækisins sem hefur aðalbækistöð í Nairobi. Ingi Þorsteinsson hefur haft veg og vanda af undirbúningi, en hann er framkvæmdastjóri Path. Þó talað sé um þaulskipulagðar ferðir getur hver hagað seglum eftir vindi fyrir ferðina og kemur Path til móts við óskir viðkomandi ferð- amanna þó hér verði drepið á það helsta sem „pakkaferðirnar” inni- halda, sem eru ýmist 2ja eða 3ja vikna. Á 8 dögum fórum við 13 sinnum í loftið og í alls kyns skoðunarferð- ir með bílum frá Prestige Safaris, sem Ingi hefur samið við um flutn- ing íslendinga milli staða. Eftir lendingu í Nairobi að morgni dags var haldið á aldagamalt hótel, Norfolk, sem á töfrandi sögu. Þar var áð í tvo daga, án þess þó að slaka á því Nairobi er heillandi borg með sínar andstæður, ríki- dæmi og fátækt, hvert sem iitið er. Fyrra kvöldið var kvöldverður á einum frægasta veitinga- staðnum, Carnivore, sem er nokkuð utan við þéttbýlið. Okkur var tjáð að þar væri nánast fullt hvert kvöld. Þar er einnig dansstaður og þegar við heimsóttum Carnivore, var þétt- skipaður salurinn enda héldu góð- ir gestir frá London uppi fjörinu, eftirhermur Bítlanna frá Liverpo- ol. „Þú hefur ekki séð Nairobi fyrr en þú ert búin að koma á Carnivore,” sagði framkvæmda- stjórinn og brosti breitt þegar við vorum búin að fá rúmlega nægju okkar af réttunum: dádýrakjöti, antilópukjöti, zebrakjöti, krókó- dílakjöti og gíraffakjöti. „Þið eruð kannski hissa á öllum þessum mat. En okkar „mottó” er að bjóða gestum að borða eins mikið og þá lystir, en við vonum að þeir hafi sjálfir dómgreind á því hve- Villidýrarétt- ur borinn fram á veitinga- staðnum Carnivore, skammt fyrir utan Nairobi. vísaði hús- freyjan okkur í gegnum stof- una og að eink- asundlaug þeirra. Þjónar voru á hverju strái og báru fram drykki og djúpsteiktar sjávarafurðir. Þá var sest til borðs undir berum himni við sundlaugina. Þegar kiukkan nálgðist miðnætti þökkuðum við Hennessy og hans konu höfðing- legar móttökur og undir leiðsögn innfæddra var næturlífið skoðað af kostgæfni, en þar eru ýmsir skémmtilegir klúbbar og dans- staðir. En fátæktin lét ekki á sér standa því úti fyrir flesta skemmt- istaði stóð hópur ungra barna í leit að lifibrauði. Ef farið er til Kenýa eru safarí- ferðir nokkuð sem ekki verður komist hjá enda er landið einn þjóðgarður. Morguninn eftir næt- urklúbbaröltið var haldið í bítið til Masai Mara þjóðgarðsins sem Strendur Mombasa eru gersemi fyrir sól- jyrsta ferðamenn. er um klukkutíma flug. Á af- skekktum flugvelli úti á sléttunum tók á móti okkur leiðsögumaður ásamt bílstjóranum Patrick Mas- heri sem var okkar hægri hönd um sléttur og kynjadýr Kenýa. Hópurinn var sammála um að safarí-ferðin hafi verið toppurinn á tilverunni í Kenýa, af öðru ólöst- uðu því hver ferð hafði sinn „sjarma”. Patrick bílstjóri var masai í húð og hár; hann tilheyrir einum frumstæðasta ættbálkin- um. Þegar hann er ekki að keyra ferðamenn klæðist hann masai- búningi, tekur sér prik í hönd og heldur fótgangandi heim í þorpið sem er í um 12 km fjarlægð frá vinnustaðnum. Og þar býr hann með konu sinni og þremur bömum í moldarkofa og passar sitt búfé. Patrick sagðist stefna að því að eignast þijár konur, en óneitan- lega kostaði það sitt því hver kona væri á 10-12 kýr. Tíminn yrði að leiða í Ijós hvernig honum gengi það. Eftir ferðina til Masai Mara, var haldið aftur til Nairobi og gist í eina nótt. Var þá móttaka hjá Kenya Aimays þar sem við litum augum „masaia í jakkafötum” sem var einn yfirmanna KA. Hann sagðist líka halda í gamlar venj- ur, byggi í litlu þorpi með sínu fólki um helgar. Eg spurði hvort hans markmið væri að eignast margar konur. „Já, tíu ... og helst eina útlenska. Ert þú nokkuð á lausu,” svaraði hann að bragði. Þetta „comment” hans vakti al- menna kátínu en málið var með það sama tekið út af dagskrá. Daginn eftir var flogið til Mom- basa sem er paradís fyrir sól- þyrsta ferðamenn. Þegar við stig- urh út klukkan 8 að morgni í 30 stiga hita og um 85% raka, heyrð- ust nokkrir kveinstafir um hitann á meðal ferðafélaga. Við tókum gleði okkar á ný þegar við komum á Diani Reef Grand Hótel, þar sem við áttum að gista næstu 2 næt- ur. Diani Reef er fimm stjörnu hótel og getur hýst allt að 700 gesti. Þar eru sjö veitingastaðir, diskótek og spilavíti , þijár sund- laugar og hrein, hvít ströndin tek- ur við af laugarbökkunum. Ekki er hægt að koma til Mombasa án þess að fara í „dhow”-ferðir, sjóferðir á gömlum arabískum timbur-skútum. Siglt var um nágrenni Mombasa og farþegum sýnt það markverðasta auk ýmissa sérkennilegra uppá- koma um borð. Á næstunni verð- ur sagt nánar frá Kenýa, landi okkur framandi en hefur samt upp á svo mikið að bjóða. ■ Jóhanna Ingvarsdóttir Ódýrt, þægilegt og spennandi með SAS NORÐURLANDAFARGJÖLD SAS* DANMÖRK SVÍÞJÓÐ Keflavík - Kaupmannahöfn 26.690.- Keflavík - Stokkhólmur 30.630.- Keflavík - Gautaborg 26.690.- NOREGUR Keflavík - Malmö 26.690.- Keflavík - Osló 24.980.- Keflavík - Vásterás 30.630.- Keflavík - Kristiansand 24.980.- Keflavík - Norrköping 30.630.- Keflavík - Stavanger 24.980.- Keflavík - Jönköping 30.630.- Keflavík - Bergen 24.980.- Kefiavík - Kalmar 30.630.- Keflavík - Váxjö 30.630.- *Ver6 míöaö við 5 daga hámarksdvöl (4 nætur) aö meðtalinni aðfararnótt sunnudags. Barnaafsláttur er 50%. Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða ferðaskrifstofuna þína. /fffStS SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 3 Sími 62 22 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.