Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 10

Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 ÞEGAR Á REYNIR _________Bækur______________ Katrín Fjeldsted Þegar á reynir. Umönnun sjúkl- inga með Alzheimer og heilabil- un. Höfundar: Nancy L. Mace og Peter V. Rabins. Útgefandi Mál og menning. Reykjavík 1991. Bókaröðin Líf og heilsa. Bók þessi heitir á frummálinu „The 36-hour day“. íslenska þýð- ingin er styrkt af félagi aðstand- enda Alzheimer-sjúklinga og þýð- ingin gerð af Álfheiði Kjartans- dóttur úr norsku. Formála ritar Jón Snædal lækn- ir og gefur hann bókinni fremur jákvæðan dóm. Hann segir þar að sjúklingar með heilabilun hafi fram undir þetta hlotið litla at- hygli þjóðfélagsins og aðstandend- ur þeirra ennþá minni og vil ég taka undir þetta. Þegar þessi bók var gefin út í Bandaríkjunum fyr- ir hart nær 10 árum hafði hún uppfyllt brýna þörf og hlotið mikla athygli. Þetta er í raun það eina sem ég gat komist að um bókina, engin skýring er á höfundunum og helst svo að skilja að þau séu fólk sem sjálft hafi annast um heilabilaða aðstandendur. Bókin er gefin út sem kilja, hún er 141 bls. á lengd og skiptist í 12 kafla. Talsvert er um endurtekningar í henni, en í raun get ég varla sagt að það sé galli því að endurtekn- ingar ná helst jrfír atriði sem miklu máli skipta og ekki kemur að sök þótt vakin sé athygli á því sama á fleiri en einum stað í bókinni. Nokkuð er stuðst við sjúkrasög- ur eða tilvitnanir í raunveruleg dæmi máli höfunda til stuðnings. Höfundar skilgreina heilabilun í upphafí bókar og einnig í bókar- lok. Alzheimer-sjúkdómur er ein algengasta orsök heilabilunar þótt aðrir sjúkdómar geti valdið heila- bilun. Þá eru einnig til margir heilasjúkdómar sem ekki valda heilabilun. Heilabilun er þannig nafn á flokki sjúkdóma. í Banda- ríkjunum mun því haldið fram að allt að 50% heilabilunartilfella stafi af Alzheimer-sjúkdómi, 20% af fjölstíflum eða æðastíflum í höfði, 20% af báðum þessum sjúkdómum í sameiningu og 10% af öðrum orsökum. Fyrstur til að lýsa Alzheimer- sjúkdómi var Þjóðveiji að nafni Alois Alzheimer (árið 1907). í bókinni er þetta rifjað upp og að fyrsti sjúklingurinn sem lýst var með þennan sjúkdóm hafi verið kona á sextugs aldri og hlaut hún greininguna presenil dementia (ótímabær elliglöp). Flestir telja að sú heilabilun sem fram kemur hjá öldruðu fólki sé hin sama og ótímabær elliglöp eða allavega mjög lík. Oft er talað um þetta sem elliglöp af Alzheimer-gerð. Alzheimer-sjúkdómur lýsir sér oft með hægfara og stundum nær ómerkjanlegri skerðingu á ýmissi heilastarfsemi. Snemma getur borið á minnistapi, viðkomandi verður gleymnari en eðlilegt getur talist og á erfítt með að tileinka sér nýja vitneskju eða ræður ekki við verkefni sem útheimta skýra hugsun og útreikninga. Sjúkling- urinn lendir í erfiðleikum í starfi eða hættir að geta lesið. Persónu- leikinn getur breyst og sjúklingur- Ekki er allt sem sýnist Bókmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Heiður Baldursdóttir. Leyndarmál gamla hússins. Vaka—Helgafell, 1991. Heiður Baldursdóttir fékk ís- lensku bamabókaverðlaunin árið 1989 fyrir bók sína Álagadalinn og sendir nú frá sér ævintýrasögu sem gerist í Reykjavík nútímans. Söguhetjumar em fímm böm á aldrinum tíu til tólf ára. Þau leika sér í holtinu fyrir ofan bæinn og fínna þar gamalt eyðibýli sem heit- ir Sæla. Þau em að bjástra við ýmislegt sem bama er háttur svo sem vegagerð í holtinu í nánd við Sælu, en allan tímann hefur les- andi það á tilfínningunni að brátt muni draga til tíðinda. Björk er tápmikil og hress stelpa og Jó- hanna er besta vinkona- hennar. Þær hafa svarist í systralag og lofað hvor annarri að standa saman í blíðu og stríðu. Við sögu koma líka strákamir Amar og Gunnar, bræður þeirra vinkvennanna. Fimmta söguhetjan er Guðrún seinþroska bam sem er nýflutt til Reykjavíkur og fínnur mikið til þess að hún getur ekki allt það sem önnur börn gera. Af söguhetjunum em það einkum Björk og Guðrún sem lesandinn kynnist best. í sög- una koma einnig dæmigerður glæpón í leðjuijakka og á mótor- hjóli, og drykkjumaður sem hefst við í Sælu því hann hefur eyðilagt líf sitt með drykkjuskap. Það er Guðrún sem er höfundi sérlega hjartfólgin og samúð og skilningur lesandans hlýtur að vera með henni allt frá byijun. Guðrún reynir mjög að uppfylla þær kröfur sem umhverfið gerir til hennar en finnur sífellt til vanmáttar síns. Hún skilur ekki almennilega hvað bömin em að segja og hún getur ekki gengið eins hratt og þau. Þar að auki gleymir hún öllu og ratar ekki um nýja hverfið. Guðrún týn- ist þegar Björk nennir ekki að fylgja henni alla leið heim og sam- viskubitið angrar Björk óskaplega þegar veðrið versnar og enginn veit hvað orðið hefur af vinkonu hennar. Sagan fjallar mikið um samskipti Bjarkar og Guðrúnar og augljóst er að höfundur þekkir börn sem eiga við einhveija erfið- leika að etja. Ævintýrin og spenn- an í kringum Sælu og dularfulla menn sem þar sjást verða skemmtileg umgjörð um vináttu þessara telpna. Sagan er nokkuð löng og væri hún skrifuð eingöngu sem ævin- týri og spennusaga mætti að skað- lausu stytta hana og fella út hvers- dagslega viðburði. En ég held að höfundur sé að koma á framfæri sögu sem eigi að sýna börnum að þeir sem eru seinir, óömggir og kallaðir vitleysingar af þeim sem lítið skilja, geta svo sannarlega staðið fyrir sínu þegar til kastanna kemur. Því má ekkert af sögunni missa sig og öll atvikin byggja upp skilning á því hvers vegna böm 01 Q7fl LÁRUS Þ. VALDIIVIARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI L I I JU’lIO/U KRISTINN SIGURJÓNSS0N, HRL. L06GILTURFASTEIGNASAU Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: í Háaleitishverfi - laus strax Mjög góð 4ra herb. íb. á 3. hæð urr. 100 fm. Sólsvalir. Sérhiti. Út- sýni. Mikil og góð sameign. Á söluskrá óskast Fjársterkir kaupendur óska m.a. eftir: Sérhæð í Vogum, Heimum, nágr. með 3 svefnherb., bílsk. eða bílskrétti. 4ra-5 herb. góðri íb. í Vesturb. 3ja-4ra herb. nýl. íb. miðsv. í borginni. Rétt eign borguð út. 2ja-3ja herb. íb. í Vesturborginni. Sérbýli í Vesturb. eða á Nesinu m. 4-5 svefnherb. og góðu stofu- rými. Bflsk. fylgir. Nokkrar eignir með góðum lánum til sölu i borginni. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Opið á laugardaginn á venjulegum tima. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 -21370 Heiður Baldursdóttir eru mismunandi. Höfundur skilur lesandann einnig eftir með óleystar gátur eins og um konuna í holtinu og minnisklútinn. Samtölin í sögunni eru eðlileg og samskipti systkina eru mjög sannfærandi. Það er að sjálfsögðu óþolandi að eiga bróður sem er á gægjum og flissar þegar verið er að fremja helgiathafnir eins og að sveijast í systralag með fuglsvæng og mold úr kirkjugarðinum! Málfarið á sögunni er gott og svör Guðrúnar eru dálítið öðruvísi en hinna bamanna. Ég minnist þess ekki að hafa lesið íslenska bamasögu fyrr þar sem ein helsta söguhetjan er sein- þroska. Guðrún yfirvinnur hræðsl- una við að villast, kemur vinum sínum til hjálpar og er tekin inn í systralagið. Höfundur hefur gert hér góða sögu sem er í senn spenn- andi og vekjandi. VEUIÐ SPENNANDI STARFSMENNTUN .EIKHÚS- Xí FÖRÐUN SNYRTIFRÆÐI • Alþjóðlegt prófskírteini • Dagpeningar • Starfsþjáifun innifalin • Aðstoð við útvegun húsnæðis og atvinnu. • Dag- og kvöldskólar í Odense og Kolding Nánari upplýsingar í SÍMA+45 75 55 81 11 inn orðið þunglyndur. Seinna dregur úr hæfíleikum til að hreyfa sig og tala. Fyrst í stað á sjúklingurinn erfítt með að finna rétta orðið yfír hlutina eða notar röng orð, en smám saman reynist honum erfítt að tjá sig. Hann hættir að skilja útskýringar, hætt- ir að geta lesið og horft á sjón- varp. Verkefni sem áður vom auð- veld verða smám saman erfíð við- ureignar eða óleysanleg, rithöndin breytist og hreyfíngar verða klunnalegar. Sjúklingurinn villist, gleymir að hann hefur kveikt á eldavélinni, misskilur það sem ger- ist og dómgreind skerðist. Persón- uleikinn breytist og sjúklingurinn fær kannski óvænt reiðiköst. Þessa lýsingu, sem tekin er úr 11. kafla bókarinnar, kannast margir við. Það að annast um fólk með heilabilun er oft mikið álag á aðstandendur og fjölskyldur og því afar jákvætt að fram komi bók handa þessu fólki til að styðjast við, leita svara við spumingum, og vita hvemig rétt sé að bregð- ast við þeim breytingum sem heila- bilaður einstaklingur óhjákvæmi- lega veldur á fjölskyldulífi. Höf- undar þessarar bókar gera aug- sýnilega ráð fyrir því að fjölskyld- an axli þá ábyrgð sem fylgir veik- indum af þessu tagi og það er leið- arljós í bókinni og virðist sjálfsagt mál að það sé fjölskyldan sem sinni um veikan einstakling af þessu tagi. Því er haldið fram að fjölskyldan sé hæfust til að ráða fram úr vand- anum. Höfundar vitna á nokkrum stöðum til eigin reynslu, en segja ekki nánar í hveiju sú reynsla hafi verið fólgin. Mikilvægt atriði í þessari bók er lýsing á því hvemig rétt sé að svara rugluðu fólki, bregðast við einkennilegu atferli og ýktum við- brögðum eða ofurviðbrögðum eins og þau em stundum kölluð. Það er lögð áhersla á líkamlega snert- ingu, það að leiða athyglina að einhveiju öðru og ánægjulegra fremur en að þrasa eða rífast við heilabilaðan sjúkling og eftir megni að hindra að reiðiköst dragi dilk á eftir sér. Ráðleggingar em um það hvemig takast eigi á við hvimleiða hegðun, breytingar á kynhegðan, kröfur sem sjúklingar oft setja umhverfí sínu, ofdekmn, sljóleika, deyfð og tortryggni. Á einum stað er þess getið að það kunni að koma að því að að- standendur ráði ekki lengur við vandann, og vakin athygli á því að menn verði að gera sér ljóst hvenær getu þeirra sé ofboðið. Þegar svo er komið er nauðsynlegt að þjóðfélagið, samhjálpin, geti tekið við. Þar er oft pottur brotinn og mjög erfiðar aðstæður geta komið upp frá því að fjölskyldan gefst í raun upp á að sinna um hinn veika og'þar til fundinn er staður til frambúðar, stofnun eða heimili, sambýli þar sem hinn sjúki getur búið. Ýmsar fjölskyldur hafa lagt á sig óhemju erfíði, skipulagt samstarf, skipst á í umönnun og í raun gert hið ómögulega mögu- legt. Aðrir bregðast illa við, vilja fírra sig ábyrgð og geta ekki hugs- að sér neina skerðingu á sínu eig- in persónulega frelsi, sem er óhjá- kvæmilegur fylgifískur þess að sinna um sjúklinga af þessu tagi. Ein sú fyrsta sem ég man eftir að kom fram í fjölmiðlum og ræddi af hreinskilni um erfiðleika við umönnun Alzheimer-sjúklings var Gerður Pálmadóttir kaupmaður í Flónni. Ég tel víst að með starfi hennar og annarra aðstandenda sem síðar mynduðu Félag aðstand- enda Alzheimer-sjúklinga hafí ver- ið gert mikið gagn og stuðlað að nauðsynlegri umræðu í þjóðfélag- inu. Innblásturinn sem ræður Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Michael Blake: Dansar við úlfa Þorsteinn Thorarensen íslensk- aði Útg. Fjölvi 1991 Sögur um baráttuna milli hvíta mannsins og indjána í Bandaríkj- unum hafa alltaf verið vinsælt les- efni. Þó var áður og fyrrum í þess- um bókum heldur einhæfur boð- skapur; indjánarnir voru grimmir villimenn og hvíti maðurinn var þess vænni og tápmeiri sem honum tókst að ráða niðurlögum fleiri indjána. En þó hafa þeir alltaf verið til sem tóku málstað indjánanna og reyndu að koma á framfæri að þeir voru að vemda líf sitt og land sem hvíti maðurinn tók af þeim með óheyrilegri grimmd og of- forsi. Fram á þennan dag hafa indjánar verið undirmálsmenn í Bandaríkjunum þó baráttan sé ekki háð með byssustingjum eða bogum og örvum lengur. Fram- koma Bandaríkjamanna við indj- ána verður alla tíð einhver ljótasti blettur í þeirra sögu. „Dansar við úlfa“ er stórbrotin saga um liðsforingjann John Dunb- ar sem kynnist Sioux-indjánum og fer og lifir með þeim þó svo það kosti hann æruna. Lýsingin og saga Dunbars og indjánanna og hvernig þeir ná smám saman tengslum sem hljóta að verða óijúfanleg er yndislegur lestur og er um fram allt hrífandi vegna þess hveijum tökum höfundur tek- ur söguna, hér er hvorki rómantík og tjara eða tilfinningasöm vella, heldur er lýst af skilningi og raun- sæi og reynt að draga fram beggja hliðar þó óneitanlega fari höfundur að snúast æ meira gegn sínum hvítu bræðrum eftir því sem á líð- Michael Blake ur - kannski án þess að ætla sér það í upphafi. Kvikmyndin var sýnd hér mán- uðum saman ef ég man rétt og hlaut ósköpin öll af viðurkenning- um og verðlaunum og Kevin Kostner í hlutverki Johns Dunbars verður öllum minnisstæður og raunar meira en það, hann lék ekki Dunbar, hann varð að honum. Ég hafði ekki séð kvikmyndina þegar ég las bókina nú fyrir jólahá- tíðina, en sá hana, las bókina aftur og langaði strax til að sjá kvik- myndina öðru sinni. Bókin er að sönnu ítarlegri í ýmsu og atvikum í sögunni breytt, bætt inní, fellt út eða einhveiju hnikað til. Það er erfítt að segja til um hvor betri sé kvikmyndin eða bókin. Ég hall- ast að því að þær séu eiginlega óijúfanlegar heild, báðar nauðsyn- legar. Bókin er vel útgefín og letur skýrt. Þýðing Þorsteins Thorarens- en er á góðri íslensku og hann nær andblæ sögunnar svo ég ímynda mér að fátt fari forgörðum úr hinni upprunalegu sögu Blake.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.