Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 14

Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 Árleg bókaverð- laun bókaútgefenda eftir Svein Einarsson Lögmaður að nafni Þorvaldur Ragnarsson stingur niður penna í Mbl. fyrir jól í tilefni af greinar- komi sem ég skrifaði vegna svokall- aðra „íslenskra bókmenntaverð- launa“. Þar sem nokkurs misskiln- ings gætir í skrifum lögmanns, veit- ir þetta mér kærkomið tilefni til að árétta þau sjónarmið varðandi um- rædd verðlaun, sem ég tel eðlilegt að almenningur átti sig á. Ég gerði mér auðvitað grein fyr- ir því, að skensarar myndu grípa mína fyrri grein fegins hendi; menn eru ekki vanir því, að svo ærlega séu viðurkennd mannleg viðbrögð; það þykir fínna að ala á gremju sinni lengi og heimullega ellegar svala metnaði sínum eftir krókaleið- um valdataflsins. Allt læt ég mér það í léttu rúmi liggja, þetta var mín aðferð til að losa mig við gremju og er hún nú úr sögunni; hér eftir mun ég virða verðlaun sem þau eru verð, og er það einmitt það sem mér skilst að lögmaðurinn sé að mælast til. Hvemig bókakom þetta velkist var hins vegar ekki aðalatriðið, þó að mér hlypi kapp í kinn vegna nýrrar fræðigreinar, sem er að nema hér land; bókmenntasögur eru margar til, myndlistarsaga, tón- listarsögu eru menn á launum til að skrifa, en í leiklistarsögu er ekki einu sinni kennslustóll. Þessi atvik urðu hins vegar til að opna augu mín (og reyndar margra annarra, góðu heilli). Mátti það hver vel læs og sanngjarn maður skilja, ef hann hafði vilja tdl. Það fer enginn óvit- laus maður að heimta það, að hann verði efstur í bekknum; hins vegar höfum við hingað til litið á það sem æskilegan íslenskan lífsmáta, að allir ættu nokkum veginn sama rétt á að fara í skóla. M.ö.o. ef það hefur enn farið framhjá einhveijum, þá er hér um þijú stig að ræða, fyrst leggja bókaútgefendur fram verk til útnefningar, síðan velur dómnefnd þau verk, sem útnefnd em og loks löngu síðar velur svo (önnur?) dómnefnd verðlaunahafa. Mín athugasemd var gerð, áður en dómnefnd hafði útnefnt eina eða neina bók, enda fjallaði hún. alls ekki um þær bækur, heldur að það skuli vera í höndum útgefenda að ráða því, að sumar bækur em lagð- ar fram og aðrar ekki. Lögmanninum okkar hefur því skotist yfir það sem er kjami máls- ins: í fyrsta lagi em það bókaútgef- endur og þeirra geðþótti (eða aura- leysi), sem ráða því, hvaða bækur eru sendar dómnefnd. Aðrir en þeir, sem eru í klúbbi bókaútgefenda, komast þar ekki að, og mikill hluti þeirra verka, sem út korTia á hveiju ári, t.d. þeirra sem gefin em út á eigin vegum, standa utan við og koma ekki til álita. Reynslan hefur sýnt, að bókaútgefendur hyllast fremur til að gefa þessar rúmar 30 þúsundir sem áskilið er, með þeim bókum sem við það kunna að fá aukna sölumöguleika, að verða út- nefndar, enda er þá útnefningunni ósgart hampað í auglýsingum. í öðm lagi: Eftir að bókaútgef- endur hafa gert sitt val, kemur til kasta dómnefndanna að standa fyr- ir sjálfri útnefningunni. Bókaútgef- endur hljóta sjálflr að skipa um- ræddar dómnefndir (nema það sé forseti íslands, sem er þá hálfu verra). Dómnefndimar hafa semsé ekki leyfi til þess að velja úr nema hluta af uppskem ársins; hins vegar er þeim ætlað að starfa á mjög ein- kennilegum forsendum og í ógnar flýti, því að niðurstaða þeirra þarf að verða gjörð heyrinkunn hálfum mánuði fyrir jól, jafnvel áður en allar bækur em út komnar. Hvers vegna? Ætli það liggi ekki í augum uppi. Hins vegar kemur svo langt hlé upp á hálfan annan mánuð áður Sveinn Einarsson „Er svo mál að linni af minni hálfu og verður ekki fjölyrt meira, nema því aðeins, að ein- hverjir taki sig saman um að skora á forseta vorn að ljá máli þessu ekki lið fyrr en bókaút- gefendur hafa fundið leiðir til þess að láta verðlaunin rísa undir nafni eða ákveði að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir; undir slíkt skjal væri ég fús að krota nafnið mitt.“ Það hvarflar ekki að mér annað en okkar ágæti lögmaður sjái á þessu fyrirkomulagi ákveðna meinbugi, svo sem fleiri og fleiri era farnir að sjá. Ekki dettur mér heldur í hug annað en bókaútgefendum hafí gengið gott til, þegar þeir efndu fyrst til þessara verðlauna og hafa haldið, að þau myndu hefja veg bókarinnar í augum almennings. En þeir eiga líka að vera menn til að horfast í augu við, að núverandi fyrirkomulag vekur ekki traust, og heitið „Hin íslensku bókmennta- verðlaun" er ekki réttnefni; þorri fólks lítur á þau sem „prangara- happdrætti", eins og Helgi Hálfdan- arson orðaði það í nýlegri blaða- gréin. Annaðhvort eiga bókaútgefendur að taka upp heitið Hin árlegu bóka- verðlaun bókaútgefenda, og þá geta þeir haft umrædd verðlaun upp á þau býti, sem þeir télja smekkleg- ast eða sér haganlegast; en þá á líka forseti íslands ekki að koma nálægt þeim. Hitt er að breyta regl- unum þannig að verðlaunin auki ekki veg og virði einstakra sölubóka á kostnað annarra, heldur bók- menntanna sem slíkra, og eru til þess ýmsar leiðir. Er svo mál að linni af minni hálfu og verður ekki fjölyrt meira, nema því aðeins, að einhveijir taki sig saman um að skora á forseta vorn að ljá máli þessu ekki lið fyrr en bókaútgefendur hafa fundið leið- ir til þess að láta verðlaunin rísa undir nafni eða ákveði að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir; undir slíkt skjal væri ég fús að krota nafnið mitt. FRÁ HEILSUGÆSLUSTÖÐ KÓPAVOGS KÓPAVOGSBÚAR Frá og með 01. janúar 1992 verða símanúmer á símatíma lækna stöðvarinnar sem hér segir: Nafn læknis: Sími: Símatími: BJÖRN GUÐMUNDSSON 642743 Mán. til föstud. 12.00 - 12.30. EYJÓLFUR Þ. HARALDSSON 642748 Mán., þri. og fös. 15.30 - 16.00 Mið. og fimmtud. 8.15 - 8.45. GEIR H. ÞORSTEINSSON 642748 Mán. til föstud. 13.30 - 14.00. GUÐSTEINN ÞENGILSSON 642749 Mán. til föstud. 11.30 - 12.00 KRISTJANA KJARTANSDÓTTIR 642749 Mán. mið. og fim. 9.30 - 10.00. Þri. og föstud. 15.00 - 15.30. SIGURÐUR INGI SIGURÐSSON 642743 Máfi. til föstud. 14.30 - 15.00. STEFÁN BJÖRNSSON 642743 Mán. til föstud. 11.00 - 11.30 VÉSTEINN JÓNSSON 642748 M.án. og þriðjud. 13.00 - 13.20 Fim. og föstud. 13.00 - 13.20. Á öðrum tímum verður samband í gegnum skiptiborð, sími 40400 ATHUGIÐ: Frá og með 1. janúar 1992 breytist opnunartími stöðvarinnar og verður framvegis frá kl. 8.00 til 17.00 alla virka daga. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA RAUTT EÐAL GINSENG krefjandi. Þess vegna nota ég Rautt eðal-ginseng. Þannig kemst ég í andlegt jafn- vægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið." Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák. - þegar reynir á athygli og þol Hvert hylki ' inniheldur 300 mg af hreinu rauðu eðal-ginsengi. VASKUR OG VAKANDI en hin eiginlegu verðlaun eru veitt, og er nú ekki lengur þessi asi; skýr- ingin augljós, því bóksala mun detta niður í janúarmánuði. Heyrðn! Innritun er hafin Símar 642535/641333 Kennum alla almenna samkvæmis- og gömlu dansa. Kennslustaðir: Kópavogur - Álftanes - Seltjarnarnes - Tónabær, Reykjavík Hip Hop Nýtt 10 vikna nómskeið. Janúartilboð 2ja mánaða leikfimi - eróbikk - lOtímaríljós, kr. 5.500,- Gestakennari skólans Vernon Kemp Með dansandi kveðju Dugný Björk clunskennuri DSÍ. Dí. ICBM Höfundur er dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Sjónvarpinu. Orðuveit- ingar á nýársdag FORSETI íslands sæmdi á nýárs- dag, samkvæmt tillöjgu orðu- nefndar, eftirtalda Islendinga heiðursmerkjum hinnar íslenzku fálkaorðu. Daníel Guðmundsson, fv. odd- vita og bónda , Hmnamanna- hreppi, riddarakrossi fyrir störf að sveitarstjórnarmálum. Guðmund Benediktsson, ráðu- neytisstjóra, Reykjavík, stjömu stórriddara fyrir störf í opinbera þágu. Hans Jörgensen, fv. skólastjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu aldraðra. Höskuld Jónsson, forstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að ferðamálum. Jóhönnu A Steingrímsdóttur, Arnesi, Aðaldal, riddarakrossi fyrir störf að félagsmálum. Jón Olgeirsson, ræðismann, Grimsby, stórriddarakrossi fyrir störf í þágu íslands erlendis. Lovísu Ibsen, sjúkraliða, Súg- andafirði, riddarakrossi fyrir störf að heilbrigðismálum. Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóra, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf að markaðsmálum sjávarútvegsins. Markús Örn Antonsson, borg- arstjóra, Reykjavík, ariddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Othar Ellingsen, forstjóra, Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir störf að félags- og verzlunarmálum. Ragnar Arnalds fv. ráðherra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Sigríði Hagalín, leikara, Reykjavík, riddarakrossi fyrir leikl- ist. Sigurð Iljaltason, fv. fram- kvæmdastjóra, Höfn, Hornafirði, riddarakrossi fyrir störf að sveitar- stjórnarmálum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.