Morgunblaðið - 03.01.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.01.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 17 blossar myndatökunnar væru sífellt framan í honum? Gæti rithöfundur- inn komið orðum á blað, ef hann yrði sífellt að standa skil á því, sem hann er að gera, undirbúa eða hyggst snúa sér að? Gæti smiðurinn eða múrarinn eða vélsmiðurinn ann- ast sín kröfuhörðu störf við slíkar aðstæður? Ég dáist oft að alþingismönnum fyrir að glata ekki algjörlega ró sinni. En ég harma oft atganginn og friðleysið, af því að slíkt hlýtur að koma fram í vinnubrögðum og draga úr árangri, sem þjóð öll nýt- ur eða geldur. Jafnvel hefur mér dottið í hug, þegar mest gengur á, hvort það væri ekki vænlegri kostur fyrir þá, sem með vald fara og ábyrgð bera á framtíð- minni og þessarar þjóðar, ef þeir fengju meiri frið, meira næði, yrðu ekki sífellt að vera að svara spurningum og gera grein fyrir skoðunum. Að ég nú tali ekki um, þegar sífellt er verið að efna til hólmgöngu og etja „Orðin eru miklu dýrmætari en svo o g áhrifameiri að megi fara gáleysislega með“ Prédikun herra Olafs Skúlasonar biskups í Dómkirkjunni á nýársdag Guðspjall: Lúkas 2,21 Gleðilegt nýtt ár. Og ég þakka ekki aðeins þeim, sem ég hef haft einhver samskipti við á liðnu ári, heldur öllum. Já, öllum íslendingum. Þetta eru for- réttindin við að vera hluti þjóðar, sem telur ekki milljónir þegna. Okkur fínnst við vera stór fjöl- skylda. Þannig er hægt að hugsa til allra í senn og þakka öllum án þess að ijöldinn rugli og ólíkar að- stæður geri samstöðu ómögulega. Vitum þó vitanlega vel, að mis- jöfn eru áhrifin, sem við höfum orðið fyrir frá þessari heild, sem við köllum ísiendinga. Sumir hafa lagt fram mikinn og stóran skerf. Aðrir hafa verið í fjarlægðinni, svo að vart hafa áhrif þeirra gárað far okkar. En þeir hafa þá vafalítið miðlað öðrum og það er því við upphaf nýs dags á nýju ári hægt að yfirfæra kveðjur og þakkir, sem ég tók mér í munn yfír á aila aðra. Ég fæ þá notið þeirra forréttinda að færa það í búning máls míns, sem skírskotar til allra og mælt hefur verið þeirra í milli, sem flytja og þiggja sérstakar þakkir. Það geri ég vitanlega núna líka. Þakka þeim sérstaklega, sem stærstan skerf hafa átt í heild ársins, sem við kvöddum í nótt, og ég hef verið hluti af með þeim. Þetta hefur ver- ið árið okkar allra, alira íslendinga og allra manna. En það er líka sér- eign mín og þeirra, sem ég hef verið í mestri nánd við. En hve djúpt rista þakkir? Og hve lengi varir brosið, sem kann í nótt að hafa verið feimnislegt, jafn- vel hikandi og ekki alveg vitað, hvemig túlka skyldi. Eða dettur nokkrum í hug í alvöru, að allir hafí fundið til sömu hughrifa þakk- ar og túlkunar í orðum, þegar rétt var hendi eða boðin kinn við klukku- slátt á miðnætti? Það er auðveldara að láta heild ráða hughrifum, þegar þakkað er fyrir mánuðina tólf, held- ur en það er að láta þá einstakl- inga, sem næst hafa staðið njóta sérstöðu sinnar umfram heildina. Þá yfírfærist hið almenna yfir á einstaklinga eða öfugt, svo að hið sérstæða spannar hið almenna. Og hvemig kemur það út og hvernig gerum við upp þær sakir? Eða til að halda áfram, svo sem upp var lagt, hvemig gerðum við upp þær sakir — í nótt? Mér hafa tjáð misánægðir versl- unarmenn, að annríki daganna fyr- ir jól geti valdið úrslitum um af- komu fyrirtækisins, þegar árið allt er gert upp. Þetta er þáttur jóla í afkomu og horfum. En þessir sömu menn herma líka, að annríkið milli jóla og nýárs sé einnig mikið, enda þótt af öðrum toga sé spunnið. Fyrir jól er verið að kaupa og máta og velja. Eftir jól er glampi og spenna í huga. í það minnsta þeirra, sem hafa ekki látið andann hverfa í gjörningum vanans, tíðarandans, og velja gjafír af innri þörf og sem möguleika til þess að gleðja og kveikja bros. Og hafa ekki farið með nokkurri ólund út á stræti og torg og yfírbyggðar miðstöðvar til þess að uppfylla kvöð, sem þeim er ami að, en telja engu að síður, að sér sé skylt að verða við. Þær gjafir hef ég aldrei getað skilið eða réttara þá hugsun, sem er að baki gjöf, sem rétt er fram af þannig kvöð. Og ég reyni ævinlega að snúa mér undan sjónvarpsskermi, ef á honum birtist ergilegur- leitandi jólagjafar og fjargi/iðrast yfír ánauð og kvöðum. Og sjáist slíkur í blað- inu, sem ég er að lesa, er ég fljótur að fletta og leita annars. Að gefa með ólund er eins og að setja upp hanska þegar heilsað er til að forð- ast snertingu. Að leita gjafar með gleði og láta hana túlka hið sama — og gæta að takmörkunum í fjár- hag — er að snerta í anda hans, sem sungið var um við fæðingu og síðan gekk um og gjörði gott, eins og guðspjallamaðurinn dregur sam- an í stuttri lýsingu á lífsferli hans, sem er frelsari manna. En þrátt fyrir val með vandvirkni og afhendingu í gleðibrosi, getur verið nauðsynlegt að skipta. Ég þurfti þess, þegar umbúðir brott ‘ teknar leiddu hinn sama hlut í ijós í tveimur pökkum, já, jafnvel þrem- ur. Og skilningur þess, sem seldi, var til staðar, svo að ég gat valið annað í þess stað, sem þegið hafði verið. Og breytti engu um gjöf eða þakklæti í huga vegna þess, sem vildi gleðja mig. Það er gott að geta skipt. Gjöfum getum við skipt og þegið aðrar í staðinn, jafngóðar og jafnsannar í túlkun hins góða anda. En hversu margir litu í ásjónu þeirra, sem næst stóðu í nótt og hefðu gjaman viljað breyta nokkru, þegar litið var til baka til annarra andartaka og jafnvel annarra daga og stunda? Skyldu þeir ekki vera býsna marg- ir, sem vildu endurheimta orð, sem kannski túlkuðu vel á þeirri stundu, en voru þó heidur beitt, þegar séð var, hver áhrifín urðu? Eða skyldi ég vera einn um það að vilja gjam- an hafa til þess möguleika að láta sum verk liggja við götu óunnin en önnur með öðmm hætti, þegar litið er til baka til liðins árs, þess sem aldrei kemur til baka? Nei, ég veit mig ekki einan með þá löngun að geta breytt og fært til annars veg- ar. En getum við það, eftir að hið liðna tilheyrir sögunni í skauti ald- anna? Ég hef að vísu lesið bækur, sem eiga að túlka viðburði, sem ég hef verið hluti af og þekki þó ekki það sem lýst er. Það heitir víst skálda- leyfí. En skelfíng kemur mér það þó einkennilega fyrir sjónir. Ég hef líka heyrt flutta í töluðum orðum lýsingu, sem hvergi hefur verið fót- ur fyrir og jafnvel vitað orð lögð mér og öðmm í munn, sem aldrei hafa verið mælt. Þetta heitir víst ekki skáldaleyfi og á þó fyrirmynd í Gróu gömlu. Lifír hún enn lífí sínu, og forðast ég að kalla það gott líf, af því að biturleiki þess, sem litar viðburði með þessum hætti eða semur frá rótum, hlýtur að skemma sálina. Nei, dögum fáum við ekki breytt, né heldur kallað orð til baka eða lýsingar, sem frá okkur hafa mnnið og lifa þá sínu sjálfstæða lífí í end- urflutningi og alls kyns viðbótum. Við fáum ekki skipt þessu eins og gjöfum frá aðfangadagskveldi, því er nú miður. Þess vegna vex undran mín með ámm og aukinni reynslu á því, hversu gáleysislega er farið með orð og hve fáránlegt framferð- ið er oft í túlkun á skoðunum og í málflutningi. Þetta leitar títt á hugann, þegar horft er hér yfír götu úr forkirkju Dómkirkjunnar á hið virðulega hús, sem hýsir Alþingi og á sér meiri sögu en flest annað, sem við höfum tekið í arf og enn njótum. Viður- kennd er krafa á fjölmiðlaöld, að allir hafí rétt til að vita og fylgjast með. Ekki síst þegar um þá er fjall- að, sem meim ráða en aðrir og það er áformað, sem alla eða flesta hlýt- ur að skipta miklu. En hjá mér hefur títt vaknað sú spurning, hversu margir kærðu sig um það, að vinnustaður þeirra væri eins höfuðsetinn og er Alþingishús- ið hér í næstu grennd Dómkirkju við Austurvöll? Gæti kaupmaðurinn unnið, ef suð myndavélarinnar og 4 vinningar á kr. 5.000.000, 6 vinnij g a r á k r. 1 0.000.000, mönnum saman í leit ágreinings- efna. Hvernig væri að hugsa sér, að fjölmiðlahetjurnar fengju aðeins aðgang að vinnustað alþingismanna á sérstökum dögum? Og ég held að virðing þeirra yxi frekar í réttu hlutfalli við frið þeirra að sinna stjórnar- og löggjafarstörfum, held- ur en hitt. Og má þá vel rifja upp orðtækið um ljúfan, sem verður leiður við lengri dvöl og þá á hlið- stæðu í tíðum vitjunum. Hefur mér fundist slíkt ekki fjarri lagi við sífelld viðtöl í sjónvarpi við sömu mennina og greinargerðir í blöðum með tilheyrandi myndum. Veit ég fyrir víst, að ekki yrðu af- köst mikil á biskupsstofu, ef við yrðum að sætta okkur við hið sama og alþingismenn. Og erum við þó yfirleitt sammála í sömu fylkingu með sameiginlegt markmið fyrir augum, hvað þá við skiptumst í flokka og í meirihluta og minni- hluta. Orðin eru miklu dýrmætari en svo og áhrifameiri, að megi fara gáleysislega með. Orðin eru eins og verkin og hljóta að standa eða fyrnast, hljóta að byggja upp eða rífa niður. Getum við sjálfsagt einna best skiiið hlut þeirra í lífi, ef við húgsum okkur einhvetja stund, eða jafnvel dag án orða. Að ekki sé nú talað um ævi alla. Og árið, sem við höfum kvatt, var merkilegt ár, slíkra viðburða, að greinahöfundar og dálkasmiðir hljóta sérútgáfur miðla sinna til þess að gera því öllu skil. Margt þessara þátta hefur haft á sér já- kvætt yfirbragð og höfðar til feg- urðar og heilla, en því miður hefur alltof margt mátt rekja til þess, sem spillir, eyðir og tærir. Og eru þá ekki aðeins orðin ein að verki, held- ur sjáum við afleiðingar þess, þegar grimmd túlkar í verki, það sem orð flytja, í sundurtættum húsum, eyddum mannvirkjum og hræddum ásjónum barna sem fullorðinna, er alls ekki geta skilið, hvaða örlög þeim eru búin og af hvaða toga spunnin hafa verið. Eitt úr hópi hins ömurlega og ljóta hefur verið gíslatakan og ein- angrun fanga við slíkar aðstæður, að vart er hægt að hugsa sér mann gera öðrum slíkt. Og þó var það og þó er það. Og enn virðast þeir, sem slíkt hafa stundað ekki finna til annars en algjörrar réttlætingar verka sinna vegna þess málstaðar, sem þeir telja sig vinna gagn með slíku atferli. Þar sjáum við orðin, hörð og grimm og tærandi yfirfærð til þess raunvemleika, sem oft er dulinn að baki þeirra, þegar mælt em af gáleysi eða heift andartaks- ins, öfund eða illvilja, nema allt fari saman. En ég staðnæmdist við lýsingu þeirra viðburða, sem gerst höfðu í veröldinni þá tvö þúsund fjögur hundruð fímmtíu og fímm daga, sem Terry Anderson hafði verið í haldi manna, sem hættu að láta orð duga en gripu til verka, sem orð höfðu fyrr túlkað. Ekki rifja ég upp þessa atburði hinna tæplega fjögur þúsund og fímm hundmð daga og em svo margir, að hver og einn hlýtur að freistast til að hverfa sjálf- ur jafnlangan spöl eigin ævi til baka til samanburðar. Og mun þá fyrst ljúkast upp gátt til þessara hörmunga, písla og örvæntingar. En það er eitt, sem mig langar til að minnast á frá þessum tíma og Terry Anderson segir sjálfur, að hafí verið hvað mesta áfallið. Þetta gerðist á jólum 1986. Já, á jólum 1986. Hvar varst þú þá? Hvað höfðumst við þá að? Minn- umst við þeirrar hátíðar sérstak- lega? Jól 1986. Og efast ég um, þótt spurt hafi, að margir geti kall- að þau fram án nánari athugunar. En Terry Anderson segist þá hafa kynnst svörtustu örvæntingu og ömurlegustu löngun til uppgjafar. Af hveiju? Hann var sjálfur í ein- angrun, en gat þó séð aðra fanga þijá. Hann hafði lært merkjamál í gagnfræðaskóla sem var byggt á einfaldri notkun stafrófsins. Þetta hafði hann kennt samföngum sínum og þannig gátu þeir „talað“ saman. Hann miðlaði þeim, sem næstur var, hugsunum sínum á þessu merkjamáii og naut hins sama. Tók síðan ofan gleraugun, en án þeirra gat hann naumst nokkuð greint — missti þau og braut. Þannig lokað- ist honum leið orðanna og einangr- unin varð enn meir yfírþyrmandi. Ekkert merki náði til hans, ekki eitt orð, sem stafað varð, svo að hann skildi. Jólin 1986 urðu ömur- legasti tími daganna allra, 2455, af því að þá bárust engin orð, ekk- ert sagt, ekkert orð numið, engin orð í einangrun ömurleikans. Ég mæli orð. Þið heyrið, sem hér sitjið í Dómkirkju á nýársmorgni eða látið útvarp bera ykkur. Og er líður á dag verða orðin enn fleiri, óteljandi eins og bamið segir. Og hversu mörgu orð eru það ekki, sem við höfum mælt á árinu öllu, sem við kvöddum í gær, að ekki sé nú talað um 8 ár eða 10. Hversu mörg þeirra og þá líka túlkuð í athöfn, vildum við geta kvatt til baka, svo ómælt væru og ekki unnin að held- ur? í flýti mælt, í andartaki óvild- ar, öfundar, heiftar? Kallað til baka eða skipt eins og jólagjöfum. Guð mælti orð. Fyrir orð hans varð heimurinn til. Fyrir orð hans varð allt til. Hann kallaði til túlk- endur vilja síns og þeir sögðu frá honum og útskýrðu eftir því sem nokkur maður fær nálgast hinn heilaga og ætlast til að skiljanlegt sé eða skýranlegt. Og spámenn litu til baka til upphafs og þeir litu líka fram á leiðina. Rétt eins og við gerum öll við áramót. En Guð lét sér ekki nægja að mæla orð, jafn- vel þótt þau fengju raunveruleika í sköpun og túlkunum útvalinna. Hann lét orð sitt frá raunvemleika holds og verða maður. Þannig sté Guð á foldu og sýndi sig í þeim raunvemleika, sem við teljum yfír- leitt einan vera sannan, svo skilinn sé og svo mikinn, að ekki verði véfengdur. Og þessa atburðar minntumst við fyrir viku. Ekki að- eins með gjöfum, þótt rekja megi til fæðingar, til holdtekju orðsins, heldur með þökk þess, sem veit að hann hefur þegið gjöf, sem ekki þarf að skipta, já, ekki er hægt að skipta, af því engin önnur getur komið í hennar stað, ekki einu sinni nálgast hana. Þögnin var rofín á fyrsta degi sköpunar og sól skein og tungl lýsti. Þögnin var rofín á hinum síðasta degi og maður gekk fram, bæði karl og kona. Þögn tómsins var rofín, eða skyldi ég færa nær raun- veruleika okkar og segja máttur hávaðans, ringulreiðarinnar, ógn- anna var rofínn, og Frelsari manna steig á foldu. í dag á fyrsta degi ársins segir kirkjan þér nafn hans. Ekki aðeins til þess að muna, held- ur til að nefna, þegar mikið liggur við. Til þess að ijúfa einangrun fangans og gleymsku hins önnum kafna,. til þess að vera áminning þeim, sem láta orð vaða í flaumi andartaksins og hirða engu, hvort heldur særa og meiða eða jafnvel eyða. Og þetta orð, sem varð hold og við minnumst og þágum gleði fyrir á jólum, fékk nafnið Jesús og var valið af engli til staðfestingar á samstöðu himna og jarðar við komu hans. Drottinn frelsar, segir nafnið, og það sagði hann ævinlega sjálfur. Sagði ekki aðeins með orð- um, heldur sýndi og sannaði um leið. Rétt eins og öll orð þurfa að geta gert. Án raunvemleika að undirstöðu verða orð hans aðeins hávaði, þegar skást lætur. Jesús — Drottinn — frelsar. Hann einn er þess umkominn að leyfa þér að kalla það til baka, sem þú getur ekki fyijrgefið sjálfum þér. Og með því að þiggja fyrirgefningu hans, af því að það, sem einum er gert af systkinum hans, er honum sjálf- um gert, þá getur þú horft mót framtíð betri tækifæra. Og er það ekki einmitt von áramóta? Drottinn frelsar. Þig og mig frá orðum, hvort heldur aðeins mælt em eða fínna stað í framkvæmd. Drottinn frels- ar, og hann einn, veröld sína frá hatri, eyðingu og tjóni. Drottinn frelsar frá tilgangsleysi hávaða og orðaflaums til raunveruleika trúar og lífs í kærleika og varðar þannig veg til eilífðar. Þess vegna hvetur kirkjan þig og alla íslendinga, já, öll börn þess- arar jarðar, til þess að snúa sér til hans og þiggja orðið, sem varð hold og heitir Jesús, í þeirri trúar- vissu, að Drottinn frelsar, og hann einn. Lútum honum og þjónum hon- um og veljum svo orð, er leiða til athafna, að honum sé samboðið. Þá verður 1992 ekki eins dökkt og margir spá. Þá verður það gott ár, af því að það er árið, sem Drottinn blessar. Drottinn blessar þig og kallar til þjónustu við hið góða, við sig vegna sköpunar og gjafar frels- ara. Gleðilegt ár í nafni hans, sem heitir Jesús og er frelsari manna. Gleðilegt ár, þar sem aðgæsla er iðkuð og orð valin af varkárni. Gleðilegt ár Drottins, árið 1992. Númer sem ganga íarf Ef þú ætlar að spila í happdrætti skaltu spila til vinnmgsl Þeir sem spila til vinnings kaupa ekki miða f hvaða happdrætti sem er. Þeir spila í happdrætt- inu þar sem vinningshlutfallið er hæst. Þannig hefur fjöldi íslendinga fengið væna vinninga og lagt grunninn að nýju og betra lífi. Sumir miðar í Happdrætti Háskóla íslands reynast'sannkallaðir happagripir — og ekki aðeins upphaflegu eigendunum. Þeir fylgja ættum, mann fram af manni, og fyrr en vonum varir eru afkom- endur hins upphaflega kaupanda farnir að njóta arfs síns. HAPPDRÆTTI HASKOLA islands vænlegast til vinnings .250.000, 224 vinningar á kr. 250.000. 266 vin ningar á kr. 375.000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.