Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 21

Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 21 Sigrún Torfadóttir Kajioka - Minning Fædd 23. október 1938 Dáin 21. desember 1991 í dag er jóladagur. Á þeim degi hrannast minningarnar alltaf að mér. Þar ber nú hæst minninguna um litla telpu sem yngri systir mín, Sigrún, kom með inn á heim- ili okkar á fimmta áratugnum. Þessi telpa hét líka Sigrún og varð brátt heimagangur hjá okkur og hvers manns hugljúfi. Annað var ekki hægt. í þessari telpu bjó ekk- ert nema gott. Enginn félagi okkar systkin- anna hefur orðið slíkur vinur for- eldra okkar sem Sigrún. Pabbi heyrði illa og ef til vill varð það til þess að hann og Sigrún, sem var lítilsháttar heyrnarskert, náðu svo vel saman. Samræður þeirra urðu miklar og ríkulegar. Ekki var laust við að Sigrún systir mín yrði afbrýðisöm yfir því afhaldi er pabbi hennar hafði á vinkonunni. En það var fleira er tengdi þau. Pabbi var sílesandi og hjá Sigrúnu þróaðist með aldrinum áhugi á bókum og gengu umræður þeirra mikið út á slíkt. Hvað varðaði móður mína held ég að hún hafi litið á Sigrúnu sem eina af okkur systkinunum. Þar kom ekki síst til framkoma Sigrún- ar við annan heimagang, Onnu, bróðurdóttur mömmu, sem var þroskaheft. Önnu var komið í bekk í Austurbæjarskólanum með Sig- rúnunum og urðu þær sverð henn- ar og skjöldur hvar sem hún fór. í þá daga var ekki auðvelt að koma börnum, sem ekki voru eins og önnur börn í skóla. Það þurfti mikið harðfylgi foreldra til þess og ekkert sérstakt var gert fyrir þessi börn. Nú er það lögboðið að öll börn skuli hljóta kennslu við sitt hæfi, þó að enn þurfi foreldrar að vera fylgnir sér til þess að sækja þann rétt. Eitt er það þó sem ekki er hægt að lögbjóða en það er framkoma annarra barna við þá sem eru afbrigðilegir. Þar verður enn að treysta á það góða í mannssálinni og af því var nóg hjá Sigrúnunum. Viljum við systkinin nú við ævi- lok Sigrúnar Torfadóttur þakka henni fyrir allan þann stuðning er hún veitti Önnu og veit ég að við mælum þar fyrir munn geng- inna foreldra hennar og okkar. Á sjöunda áratugnum skildu leiðir en þá giftist Sigrún Dr. Ro- bert Kajioka og fluttist til Kanada. Hún kom þó alltaf til okkar er hún kom í heimsókn til gamla landsins og síðast hitti ég hana á þessu ári hjá Sigrúnu systur minni. Þá var hún jafn giöð og létt í lund eins og henni var eiginlegt og hún hlakkaði til að koma aftur í heim- sókn næsta ár. í síðustu viku fyr- ir jól frétti ég að hún væri haldin banvænum sjúkdómi og 22. des- ember barst mér fregn um lát hennar. Sigrún var fönguleg stúlka, fal- leg á vöxt og mikill persónuíeiki, augun brún og sterk undir miklum brúnum, hárið brúnt og liðað og jafnvel hrokkið á tímabili og ég gleymi aldrei fallega og einlæga brosinu hennar. Sigrún var fædd á ísafirði 23. október 1938. Hún var af sterkum stofni, dóttir hjónanna Torfa Hjartarsonar fynyerandi tollstjóra í Reykjavík og Önnu Jónsdóttur konu hans, sem bæði eru mjög eftirminnileg. Þau syrgja nú dóttur sína ásamt eiginmanni Sigrúnar, Dr. Robert Kajioka, dætrunum Höllu, Rosemary og Kathleen og systkinum hennar, Hirti, Ragn- heiði og Helgu Sóleyju. Öllu þessu fólki og öðrum vand- amönnum Sigrúnar færum við systkinin Sigvaldabörn, sum enn á Snorrabrautinni, okkar dýpstu samúð. Hrefna Sigvaldadóttir SIMAR 689868 og 689824 STÍFT FITUBRENNSLU-NÁMSKEIÐ SEM SKILAR ÁRANGRI HEFST11. JANÚAR • Fitumæling og vigtun. ^ • Matarlistar og ráðgjöf. • Fyrirlestrar um megrun og mataræði. • Þjálfun og hreyfing 5 sinnum í viku. • Viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins með skráðum árangri. Sú sem missir flest kíló fær frítt mánaðarkort hjá Jónínu og Ágústu. Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkams- þyngd er aukin hreyfing og rétt mataræði. Við hjálpum þér að brenna fitu og kennum hvernig á að halda henni frá fyrir fullt og allt. Okkar metnaður erþinn árangur. Nýr kennslustaður fyrir Mosfellsbæ, Grafarvog, Árbæ og Breiðholt. LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX TAKMARKAÐUR FJÖLDI KEMST AÐ NÍNU & ÁGÚSTU Skeifan 7.108 Fteykjavík, S. 689868 Metsölublað á hverjum degi! HESLTU ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Ástund Bókabúð Lárusar Blöndal ' Bókabúð Árbæjar Bókabúð Grafarvogs Bókabúðin Borg Bókahöllin Bókahornið Embla Eymundsson Hlemmi Eymundsson Eiðistorgi Eymundsson Borgarkringlu Eymundsson Mjódd Hugborg Kaupstaður Mjódd Mikligarður v/Holtaveg Mál og menning Laugav. 18 Mál og menning Síðumúla 7-9 Skólavörubúðin Hafnarf jörður: Bókabúð Böðvars Bókabúð Olivers Steins Garöabær: Gríma Kópavogur: Bóka og ritfv. Snæland Veda Mosfellsbær: Ásfell OOTT FÓLK/SlA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.