Morgunblaðið - 03.01.1992, Page 22

Morgunblaðið - 03.01.1992, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 Kísiliðjan: Takmörkun á náma- leyfinu framlengd TAKMÖRKUN á námaleyfi Kísiliðjunnar hf. í Mývatni sem sett var til áramóta hefur verið framlengd til 31. mars. Róbert B. Agnars- son, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, segir í samtali við Morgunblað- ið að takmörkunin, sem felur í sér afmörkun á athafnasvæði iðjunnar í vatninu, muni engin áhrif hafa á starfsemina enn sem komið er. Þó sé námaleyfið lífæð fyrirtækisins og á endanum allt undir því komið. í fréttatilkynningu Iðnaðarráðu- neytis um framlenginguna segir að ætlunin sé að stunda frekari rann- sóknir á setflutningum í vatninu og þeim áhrifum sem það kann að hafa á dýralíf. Framlenging þessi er ekki sú fyrsta, því skýrsla rannsóknarhóps sem gefín var út í fyrrasumar leiddi til þess að takmörkun sú er þá var í gildi var framlengd til áramóta. Núgildandi námaleyfi rennur út í árslok 2001. „Það hefur einfaldlega komið í ljós að stjómvöldum hefur ekki unn- ist tími til að taka ákvörðun í mál- inu og þá er framlengt um þqá mánuði í viðbót," segir Róbert. Engu nýju hráefni er dælt í forðaþró Kísil- iðjunnar fyrr en ísa tekur að leysa í maí, en þó telur Róbert frestun endanlegrar ákvörðunar um náma- Ieyfið af hinu illa, hvernig svo sem á málið sé litið. Aðspurður um afkomuna í fyrra segir Róbert söluna hafa verið svip- aða og undanfarin ár, en verðið sé heldur fallandi sökum harðnandi samkeppni. „Það er almennur sam- dráttur og ég sé ekki fram á neina aukningu framan af árinu — við megum í raun þakka fyrir ef við höldum því sem við höfum.“ Á miðju ári urðu eigendaskipti á fyrirtækinu, er Manville Corporati- on, fyrram meirihlutaeigandi Kísil- iðjunnar hf., seldi kísilgúr- og perlu- steinsdeild sína Alleghany Corpor- ation. Segir Róbert að til skamms tíma sé engra meiri háttar breyt- inga að vænta í kjölfar eigenda- skiptanna þó búast megi við já- kvæðum langtímaáhrifum í hag- ræðingarátt. Ólafur Davíðsson Albert Jónsson Guðmundur Árnason Einhverra breytinga von - segir Ólafur Davíðsson nýráðinn ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu „ÞAÐ er lítið hægt að segja svona fyrsta morguninn annað en að starfið leggst prýðilega í mig,“ sagði Olafur Davíðsson, hagfræðing- ur og nýráðinn ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Ólafur er einn þriggja nýrra starfsmanna í ráðuneytinu en hinir eru stjórnmálafræðingarnir Albert Jónsson er tekur við stöðu deildarstjóra í alþjóða- og öryggismálum og Guðmund- ur Árnason nýráðinn deildarstjóri almennrar deildar. Ólafur Iét af starfí fram- isstjórinn sagðist eiga von á að kvæmdastjóra Félags íslenskra einhveijar breytingar yrðu á starf- iðnrekenda þegar hann tók við seminni í kjölfar ráðningar sinnar stöðu ráðuneytisstjóra. Ráðuneyt- :------------------ en kvað fullsnemmt að ræða þær í einstökum atriðum. Albert Jóns- son, nýráðinn deildarstjóri alþjóða- og öryggismála, var áður fram- kvæmdastjóri öryggismáladeildar, en hún hefur nú verið lögð niður. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um ráðningu framkvæmdastjóra Félags íslenskra iðnrekenda. Umsóknarfrestur um stöðurnar rann út 27. desember. Nýir menn vora skipaðir á ríkisráðsfundi á gamlársdag. Sparileiðir íslandsbanka færa þér væna ávöxtun! Á síbastliönu ári nutu sparifjáreigendur góöra vaxtakjara hjá íslandsbanka. Ávöxtun Sparileiöanna áriö 1991 var þessi: Sparileiö 7 Ársávöxtun Raunávöxtun 1 7,43% 3,52% Sparileiö Sparileiö Sparileiö 11,97%- 12,52% 4,02% - 4,53% 13,99% 5,89% 15,33% 7,14% Sparileiö 15,33% * Framangreind tala er án skattafsláttar, en oð teknu tilliti til hans og miöaö viö gildandi vexti og skattkjör heföi raunávöxtun 3 ára sparnabar oröiö 22,95% og 10 ára sparnaöar 11,06%. Ávaxtaðu spariféþitt á árangursríkan hátt. Farðu þínar eigin leiðir í sparnaði! ÍSLANDSBANKI - í takt við rtýja tíma! 7,14%* < <n Agreiningnr í borg- arstjórn um úttekt borgarendurskoðunar SIGRÚN Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og einn stjórnarmanna í Stjórn veitustofnana segir, að ekkert í skýrslu borgar- endurskoðunar um stjórnsýslu og fjárhag Hitaveitu Reykjavíkur komi sér á óvart. I*ar sé tekið undir þá gagnrýni sem hún hafi haft uppi í veitustjórn. Á fundi borgarstjórnar í gær kynnti Sigrún bókun þar sem fram kom að skýrslan styðji kröftuglega gagnrýni hennar um að stjórn- kerfi borgarinnar sé í molum. Borgarstjóri sagði efni bókunar Sigrún- ar hins vegar skrumskælingu á niðurstöðum skýrslunnar. Davíð Odds- son, forsætisráðherra og fyrrum borgarstjóri, tók til máls um skýrsl- una og sagði m.a. að hann teldi það furðum sæta að borgarendurskoð- un gæti samið slíka skýrslu án þess að spyrja hann hvernig staðið hefði verið að þessum málum af hálfu borgaryfirvalda á sínum tíma. Við umræður um málið í borgar- stjórn í gær gagnrýndi Markús Órn Antonsson borgarstjóri bókun sem Sigrún lagði fram á fundinum og sagði hana skramskælingu á niður- stöðum í skýrslu borgarendurskoð- unar, Það væri út í hött að af skýrsl- unni væri hægt að draga þá ályktun að stjórnkerfi borgarinnar væri í molum, eins og m.a. kom fram hjá Sigrúnu. Davíð Oddsson sagði skýrslu borg- arendurskoðunar við fljótan yfirlest- ur vera stórkostlega gallaða. „Borga- rendurskoðun hefur enga burði eða sérfræðiþekkingu til að meta stjórn- sýslu eða stjómskipan borgarinnar enda kemur fram að hún hleypur á sig í þeim efnum og gerir sig bera að þekkingarleysi," sagði Davíð. Hann sagðist auk þess telja það furðum sæta að borgarendurskoðun gæti samið slíka skýrslu án þess að spyrja hann hvernig staðið hefði ver- ið að þessum málum af hálfu borgar- yfirvalda á sínum tíma. „Ég hef ekki verið spurður um eitt eða neitt og kom þó mjög nálægt málinu, ber á því mikla ábyrgð og víkst ekki undan henni,“ sagði Davíð og bætti við að slíkt væri til merkis um hve illa hefði verið að verkinu staðið. Páll' Gíslason sagðist harma að ekki hefði verið haft meira samráð við starfsmenn og stjórn veitustofn- ana þegar skýrslan var samin þar sem í henni kæmi fram að sumt hefði greinilega verið misskilið af embættismönnum. Sigrún sagði, að sér þætti miður, að skýrslan skyldi hafa borist fjöl- miðlum áður en hún hefði verið rædd í Stjórn veitustofnana. Engar um- ræður hafi orðið um hana þegar hún var lögð fram í borgarráði, þar sem menn vildu fyrst fá að kynna sér innihald hennar. Það var borgarstjóri sem óskaði eftir að úttektin yrði gerð og þess vegna var hún fyrst lögð fram í borgarráði en ekki í Stjóm veitustofnana. „Ég er afar ánægð með að skýrslan hefur verið unnin og það að tilhlutan borgar- stjóra,“ sagði Sigrún. „Það þykir mér jákvætt og ekki síður finnst mér nauðsynlegt að Stjóm veitustofnana verði kölluð saman hið allra fyrsta og að borgarendurskoðandi og borg- arstjóri mæti á þann fund til að ræða þessi mál af hreinskilni. Það er mergurinn málsins. Þarna er tekið undir þá gagnrýni sem ég hef haft uppi síðan ég settist í veitustjórn og þá ekki hvað síst að ýmsu sé ábóta- vant í stjórnkerfí borgarinnar. Ég hef flutt fjölmargar tillögur um að gert verði skipurit fyrir þessar stofn- anir og þess vegna fagna ég því þegar farið er í saumana og komist að niðurstöðu. Ég tek heilshugar undir það með borgarendurskoðun að það þurfi að efla veitustjórnina, sem á að virka sem framkvæmda- stjórn í þremur stórum fyrirtækjum, sem velta fleiri hundruð milljónum.“ Sigrún sagði, að sér hefði komið á óvart hvað fá mál kæmu til kasta Stjórnar veitustofnana, eftir að hafa setið sem borgarfulltrúi í öðram nefndum og ráðum borgarinnar. „Það á alveg skilyrðislaust að kalla saman veitustjórnina hið fyrsta,“ sagði Sigrún. „Ég get ímyndað mér að þeim sem sitja þar með mér fínn- ist það harla erfítt að frétta af skýrsl- unni í fjölmiðlum án þess að hafa séð hana.“ Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri sagðist í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær ekki vilja tjá sig um niðurstöðu skýrslunnar fyrr en íjallað hefði verið um hana í borg- arráði og í Stjórn veitustofnana. Leiðrétting Hitaveitustjóri óskaði eftir að fram kæmi, að í skýrslu borgarendurskoð- unar segði, að skortur hafí verið á samskiptum á milli hitaveitustjóra og næstu undirmanna en ekki að sá skortur væri fyrir hendi nú eins og mishermt var í frétt biaðsins. Er beðist velvirðingar á þessum mistök- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.