Morgunblaðið - 03.01.1992, Page 25

Morgunblaðið - 03.01.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 25 Dagblaðið Tíminn: Indriði og Ingvar hætta sem ritstjórar Jón Kristjánsson ráðinn ritstjóri til tveggja mánaða INDRIÐI G. Þorsteinsson og Ingvar Gíslason létu um áramótin af störf- um sem ritstjórar dagblaðsins Tímans. Jón Kristjánsson alþingismaður hefur verið ráðinn ritstjóri til næstu tveggja mánaða. Eins og komið hefur fram í frétt- um er útgáfa nýs dagblaðs undirbúin um þessar mundir og hefur verið rætt um að Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið komi þar við sögu. I grein, sem Steingrímur Hermanns- son, formaður Framsóknarflokksins og formaður útgáfustjórnar Tímans, ritaði í blaðið um áramótin kemur fram, að útgáfa þess sé orðinn sá fjárhagsbaggi, sem Framsóknar- flokkurinn beri ekki. Þá segir Stein- grímur: „Hins vegar er ekki við það búandi að Morgunblaðið og DV ráði nánast ein dagblaðamarkaðnum. Því var ákveðið að leita breiðs samstarfs um útgáfu fijálslynds og umbóta- sinnaðs, en óháðs blaðs. Það virtist ætla að takast, en nú hefur slegið í bakseglið og óvissa ríkir um siíka blaðaútgáfu. Tíminn mun því halda áfram að koma út, að minnsta kosti um sinn. Hann mun hins vegar ekki verða gefinn út af Framsóknar- flokknum, heldur af hlutafélagi. Blaðið mun áfram boða frjálslynda og umbótasinnaða stefnu, en verða óháð öllum flokkum. Er öllum, sem þá stefnu aðhyllast, boðið til sam- starfs um útgáfu Tímans, eða annars blaðs, óháð stjórnmálaflokkum." I leiðara Þjóðviljans á gamlársdag er minnst á fyrirhugaða stofnun nýs dagblaðs. Þar segir m.a.: „Stofnað hefur verið undirbúningsfélag um útgáfu nýs dagblaðs, sem hafið gæti göngu sína snemma á næsta ári. Þó mestar líkur séu á því að minni dag- blöðin, þ.m.t. Þjóðviljinn, hætti út- gáfu fljótlega og nýtt dagblað líti dagsins ljós innan fárra mánaða, er þó enn of snemmt að segja til um hveijar lyktir þess máls verða.“ Sigríður Guðmundsdóttir lyúkrunarfræðingur, Markús Örn Antonsson borgarstjóri og Vala Thoroddsen sem afhenti Sigríði 250 þús. króna styrk úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Mimimgarsjóður Gunnars Thoroddsen; Sigríður Guðmunds- dóttir hlaut styrk SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, hlaut 250 þús- und króna styrk úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen, þegar veitt var úr sjóðnum í sjötta sinn þann 29. desember siðastliðinn. Sigríður hlýtur styrkinn fyrir störf að mannúðarmálum en hún hefur meðal annars starfað sem hjúkrunarfræðingur í flótta- mannabúðum í Thailandi og við hjálparstörf í Sómalíu, Eþíópíu og Súdan á vegum alþjóða Rauða Krossins. Árið 1987 var Sigríður ráðin framkvæmdastjóri Hjálpar- stofnunar Kirkjunnar og gegndi hún því starfi fram til ársins 1990, er hún var ráðin til alþjóða- deildar Rauða Kross íslands. Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember árið 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæð- ingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarstjórans í Reykja- vík, sem ákveður úthlutun úr honum í samráði við Völu Thor- oddssen. Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, eða veita verðlaun eða lán í sam- bandi við rannsóknir, tilraunir eða skylda starfsemi á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála, sem Gunnar lét sérstaklega til sín taka sem borgarstjóri. Indriði G. Þorsteinsson Ingvar Gíslason Jón Kristjánsson Ljúffeng íslensk landkynning á borð vina og viðskiptavina erlendis Vart er hægt að hugsa sér meira spennandi gjöf en fulla körfu af forvitnilegu góðgæti frá framandi landi. Slík gjöf segir meira en mörg orð um matarmenningu einnar þjóðar. m; Hægt er að velja um ostakörfu með mismunandi tegundum af íslenskum ostum, IBk \ sœlgœtiskörfu með gómsætu íslensku sælgæti s.s. Opali, súkkulaði, brjóstsykri og lakkrís. Og íslenska matarkörfu með sérlega ljúffengum smáskömmtum af ýmsu tagi. ICEMART íslenskur markaður - á leið út í heim. Leifsstöð Keflavíkurflugvelli ■ Sími: 92-5 04 53 AUK k627d21-51

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.