Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 Þjóðverjum leyft að sjá Stasi-skjöl: Búist við sjötíu þúsund umsókn- um mánaðarlega Berlín. Reuter. FYRRUM Austur-Þjóðverjum var í gær í fyrsta sinn leyft að skoða gögn þau sem hin illræmda austur-þýska öryggislögregla Stasi hafði tekið saman um þá. Tóku lög sem veita öllum aðgang að skjölum um sjálfan sig gildi um áramótin. Langar biðraðir mynduðust fyrir utan skrifstofur, sem settar hafa verið upp í helstu borgum austur- hluta Þýskalands, þar sem fólk gat sótt umsóknareyðublöð. Yfirvöld voru búin undir umsóknir þekktustu fórnarlamba Stasi en óbreyttir borgarar gætu þurft að bíða töluvert eftir gögnunum. Gerd Poppe, fyrrum andófsmaður í Austur-Þýskalandi, hélt blaða- mannafund í höfuðstöðvum Stasi eftir að hann hafði ásamt eiginkonu sinni, Ulrike, byijað að'kanna skrár öryggislögreglunnar um þau hjónin. Var alls um að ræða fimmtíu möpp- ur með allt að þijú hundruð vélrituð- um blaðsíðum í hverri. „Það er eig- inlega ómögulegt að gera sér í hug- arlund umfangið, jafnvel fyrir fólk sem vissi að verið væri að njósna um það,“ sagði Poppe, „Við fundum bréf sem send höfðu verið til okkar en við aldrei fengið. Þau eru nú í skránum. Ljósmyndir, útskriftir af hleruðum símtölum, skýrslur um uppsetningu hlerunarbúnaðs. . . “ Barbel Bohley, fyrrum forystu- kona Nýs vettvangs, sagði eftir að hafa lesið fyrstu 25 blaðsíðumar af skránni um sig að hún hefði ekkert á móti því að þær yrðu gefnar út óritskoðaðar. „Eg hef aldrei lesið eins mikið bull á ævi minni. Ef þetta yrði birt gætu allir séð hvað Stasi var í raun leiðinleg og óskilvirk stofn- un,“ sagði Bohley. Samkvæmt lögunum mega ein- staklingar athuga skrár um sjálfan sig en aðgangur lögreglu, leyniþjón- Snjóa- ogkulda- tíð íAustur- löndum nær í gær andaði köldu frá Rúss- landi yfir löndin fyrir botni Miðjarðarhafs og féllu veð- urmetin hvert af öðru. í Jer- úsalem var 40 sentimetra jafnfallinn snjór eftir mestu snjókomu í 42 ár. Jórdanía var að verulegu leyti hulin snjó og í borgum eins og Beirut í Líbanon og Nikósíu á Kýpur var allt hvítt yfir að líta sem er afar sjald- gæft. Þá lokaðist höfnin í Alexandríu í Egyptalandi vegna stórviðris og sjávar- gangs. Á myndinni sem tek- in er skammt fyrir austan Beirut má sjá sýrlenska her- menn í snjókasti. ustna og blaðamanna er takmark- aður. Fólki er ekki leyft að taka skrámar með sér heim en á kost á að taka afrit af öllum skjölum. Joachim Gauck, yfirmaður þeirrar stofnunar sem hefur umsjón með gögnunum, sagði að í Berlín einni hefðu borist þijú þúsund umsóknir um að sjá skrár í gær og alls væri búist við sjötíu þúsund umsóknum á mánuði í framtíðinni. Biðin eftir því að fá að glugga í Stasi-skrámar gæti því orðið ansi löng þar sem hjá stofnuninni starfa einungis 850 manns. Reuter * Aramót í Moskvu Moskvubúar héldu upp á áramótin með pomp og prakt. Endalok Sovétríkjanna settu mark sitt á hátíðahöldin og söfnuðust margir sam- an á Rauða torginu til að fagna þeim. Þó var einnig uggur í mörgum vegna yfirvof- andi verðhækkana. Verðlagið gefið frjálst í Rússlandi: „Brauð er eini maturiim sem ég get keypt mér“ Verð á helstu lífsnauðsynjum hefur þrefaldast og allt að fímmfaldast á annarri vöru Moskvu. Reuter. VERÐLAG hefur verið gefið frjálst í Rússlandi, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi og þar með bund- inn endi á 70 ára sögu gífurlegra niðurgreiðslna. Vegna þeirra hef- ur verðlagið ekki verið í neinu samræmi við raunverulegan fram- leiðslukostnað og afleiðingin með- al annars stöðugur vöruskortur. Rússneskur almenningur veit hins vegar ekki hvernig hann á að komast af þegar verð á helstu líf- snauðsynjum þrefaldast og allt að fimmfaldast á ýmsum öðrum. „Brauð er nú eini maturinn, sem ég get keypt mér,“ sagði gömul kona með tárin í augunum. Hleif- urinn, sem hún hélt á, kostaði áður 60 kópeka en nú nærri tvær rúblur. Þær samsvara þó ekki nema 1,20 ISK. samkvæmt nýrri gengisskráningu rússneska seðla- bankans. Flestar verslanir í Móskvu voru lokaðar í gær vegna vörutalningar en þó voru margir á ferðinni til að kynna sér vöruverðið í þeim búðum, sem opnar voru. „Fólkið kemur inn, lítur á verðið og fer út aftur bölv- andi,“ sagði afgreiðslukona í verslun í Moskvu en hjá henni var brauðið þrisvar og hálfu sinni dýrara en fyr- ir áramót. „Þótt ég vinni hér hef ég ekki efni á að kaupa neitt. Hvað er hægt að gera fyrir 200 rúblur á mánuði," sagði hún en samkvæmt opinberum útreikningum þarf fólk að hafa 500 rúblur í mánaðarlaun til að komast af. Ákvörðun Bprísar Jeltsíns, forseta Rússlánds, um að gefa verðlagið fijálst að mestu leyti er liður í áætl- unum um einkavæðingu efnahags- lífsins og á jafnframt að binda enda á vöruskortinn. Framboðið var þó' engu meira í gær en venjuiega og þykír líklegt, að það taki framleið- endur og dreifingaraðila nokkra daga eða jafnvel vikur að átta sig á stöð- unni. Samkvæmt nýju lögunum er hámarksálagning verslana á verðið hjá framleiðanda um 25%. Samkvæmt fréttum víðs vegar að úr Rússlandi eru verðbreytingamar mikið áfall fyrir fólk og símarnir hjá „Hjálparlínunni", símaþjónustu í Moskvu, sem opin er allan sólar- hringinn, hafa verið rauðglóandi. Ekki vegna hringinga frá fjölskyld- um eða einstaklingum í persónuleg- um vanda, heldur aðallega frá gömlu fólki, sem skilur ekki hvemig það á að draga fram lífíð. Stjómvöld í Rússlandi ákváðu þessar breytingar upp á sitt eins- dæmi og án samráðs við önnur ríki í samveldinu og hefur það valdið mikilli óánægju. Ráðamenn í Úkra- ínu og Hvíta Rússlandi hafa nú nauð- ugir viljugir ákveðið sams konar breytingar í sínum ríkjum enda ótt- uðust þeir, að ella yrði um vömflótta að ræða til Rússlands vegna hærra verðs þar. Er búist við, að hin sam- veldisrlkin komi fljótlega í kjölfarið. Hagfræðinga greinir mjög á um þessar aðgerðir og telja sumir, að þær séu harðari en svo, að almenn- ingur sætti sig við þær. Hagfræðing- urinn Níkolaj Shmeljov sagði í við- tali við dagblaðið Rabotsjaja Trí- búna, að Jeltsín væri að gera efna- hagslega uppskurð á samfélaginu án þess að gefa sjúklingnum nein deyfi- iyf- „Hendur sjúklingsins eru ekki bundnar og hvað nú ef hann grípur hnífinn og stingur lækninn í stað- inn?“ spurði Shmeljov. Tilraun sem getur endað í upplausn og óðaverðbólgu Moskvu. Daily Telegraph, Reuter. UM áratugaskeið ákváðu skriffinnar í sovéska stjórnkerfinu hvað varan skyldi kosta án nokkurs tillits til framleiðslukostnaðarins. Engar alvarlegar tilraunir voru heldur gerðar til að finna hver hann væri. Afleiðingin var vöruskortur, léleg vara og æ meiri Iia.HI á fjárlögum Sovétríkjanna. Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum forseti, krukkaði í þetta kerfi með hálfum huga og gerði aðeins illt verra en nú hefur Borís Jeltsín, forseti Rússlands, höggvið á hnútinn. Á einni nóttu þrefaldaðist eða fimmfaldaðist allt verðlag í landinu. Til að vega upp á móti dýrtíð- inni í Rússlandi hefur almennt kaupgjald um það bil tvöfaldast á skömmum tíma og eru meðallaun nú um 700 rúblur á mánuði, rúm- lega 400 ÍSK. samkvæmt nýrri gengisskráningu. Launahækkunin segir þó lítið á móti verðhækkunun- um. Sem dæmi má nefna, að brauð- verð hefur þrefaldast, sykurverð rúmlega þrefaldast og verð á eld- spýtum fjórfaldaðist. Verð á bens- íni þrefaldaðist og fargjöld með lestum og flugvélum þre- og fjór- faldaðist. Hálfur Iítri af vodka, sem kostaði áður 10 rúblur, fór í 45 rúblur. Það er aðeins húsaleigan, sem er óbreytt. Verð á kjöti, ávöxt- um, grænmeti, fatnaði og lúxusvör- um eins og ísskápum, húsgögnum og bílum verður fljótandi, það er að framboð og eftirspum munu ráða verðinu. Ofan á allt bætist síðan 28% söluskattur. Á miðborgarmarkaðnum í Moskvu, sem alls konar braskara- hópar ráða, var nóg af mat nú í vikunni en þar kostaði eitt pund af tómötum 100 rúblur, sjöunda hluta meðallaunanna, smjörpundið kostaði 120 rúblur og kjötpundið hljóp á hundruðum rúblna. Talið er, að ellilíféyrisþegar og námsmenn verði harðast úti í þess- um aðgerðum. Þeir fá flestir litlu meira en nemur Iágmarkslífeyri, 342 rúblum á mánuði, en talið er, að fólk geti í raun ekki skrimt á minnu en 500 rúblum. í rússnesku fjárlögunum fyrir fyrsta ársfjórð- ung 1992, sem eiga að vera halla- laus, er gert ráð fyrir, að verðlagið hækki til jafnaðar um 250% en í raun veit enginn hver útkoman verður. Óttast margir, að hún verði óðaverðbólga, meira en 50% á mánuði, að rúblan verði endanlega verðlaus og ekkert fáist nema gegn dollurum eða öðrum gjaldeyri eða með vöruskiptum. Rússar gætu lært ýmislegt af reynslu Pólveija, sem byijuðu árið 1990 með því að ryðja burt niður- greiðslum og margfalda þar með verðlag í landinu. Nú tveimur árum seinna er bent á pólsku aðferðina sem dæmi um hvemig unnt er að láta markaðsbúskapinn taka við af miðstýringunni á skömmum tíma. Áætlunin hófst 1. janúar og áður en mánuðurinn var á enda voru allar verslanir fullar af vörum og óðaverðbólgan á undanhaldi. Breytingarnar höfðu líka þau áhrif, að illa rekin ríkisfyrirtæki fóru á hausinn og atvinnuleysi jókst mikið. Almenningur var og er að óánægður með hlutskipti sitt en þrátt fyrir það hefur ekki komið tii meiriháttarmótmæla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.