Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992
'Nerkíslmenn
AUGLÝSINGAR - SKILTAGERÐ
SILKIPRENTUN
SKEIFUNNI 3c -108 REYKJAVÍK
SlMI:
680020
FAX: 68 00 21
Hið nýja hesthús Stóðhestastöðvar ríkisins í Gunnarsholti.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ein af kaffistofum Ármannsfells.
Ný hrossaræktarstöð tek-
in í notkun í Gunnarsholti
Selfossi.
Armannsfell hf.
fær viðurkenningn
BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ Ármannsfell hf. hefur hlotið viðurkenn-
ingu Trésmíðafélags Reykjavíkur fyrir góðan aðbúnað starfsfólks
á vinnustað. Trésmíðafélag Reykjavíkur hefur frá árinu 1985 veitt
fyrirtækjum á félagssvæði sínu viðurkenningu fyrir góðan aðbúnað
og hafa átta fyrirtæki hlotið þessa viðurkenningu á þeim tíma.
í fréttatilkynningu frá Trésmíða-
félagi Reykjavíkur segir m.a. að
Ármannsfell hf. hafi á undanförn-
um árum verið í hópi þeirra fyrir-
tækja sem hafi staðið sig hvað
best í aðbúnaði starfsmanna sinna.
Sérstaklega eru framkvæmdir fyr-
irtækisins við Lindargötu og verk-
stæði þess að Funahöfða 19 nefnd-
ar og sagt að báðir staðirnir séu
til fyrirmyndar hvað starfsmanna-
aðstöðu varðar.
Jafnframt segir að á undanförn-
um árum hafi Trésmíðafélag
Reykjavíkur barist fyrir bættum
aðbúnaði félagsmanna sinna en það
sé skoðun þeirra að aðbúnaður
byggingamanna sé víða áratugum
á eftir því sem eðlilegt gæti talist.
Félagið vonar að með framtaki
þeirra sé athygli vakin á aðbúnaði
á vinnustöðum félagsmanna og að
slíkar viðurkenningar verði öllum
fyrirtækjum í greininni hvatning
til stærri áfanga á þessu sviði.
Finnbjörn A. Hermannsson, formaður aðbúnaðarnefndar Trésmíða-
félags Reykjavíkur, afhendir Hauki Magnússyni, framkvæmdastjóra
Ármannsfells hf., viðurkenninguna.
Sveini Runólfssyni landgræðslu-
stjóra þökkuð ötul framganga í
málefnum stöðvarinnar en hún hefur
starfað undir handaijaðri Land-
græðslunnar. „Stöðin hefur öðlast
virðingarsess meðal hrossarækt-
armanna. Hingað getur hver sá leit-
að sem vantar vænlegan stóðhest.
Hér verður Mekka íslenskrar hrossa-
ræktar,“ sagði Jonas Jónsson
búnaðarmálastjóri meðal annars við
opnunina.
„Þetta er gjöfull dagur sem hross-
aræktin á eftir að njóta. Hér er
traustur banki fyrir íslenska hrossa-
rækt,“ sagði Þorkell Bjamason
hrossaræktarráðunautur meðal ann-
ars í ávarpi sínu. Hann sagði starfið
hafa tekist vel sem sýndi að hug-
myndin að stöðinni hefði staðist.
Kári Amórsson formaður Lands-
sambands hestamanna- sagði áhuga
hestamanna gífurlegan fyrir því
starfi sem unnið væri á stöðinni hún
hefði lyft gífurlega undir hrossa-
ræktina í landinu.
Eftir athöfn í nýju stóðhestastöð-
inni var gestum boðið upp á veiting-
ar í húsakynnum Landgræðslunnar.
Þar þakkaði Sveinn Runólfsson öll-
um hlutaðeigandi velvild í garð
stöðvarinnar. Hann gat þess að
greinilegt væri að starfsemi stöðvar-
innar ætti góðu gengi að fagna og
ötulir starfsmenn hennar og aðrir
sem að hrossaræktinni kæmu hefðu
unnið gott starf. Hann minnti á að
nú væri í raun verið að taka í notk-
un fyrsta áfanga stöðvarinnar og
að áfram þyrfti að halda á sömu
braut í uppbyggingarstarfinu.
25. janúar næstkomandi verður
opið hús hjá Stóðhestastöðinni þar
sem almenningi gefst tækifæri á að
skoða hestana í hinu nýja húsi.
- Sig. Jóns.
Eigum fyrirliggjandi
merkingar í glugga
eða inn í verslanir,
einnotaog fjölnota á
karton og límmiða sem
nota má aftur og aftur.
Leitið upplýsinga!
FYRSTU stóðhestarnir, Stormur
frá Stórhóli og Goði frá Sauðár-
króki, voru leiddir inn í nýtt hús-
næði Stóðhestastöðvar ríkisins í
Gunnarsholti laugardaginn 28.
desember. Þá var nýtt húsnæði
stóðhestastöðvarinnar tekið
formlega í notkun. Húsið rúmar
65 stóðhesta og leysir úr brýnni
þörf.
Frá því Stóðhestastöðin tók til
starfa 1973 hafa 293 hestar verið
í stöðinni. Starfsemi Stóðhestastöðv-
arinnar hófst á Litla Hrauni en frá
1981 hefur hún verið starfrækt í
Gunnarsholti. Fyrsta skóflustungan
að nýja húsinu var tekin
7. maí 1988 og bygg-
ingaframkvæmdir hóf-
ust í ágúst sama ár.
Magnús Sigsteinsson og
Sigurður Sigvaldason
: hönnuðu húsið. Yfir-
smiður er Már Adolfsson
Hellu og innréttinga-
smíði annaðist Vélsmiðja
Guðjóns Ólafssonar.
Við opnunina voru
Landgræðslunni og
Stormur frá Stórhóli
og Goði frá Sauðár-
króki koma í hús. Það
er Eiríkur Guðmunds-
son sem situr Storm
og Þórður Þorgeirs-
son situr Goða.
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
Þrátt fyrir nokkurt annríki
undir morgun nýársdags má
segja að áramótin hafi verið sér-
staklega friðsamleg hjá lögregl-
unni í Reykjavík. Svo virtist sem
eldra fólkið, fyrirmyndirnar, hafí
stillt áfengisdrykkju sinni í hóf
að þessu sinni, en hins vegar
mátti sjá talsverða ölvun á meðal
yngra fólksins. U.þ.b. 2.000
manns, mest mjög ungt fólk, voru
í miðbænum eftir miðnætti á
gamlárskvöld, en lögreglan þurfti
ekki að hafa teljandi afskipti af
því. Unglingaathvarfið var lokað,
en það verður opið næstu helgar.
Þangað munu unglingar sem eru
undir áhrifum áfengis verða
færðir, ef til þeirra sést í miðbæn-
um.
Frá miðnætti til morguns eru
102 færslur í dagbókina, 11 gistu
þá fangageymsluna, en nokkrir
bættust í hópinn áður en aðrir
Iandsmenn gengu til hádegisverð-
ar. Af þessum ellefu óskuðu fjór-
ir gistingar vegna þess að þeir
áttu hvergi annars staðar höfði
sínu að halla, fjórir voru þar
vegna ölvunarhátternis, einn
vegna rúðubrots, einn vegna
meiðinga og einn hafði verið
handtekinn að beiðni Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Sá sem hand-
tekinn var vegna meiðinganna
hafði veist að fólki fyrir utan
skemmtistað, en hann hefur áður
verið kærður fyrir slíkt hátterni
og fengið dóm fyrir það.
Eftir miðnætti á gamlársdag
var tilkynnt um 11 rúðubrot, en
það telst allnokkuð. FleBt tilvikin
áttu sér stað í nálægð við
Hraunbæ 102 og við Stíflusel. Á
báðum þessum stöðum höfðu
unglingar safnast saman og hag-
að sér miður vel.
Einungis tveir voru stöðvaðir í
akstri grunaðir um ölvun, en ekki
er vitað til þess að ölvaður öku-
maður hafi lent í umferðaró-
happi. Þó urðu tvö umferðarslys
á gamlársdag. í þessum slysum
meiddust tveir ökumenn og tveir
farþegar, enginn alvarlega.
Skömmu eftir miðnætti kom
til handalögmála milli nágranna
í vesturbænum. Þurfti lögreglu
til þess að stilia til friðar. Ástæða
ágreiningsins var á misskilningi
byggð. Annar vildi meina að hinn
hefði vísvitandi skemmt fyrir hon-
um bílinn með áramótasprengju,
en engar skemmdir var að sjá á
bílnum.
Ökumaður á leið um Vestur-
landsveg við Botnsá lenti í vand-
ræðum þegar hann missti stjórn
á bílnum í hálku með þeim afleið-
ingum að hann snerist og
stöðvaðist þversum á brúnni.
Varð að kalla til kranabíl til þess
að bjarga málunum.
Á gamlársdag glefsaði hundur
í mann, sem var á gangi í Ásun-
um. Eigandinn og hundurinn
höfðu verið á gangi saman þegar
sá síðarnefndi stökk að mannin-
um með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Á nýársdagsmorgun kom eldur
upp í húsi við Framnesveg. Húsið
er talið mikið skemmt. Líklegt
er talið að eldurinn hafi komið
upp í stofu hússins. Þrennt sem
var þar innan dyra var flutt á
slysadeildina. Tvennt var síðan
lagt inn á gjörgæslu Landspítal-
ans, en þriðji aðilinn fékk að fara
að rannsókn lokinni.
Rörasprengja var tekin af 15
ára gömlum dreng. Hann sagðist
hafa útbúið sprengjuna sjálfur og
hefði ætlað að sprengja hana
þrátt fyrir að hann gerði sér fulla
grein fyrir mögulegum afleiðing-
um þess þar sem vinur hans hefði
áður fengið flísar í sig úr sams
konar sprengju.