Morgunblaðið - 03.01.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992
39
Gísli Þórarinn Magnússon varð
bráðkvaddur á heimili sínu, Varm-
árbrekku í Mosfellsbæ, 19. desem-
ber sl. áttatíu og þriggja ára að
aldri. Síðustu tvö árin hafði heilsan
versnað og elli kerling loks lagt
þennan léttleikamann að velli.
Gísli fæddist í Saurbæ á Kjalar-
nesi og voru foreldrar hans þau
hjónin Guðrún Finnsdóttir og
Magnús Bjarnason, ættuð af Norð-
urlandi en brugðu búi þar vegna
heilsuleysis 1904 og fluttu suður á
Kjalarnes. Gísli ólst upp í Saurbæ
hjá þeim sæmdarhjónum Vilhelm-
ínu Eyjólfsdóttur og Eyjólfi Run-
ólfssyni sem bjuggu myndarbúi þar
allan sinn búskap.
Gísli varð snemma léttur á fæti
og alla tíð með afbrigðum fylginn
sér og duglegur til hinna ólíkustu
verka sem til féllu. Menn sóttust
eftir að fá hann til vinnu og frá
tvítugu sótti hann vinnu utan heim-
ilis aðallega í nágrennið, á Kjalar-
nesið. Þá vann hann vegavinnu og
varð uppúr því til heimilis í Stardal
hjá þeim ágætishjónum Kristrúnu
Eyvindsdóttur og Jónasi Magnús-
syni. Gísli greip til ýmiskonar starfa
í Stardal á milli þess sem hann
sótti vegavinnu og vertíðarstörf
bæði á Suðurnesjum og í Vest-
mannaeyjum. í Stardal leið honum
vel og stuðluðu þau hjónin að því
að hann gat notið þess að sækja
vinnu þar sem best var borgað á
hveijum tíma.
Gísli stefndi að því, eins og fleiri
ungir menn, að verða sér úti um
jarðnæði og réðst í það að taka
ábúð á jörðinni Leirvogsvatni í
Mosfellssveit. Jörðin hafði verið í
eyði í mörg ár og húsakostur frem-
ur orðinn úr sér genginn. Hafist
var handa um lagfæringar og naut
hann aðstoðar og fulltingis þeirra
Magnúsar Sveinssonar oddvita í
Leirvogstungu, og þó ekki síst Jón-
asar í Stardal, sem hann hafði ver-
ið til heimilis hjá í allmörg ár. Bú-
skapinn hóf Gísli svo árið 1947 og
hafði nær eingöngu sauðfé enda
jörðin í vesturbrún Mosfellsheiðar
og sauðland gott. Arið 1955 kemur
konan á heimilið, en það var Sigríð-
ur Bjarnadóttir, sem ættuð var af
Akranesi, og tókst þeim að sjá sér
allvel farborða við búskapinn, auk
þess sem Gísli sótti nokkuð vinnu
frá heimilinu.
Gísli var fjárglöggur, léttur á
fæti og hinn mesti garpur við fjár-
leitir enda þótt hann væri ekki allt-
af léttklæddur til fótanna. Marga
ferðina átti hann í eftirleitir um
heiðina og ekki síður í Esjuna, sem
þótti með afbrigðum erfið til smöl-
unar, en Gísla óx ekki í augum að
etja kappi við sauðkindina hvort
heldur var á víðáttu Mosfellsheiðar
ellegar í klungrum Esjunnar og
hafði jafnan betur.
Gísli naut vinsælda hjá næstu
nágrönnum sínum enda bóngóður
mín, þrátt fyrir verkina sem alltaf
komu við áreynslu, og vildi sjá börn-
in, elskurnar sínar. Hann var í miklu
uppáhaldi hjá börnunum mínum og
var sífellt að færa þeim eitthvað
góðgæti. Þau eiga eftir að sakna
hans mikið.
Elsku amma, það verður tómlegt
án afa og við söknum hans öll. Eg
bið góðan Guð að styrkja þig og
leiða um ókomin ár.
Katrín Helga Arnadóttir
og tilbúinn að gera smá viðvik ef
á þurfti að halda. Að vetrarlagi kom
sér oft vel fyrir vegfarendur að
geta komið í húsaskjól, enda veður-
lag við Þingvallaveginn oft erfitt
og snjóalög mikil og önnur en í
byggð. Árið 1972 varð það að sam-
komulagi við þáverandi oddvita
Mosfellshrepps að þau hjónin flyttu
„til byggða“ eða nánar tiltekið nið-
ur í þéttbýli hrepps á Varmá.
Hreppsfélagið lét gera úttekt á jörð-
inni og keypti eignir Gísla en hann
efnaði sér í þess stað að eignast
sitt eigið hús er sett var niður í
jaðri skólalóðarinnar á Varmá og
var það síðan kallað Varmárbrekka.
Þar bjó Gísli þar til yfir lauk.
Eftir að Gísii varð einn í húsinu
og heilsunni hrakaði, litu nokkrir
vinir hans til með honum en meðan
heilsan leyfði starfaði hann nokkuð
við skólamannvirkin. Þar var
Hreinn Þoi-valdsson verkstjóri, sem
fylgdist grannt með ástæðum þeirra
Siggu og Gísla og þá ekki síður
kennarar og starfsmenn skólans á
Varmá. Þangað gat Gísli alltaf snú-
ið sér og haft góðan félagsskap,
síðustu árin er hann fór að verða
þurfandi fyrir daglegt eftirlit. Skól-
astjórinn Birgir Sveinsson og hans
lið taldi það ekki eftir sér að víkja
góðu að þessum aldraða manni sem
var nú orðinn slitinn og þreyttur
og ekki var honum sýnt um að
þiggja þá góðu þjónustu sem heil-
brigðisstofnanir buðu honum fús-
lega uppá. Hann felldi sig einfald-
lega ekki við vist á sjúkifehúsi enda
alls óvanur því dekri sem fólk nýtur
á þeim stofnunum.
Nú hefir Gísli kvatt þetta tilveru-
stig og var öllum þakklátur fyrir
það að hann fékk aðstöðu til þess
að dvelja á heimili sínu þar til yfir
lauk. Veikindi voru honum fram-
andi enda varla misdægurt allt sitt
líf. Við samferðamennirnir þökkum
samveruna og þann lærdóm sem
við getum dregið af viðkynningu
við þennan sérstæða og metnaðar-
fulla mann sem tókst í harðri bar-
áttu að verða sjálfstæður íslenskur
bóndi og uppá engan kominn. Það
var takmark hans en það kostaði
hann mikla baráttu og mikið erfiði.
Hann var fátalaður við annað fólk
enda nokkuð heyrnarskertur. Hann
kunni vel að meta drengskap og
það sem vel var gert og talaði vel
um samferðamenn sína. Þegar Gísli
varð áttræður hélt hann hóf í Hlé-
garði og húsið fylltist af vinum og
frændum. Þessi hátíðarstund var
honum ekki aðeins minnisstæð
heldur einskonar lokaleikur í þeirri
skák sem hann hafði háð í lífinu.
Hann hafði mikla ánægju að geta
boðið vinum sínum til hófs en lét
ekki þar við sitja heldur gaf sóknar-
kirkju sinni á Lágafelli fullkomin
heyrnartæki í tilefni af afmæli sínu.
Gísli Þórarinn Magnússon var í
raun af hinni svokölluðu aldamóta-
kynslóð, sem ólst upp við lífskjör
sem nútímafólk hvorki þekkir né
skilur. Gísli hafði þann metnað að
skulda engum neitt og að lifa ekki
um efni fram. Það fólk aflaði ekki
mikilla jarðneskra verðmæta en
hagaði líferni sínu með ráðdeild og
hófsemi og eyddi aldrei meira en
það aflaði. Hugsjón Gísla, svo og
margra þeirra sem bjuggu við svip-
uð lífskjör, var að láta af hendi
rakna til velferðarmála samfélags-
ins og hafa sjóðirnT reynst furðu
dijúgir. Þeir hafa komið að góðu
haldi fyrir þá allsnægtakynslóð sem
dregur nú fram lífið í þessu landi
með barlóminn að leiðarljósi. Gísli
kveður með reisn og megi honum
farnast vel á næsta tilverustigi.
Jón M. Guðmundsson,
Reykjuni.
ERUM í FÍNU FORMI
MÁNUD./MtÐVIKUD. ÞRIÐJUD./FIMMTUD. FÖSTUD. LAUGARD.
ERÓ-GÓLF - 80 mín
limar I. fólk í góSu formi.
Mikil fituþr. Mjúkl og hart
eró. GóSar gólfæfingar
og teygjur.
FITUBR. II « Fyrir lengra
komna, meiri keyrsla,
mikil fitubr.
BARNSHAFANDI GóS
leikfimi f. barnshafandi
konur.
TRÖ.HRI-tröppu
hringur, meiriháttar
tröpputími á stöðvum,
profaSu II
SflMÞJONUSTA HEF5T
KL 0SJ30
9.00-10.00 RTUBR 1
0930-1040 URU.T*
1030-1140 MR<*
12.07-13.00 ÞR.HR4
12.07-13.00 THOPR 2
14.00-1S.00 FTTUBRJ
1S.OO-1S.SO MMLr.
1S.00-1S.00 RTUBJ-OK
ie.oo-ie.so mru.T*
10.40-1730 FTTUÐR 1.
1730-17.50 MRU.
1745-10.15 MRU.T*
1730-103« FTTUBR4
18.00-19.00 GIUJAN
POL
10.W-10.1S ÞFLMH 2*
1030-10.40 EROGOLF
103020.00 TRO.HRT
10.W40.1S MROLT*
10302030 mUB.LOK
20.0041.00 FmiBR.1
2O.W21.0S MRU.T*
2030-2130 FTTUBR4
SMAÞJONUSTA
HEFST KL 1X00
14.00-14.50 MR<*
14JSO-15.49 MRU.T*
1530-16.00 FTTUBR4
1030-1730 FTTUBR4
1035-1745 MML1*
17.00-10.00 TR0ÞR1
1745-1*45 ÞRHR1
1730-1030 FTTU04
18.80-19.00 BARNSFL
1*45-10.15 MRU.T*
1030-1030 FTTUBR4
1030-20.00 TR0ÞR4*
19.W20.1S ÞRHRT
191302030 FITUNLLOK
20.00-2030 MR8X
201541.W MROLT*
2030413* FTTURLOK
20504130 FTTUBR 1
(FOSTUD.)
030-10.00 TDOkTAQO*
10.00-1030 MMLr
12.00-13.00 TBÖ 2*
12.07-13.00 ÞR.HR.*
1S.00-1S.00 FTTUB.LOK
1630-1730 MR8dL
16.45- 17.45 TROÞfLI*
17.W10.1S ÞR.HR2*
17.45- 10.0S EROGOLF
ie.is-io.es MRu.r
10.00-11.00 FTTUB. LOK
11.00-12.00 FTTUBR.1
11.15- 12.15 BARNSK
1130-1230 ÞRHFL 4.*
12.00-13.00 FTTUBR. J
14.15- 13.05 MfHdL
14.45-1335 MRULT*
13.00-14.00 FTTUBXOK
1330-1430 TH0WL1*
14.00-1S.00 FITUBR2
15.go-1e.ee fitobxok
MR< - Magi, rass og
læri í lækjum: Styrkjandi
æfingar í tækjasal fyrir
byrjendur. LeiSbeinandi
stýrir hópnum.
FITUBR.I = Mjúkt eróbikk
í 45 mín og gólfæf. mikil
fitubrennsla ekkert hopp.
FtTUBR. LOKAÐ LokuS 8
vikna námskeiS með
frasðslu og aShaldi.
Tröppuþrek:
Styrkianai, þolaukandi
& mikil fitubrennsla
'Þar sem stjarna er fyrir aftan, þar þarf aS panta
fyrirfram samdægurs i gegnum síma
BARNAGÆSLA: UAN OG Ift ÞRIOGHM D 9.00-12.00 OG 14.-10.00 14.00-16.00
ÞR.HR. 1 = Þrekhringur fyrir byrjendur: tækjaleikfimi og eróbikk í bland. (stöÓvaþjálfun) hörkutímar. ÞR.HR. II = Þrekhringur fyrir lengra komna. Meiri keyrsla, púl og sviti. Fjör hvatning og aðhald.
ATH: Skráning samdægurs i alla MRL8J, ÞR;HR:; og
TRÖPPUÞR. komið tímanlega og takið númer í aðra tíma.
FITUMÆUNGAR
Fjölbreyttir og vandaðir tímar við allra hæfi.
Frjáls mæting-takmarkaðurfjöldi í tíma.
ÚDÍÓ JÓNINU & ÁGÚSTU
ifan 7. 108 Reykiavik. S 689868
>jER T(j