Morgunblaðið - 03.01.1992, Síða 41

Morgunblaðið - 03.01.1992, Síða 41
41 dal við Skutulsfjörð. Bjarney var yngst 8 systkina, en aðeins fimm þeirra náðu fullorðinsaldri. Að for- eldrum sínum látnum fluttist hún, 13 ára, til systur sinnar, Rannveig- ar, og maka hennar, Jóns Hró- bjartssonar, kennara á ísafirði, er síðar urðu foreldrar Herdísar Bier- á ing, hjúkrunarfræðings, sem alla tíð hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá Bjarneyju. Vináttu og ræktar- á semi þeirra hjóna, Herdísar og ’ Gunnars, læknis, fékk hún líka not- ið til síðustu stundar. Þar var góður i unglingaskóli sem Bjarney sótti ' veturinn 1909-1910. Pjórum árum síðar fluttist hún til Reykjavíkur, ráðin í vist hjá Eggert Claessen hæstaréttarlögmanni og fyrri konu hans, Soffíu Jónassen Claessen. Þau bjuggu þá í Pósthússtræti 17. Ólafur Þorsteinsson læknir bjó í húsinu á móti, við Skólabrú. Bjarn- ey sá stundum unga konu, sem hún kan'naðist ekki við, leggja leið sína þangað og spurðist fyrir um hver hún væri. Þegar henni var sagt að þetta væri dönsk hjúkrunarkona, starfandi í Reykjavík, sagðist Bjarney hafa hugsað. Þetta vil ég gera. Hún hafði líka heyrt um Oddnýju Guðmundsóttur sem hafði ( , lokið námi frá Kommunespítalanum í Kaupmannahöfn og kom til starfa hjá Hjúkrunarfélagi Reykjavíkur | frá árinu 1914. Oddný varð þriðji íslendingurinn sem fór í hjúkrunarnám erlendis. I Bjarney fór í sama skóla, þá að ráðum dr. Gunnlaugs Claessen, sem hafði milligöngu um að útvega henni námspláss á þessu ágæta Jj bæjarsjúkrahúsi, því að þar fengi * hún að hans mati alhliða og gott hjúkrunamám. Bjarney átti fyrir fargjaldinu og þegar til Danmerkur kom gat hún áætlað sér 10 kr. danskar á mánuði til eigin þarfa. Kvaðst hún hafa kviðið fyrsta deg- inum á spítalanum, en létti mikið þegar forstöðukonan sagði við hana: „Hvað er þetta, þér kunnið bara dönsku?" Bjarney undi vel hag sínum á spítalanum og eignaðist vini, sem hún hélt lengi sambandi við. Launin hennar á námstímanum voru aðallega fæði, húsnæði og vinnuföt, en vinnudagurinn var bæði langur og strangur. Heim kom hún aftur að námi loknu árið 1919, skömmu áður en Félag íslenskra hjúkrunarkvenna var stofnað. Bjarney starfaði á veg- um Hjúkrunarfélags Reykjavíkur við bæjarhjúkrun, sem svo var köll- uð til aðgreiningar frá hjúkrun á sjúkrahúsum. Það voru 145 áhuga- menn sem stofnuðu þetta hjúkrun- arfélag árið 1902. Jón biskup Helg- ason var formaður, annaðist sjálfur allar beiðnir um hjúkrunarhjálp í heimahúsum og skipulagði starfið í samráði við lækna bæjarins. Bjarney hætti störfum hjá þessu hjúkrunarfélagi fjórum árum síðar og gaf mér þá skýringu á því, að hún var stundum fengin til að vera hjá sjúklingum lengur en hún taldi þess þörf, ef fólk hafði ráð á að borga taxtann. Þeir sem höfðu minni efni gátu það ekki og enn síður greitt fyrir spítalavist, enda engar almennar sjúkratryggingar komnar þá til skjalanna. Bjarney gat ekki sætt sig við að vera bara hjá einum sjúklingi á batavegi, vit- andi að víða var hennar þörf hjá fárveiku fólki. Hún var ekkert að tala fjálglega um jafnrétti eða bræðralagshugsjón. Hún þurfti þess alls ekki. Hennar breytni sagði nóg um lífsviðhorfið á langri og far- sælli starfsævi. Þá réðst hún til starfa hjá Hjúkr- unarfélaginu Líkn, sem einnig var stofnað og starfrækt af hópi áhuga- manna. Þar starfaði hún áfram við hjúkrun í heimahúsum um fjögurra ára skeið en næstu 14 árin vann hún hjá ungbarnavernd Líknar. Margir muna enn eftir henni frá þessum árum, þar sem hún fór hjó- landi í vitjanir, til að boða fólk sem ekki hafði síma í skoðun. Það hefði nú verið gaman að eiga kvikmynd af henni hjólandi í síða búningnum sínum hvernig sem viðraði. Upp- teknum hætti hélt hún til efri ára, er hún varð nauðug að hætta hjól- reiðum þegar einhver ókunnur kaus að leggja ófijálsri hendi eign sína á þennan dýrmæta gamla grip, sem 1 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 mikil eftirsjá var að. Það var samt ekki laust við að sumum vinum og vandamönnum hafi að vissu leyti létt við að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af henni í sívaxandi umferð bæjarins. Hún hefði helst kosið að starfa áfram hjá ungbarna- vemd Líknar, en berklavarnadeildin sótti fast að fá hana til starfa og greiðvikin sem hún var féllst hún á það, og starfaði þar til ársins 1964. Að vísu var deildin þá orðin hluti af Heilsuverndarstöð Reykjavíkur frá árinu 1953. Það var stórkostleg breyting sem varð þá á starfsskilyrðunum. Sjálf man ég hana einna best sem sam- starfsmann og vin í gamla húsi Líknar fyrir vestan Alþingishúsið. Þar var oft þröngt setið í kaffihlé- um, þegar gesti bar að garði og umræður urðu iðulega líflegar og heitar um menn og málefni. En ekkert fékk haggað blessaðri Bjarn- eyju og mér finnst ég enn geta heyrt dillandi hlátur hennar yfir látunum. En eins og fyrr segir kom hún heim sama árið og Félag íslenskra hjúkrunarkvenna (eins og það hét þá) var stofnað. Eg spurði hana hvers vegna hún hefði ekki verið á stofnfundinum, en hún taldi sig ekki hafa vitað um fundinn og auk þess hefði hún verið þá á vakt í Mosfellssveitinni. Stofnendur voru bara 8 hjúkrun- arkonur, þijár þeirra vora danskar. Þóra J. Einarsson var komin vestur á ísafjörð og Steinunn Ólafsdóttir Jónsson var búsett í Kaupmanna- höfn, en þær voru fyrstu lærðu ís- lensku hjúkrunarkonurnar. Það hljómar nú orðið einkennilega að heyra talað um lærðar hjúkrunar- konur, en þess ber að minnast að þó nokkrar konur, víða um land, voru í hugum almennings ágætar hjúkrunarkonur, þótt ekki. hefðu þær hlotið neitt hjúkrunamám og aðeins mjög litla tilsögn hjá lækn- um. Með þessu höfðu þær leyst mikinn vanda, eins og reyndar margar ljósmæður, að ógleymdum kaþólsku systrunum. Þegar félagið fór að krefjast sér- menntunar til að fá hjúkrunar- starfsréttindi var þetta mjög við- kvæmt mál. Sumir voru mótfallnir því, eins og síðar þegar kröfur voru settar um háskólanám. Bjarney lét sér aldrei detta í hug annað en afla sér sem mestrar þekingar á sínu starfssviði og átti því gott með að skilja að með breyttum tímum væru gerðar enn meiri menntunarkröfur og var alla tíð reiðubúin til að leggja góðum málum lið. Hún fór því í framhaldsnám fyrir hjúkrunarkon- ur í heilsuvernd til Edinborgar árið 1928. A þessu breytingaskeiði mátti sjá auglýsingar frá yfírlæknum bæjar- sjúkrahúsa á Isafirði og Akureyri þar sem óskað var eftir fulllærðum hjúkrunarkonum. Ætli þeir hafi nokkurn tíma auglýst eftir fulllærð- um læknum? Það er áreiðanlegt að Bjarney hefur aldrei litið á sig sem fulllærða en hún var mjög traust- vekjandi í öllu sínu hjúkrunarstarfi og minnast hennar margir með miklu þakklæti og virðingu fyrir hennar samúðarríka skilningi á þeirra erfiðleikum í veikindastríði og allra umhyggju hennar. Bjarney var í stjórn hjúkrunarfé- lagsins frá árinu 1920 til 1943, all- an tímann sem gjaldkeri. Sótti þá oft þing og fulltrúafundi hjúkranar- kvenna. Með þessu móti öðlaðist hún töluvert góða yfirsýn yfir þróun hjúkrunar- og heilbrigðismála víðs vegar og þekkti allflestar starfandi hjúkranarkonur landsins meðan hún var í stjórn félagsins. Hún varð heiðursfélagi í Norska hjúkranarfélaginu og á fimmtugs- afmæli Hjúkrunarfélags Islands var hún gerð að heiðursfélaga þar og var síðar einnig sæmd Florence Nightingale-orðunni. Þegar hún kom heim að loknu námi fluttist hún aftur í Pósthús- stræti 17, þar sem hennar fyrrver- andi húsmóðir bauð henni að vera í mat hjá sér þá fáu daga sem hún væri ekki bundin við hjúkrunar- störf. Hún fékk ekki að vera kost- gangari uppi á lofti í Iðnó vegna þess að hún gat ekki komið í mat alla daga, því þegar hún var að hjúkra í heimahúsum naut hún „við- urgjörnings" samkvæmt 9. gr. í reglugjörð fyrir hjúkrunarkonur Hjúkrunarfélags Reykjavíkur. í Pósthússtræti bjó hún til ársins 1960 er hún flutti í eigin íbúð í Eskihlíð. í fyrra átti ég langt viðtal við hana á Borgarspítalanum, þá 97 ára, sem ég tók upp á spólu. Þá dáðist ég að því þegar hún var að rifja upp ýmsar endurminningar, sem við áttum sameiginlegar og þegar mér var sagt frá láti hennar fannst mér eins og ég væri komin að auðri síðu í lok áhugaverðrar sögu, þar sem í aðalhlutverki var glaðlynd, látlaus, hógvær og frið- söm kona sem umgekkst alla jafnt, unga sem aldna, hver sem í hlut átti, en sem öllum þótti gott að vera nálægt. Hún hvarf frá okkur á Þorláksmessudag inn í helgi jól- anna þegar farið var að syngja gömlu jólasálmana. „Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng“, segir í einum þeirra. Skáldin vita víst manna best hvað þau eru að segja, en einhvern veg- inn finnst mér að jarðreisa Bjarn- eyjar hafi verið óvenju farsæl, björt og hrein, og í huga okkar sitja bara eftir yndislegar endurminningar um kæra vinkonu. María Pétursdóttir Það var Þorláksmessa og allir að undirbúa komu jólanna, hver á sinn hátt. Þann dag kvaddi Bjarney Samúelsdóttir hjúkrunarkona, heið- ursfélagi í Hjúkrunarfélagi íslands, þennan heim. Bjarney var búin undir komu jólanna og hún var einn- ig viðbúin dauða sínum, til þess hafði hún nægan styrk. Með Bjarneyju Samúelsdóttur er gengin merk kona sem varði lífi sínu í að Iíkna öðrum. Allt líf henn- ar var samofið hjúrkunarstarfinu og gaf hún því alla sína starfs- krafta. Hún hélt utan til Kaup- mannahafnar til hjúkrunarnáms og lauk því námi frá Kommunehosp- italet í Kaupmannahöfn árið 1919. Hún hóf þá þegar störf við bæjar- hjúkrun í Reykjavík hjá Hjúkrunar- félagi Reykjavíkur og starfaði þar til ársins 1923. Það sama ár hóf Bjarney störf hjá Hjúkrunarfélag- inu Líkn og starfaði þar samfellt til ársins 1953 að undanskildum þeim tíma er hún stundaði fram- haldsnám í heilsuvernd við Royal Infirmary í Edinborg á árinu 1928. Hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn starf- aði Bjarney fyrstu árin við ung- barnavernd en síðar við berkla- vernd. Hún vann því mikið braut- ryðjendastarf í þágu heilsuverndar hér á landi. Þegar berklavarnar- deild hóf starfsemi sína í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur hóf Bjarn- ey störf þar og starfaði þar sleitu- laust þar til starfsferli hennar lauk árið 1964. Fáir félagsmenn í Hjúkrunarfé- lagi íslands eiga skilið eins mikið þakklæti fyrif góð og mikil störf í þágu félagsins og Bjarney Samúels- dóttir. Hún er sú hjúkrunarkona sem hvað lengst hefur gegnt trún- aðarstörfum fyrir Hjúkrunarfélag íslands. Bjarney var í stjórn félags- ins á árunum 1920 til 1943 og var gjaldkeri félagsins í þessi 23 ár. í stjórnartíð Bjarneyjar voru teknar mikilvægar ákvarðanir fyrir hjúkr- unarstéttina og unnið að veigamikl- um hagsmunamálum hjúkrunar- fræðinga. Má þar nefna aðild Fé- lags íslenskra hjúkrunarkvenna að Alþjóðasambandi hjúkrunarfræð- inga og Samvinnu hjúkrunarfræð- inga á Norðurlöndum, mótun til- lagna um menntun hjúkrunar- kvenna hér á landi, svo og stofnun Lífeyrissjóðs hjúkranarkvenna. Á þessum árum fengu hjúkrunarfræð- irigar sitt félagsmerki, tímarit Fé- lags íslenskra hjúkrunarkvenna hóf göngu sína, lagður var grunnur að húsnæðiskaupum fyrir félagsstarf- semi og hafist handa við að koma upp sumarhúsi fyrir félagsmenn. Að öllum þessum ákvörðunum stóð Bjarney heils hugar og lagði hún mikið af mörkum til að koma ákvörðununum í framkvæmd. Bjarney sýndi félaginu og öllu fé- lagsstarfinu ávallt mikinn áhuga. Fram á allra síðustu ár sótti hún nær undantekningalaust alla fundi og fræðsluerindi og var vakandi fyrir velferð félagsins. Bjarney Samúelsdóttir var braut- ryðjandi í mótun þeirrar hjúkrunar sem veitt er nú í dag. Hjúkrunarfé- lags íslands þakkar Bjarneyju Samúelsdóttur hjúkrunarkonu sam- fylgd alla, samstarf og allt það sem hún var íslenskri hjúkrunarstétt. Hjúkrunarfélag Islands kveður hana með virðingu, ástúð og þakk- læti. Blessuð sé minning hennar. Vilborg Ingólfsdóttir formað- ur Hjúkrunarfélags Islands. t Fósturmóðir mín, INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR frá Másstöðum, síðasttil heimilis í Funafold 28, Reykjavik, lést í elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að morgni nýársdags. Fyrir hönd aettingja, Anna Bjarnadóttir. t Hjartkær sonur okkar og faðir, JÓHANNES STEFÁNSSON kennari, lést 21. desember sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum öllum vinum og vandamönnum auðsýnda samúð. Katrfn Jóhannesdóttir, Stefán Hermannsson, Stefán Jóhannesson. t Móðir mín, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR frá Lundum, Laugarnesvegi 114, er látin. Jarðsett verður frá Áskirkju í dag, föstudaginn 3. janúar, kl. 15.00. Guðlaug Karlsdóttir. t Móöir mín, MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR, Stóru-Hildisey, A-Landeyjum, andaðist í Landspítalanum á nýársdag. Fyrir hönd vandamanna, Pétur Guðmundsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF JÓNA JÓNSDÓTTIR frá Hnífsdal, Vallarbraut 1, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness á nýársdag. Friðgerður Bjarnadóttir, Erla Guðmundsdóttir, ' Gísli S. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, ÁGÚST ÁSGRÍMSSON, Aðalstræti 70, Akureyri, sem andaðist á dvalarheimilinu Hlíð 26. desember, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. janúar 1992 kl. 13.30. Fyrir hönd annarra vandamapna, Iðunn Ágústsdóttir, Ásgrimur Ágústsson, Brynjar Ágústsson, Heiðar Ingi Ágústsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GARÐAR BJARNASON, Snæiandi 8, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 3. janúar, kl. 15.00. Jóhanna Júlíusdóttir, Sveinbjörn Garðarsson, Kristín S. Garðarsdóttir, Guðný J. Garðarsdóttir, Eiríkur I. Garðarsson, Snorri F. Garðarsson og barnabörn. Björg Stefánsdóttir, Steingrímur Steingrímsson, Þráinn Óskarsson, Sigurlaug Baldursdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.