Morgunblaðið - 03.01.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.01.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 45 Sigurður Bragason. TÓNLJST Góðar viðtökur Þeir Sigurður Bragason söngvari og Hjálmur Sig- hvatsson píanóleikari fengu góðar viðtökur á tónleikum er þeim var boðið að halda í hinu þekkta tónleikahúsi Palais Wittgenstein í Dusseldorf fyrir skömmu. Hefur þeim verið boð- ið að koma aftur og leika og syngja að ári, auk þess sem önnur boð standa þeim opin um þessar mundir, til dæmis í Bret- landi. Á tónleikunum fluttu þeir verk eftir Vaughan Williams, Benjamin Britten, Atla Heimi, Árna Björnsson, Björgvin Guð- mundsson og Bellini. FLmffERCiO Spænskir dansar i fyrsta sinn d Island SKILNAÐIR Fólk dauðsér eftír fyrri mökum- ekki sízt þeir endurgiftu Nokkrir sérfræðingar við Bri- stol háskólann í Englandi hafa nýlega sent frá sér athyglis- verðar niðurstöður úr viðamikilli skoðanakönnun sem þeir gengust fyrir. í könnuninni kynntu þeir sér viðhorf fólks til hjónaskilnaða og leitað var eftir viðhorfum fólks sem hafði skilið einhvern tímann á lífsleiðinni. Upp úr dúrnum kom, að ótrúlega margir fráskildir aðilar dauðsáu eftir því mismörgum árum síðar að hafa skilið. Þegar þeir skoðuðu málin úr fjarlægð gekk þeim betur að sjá vandamál- in og hvernig hefði verið unnt að leysa þau. Meira að segja reynd- ust ótrúlega margir aðilar sem voru giftir á ný óska þess að þeir væru enn með sínum fyrri mökum. Ef við lítum aðeins nánar á ein- Tony Newly og Joan Collins. stakar tölur í könnuninni kemur í Ijós að í þeim hópi fráskildra sem ekki höfðu gift sig á ný voru mun fleiri karlar sem óskúðu þess að leiðir hefðu aldrei skilið, 51 pró- sent. 28 prósent einhleypra frá- skildra kvenna játuðu sams konar hugrenninga. Meðal þeirra sem höfðu gift sig á ný voru 28 pró- sent karla sem óskuðu þess að þeir væru enn með fyrri maka og 21 prósent kvenna. í kjölfarið á könnun þessari í Bretlandi er farin af stað m'ikil umræða um að breyta löggjöf þeirri sem fjallar um skiln- aðarmál. Vilja nú margir í ljósi þessara upplýsinga þrengja mjög að þeim sem vilja skilja. Gera fólki erfiðar fyrir, en auka að sama skapi fræðslu og ráðgjöf. Hvergi í löndum EB er skilnaðartíðni hærri en á Bretlandseyjum þar sem 37 prósent hjónabanda fara út um þúfur og íjórða hvert bam upplifir heimilisrof af þeim sökum fyrir 16 ára aldur. Talsmenn þessa notfæra sér gjarnan, að talsvert er um að þekkt fólk hafi tekið saman aftur eftir skilnað. Ef til vill besta dæmið um það er Hollywoodparið Melanie Griffith og Don Johnson. Þau voru gift fyrir all mörgum árum, en voru bæði villt og á kafi í vímuefnum og hliðarsporum. Þau skildu, en mörgum árum síðar eftir að þau höfðu haslað sér völl í hinum harða heimi kvikmyndanna, losað sig við eitrið og áttað sig á vandamálum sínum, tóku þau saman á ný og segjast yfír sig ástfangin og þakklát fyrir að bera gæfu til að reyna aftur. Það er einnig haft eftir hinni þekktu Joan Collins, að hún hafi aldrei almennilega jafnað sig eftir skilnaðinn við Tony Newly á sínum tíma. Newly hefur tekið undir það og segir það hin verstu mistök. Dansstúdíó Sóleyjar býður upp á frábært 3ja mánaða námskeið í flamenco og spænskum dönsum. Við höfum fengið atvinnudansarann og kennarann Francisco Morales frá Madrid á Spáni. Hann hefur dansað með Luis Fuente's Ballet Clasico, Harkness Ballet og Luigi's Dance Company í New York. Hann hefur verið heiðursdansari Ballet International de Caracas. 1979 stjórnaði hann einnig balletflokknum Espanol Nacional. Þetta námskeið er ætlað öllum sem hafa gaman af að dansa, börn, konur og karla á aldrinum 10-65 ára. S Ó L E Y jAr '% Námskeiðið byrjarlö. janúar. Innritun hefst 6. janúar í símum 687701 og 687801.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.