Morgunblaðið - 03.01.1992, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú færð mikla uppörvun í vinn-
unni í dag, en getur lent í erfið-
leikum í fjölskyldulífinu ef þú
ferð algerlega þínu fram.
Sýndu fólkinu þínu að þér þyk-
ir vænt um það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú færð eftirþanka út af ein-
hveq'u sem þú gerðir í vinnunni
og þú gerir þér grein fyrir að
meira vinnur vit en strit. Haltu
friðinn við samstarfsfólk þift.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Kannaðu allar hliðar á fjárfest-
ingaráformum þínum. Mann-
fundir og skemmtan eru efst á
óskaiista þínum núna, en ein-
hver vina þinna veitir þér
óþarflega harða samkeppni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HfB
Deildu ekki við einhvem í fjöl-
skyldunni í kvöld. Vinátta fær-
ir þér mikla farsæld og hjóna-
band þitt er með miklum ágæt-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú færð ríkulega umbun í starfi
þínu núna og þér bjóðast ný
tækifæri. Þú nýtur þess að
vera innan um ástvini þína, en
ættir að forðast að dragast inn
í deilu í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Peningar geta orðið viðkvæmt
umræðuefni í kvöid. Það er
rómantískt andrúmsloft í
kringum þig núna. Þú heldur
upp á eitthvað með fjölskyld-
unni.
(23. sept. - 22. október)
Þú hefur heppnina með þér
heima við núna. Þér berst ein-
hvers konar gjöf í dag. Láttu
ástvin þinn vita hversu mjög
þér er annt um hann.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^0
Þú ert í skáldlegum þönkum í
dag. Þið hjónin eruð sammála
um að hveiju skuli stefnt í
framtíðinni. Hugsaðu ekki of
mikið um vandamálin í vinn-
unni og líttu jákvætt á hiutina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Atvinnuhorfur þínar fara batn-
andi núna, en vertu á varð-
bergi gagnvart hæpnum við-
skiptatiiboðum. Vinsældir þín-
ar ná hámarki í dag.
Steingeit
(22. des. — 19. janúar)
Sambönd þín úti í þjóðfélaginu
koma sér vel fyrir þig núna.
Einhver ættingja þinna kann
að eiga við krankleika að stríða
í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú færð góðar fréttir úr fjar-
lægð. Þér lætur best að vinna
heima við núna. Þú vilt hafa
ró og næði í kringum þig.
Gættu þess að lenda ekki í rifr-
ildi í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Íl£i
Þú skalt ekki lána peninga í
dag. Greindu á milli vina þinna
og sýndarvina. Einhver sem þú
hittir í dag er í aðstöðu til að
hjálpa þér í starfi þínu.
Stjörnusþána á a<) lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
SMAFOLK
Hvað varð um alla haustlitina?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þriðja jólaþrautin.
Howard Schenken, Banda-
ríkjunum: „Flýttu þér hægt þeg-
ar þú ert í vörn í þriðju hendi.
Þá er rétti tíminn til að hugsa.“
Suður gefur; AV á hættu.
Vestur
♦ 10873
V5
♦ Á962
♦ 7542
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Utspil: tígultvistur, 4. hæsta.
Sagnhafi lætur strax iítinn
tígul úr blindum og setur þrýst-
ing á austur. Það fyrsta sem
austur ætti að gera, er að leggja
frá sér spilin og hugleiða hvað
hann veit. Ekkert liggur á.
Samkvæmt útspilinu á makk-
er nákvæmlega 4-lit í tígli. Spila-
mennska sagnhafa segir líka
stóra sögu um tígullitinn. Hann
á ekki ásinn, því þá hefði hann
stungið upp drottningu blinds.
Að öllum líkindum er hann með
Gxx.
Austur býst við að fá slag á
hjartakóng og hann sér þijá
slagi á tígul. Fimmti slagurinn
verður að koma á svartan lit,
nánar tiltekið, spaðakóng, því
sagnhafi á ekki opnun nema
hann haldi á ÁK í laufi.
Ef við lítum á aðstöðu sagn-
hafa, þá hefur hann efnivið í 9
slagi fái hann frið. Hann fær
alltaf 4 á lauf og a.m.k. 3 á
hjarta. Spaðaás og slagur á tíg-
ul, tryggja honum vinninginn.
Nema vörnin geti stolið slag á
spaða áður en sagnhafi kemst
að.
Það er óþarflega áhættusamt
að drepa á tígulkóng og skipta
strax yfir í spaða. Öruggasta
vörnin er að spila makker inn á
tígulás og fá spaða þá í gegn.
En mun makker skipta yfir í
spaða? Kannski getum við hjálp-
að honum með því að spila Tígul-
áttu til baka, eins og við hefðum
bytjað með K8x og sagnhafi þá
GlOxx. Þá skiptir makker yfir
í spaða, „af því það er ekkert
annað að gera“.
SKÁK
♦ A962
¥Á32
♦ D5
♦ D1086
Suður
♦ D4
V DG109
♦ G74
♦ ÁKG3
Austuf
♦ KG5
VK8764
♦ K1083
♦ 9
Umsjón Margeir
Pétursson
Á ungverska meistaramótinu í
desember kom þessi staða upp í
viðureign elstu Polgar-systurinn-
ar, Zsuzsu Polgar (2.525), og
stórmeistarans Gyula Sax
(2.600), sem hafði svart og átti
leik. Hvítur lék síðast 46. b4-b5
-al=D+) 48. - al=D+, 49. Kh2
- Hxg2+!, 50. Kxg2 - d4+, 51.
bxc6 - dxe3, 52. e7 - Da8 og
hvítur gafst upp. Þessi sigur dugði
Sax til að taka forystuna á mót-
inu, því mikið var um jafntefli á
mótinu í fyrstu umferðunum.
Janúarhraðskákmót Taflfé-
lags Reykjavíkur verður haldið
sunnudaginn 5. janúar og hefst
kl. 20 í félagsheimili TR í Faxa-
feni 12. Þetta er fyrsta mánaðar-
hraðskákmót TR sem haldið er
með nýju sniði og eru félagar og
aðrir hvattir til að mæta, en mót-
ið er að sjálfsögðu öllum opið.