Morgunblaðið - 19.01.1992, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
FYRIR OKKUR ÖLL
Ný símavakt sjálfboðaliða Rauða krossins tekin til starfa
Sigtryggur Jónsson
og tíma. Það eykur þeim lífsfyllingu
að fínnast þeir gera gagn. Það eru
forréttindi að vera þannig staddur
í lífínu að maður geti gefið og það
er nægileg umbun. Sjálfboðaliðinn
gefur kost á sér að eigin vali og
ætlast ekki til launa í formi peninga
eða þakklætis."
Venjulegar manneskjur
Sjálfboðaliðar Ungmennahreyf-
ingar Rauða kross íslands áttu
frumkvæðið að stofnun Vinalínunn-
ar og að sögn Helgu var það fyrir
áhuga þeirra og dugnað að starf
þetta fór af stað. „Sjálfboðaliðarnir
gerðu sér Ijóst að þeir þyrftu góðan
undirbúningstíma til þess að fræð-
ast og að nauðsynlegt væri að þeir
fengju einhveija undirbúningsþekk-
ingu í að svara í símann," sagði
Helga. „Styrkur sjálfboðaliðanna
felst m.a. í því að þeir eru venjuleg-
ar manneskjur sem eru tilbúnar að
hlusta og miðla af eigin reynslu.
Þeir verða að geta verið heiðarlegir
gagnvart því sem þeir ráða ekki
við, þannig gera þeir meira gagn,
en ef þeir fara í einhveijar sérfræð-
ingastellingar. Besta leiðin leiðin í
mannlegum samskiptum er að
koma jafnan til dyranna eins og
Morgunblaðið/Keli
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudags-
kvöld gafst landsmönnum í
fyrsta skipti kostur á að hringja
í Vinalínu Rauða krossins í síma
91-616464 og í græna númerið
þar 996464. Vinalínan er síma-
þjónusta, þar eru sjálfboðaliðar
Rauða krossins við símtækin,
tilbúnir að hlusta á fólk sem
vill létta á hjarta sínu, hvort sem
vandamál þess eru smá eða stór.
Sjálfboðaliðarnir eru ekki sér-
fræðingar, en að sögn Helgu
Þórólfsdóttur félagsráðgjafa,
sem starfar hjá Rauða krossin-
um, hafa sjálfboðaliðarnir eigi
að síður fengið nokkra þjálfun
og undirbúning fyrir þetta starf.
Mannúð, óhlut-
drægni, hlut-
leysi, sjálfstæði,
sjálfboðahjálp,
eining og al-
heimshreyfing,
þannig hljóða
grundvallarmarkmið Rauða kross-
ins og í anda þeirra starfa sjálfboð-
aliðar Rauða krossins," sagði Helga
í upphafí viðtals sem blaðamaður
Morgunblaðsins átti við hana á
skrifstofu hreyfingunnar á Rauðar-
árstíg 18. „Sjálfboðaliðarnir sem
starfa við Vinalínuna eru eins mis-
jafnir og þeir eru margir, bæði hvað
varðar reynslu og hæfni til þess að
hlusta og miðla af sinni reynslu,"
sagði Helga ennfremur. „Þeir eiga
hins vegar allir sameiginlega þá trú
að mikil þörf sé fyrir vinalínu í
okkar þjóðfélagi. Þeir eiga einnig
vilja til þess að leggja sitt lóð á
vogarskálarnar svo öðrum líði betur
og hafa þörf til þess að hjálpa með
því að deila með öðrum reynslu sinni
KVENIXLAGID
HLIMAEY
Vestmannaeyingar
Munið þorrablót félagsins
sem verður haldið í Skútunni, Dalshrauni 15,
Hafnarfirði, laugardaginn 25. janúar.
Miðasala í Skútunni fimmtudaginn 23. janúar
frá kl. 17.00-19.00.
Upplýsingar í síma 656075.
Mætum sem flest.
Stjórnin.
maður er klæddur. Sjálfboðaliðarnir
gera sér grein fyrir að þeir eru
ekki fagfólk og ætla sér ekki að
verða það. Samt sem áður er það
mjög mikilvægt að þeir afli sér sem
mestrar þekkingar, sem gerir þeim
kleift að taka á sem flestum málum.
Það er einnig mikilvægt að sjálfboð-
aliðarnir njóti handleiðslu sérfræð-
ings í starfi sínu.
Bundnir trúnaðareiði
Sjálfboðaliðar Vinalínunnai'
koma ekki fram undir nafni og eru
bundnir trúnaðareið. Þeir gera sitt
besta og það er undir þeim komið
sem hringir, hvort hann nýtir sér
það sem uppá er boðið. Sá sem
hringir þarf heldur ekki að gefa upp
nafn sitt. Auk þess að vera til stað-
ar fyrir þann sem hringir getur
Vinalínan, þegar reynsla er komin
á starfsemi hennar, gegnt því mikil-
væga hlutverki að koma almennum
upplýsingum á framfæri um það
sem ábótavant er í okkar þjóðfélagi
og haft áhrif á það að eitthvað
verði gert til úrbóta. Vinalínan er
ekki aðeins til fyrir þann sem hring-
ir heldur líka fyrir þann sem svar-
ar,“ sagði Helga að lokum. „Vina-
línan er farvegur fyrir þörf mann-
eskjunnar til þess að láta gott af
sér leiða.“
Fyrsta skrefið oft erfiðast
Sigtryggur Jónsson sálfræðingur
hefur leiðbeint sjálfboðaliðum Vina-
línu Rauða krossins á námskeiðum
og mun veita þeim handleiðslu í
starfi. „Til Vinalínunnar getur jafnt
leitað það fólk sem sem líður illa
og hitt sem þarfnast beinharðra
upplýsinga,“ sagði Sigtryggur þeg-
ar blaðamaður spurði hann hvaða
fólk hann teldi eiga brýnast erindi
við Vinalínuna. „Þangað geta menn
leitað sem langar til að létta af sér
vanlíðan eða reiði. Einnig fólk sem
er í hugleiðingum um hvað það eigi
að gera í tegnslum við alls kyns
erfiðleika eða vandamál. Fólk í
sjálfsvígshugleiðingum kann einnig
að finna létti við að taia við Vinalín-
una. í sumum tilvikum getur Vina-
lína leyst úr vandamálum t.d. ef
fólk vantar upplýsingar, en í öðrum
málum getur samtal við Vinalínuna
brotið ísinn í átt að lausn, fengið
fólk til þess að byija að takast á
við vandamál sín. Oft er fyrsta
skrefið erfíðast í þeim efnum."
Að sögn Sigtryggs getur það
verið auðveldara fyrir fólk að ræða
vandamál sín í síma en augliti til
auglitis við einhvern. „Fólk má hins
vegar ekki halda að það fái sér-
fræðilega meðferð í gegnum síma,“
sagði Sigtryggur. Hann hefur leið-
beint sjálfboðaliðum Vinalínunnar á
námskeiðum sem miðuðu að því að
hjálpa þeim til þess að kynnast,
auka samkennd hópsins og sam-
vinnu. Einnig var sjálfboðaliðunum
kennd undirstöðuatriði í viðtals-
tækni. „Það er nauðsynlegt fyrir
fólk í slíku starfi að taka vandamál-
in ekki allt of mikið „inn á sig“,
sagði Sigtryggur. „Þannig eiga
sjálfboðaliðarnir auðveldara með að
hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft.
Hættan við sjálfboðaliðana er að
þeim finnist að þeir þurfi að gera
hlutina fyrir fólkið sem leitar til
þeirra. En slíkt yrði óneitanlega til
þess að sjálfboðaliðarnir myndu
fljótlega „brenna út“ sem hjálparað-
ilar. Það er nauðsynlegt að veita
þeim faglega handleiðslu áfram.“
Að sögn Sigtryggs verða sjálf-
boðaliðar sem sinna símavakt Vina-
línunnar að hafa til að bera gott
sjálfstraust og sjálfsvirðingu og
vera ákveðnir. „Þeir sem slíku starfi
sinna mega heldur ekki sjálfir „sitja
inni“ með mikið af óunnum vanda-
málum,“ sagði Sigtryggur að end-
ingu.
UTSALA
20-50% afsláttur
»huimnel
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555
VISA
E