Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 34

Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 MYNDLIST Hvaða helv... berserkj asveppur er þetta? Athyglisverður myndlistarmaður var hér á ferð á dögunum. Það var Anna Concetta Fugora, hálfíslensk, hálfítölsk, búsett í Vermont í Bandaríkjunum og orðinn talsverður „Kani“ í framburði. Hún hélt til Vermont fyrir skömmu eftir um 8 mánaða dvöl hér á landi að þessu sinni. Þegar hún kom, gersamlega óundirbúið af hennar hálfu, hafði hún með sér 30 myndir og þær eru nær allar seldar. Þrjár þær síðustu hanga uppi í Ommu Lú. Þó sýndi hún ekki í þekktu galleríi, einungis skamman tíma á veggjum Kaffi 17 i samnefndu tískuhúsi á Laugarveginum rétt við Hlemm. Það eiga mjög margir myndir eftir mig, ég hef komið hingað til lands nokkrum sinnum og sýnt síðustu árin og myndir mínar ganga vel. í þetta sinn gat ég varla sýnt, en ég var á hlaupum með myndirn- ar mínar og hafði bara kjafturinn á mig til að selja þær“, sagði Anna á sinni óvenjulegu íslensku þar sem fallbeygingar koma lítt við sögu. „Myndlistarmönnum finnst svona mikil sala alveg brjáiuð," bætir hún við og hér eftir verður í textanum freistað þess að beygja rétt í tilvitn- Anna Fugora gægist út um glugga sinna. unum í Önnu Fugoru. Hún er fædd í Bandaríkjunum, móðir hennar er íslensk, faðir henn- ar ítali, en hún er alin upp hér og þar, m.a. í nokkur ár í Asíu þar sem hún var í námi hjá munkum um hríð. í Bandaríkjunum var hún þó að mestu, en á íslandi í 12 ár sam- tals á yngri árunum, en í seinni tíð hefur hún heimsótt skerið reglulega og þá gjarnan sýnt myndlist sína í leiðinni. Æskuheimili hennar í Bandaríkjunum var í New York. „Þar umgekkst ég marga kynlega kvisti og raunar má segja um líf mitt allt, að það hefur verið mjög dramatískt. Lang- tímum saman hef ég orðið fyrir áhrifum af dul- speki og allt kem- ur þetta fram í list minni. Ég hef allt- af búið við sterka kontrasta og það kemur alltaf fram í myndum mín- um,“ segir Anna. Myndir hennar, iistin sem um ræð- ir eru klippimynd- ir, sem er íslensk þýðing á erlenda heitinu „colage". Hún hefur ekki hefðbundna skól- un á bak við sig, uppspretta mynd- listar hennar er margþætt. M.a. hefur hún lært á einu verka skartgripasmíði. „Tengsl mín við „Svefn“. ísland þegar ég var í uppvextinum voru mér mikilsverð og seinni árin hafa þau alltaf skipt mig meira og meira máli. Ég rek mig í vaxandi mæli á það að ég á erfitt með að slíta mig burtu aftur. Vil helst vera. Fólkið er svo „spes“, það er svo mikið um að vera. Maður bara vakir og vakir og ég er slíkt samkvæmis- fiðrildi að ég gleymi mér gersamlega. Það má því segja að hér á landi geti ég ekki unnið. Aftur í Vermont, þar búum við maðurinn minn uppi í sveit. Þar er bara tún við tún og skógur við skóg. Það er ekkert við að vera annað en að vinna og því verð ég að vera þar. Á íslandi brennir maður kertið í báða enda,“ segir Anna. En hvernig er að breyta svona gersamlega til? “Það er nauðsyn- legt, vinnunar vegna. Það má líka segja, að ég þarf svo stórt stúdíó til að vinna að ég gat hvergi verið á íslandi. Mér duga ekki minna en 80 fer- metrar með sex metra lofthæð, ég sanka svo miklu efni að mér. Mað- urinn minn, Sigurður Viðar Guðjónsson er bæði trésmiður og lista- maður. Hann reisti þama 600 fermetra hús bók- staflega úr afgöngum! Þannig er mál vexti, að nokkuð frá okkur er snobbaður lítill háskóla- bær að nafni Burlington. Þar var verið að reisa stóra listamiðstöð. Það var svo miklu byggingarefni hent á haug- ana þar við smíðina, að maðurinn minn byggði úr því 600 fermetra höll. Mamma býr þarna líka og dag einn er hún leit út rak hana í rogast- „Minningar." Ljósmyndir Odd Stefán. ans. Svo öskraði hún, hvaða djöfuls berserkjasveppur er þetta! Þá var Sigurður búinn að slá upp veggina. Þarna ætlum við að taka á móti íslendingum sem vilja koma og hvíla sig, eða myndlistamönnum sem vilja vinna í friði og ró. Gera þarna nokkurs konar litla-ísland!“ En hvemig era myndir Önnu? Hvert er mynd- efnið? „Það er margt. Tæknin sem ég nota býð- ur upp á mikla mögu- leika. Helst eru myndir mínar af alls kyns furðu- íyrirbærum. Mikilsvert er að yfir þeim sé blær frá öðrum heimi. „Gam- alt og rómantískt" er einnig sterkt í mynd- unum og svo geri ég mikið af því sem Banda- ríkjamenn kalla „Shadow Boxes“, en það eru 10 til 15 sentimetra djúpar „colage“-þrívíddamynd- ir. Efnið sem ég nota á sér engin takmörk. Ég set allt undir glerið sem mér finnst eiga við hveiju sinni, hvort sem það er hattanet, tvinna- kefli, leirklessa eða bara hvað sem er. Ég er í jafn- vægi, en það eru samt engar hömlur. Þá veit ég sjaldnast hvernig mynd mun enda þegar ég byija. Oftast fer ég af stað með hugmynd, en svo dettur mér eitthvað annað í hug. Ég er ör og hugur- inn er alltaf að spinna og spóla. Þegar á vinnslu myndar líður verða valkostirnir um fram- haldið fleiri og þá er aðal- atriðið að rata á rétta leið.“ Það var og. En hvað stendur fyrir dyrum fyrir utan að stofna litla- Island vestur í dreifbýli Vermontríkis? „Ég ætla að koma út bók í Banda- ríkjunum með verkum mínum. ísland er í tísku þar um þessar mundir. Þar halda menn að hér sé allt hreint og ómeng- að. Jarðfræðingar þekkja landið og laxveiðimenn þekkja landið. Allt upp- lýst fólk þekkir landið og að ferðast hingað er spennandi tilhugsun. Með því að koma því að strax í inngangi slíkrar bókar að ég sé Islending- ur mun _ athyglin verða tryggð. Ég stefni einnig að því að sýna í Banda- ríkjunum. Og ég vildi gjarnan koma heim eftir svona tvö ár, betur undirbúin heldur en nú, með stóra sýningu í farangr- inum. Og svo vona ég að landar mínir vilji koma út og vinna eða hvíla sig í litla-íslandi. Nóg er pláss- ið! ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA VORUMAÐ FÁ NÝ ULLAREFNI í KÁPUR OC JAKKA jjatferu Sara Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, síma 651660 70% AFSLATTUR AF FATAEFNUM 30% AF5LÁTTUR AF FRÁB/ERUM LEÐURTÖ5KUM NÝTT, NÝTT, NÝTT MARGAR GERÐIR AF KÖFLÓTTUM EFNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.