Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
17
TILLÖGUR
ÍMARS
Morgunblaðið hafði samband
við Harald Johannessen
fangelsismálastjóra og innti
hann eftir hvað nýtt væri á döf-
inni í málefnum fangelsa á ís-
landi. Haraldur sagði að ýmsar
breytingar hefðu átt sér stað á
síðustu mánuðum en nú væri
starfandi nefnd sem Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðherra
hefði skipað til þess að gera
úttekt á stöðu fangelsanna.
Nefndin væri að vinna að þessu
verkefni og stefnt væri að því
að leggja tillögur hennar fyrir
dómsmálaráðherra í mars n.k.
Haraldur Johannessen
um að gefa okkur sjálf „klapp á
bakið,“ segir Dagný. „Við fáum ekki
umbun eða þakklæti nema hvort hjá
öðru. Fangarnir eru alltaf fegnir að
losna við okkur og láta sumir eins
og þeir sjái okkur ekki þegar út er
komið, enda heilsum við þeim aldrei
að fyrra bragði ef ske kynni að þeim
þætti það óþægilegt. Þetta er ólfkt
því sem gerist með hjúkrunarfólk og
sjúklinga. Það uppsker þakklæti
þeirra sem það hlynnir að. Við finn-
um sjaldan slíkt hjá okkar skjólstæð-
ingum meðan þeir eru í okkar um-
sjá. Við erum eins og foreldar mjög
erfiðra bama sem sjaldan eru gleði-
gjafar.“
Þetta segja þremenningarnir
brenna á öllum fangavörðum enda
sé þetta eitt af því sem varað sé við
í fangavarðaskólanum. „Jafnvel þótt
einhver vinátta myndist milli fanga-
varða og fanga þá má hún alls ekki
ganga of langt, maður verður að
fínna takmörk sín í þeim efnum, við
megum ekki taka mál fanganna of
mikið inn á okkur,“ segir Áslaug.
„Við lærum líka fljótlega að útiloka
okkur frá vinnunni þegar heim er
komið og gera okkur engar gyllivon-
ir með þetta fólk,“ segir Dagný.
„Við þurfum að læra umburðarlyndi
og að dæma ekki fólk, því í þessu
starfí kynnist maður ótrúlegum hlut-
um. Einu sinni var ég á fangelsis-
málanámskeiði í útlöndum og við
hlið mér sat elskulegur drengur. Ég
vissi að hann átti að fara í fangelsi
en vissi ekki fyrir hvað. Hann var
með gítar og við og fleira fólk sátum
oft og spiluðum og sungum og höfð-
um það mjög skemmtilegt. Síðasta
daginn sem ég var samtíða honum
kom í ljós að hann hafði verið trúlof-
aður, hafði líftryggt kærustuna sína
og sprengt hana síðan í loft upp fíl
þess að fá líftryggingarpeninga. Ég
hugsa að ef ég hefði vitað þetta fyrir-
fram hefði ég ekki viljað kynnast
honum. Þetta kenndi mér það að
þótt fólk hafí hina hræðilegustu hluti
á samviskunni þá á það einnig sitt-
hvað gott til. Okkur hér dettur ekki
í hug að það lagist allir eða breytist
sem hér dvelja, en við óskum öllum
sem héðan fara alls hins besta.“
Eftir þetta samtal fylgjumst við
ijögur að niður í kjallarann til þess
að skoða fyrrnefnt þvottahús. Þar
inni er hið raka, hlýja andrúm sem
gjarnan fylgir þvottastússi. Tvær
stórar þvottavélar og þurrkari hvíla
„lúin bein“ meðan gardínur úr Hegn-
ingarhúsinu liggja votar og útbreidd-
ar á stóru borði til hliðar við sauma-
vél og slitin rúmföt sem bíða viðgerð-
ar. Á gólfinu er bali, hvar í liggja
fölar og fáar rýjur í klórvatni. Áslaug
Ólafsdóttir er hér á heimavelli og
skýrir hvernig starfsemin fer fram.
Fangarnir tveir, sem um þessar
mundir eru starfsmenn þvottahúss-
ins, hafa lokið vinnuskyldum sínum
þennan daginn og eru horfnir inn í
sína lokuðu herbergisveröld en hafa
skilið eftir sig óljósan „mannaþef",
í þeim mæli þó, að ég get séð þá
fyrir mér vinna verk sín, ganga frá
og bijóta saman hreinan og heitan
þvottinn. Líklegt má telja að þessum
föngum sé þvottahúsvinnan hvatning
á þeirra erfíðu leið. Flest fólk eflist
til dáða, finni það að aðrir treysti
því. Hvernig var ekki með söguhetju
Victor Hugo úr Vesalingunum, Jean
Valjean, fangann úr dýflissunni.
Hann varð hinn mætasti borgari
vegna þess trausts sem fátækur bisk-
up sýndi honum. Og hafði þó Valjean
stolið frá honum silfurmunum. Bisk-
upinn bjargaði honum frá nýrri
fangavist með því að segja lögregl-
unni að hann hefði gefið honum
silfurmunina til að selja og bætti svo
við: „Jean Valjean, bróðir minn, þér
eruð ekki lengur á vegi hins illa,
heldur hinsgóða. Það er sál yðar sem
ég kaupi. Eg dreg hana frá hinum
dimmu hugsunum, frá anda glötun-
arinnar og gef hana guði.“
Guðmundur Gíslason Morgunblaðið/Þorkell
valda af fangelsismálum fyrst og
fretpst einkennst af áhugaleysi.
Þessi málaflokkur hefur ekki verið
vinsæll í umræðu stjórnmálamanna.
Hann er dýr og skilar ekki miklum
arði, sé mælt í beinhörðum pening-
um, auk þess að vera sorglegur og
þreytandi í alla staði. Nú eru viss
teikn á lofti um að hugsanlega
verði hér einhver breyting á. Nú
er að störfum nefnd sem á að
gera tillögur um framtíðarskipan
fangelsismála. Það er vissulega
af hinu góða og getur orðið til
að ýmislegt breytist, t.d. í sam-
bandi við fangavinnuna."
Mínum nánustu og öðrum, sem urðu til þess
að gera 80 ára afmœli mitt þann 10. janúar
að miklum gleðigjafa, þakka ég af alhug.
Vinátta er eitt af því besta, sem ég gat kosið
mér yfir á níunda áratuginn.
Lifið heil!
Grimur Gíslason.
Verslunarhúsnæði
til leigu
ca.100 fm á mjög góðum stað. Góðir leiguskil-
málar. Verslunarplássið er laust 1. febrúar.
Upplýsingar í síma 813517.
Fyrirlestraröð
um kenningar, sálgreiningar og notkun þeirra í meðferð.
Þerapeia hf. gengst fyrir fyrirlestraröð um kenn-
ingar sálgreiningar og notkun þeirra í meðferð
og hefst hún 10. febrúar n.k. Fyrirlestrarnir eru
ætlaðir fagfólki, sem stefnir að því að vinna eftir
þessum kenningum eða hefur áhuga á að kynna
sér þær. Fyrirlestraröðin er með svipuðu sniði og
tværfyrri fyrilestraraðir Þerapeiu, en aukin. Henni
er skipt í 4 lotur og er þátttökugjald kr. 4.200
fyrir hverja. Allar nánari upplýsingar og þátttöku-
tilkynningar í síma 623990, milli kl. 15 og 17.
| Meim en þú geturímyndad þér!
ALLT
fyrirGLUGGANN
úrval, gæði, þjónusta
Rimlagiuggatjöld í yfir 20
litum. Sérsniðin fyrir
hvern glugga eftir máli.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
20% afsláttur gefinn af
hvítum rimlagluggatjöldum
á meða á útsölunni
stendur.
Einkaumboð á íslandi
Síðumúla 32 - Reykjavík
Sími: 31870-688770
Tjarnargötu 17 - Keflavík
Sími 92-12061
Glerárgötu 26 - Akureyri
Sími 96-26685
[Grænt númer: 99-6770
Hvort sembig vantar lipran
smáM
til sendínga
eða kassaM fyrir verkfærin,
þá höfum við
lausnina
V.S.K. BÍLL FRÁ FIAT - LYKILLINN AÐ LÆGRI ÚTGJÖLDUM
Hvers vegna ættirðu að slíta einkabílnum þegar þú getur fengið ódýran,
þægilegan og skemmtilegan bíl í atvinnureksturinn.
Rekstrarkostnaður er að fullu frádráttarbær, virðisaukinn sömuleiðis.
ítalska verslunarfélagið hf.
SKEIFUNNI17 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 91 688 850
VERÐ: UN0 45 514.000 KR. - FI0RIN0 629.000 KR.