Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
23
Doktor í nýj ate stament-
isfræðum og frumkristni
CLARENCE Edvin Glad varði
doktorsritgerð nýlega við guð-
fræðideild Brown-háskóla á
Rode Island í Bandaríkjunum.
Umsjónarmaður ritgerðarinnar
„Adaptability in Epicurean and
Early Christian Psychagogy: Paul
and Philodemus“ var Stanley K.
Stowers prófessor við guðfræðideild
Brown-háskóla. Fyrsti lesari var
David Konstan prófessor í kassísk-
um fræðum og samanburðarbók-
menntum við Brown-háskóla. Ann-
ar lesari var Susan A. Harvey pró-
fessor við guðfræðideild sama
skóla. Aðrir andmælendur voru
Summer B. Twiss, Giles Milhaven
og Wendell Dietrich, allir prófessor-
ar við Brown-háskóla.
í ritgerðinni eru færð rök fyrir
fyrir þeirri tilgátu, að staðhæfing
Páls postula i 1. Korintubréfi 9.22B,
„Ég hef verið öllum allt, til þess
að ég geti að minnsta kosti frelsað
nokkra“, væri hluti af tiltekinni
bókmenntahefð sem rekja mætti
aftur til umræðna Platóns og Arist-
ótelesar um mikilvægi aðlögunar í
ljósi margbreytileika mannlegs lífs
og lundarfars. Sýnt var fram á
mikilvægi þessarar bókmennta-
hefðar í umræðunni um ieiðbein-
ingu sálarinnar meðal alþýðuheim-
spekinga á fyrstu öld fyrir og eftir
okkar tímatal. Þá voru færð rök
fyrir þeirri tilgátu að tileinkunn
Páls postula á þessari hefð eigi sér
nána hliðstæðu í tileinkunn Eprikr-
úrista á sömu hefð, sér í lagi Fíóde-
musar á 1. öld fyrir Krist.
Clarence lauk B.A.-prófi í guð-
fræði frá Continental Bible College
í Brussel í Belígu vorið 1979. Sum-
arið 1979 lagði hann stund á hebr-
esku við Hebreska háskólann í Jerú-
Dr. Clarence Edvin Glad
salem og hóf um haustið nám í
guðfræðideild Háskóla íslands og
lauk embættisprófi þaðan haustið
1983. Hann brautskráðist á sama
tíma frá heimspekideild HÍ. með
B. A.-próf í heimspeki og grísku sem
aukagrein. Veturinn 1983 til 1984
lagði Clarence stund á latínu við
HI, en frá haustinu 1984 hefur
hann verið við nám, kennsku og
rannsóknir við Brown-háskóla.
Clarence vinnur nú við rannsóknir
á vináttuhugtakinu í grískum og
rómverskum ritum og eru þær
styrktar af Hug- og félagsvísinda-
deild Vísindaráðs Islands. Eigin-
kona Clarence er Kolbrún Baldurs-
dóttir, M.A. í félags- og persónu-
leikasálfræði og M.A. í menntunar-
sálfræði og ráðgjöf. Dætur þeirra
eru Karen Áslaug og Harpa Rún.
Hámarksgreiðslur
fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu árið 1992 eru 12.000 kr.
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er upphæðin 3000 kr.
Öll börn yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu eru talin saman og er hámarksgreiðsla
fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu þeirra samtals 12.000 kr. á ári.
Munið að fá alltaf kvittun fyrir greiðslum
Á kvittuninni skal vera nafn útgefanda, tegund þjónustu, dagsetning og upphæð,
ásamt nafni og kennitölu sjúklings.
Fríkort
Þegar hámarksupphæð á ári er náð, skal framvísa kvittunum hjá Tryggingastofnun
ríkisins eða umboðum hennar utan Reykjavíkur. Þá fæst fríkort, sem undanþiggur
handhafa frekari greiðslum vegna læknisþjónustu til áramóta.
Þó þarf að greiða fyrir læknisvitjanir, en gjaldið lækkar við framvísun fríkorts.
Gjald fyrir læknisvitjun er þá 400 kr. á dagvinnutíma og 900 kr. utan dagvinnutíma.
Gegn framvísun fríkorts greiða elli- og örorkulífeyrisþegar 150 kr. á dagvinnutíma
og 300 kr. utan dagvinnutíma.
Börn undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu fá sameiginlegt fríkort, með nöfnum
þeirra allra.
I Reykjavík fást fríkortin í afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28.
Annars staðar eru þau afhent á skrifstofum sýslumanna og bæjarfógeta.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Geymiö auglýsinguna
Frímiði fyrir maka
þeirra sem
ferðast með
Saga Basiness Class
til New York
eða Baltimore
Farþegar sem greiða
fullt Saga Business far-
gjald til New York eða
Baltimore frá Islandi
njóta sérstakra vildar-
kjara fyrstu þrjá mánuði ársins. Þeir fá í kaup-
bæti frímiða fyrir maka í sömu ferð og á Saga
Business Class ef þar er laust sæti þremur sólar-
hringum fyrir brottför; að öðrum kosti gildir
miðinn á almennu farrými. Þetta tilboð gildir til
31 .mars og ferð verður á ljúka fyrir 6. apríl.
Farþegum á Saga Business Class Hl
Bandartkjanna stendur m.a. tilboéa:
• Fyrirvaralaus breyting á feröaáœtlun
• Hröð innritun á sérstökum
innritunarborðum
• Sérstakar setustofur á Keflarvtkutflugvelli og
JFK-flugvelli
• Veitingar án endurgjalds á setustofum
og um borð
• Breið steti og gott stetabil
• Sérstakur viðurgjömingur í mat og þjónustu
• Gott úrval kvikmynda á videótíekjum
• Boðitt erfrtr „Umúsínu-akstur"fráJFK-
flugvelli á bótel í Manhattan eða á annað
bvortla GuardiaflugvöU eða Netvark.
SAGA
BUSINESS
CLASS
FLUGLEIDIR
BESTA FIKBIX VFSTIR
mn!Bg