Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
25
Það er ekki að ástæðu-
lausu að Steinunn var
með beyg. Við lentum
nefnilega í lífsháska í
Napólí fyrir nokkrum
árum undir áþekkum
kringumstæðum.
tekur ca 250-300 manns í sæti, en
samt er mjög rúmt. Gangbrautir
meðfram veggjum breiðar og þrep
lág, þannig að konum í víðum við-
hafnarkjólum rokokótímans liðu,
eða nánast svifu upp þrepin í átt
til sætis.
„Hér fær enginn að ganga í sal
án þess að vera uppábúinn!" sagði
maðurinn og bauð Steinunni að
strjúka áklæði stólanna í báðar átt-
ir til merkis um að efnið væri ekta.
Síðan bauð hann okkur að setjast
og prófa stólana. Hér hafði greini-
lega ekkert verið sparað til þess að
endurnýja þennan sal og gera hann
fullkominn. Þetta var allt eins og
ævintýri líkast. Okkur varð hugsað
til Ingólfs, hann hafði miðlað okkur
af reynslu sinni í Prag. Nú gátum
við miðlað honum af nokkuð óvenju-
legri reynslu.
Við yfirgáfum salinn og fórum
út úr húsi. Þegar út á götu var
komið sagði ég manninum að ég
væri arkitekt, starfandi í Núrnberg,
og að við værum honum þakklát
fyrir þann heiður að fá að sjá þetta
salargersemi. „Mér datt í hug að
þú værir í faginu. Þess vegna var
mér sérstök ánægja að sýna ykkur
salinn,“ sagði þessi vinsamlegi eftir-
litsmaður um leið og við kvödd-
umst. Margt stórmerkiiegt bar fyrir
augu þennan eftirminnilega dag í
gamla borgarhlutanum í Prag. Þó
varð hin óvænta heimsókn, svona
utan dagskrár, í Tyl-leikhúsinu
ógleymanlegt ævintýri.
Til gamans fyrir þá sem hafa
áhuga, látum við fylgja með í lokin
ágrip af sögu Tyl-leikhússins
fræga.
Saga „Tyl“-leikhússins
Það var upphaflega leikhús þýsk-
ættaðra íbúa Prag. Húsið hefur
ekki verið í starfsemi um árabil
vegna endurnýjunar. Þessi bygging
í svokölluðum nýklassískum stíl var
reist á árunum 1781-1783. Ópera
Mozarts, Don Giovanni, var frum-
flutt hér 1787. Reyndar varð hluti
tónlistarinnar einmitt til í Prag.
Meðan á æfingum stóð, bjó Mozart
í nálægu húsi, sem enn er til og
hét þá „Til hinna þriggja gullnu
ljóna“ (Zu dem drei goldenen Löw-
en). Þýska tónskáldið Carl Maria
von Weber var forstjóri Tyl-leik-
hússins 1813-1816. A þeim tíma
var það kallað Þýska óperuhúsið.
Núverandi nafngift fékk húsið fyrst
eftir heimsstyijöldina síðari. Nafnið
er rakið til Josef Kajetán Tyl,
Tékka, en leikrit hans „Fidlovacka“
var frumsýnt hér 1834. Það myndi
almennt enginn muna lengur eftir
þessu stykki í dag, ef ekki texta
tékkneska þjóðsöngsins, „Hvar er
heimili mitt,“ væri þar að finna. Á
þann hátt varð nafn herra Tyl eftir-
minnilega tengt leikhúsinu.
Steinunn Ingólfsdóttír er
fntahönnuður og Haraldur V.
Haraldssoti arkitekt.
HOTEL HOLT
í hádeginu
Príréttaöur hádegisverður
alla daga.
Verð kr. 1.195,-
CHATHAUX.
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
1
I
E
E
E
p
i
|
1
Þ
q
E
E
E
E
E
E
E
I
ŒrBrBrBrBrarwwwwwTgiwBnarBrBrBrBrBrBnBrBTBn
0
I
SUZUKI
SYNING
Kynnum 1992 árgerð
af SUZUKI um helgina
Kaffi á könnunni.
Opið laugardag frá kl. 10-17
og sunnudag frá kl. 13-17.
$ SUZUKI
--¥ÍW——..
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 .SlMI 685100
SUZUKI SWIFT kostarfrá 726.000 kr. staðgreitt.
Sýnum 1992 árgerð
af hinum vinsæla fjölskyldu-
jeppa SUZUKI VITARA 3 og 5 dyra.
Sýnum einnig SUZUKI VITARA 5 dyra
upphækkaðan og sérútbúinn til fjallaferða.
* Allir SUZUKI bílar eru búnir vélum
með beinni bensíninnsprautun og
fullkomnum mengunarvarnarbúnaði.
Komið og reynsluakið gæðabílunum frá SUZUKI.
NýrSUZUKI
aldrei sprækari.
Ný og glæsileg innrétting, nýtt
mælaborð, betri hljóðeinangrun
auk fjölda annarra breytinga. Allir
SUZUKI SWIFT með 1,3 og 1,6 L
vélum eru búnir vökvastýri.
Frumsýning á íslandi.
SUZUKI SWIFT tveggja manna
sportbíll með blæju. Þessi bíll
á eftir að fá hjörtu margra
til að slá örar.
r