Morgunblaðið - 19.01.1992, Side 1

Morgunblaðið - 19.01.1992, Side 1
SMwgMiiHbifrfr SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 BLAÐJJ ÓLAFURTHORS 19.01. 1892 - 19.01. 1992 ðlaíur Ttíors, íorniaöur Sjálfstæðisflokksins 1934-1961 og forsætisráöherra 16. maí 1942 - 16. desember 1942, 1944-1947, 1949-1950, 1953-1956 og 1959-1963. ÓLAFUR THORS var einhverlsvip- mesti stjórnmálaforingi íslendinga á þessari öld. Réttilega sagði Bjarni Benediktsson að Olafi látnum: „Hann var sjálfkjörinn foringi og menn nutu leiðsögu hans með ljúfu geði.“ Ólafur Thors var einn helsti for- göngumaður um stofnun Sjálfstæð- isflokksins árið 1929. Hann var formaður flokksins í nær þtjá ára- tugi, sat á Alþingi í tæp fjörutíu ár og var um árabil ráðherra og forsætisráðherra. Hann var leiðtogi sjájfstæðismanna á mesta umróts- tínia þessarar aldar. Hann hafði forystu í sjálfstæðisbaráttunni og varð fyrsti þingkjörni forsætisráð- herra íslenska lýðveldisins. Hann leiddi baráttuna fyrir fijálsræði í atvinnurekstri og viðskiptum og stóð vörð um einkaframtak og ein- staklingsfrelsi, þegar stjórnmála- andstæðingar hans kröfðust „skipulagningar atvinnulífsins“ og þjóðnýtingar fýrirtækja. Hann tal- aði máli vestrænnar samvinnu, lagði drög að sókn íslendinga í landhelgismálinu, hafði kjark til að eiga samstarf við höfuðandstæð- inga sína í stjórnmálum, sósíalista, af því að hann trúði því, að það leiddi til nýsköpunar atvinnulífs á íslandi. Hann beitti sér gegn rang- látri kjördæmaskipan og náði mikl- um árangri. Hann myndaði Við- reisnarstjórnina, sem hófst handa um mestu og farsælustu efnhags- umbætur hér á landi á síðari árum. I Svo einkennilegt sem það má virðast varð Ólafur Thors nánast stjórnmálamaður af tilviljun. Hann var forstjóri öflugs útgerðarfyrir- tækis í meira en áratug. Hugur hans stóð til að feta í fótspor föður síns, Thors Jensens, hins kunna athafnamanns. „Hann ætlaði sér að verða útgerðarmaður, gera út skip, eiga skip og stjórna skipa- flota. Honum kom um þær mundir aldrei til hugar að verða skipstjóri á þjóðarskútunni," skrifar Birgir Kjaran í endurminningum sínum um Ólaf. Miklir hæfileikamenn leynast ekki lengi í litlu þjóðfélagi. „Ölafur Thors vakti athygli jafnt ungra sem gamalla með gjörvileik sínum, hik- lausum fullyrðingum og rösklegri framgöngu," skrifar Bjarni Bene- diktsson. Hann var fenginn til að taka sæti á lista heimastjórnar- manna 1921, en fyrst kjörinn á þing fyrir íhaldsflokkinn í auka- kosningum í Gullbringu- og Kjósar- sýslu í janúar 1926. Hann var þing- maður þess kjördæmis til 1959, en eftir það til dauðadags fyrir Reykjaneskjördæmi. Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins, fylgdist með Ólafi Thors á fyrsta framboðsfundi hans í kosningunum 1926. Eftir Jóni var þá haft, að hann hefði ekki séð neinn ungan mann vaxa úr grasi á seinni tímum, er honum þætti eiga meira erindi í stjórnmál en Ólafur. Ólafur Thors var kjörinn formað- ur Sjálfstæðisflokksins 1934, þegar flokkurinn hafði aðeins starfað í fimm ár. Hann gegndi formennsku fram til ársins 1961, er hann dró sig í hlé sökum heilsubrests. Fijáls- lyndir menn í nágrannalöndum okkar furða sig oft á stærð og styrk Sjálfstæðisflokksins. í öðrum nor- rænum löndum ena borgaralegir menn skiptir í marga flokka og áhrif þeirra á vettvangi stjórnmáb anna einatt í samræmi við það. I mínum huga leikur ekki vafi á því að gæfa Sjálfstæðisflokksins hefur verið að hafa átt foringja eins og Ólaf Thors. Eftir á að hyggja sjáum við hvílíkt afrek það var, að halda fylkingu borgaralegra mánna á ís- landi saman á tímum þegar róttæk og þróttmikil öfl kröfðust ger- breyttra stjórnarhátta og vildu koll- varpa þjóðskipulaginu. Andstæðingar flokksins hafa auðvitað séð ofsjónum yfír styrk hans og stöðu í íslensku þjóðlífi og átt erfítt með að sætta sig við þá yfirburði. Margoft hafa þeir þóst sjá fyrir hrun flokksins og endalok. í mjög hörðum umræðum fyrir rétt- um fimmtíu árum á Alþingi vísaði einn aðalandstæðingur Ólafs Thors, Hermann Jónasson, til Sjálf- stæðisflokksins „sem seinustu bæj- arstjórnarkosningar um allt land sýndu, að er hvort tveggja í senn ’ að tapa fylgi og sundrast". Og hann bætti við að flokkurinn þekkti ekki sinn vitjunartíma og sagði: „í stað þess að skilja það að flokkur- inn er að byija að hrynja, eins og sams konar flokkar annars staðar, er standa fyrir skefjalausri sam- keppnis- og auðpólitík, var flokkur- inn lostinn undrun og kvíða.“ Hálfri öld síðar hefur stefna Sjálfstæðisflokksins sigrað en ekki stefna samvinnumanna eða sam- eignarsinna. Ólafur Thors átti eftir að leiða Sjálfstæðisflokkinn í tæp tuttugu ár eftir þessa deilu þeirra Hermanns og mynda fjórar ríkis- stjórnir til viðbótar þeirri sem hann leiddi er þessi frýjunarorð voru sögð. En Ólafur Thors svarar hvasst fyrir sig brigslum Hermanns Jónassonar um svik í fyrrgreindri umræðu og segir: „Og sjá, þrátt fyrir sviksemi og pretti, — alltaf sigrar Framsóknarflokkurinn, en hin góðu málin eru hans hlutur en það, sem á vantar og miður hefur farið, er okkar sök. Og ofan á allt þetta getum við ekki svo mikið sem unnt Framsóknarflokknum að fá að vera í friði með þessa smávægi- legu aukagetu, — tvöföld mannrétt- indi handa framsóknarkjósendum og svolítil sérréttindi handa yfir- stétt landsins, forustuliði Fram- sóknarflokksins, mönnunum sem elskuðu svo mikið dreifbýlið, að þeir lögðu á sig að yfirgefa það og og setjast að í hinu andstyggi- lega þéttbýli, einvörðungu til þess að geta varðveitt hag þeirra, sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.