Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1992 eftir urðu í dreifbýlinu. Hvílíkt hróplegt ranglæti!" Það eru liðin fimmtíu ár frá því að Ólafur Thors svarar svo hvasst fyrir sig í harðri rimmu í sölum Alþingis. Og þótt hálf öld sé liðin heyrum við enn þessa dagana sjálf- skipaða talsmenn landsbyggðar- innar brigsla öðrum um fjandskap í hennar garð. Bersýnilega hefur margt breyst á hálfri öld, en þó ekki allt. „Ég á sjö börn á landi og sjö börn í sjó,“ sagði Ólafur einu sinni, er talið barst að því mikla banda- lagi stéttanna sem Sjálfstæðis- flokkurinn er. Ólafur Thors var trúr grundvallarsannfæringu frjálslyndra manna. Hann þurfti ekki að kvíða dómi sögunnar yfír starfi sínu og hugsjónum. „Ég hygg að enginn íslenskur stjórnmálamaður hafí notið meiri persónulegra vinsælda en Ólafur Thors. Síst var stéttarmunur að vinsældum hans,“ sagði Bjarni Benediktsson. Ólafur var höfðingi í hugsun og framkvæmd, en svo alþýðlegur, einlægur og fijálslegur í fasj að hann snerti streng í þjóðar- sál íslendinga. Fjarri fór þó því að hin pólitíska barátta væri samfelldur dans á rósum fyrir Ólaf Thors. Hann gekk í gegnum hatrammari persónulegar árásir og róg en flestir aðrir hafa þurft að etja kappi við í íslenskri pólitík og er þá langt til jafnað. Allt það stóð hann af sér. Karl- mennska, skapfesta, en um leið gott hjartalag, tryggði honum sigur í þessari miklu glímu, en þó ekki síður liitt að hann vissi sjálfur vel, og þeir allir sem næstir honum stóðu, að hann var sannleikans megin. Ölafur Thors hafði mikla ánægju af stjómmálavafstri. Hann dáði Winston Churchill umfram aðra stjórnmálaleiðtoga. Eftir Churchill er haft, að mannfólkinu megi skipta í tvo hópa: „Þann fyrri, sem lítur á vinnuna sem vinnu og skemmtun sem skemmtun, og hinn flokkinn, sem vinnan er skemmtun." Þeir sem þekktu hann best voru ekki í vafa um, að Ólafur Thors hefði til- heyrt seinni manntegundinni. Kannski liggur gæfa Ólafs ein- mitt í þessu áreynslulausa viðhorfí hans til stjómmála. Hann hafði unun af þeim en þarfnaðist þeirra ekki. En þótt Ólafur hafí verið hríf- andi foringi, fullur sannfæringar- krafts og sigurvissu, þá þurfti hann oft að hafa mikið fyrir sínu innan flokksins. Rimman var oft hörð og reyndi á þolgæði og þrautseigju formannsins. Alþekktur er ágrein- ingurinn um myndun Nýsköpunar- stjórnarinnar 1944, og rimman um Þjóðstjómina 1939 var jafnvel enn harðari og átökin um forsetakosn- ingarnar 1952 afar viðkvæm. Eftir fall Nýsköpunarstjórnar- innar neitaði Ólafur að taka þátt í Stefaníustjóminni, sem svo var kölluð, þrátt fyrir að hann sætti sig við þá stjórn síðar. Allir þessir átakaþættir og allmargir fleiri gera þá dægurtogstreitu, sem stundum á sér stað innan Sjálfstæðisflokks nútímans, harla léttvæga svo og þá umræðu sem um slíkt verður í ofurfjölmiðlun dagsins. Ólafur Thors var formaður Sjálf- stæðisflokksins lengur en nokkur maður annar og verður aldrei jafn- að. Áhrif hans á flokkinn, íslensk stjórnmál og íslenskt þjóðlíf, verða seint ofmetin. Við sjálfstæðismenn viljum gjarnan eiga hann allan, en vitaskuld er Ólafur Thors allrar þjóðarinnar, hvar í flokki sem menn standa. Hans er nú ekki aðeins minnst sem foringja sjálfstæðis- manna, heldur sem_ eins helsta stjórnmálaskörungs íslendinga á 20. öld. Davíð Oddsson HIÐ FYRSTA sem ég man með vissu um Ólaf Thors er það að ég fylgdist með þeim föður mínum og Ólafi, er þeir gengu upp tröðina að heimili foreldra minna á Hólavöll- um. Þetta hefur trúlega verið vorið 1929 en þá var Ólafur að hefja húsbyggingu fyrir fjölskyldu sína ekki ósennileg hugrenning ungs drengs. Saga þjóðar okkar ijallar mjög um það atgervi, sem foringjum og hetjum er ætlað að hafa fram yfir aðra menn. Er reyndar lýst í Heims- kringlu þeim einkennum, sem sá þurfti að hafa, sem settur var yfir aðra menn. Hann átti m.a. að vera sterkur, mjúkur og harðfengur. Höfðingi varð líka að vera fríður og bera af í mannfjölda. Slíkum manni bar og að búast vel og glæsi- lega. Ólafur Thors hafði öll þau ein- kenni, sem um getur í hinni fomu Ólafur háði um dagana, voru bæði margar, magnaðar og örlögþrungn- ar. Og hann hafði oftast sigur. En hann hrósaði sér hinsvegar aldrei af sigrunum. Honum var fyrir öllu að menn tryðu því, sem hann sagði um átakamálin og skildu og virtu markmið hans. Hann var sjálfur líf- ið og sálin í allri stefnumótun, eftir að hann tók við forystu í flokki sín- um og lagði til mestan kraftinn í baráttuna. Þá kom fram, að hann var úrræðagóður, skjótur til ákvarðana og síðan fylgdi hann verkum eftir af kappsemi og heil- Ingibjöro ug Úlafur Ttiors með Friðriki IX. konungi flana. indum. Án þeirra yrði forystan hvorki óumdeiid né gæfurík. Og hér skal þá vikið að þeim þætti skapgerðar Ólafs Thors, sem samtímamenn hans mátu einna mest. En það var drengskapurinn í fari hans. Það er gæfa okkar ís- lendinga að allar kynslóðir okkar skuli hafa virt og metið þennan eig- inleika svo mikils, þótt ekki hafí allir ráðamenn tileinkað sér það hugarfar í sama mæli. Engu að síð- ur gefur sú afstaða von um að rétt- læti, jöfnuður og sannleikur muni að lokum verða kjölfesta íslensks þjóðlífs. Því er það að ef ég ætti að lýsa Ólafí Thors í einni setningu þá væri hún: Hann var sannur dreng- skaparmaður. Það sést m.a. af því að andstæðingar hans gátu aldrei borið á hann nokkum hlut, sem ekki sómdi heiðarlegum og dreng- lyndum manni. Ólafur kunni vel heilræði Háva- mála: „Glaður og reifur skyli gumna hver“... og hafði oftast góðlegt og glaðlegt viðmót. Andlitsfallið var djarflegt og lýsti festu og gáfum. Hann var þó mikill alvörumaður, Margrét og Thor Jensen ásamt börnum sínum. Altari röð f.v.: Ricbard, Kjartan, Ölafur, Haukur, Kristín, Kristjana. Fremri röð: Lorentz, Tbor, Camilla. Fyrir framan foreldrana: Hilmar, bá Margrét. þama í grenndinni, sem siðar varð Garðastræti 41. Það var vorblíða þennan dag og hélt Ólafur á hatti sínum í hend- inni, en kápuna hafði hann á hand- legg sér. Þegar þeir félagar vom komnir upp hallann, stöldruðu þeir svolitla stund við húshornið og ræddu sam- an. Svo kvöddust þeir og Ólafur snaraðist umsvifalaust að grind- verkinu, sem þarna var milli lóða, studdi vinstri hendinni á stólpa og sveif yfir girðinguna í fallegri sveiflu með hattinn í þeirri hægri og flaksandi frakkann á handleggn- um. Glæsilegt stökk. Pabbi las stundum upp úr íslend- ingasögunum fyrir okkur krakkana og móðurafi minn var sífellt að segja okkur frá afrekum Egils Skallagrímssonar, Gunnars á Hlíðarenda og annarra kappa. Hug- urinn var býsna opinn fyrir afrekum þeirra og íþróttum og þykir mér trúlegt að þetta frækilega stökk Ólafs hafi gert hann að slíkri fom- hetju í mínum augum, - þótt líka kunni að hafa hvarflað að mér þá að bera þennan garp saman við föður minn, sem var haltur og gekk við staf, og því ekki líklegur til slíkra afreka. Slíkt er í sjálfu sér frásögn. Hann var sannarlega svip- '"mikill og föngulegur og skar sig úr í mannfjölda. Enginn sem sá hann mun neita því. Þannig úr garði gerður og svo mörgum kostum búinn hið ytra var gæfan honum hliðholl, því hið and- lega atgervi var ekki síðra en yfír- bragðið. I þeirri tilvísun í Heimskringlu sem getið var, segir ennfremur, að foringjar skyldu kunna vel til ræðu- gerðar, vera snjallir að koma fyrir sig orði og ekki sakaði að þeir væru fastorðir og heitvandir. Allt kemur þetta hið besta heim við Ólaf Thors. Það er mála sann- ast, að hann var frábær ræðumað- ur, hvar sem hann bar niður. Víð- kunn voru svör hans, beinskeytt og fyndin, sem hann Iét fljúga ef grip- ið var frammí fyrir honum. Ólafur gengur lífsbraut sína á þeim tímum, þegar átökin í þjófé- laginu fara fram með ræðum og rökum eingöngu, en ekki vopnum söguhetja. Hann sigraði andstæð- ingana því með orðsnilld og leiftr- andi rökræðum, en ekki höggvopn- um eða spjótalögum. Hann beitti pennanum engu síður en söguhetjur okkar sverðinu. Það er auðvitað aikunna, að þær orrahríðir, sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.