Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 B 7 varð þá í annað skipti ráðherra og fór með atvinnumál. í fimm skipti varð hann forsætisráðherra íslands en oft gegndi hann einnig embætti atvinnumálaráðherra og um hríð utanríkisráðherra. Það sögðu mér þingmenn sem sátu með Ólafi Thors á þingi, að bæði áður og eftir að hann varð formaður Sjálfstæðisflokksins hafi oft orðið einhveijar þær hörðustu og illvígustu deilur sem verið hafa í stjórnmálum íslendinga og sér- staklega var talið óvenju storma- samt þing á árinu 1934. í þeim stórviðrum öllum sýndi Ólafur mjög vel að hann var rökviss, afburða mælskur, hafði mikla þekkingu á atvinnumálum þjóðarinnar og þjóð- arhag, og bar fram nýjar hugmynd- ir um uppbyggingu þjóðfélagsins. Því féll málflutningur hans mjög vel alþýðu manna í skap. Hann háði marga hildi í stjórnmálum, en slíka stjórn. Framsóknarflokkurinn hikaði, bjóst við því fram til síðustu stundar, að formaður Sjálfstæðis- flokksins þyrði ekki að mynda stjórn með kommúnistum. Því varð Fram- sóknarflokkurinn utan þessarar stjórnar. Nýsköpunarstjórnin var djörf til verka. Hún var af sumum talin of djörf, ganga of langt. Hún var framfarastjórn sem fór vel af stað. Hins vegar var Ólafur Thors þeirrar gerðar að hann taldi að ráðherrar ættu hver um sig að fara með sitt verksvið, en aðrir ráðherrar ættu ekki að stjórna nema sínu eigin ráðuneyti. Þetta olli mönnum mikl- um áhyggjum sérstaklega vegna þess að einn mesti bolsévíki lands- ins var gerður að menntamálaráð- herra og það ásamt fleiru gerði Ólafi mjög erfitt fyrir í sínum flokki. Þegar við lítum til baka þá getum við, sem teljum að fijálslyndi eigi því ekki farið á annan veg en að leiðir skildu. Átök urðu mikil í utan- ríkismálum næstu árin. Ólafur Thors og Bjarni Bene- diktsson mótuðu fyrst og fremst, fremur en nokkrir aðrir, utanríkis- stefnu þessarar þjóðar. Sú stefna hefur að mestu leyti verið sú sama öll þessi ár. Ég hef oft hugsað til þess síðar hvað það hljóti að hafa verið þungt fyrir formann Sjálf- stæðisflokksins þegar fjórðungur þingmanna flokksins treysti sér ekki til að standa að myndun þess- arar ríkisstjórnar hans. Sumir sögðu þá að hann ætti að reka þá úr flokknum sem ekki vildu standa með honum en hann var þessi stóri, gáfaði maður, sem vissi það að ein ríkisstjórn kom og fór, en flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn héldi áfram að vera til, starfa, taka nýjar ákvarðanir og fyrir öllu væri að halda honum saman. Hann átti Heö norrænum forsætisráðherrum, l.v. Ahti Karjalainen, Finnlandi, ðlafur Thors, Jens Otto Krao, Danmörko, og Tage Erlander, Svíhióö. ég held að mesta áhættu hafi hann tekið þegar hann gerðist svo djarfur að mynda hina svokölluðu nýsköp- unarstjórn, sem skipuð var 21. októ- ber 1944, en fékk lausn 10. októ- ber 1946, en var þó falið að gegna áfram störfum þar til myndað var nýtt ráðuneyti 4. febrúar 1947. Að þessari stjórn stóðu auk Sjálf- stæðisflokksins Alþýðufiokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, sameining- arflokkur alþýðu, sem þá voru al- mennt kallaðir kommúnistar. Þessi stjórnarmyndun olli miklum deilum, einkum í Sjálfstæðisflokknum, sem þá hafði tuttugu þingmenn, en það voru ekki nema fimmtán þingmenn í flokknum sem tóku þátt í myndun þessarar ríkisstjórnar formannsins. Fimm þingmenn neituðu að styðja stjórnina yegna þátttöku kommún- ista. En Ólafur lét ekkert á sig fá, hann var þess minnugur að Alþingi hafði ekki getað staðið við sína skyldu að mynda þingræðisstjórn tveimur árum áður og forseti Is- lands skipaði þá utanþingsstjórn. Utanþingsstjórn var honum og fleirum sem unnu þingræði þyrnir í augum. Þess vegna gekk hann djarfur til þessa leiks að mynda að vera í fyrirrúmi, sagt að Ólafi hafi vel tekist. Hann lagði grund- völl með starfi þessarar stjórnar að nýrri löggjöf um almannatrygging- ar, sem færðu þeim sem minnst mega sín, aukin réttindi og áhrif í þjóðfélaginu. Réttindi sem þeir hafa haldið æ síðar og sem á engan hátt má skerða. Það var stórt skref stigið að af- nema fátækraframfærsluna og skipa málum í tryggingakerfí eins og þá var gert. Þar sýndi Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, að hann var víðsýnn umbóta- maður sem lét hag þjóðarinnar sitja í fyrirrúmi, ákveðinn í því að halda áfram félagslegri uppbyggingu. En þau urðu örlög þessarar ríkisstjórn- ar að ágreiningurinn í utanríkismál- um varð henni að falli. Sá ágrein- ingur kom oft upp á þessum árum. Annars vegar voru menn eins og Ólafur Thors sem vildu náið sam- starf og samvinnu við lýðræðisþjóð- ir heimsins þar sem Bandaríkin voru í forystu, en hins vegar voru það menn sem eltu Sovétríkin í hveiju máli, menn sem trúðu því að kommúnisminn væri sú stefna sem við ættum að innleiða. Það gat mjög góða persónulega vini meðal þessara fimmmenninga, þeir höfðu þessa skoðun, hann gat ekki breytt því, en hann skildi þá og hann gerði sér grein fyrir því að þó að hann væri formaður gæti hann ekki sagt mönnum að gera hvað sem honum dytti í hug. Þetta sýnir betur en margt annað hversu stórbrotinn persónuleiki þessi maður var. Hann hélt, þrátt fyrir þetta, flokki sínum áfram og þeir tóku tillit til hans í ríkari mæli á meðan þessi umdeilda stjórn sat. Þegar við lítum yfir far- inn veg, þá var þessi stjórnarmynd- un til mikils happs fyrir íslenskt atvinnulíf, hún renndi styrkari stoð- um undir það, hún færði enn nýjan grundvöll að batnandi lífskjörum fyrir þá sem verst voru á vegi stadd- ir. Á þessum árum urðu miklar umræður um útfærslu fiskveiðilög- sögunnar, mörgum þótti hægt ganga, en þó voru teknar merkar ákvarðanir með skömmu millibili og átti Ólafur Thors ekki þar minnstan þátt. Það hefur víða verið sagt, bæði í Bretlandi og Bandaríkj- unum, að Ólafur hafi ekki verið þessum þjóðum velviljaður. Þetta eru sögusagnir sem ekki áttu við rök að styðjast, að öðru leyti en því, að Ólafur var fyrst og fremst Islendingur sem bar fram óskir og kröfur sinnar þjóðar, en það þýddi ekki það að hann væri í andstöðu við þær. Forystumönnum lítilla þjóða er lífsnauðsynlegt að vera djarfír og ákveðnir í öllum sam- skiptum við stærri og voldugri þjóð- ir. Baráttan í landhelgismálinu hef- ur verið löng og hörð. Sumir menn hafa á seinni árum túlkað alla máls- meðferð sínurn flokkum til lofs og dýrðar. í þessu greinarkorni ætla ég ekki að ræða þetta mikilvæga mál. Þó vil ég segja að lokaáfangi landhelgismálsins, útfærslan í 200 sjómílur, var fyrst og fremst unninn undir forystu Sjálfstæðisflokksins í góðri samvinnu við Framsóknar- flokkinn og sérstaklega við utanrík- isráðherra, sem va_r úr þeim flokki á þessum árum. í öllum þessum skrifum hefur ekki komið fram sem skyldi, það mikla framlag sem Geir Hallgrímsson, sem þá var forsætis- ráðherra, lagði fram til lausnar landhelgismálinu, sem endaði með sigri okkar íslendinga og viður- kenningu anharra þjóða á 200 sjó- mílna fiskveiðilögsögu. Hann var sá maður sem sýndi stillingu og þekkingu hvað sem á gekk. Sýndi á öllum stigum málsins heiðarleika sinni eigin þjóð og einnig viðsemj- endum. Mér mun seint úr minni falla öll hans framganga. Ég fór ungur að árum að hafa afskipti af stjórnmáluin. Byijaði barn að aldri að skipta mér af bæjarpólitíkinni í heimabæ mínum, varð síðar bæjarfulltrúi, þurfti þá oft að leita suður til ráðamanna og þá ekki síst til manns eins og Ólafs Thors. Einhvern veginn fór það svo að hann tók mér vel og stundum átti ég það til að láta hann heyra það að mér líkaði ekki við þá þarna syðra, maður var harður baráttu- maður fyrir bæjarfélag sitt og ná- grenni og eftir því sem ég reif meiri kjaft fann ég að Ólafur tók mér betur. Það náðist einhvern veg- inn gott samband og það samband hélst á meðan hann lifði. Ég átti skamma hríð sæti á Alþingi með honum, en þó í nokkra mánuði. Við vorum góðir kunningjar, hann tók mér mjög vel, sem ungum manni, sagði mér marga hluti, sem ég hafði gaman af og líka mikið gagn af. Ég átti þá sérstaklega góðan vin í Sjálfstæðisflokknum, sem ég mat meira en flesta ef ekki alla, það var Birgir Kjaran hagfræðingur, sem var mikill vinur Olafs. Við áttum, einstaka sinnum, saman ánægju- legar stundir. Þær stundir voru mér mikils virði og ógleymanlegar. Eins og að líkum lætur þá voru þessi kynni nokkuð löng áður en ég kom á þing. Þegar Matthías Johannessen var að skrifa bók um Ólaf Thors spurði hann mig ein- hvern tímann að því hvort það væri ekki eitthvað sem hefði farið skemmtilegt á milli, sem hann gæti notað í bókina, og mér varð það á að segja honum frá einu atviki. Það var á þá leið að Ólafur kom til ísa- ijarðar fyrir aukakosningar þar á árinu 1952 til að halda fund til trausts frambjóðendum okkar í þeim kosningum. Það hafði verið auglýstur fundur í húsi okkar sjálf- stæðismanna um kvöldið en flugvél- inni seinkaði, eins og þá kom oft fyrir. Við fórum tveir að sækja hann út í Katalínaflugbát sem lenti á Pollinum en þá var komið að fund- artíma svo við fórum beint í fundar- húsið, Sjalfstæðishúsið, þar var fullt hús og Ólafur gekk inn og heilsaði og gekk til sætis síns. Ég sat við hliðina á honum, var fundarstjóri, en áður en lengra er haldið má ég bæta í frásögnina að árið 1937 var fundur á ísafirði þar sem Ólafur var mættur. Þá réðu kratarnir öllu í bænum og þeir ákváðu að gera karli gramt í geði og var gömlum, góðum, fylgispökum krata fengið það verkefni í hendur að hann átti að standa upp undir ræðu Ólafs og veifa kylfu og segja um leið; að þetta væri kylfan sem hann, Ólaf- ur, hefði látið smíða til að beija á verkalýðnum í Reykjavík. Og þegar Ólafur er kominn langt í ræðu sinni stendur karl upp og segir: „Þetta er kylfan sem þú lést smíða til að beija á verkalýðnum í Reykjavík." Það er nokkuð hátt af gólfi upp í senuna í Alþýðuhúsinu og Ólafur beygir sig niður og segir: „Heyrðu, vinur minn, lofaðu mér að sjá þessa kylfu,“ og við svona vinaleg við- brögð fatast karli hlutverkið og rétti Ólafi kylfuna. Ólafur reisir sig upp, horfír á kylfuna, handleikur hana og beygir sig svo niður aftur og réttir karlinum og segir: „Gjörðu svo vel, vinur minnt það verður ekki á ykkur logið, Isfirðinga, að þið eigið góða iðnaðarmenn," og hélt síðan ræðu sinni áfram. Þessi maður, sem rétti Ólafi kylfuna, varð sjálfstæðismaður í kringum 1948 og þá var hann orðinn jafn ákveðinn sjálfstæðismaður og hann hafði áður verið krati og sótti alla fundi hjá okkur sjálfstæðismönnum á Isafirði. Þegar við komum með Ólaf inn í salinn og ég setti fundinn þetta fallega sumarkvöld árið 1952 byijaði ég á því að bjóða hann vel- kominn og hann hóf ræðu sína á þá leið að hann hefði ekki komið alllengi til ísaijarðar, en þegar hann hefði verið hér næst á undan hefði hann verið á fundi í Alþýðuhúsinu og gamall krati hefði þá staðið upp og rétt sér kylfu og sagt að þetta væri kylfan sem hann hefði látið smíða til að berja á verkalýðnum í Reykjavík. Þá fór nú heldur betur að fara um mig og ég rennsvitn- aði. Þar sem ég sat nú næstur ræðupúltinu gat ég klipið í lærið á Ólafi og hann skynjar strax að,eitt- hvað er að, beygir sig niður og ég segi: „Ertu vitlaus, maður, þessi karl er orðinn sjálfstæðismaður og hann situr hérna á fremsta bekk.“ Ólafur reisir sig í ræðustólnum og heldur áfram: „En ég man alltaf eftir svipnum á þessum manni, það var svo mikil heiðríkja í svipnum og það var svo hreinn svipurinn að ég hugsaði þá þarna, í Alþýðuhús- inu, þessi maður á eftir að verða sjálfstæðismaður og þetta er einn af þeim fáu mönnum sem ég þekki hér inni í salnum og situr hér á fremsta bekk.“ Þá stóð gamli mað- urinn upp og gekk til Ólafs og þeir tókust innilega í hendur. Þetta litla atvik sýnir hvað mað- urinn var fljótur að átta sig. Hann hefði ekki siglt í gegnum allt það brim og alla þá boða sem hann gerði áfallalaust eða áfallalítið, ef hann hefði ekki verið svona snjall, greindur og lipur. Þrátt fyrir hörku í pólitískum orrustum gleymdi hann aldrei að hugsa um og hlúa vel að þeim sem minnimáttar voru, það var hans aðalsmerki. Þegar maður lítur yfír farinn veg finnst manni ótrúlegt að það séu liðin 100 ár frá því Ólafur Thors fæddist, mér finnst hann alltaf standa ljóslifandi fyrir framan mig, vera hinn trausti, góði og umfram allt einn skemmtilegasti maður sem ég hef fyrirhitt á lífsleiðinni. Ef andi hans fær að svífa yfir vötnum trúi ég því að þessi þjóð eigi bjarta framtíð fyrir höndum og hætta verður því tali að allt sé að fara norður og niður. Við skulum trúa á framtíðina, trúa á það góða sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.