Morgunblaðið - 05.02.1992, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992
Útlitsteikning af Iðnó, eins og húsið mun líta út eftir breytingar. Glerskáli verður fyrir framan húsið og söluturn byggður við hliðina á því.
Borgarráð:
Tillaga um fímmtán milljóna
króna lán til kaupa á Iðnó
Borgin kaupi lóðina og viðbyggingar til niðurrifs fyrir um 17 milljónir
TILLAGA um að borgarráð samþykki að veita Sveini Krist-
dórssyni bakara 15 milljón króna lán með sömu kjörum og
húsverndunarsjóður veitir og jafnframt að borgarsjóður
kaupi eignarlóðina Vonarstræti 3, ásamt viðbyggingum við
Iðnó til niðurrifs og greiði fyrir 16.986.000 milljónir króna,
var frestað á fundi borgarráðs í gær. í bókun Markúsar
Arnar Antonssonar borgarsljóra, er áréttað að einkaaðilar
hafi átt og rekið Iðnó um áratuga skeið og að húsið hafi ítrek-
að verið auglýst til sölu. í bókun þeirra Elínar G. Ólafsdótt-
ur, Siguijóns Péturssonar og Katrínar Fjeldsted, er vitnað
til viðræðna Reykjavíkurborgar og menntamálaráðuneytisins
um framtíð Iðnó. I bókun Kristínar A. Ólafsdóttur, er lagt
til að borgarsjóður kaupi húsið.
í tillögu Hjörleifs Kvaran
framkvæmdastjóra lögfræði- og
stjórnsýsludeildar, kemur fram
að viðræður hafa staðið yfir við
stjórnarformann Alþýðuhúss
Reykjavíkur hf. og Svein Krist-
dórsson í framhaldi viðræðna
milli þeirra um kaup Sveins á
Iðnó. Sveinn ráðgeri, að gera
húsið upp og koma í upprunalegt
horf en gera jafnframt nauðsyn-
legar breytingar, utanhúss og
innan, fáist þær samþykktar.
Ætlunin er að þar verði aðstaða
fyrir leiklist og veitingarekstur.
Húsið er friðað að utan og innra
skipulag einnig og verður hús-
friðunarnefnd ríkisins að heimila
allar breytingar sem og bygging-
arnefnd Reykjavíkur.
„Til þess að stuðla að endur-
byggingu hússins er lagt til að
borgarráð samþykki að veita
Sveini Kristdórssyni lán að fjár-
hæð 15.000.000 með sömu kjör-
um og skilmálum og húsvernd-
unarsjóður veitir. Lánið yrði
greitt út í þrennu lagi eftir því
sem framkvæmdum miðar. Jafn-
framt er lagt til að borgarráð
samþykki að borgarsjóður kaupi
af Alþýðuhúsinu hf. eignarlóðina
Vonarstræti 3, sem er talin að
stærð 1.158 fermetrar. Hluti lóð-
arinnar er nýttur sem útivistar-
svæði og með kaupunum yrði
borgarsjóður eigandi að þeim
eina hluta tjarnarbakkans, sem
ekki er nú í eigu borgarsjóðs.
Kaupverð lóðarinnar er lóðar-
matið kr. 13.486.000.“
Þá er lagt til að borgarsjóður
kaupi til niðurrifs þær viðbygg-
ingar sem byggðar hafa verið
við húsið og gert er ráð fyrir að
verði fjarlægðar samkvæmt þeim
teikningum sem unnar hafa ver-
ið. Lagt er til að samþykktin
komi því aðeins til framkvæmda
að nauðsynleg leyfi fáist til
þeirra breytinga á húsinu sem
um ræðir. Jafnframt að samn-
ingar um kaup lóðarinnar og við-
bygginga og áðurnefnt lán úr
húsverndunarsjóði komi ekki til
afgreiðslu fyrr en að nýtt bygg-
ingarleyfi hefur verið samþykkt.
Borgarsjóður kaupi húsið
„Mér finnst átakanlegt að
heyra á þessum fundi að embætt-
ismenn borgarinnar hafa und-
anfarið staðið í samningaviðræð-
um í því skyni að Reykjavíkur-
borg auðveldi einkaaðila að
kaupa Iðnó,“ sagði í bókun Krist-
ínar Á. Ólafsdóttur. „Með þeim
hætti er engan veginn tryggt að
lista- og menningarstarf verði
þar áfram. Það tel ég að sé þó
skylda Reykjavíkurborgar að
gera og legg eindregið til að
borgarsjóður kaupi húsið. Eg
minni á fyrri tillögur fulltrúa úr
minnihluta borgarstjórnar í sömu
veru.“
Einkaaðilar eiga og reka
Iðnó
Markús Örn Antonsson borg-
arstjóri áréttar í sinni bókun að
einkaaðilar hafa átt og rekið Iðnó
um áratugaskeið. „Ástand húss-
ins er svo bágborið, að þar hefur
engin starfsemi farið fram um
langt skeið og enginn kaupandi
fundist, þó að húsið hafi ítrekað
verið auglýst til sölu. Með þeirri
tillögu, sem framkvæmdastjóri
lögfræði- og stjórnsýsludeildar
hefur nú kynnt, er Reykjavíkur-
borg að ganga mjög langt í þá
átt að tryggja varðveislu Iðnó
og að húsið fái að rísa úr þeirri
niðurníðslu, sem það er í nú.
Mönnum virðist sjást yfir að Iðnó
hefur í gegnum tíðina þjónað
Reykvíkingum sem leikhús,
danshús, fundarstaður og veit-
ingahús. Væntanlegur eigandi
hyggst tryggja mjög fjölbreytta
starfsemi í húsinu, sem yrði í
fullu samræmi við sögulegar
hefðir þess.“
Húsið verði ekki selt
einkaaðila
Elín G. Ólafsdóttir vakti at-
hygli á ítrekuðum tillögum
Kvennalistans um að borgin
kaupi Iðnó og ennfremur á um-
leitunum samtaka listamanna
um það sama og á undirskriftal-
istum listmanna, sem leggja hart
að borgaryfirvöldum að tryggja
viðreisn hússins í þágu listagyðj-
unnar. Lagði hún þunga áherslu
á að húsið yrði ekki selt einkaað-
ila. „Ég legg áherslu á að borgar-
stjóri gangi nú fram fyrir skjöldu
og leiti eftir samkomulagi við
menntamálaráðherra um kaup á
húsinu.“
Viðræður ráðuneytis og
borgar verði lokið
Siguijón Pétursson sagðist
telja mikilvægt að viðræður
borgarinnar og menntamála-
ráðuneytisins um kaup og endur-
reisn Iðnó verði til lykta leidd
áður en borgin stuðli að kaupum
annarra aðila á eigninni. Húsið
væri svipmikið í hjarta borgar-
innar með mikla og gagnmerka
sögu og eðlilegt að opinberir
aðilar stuðli áfram að menning-
arlegri reisn hússins.
Menningarstarf áfram í
húsinu
Katrín Fjeldsted leggur til að
kannað verði til hlítar hvort
áhugi sé fyrir hendi hjá mennta-
málaráðuneyti á því að ríkið og
borg kaupi Iðnó í sameiningu og
feli síðan einkaaðilum rekstur
þess. „Mikilvægt er að tryggja
að í húsinu sé áfram stundað
menningarstarf, ekki síst leiklist,
í samræmi við aldargamla hefð.
Minna má á, að borgin keypti
Hótel Borg fyrir tveimur árum
til að tryggja hótelrekstur í mið-
bænum. Menningarstarfsemi er
í mínuin huga ekki síður mikil-
væg fyrir lifandi miðbæ og slík
tengsl tel ég að séu í hugum
Reykvíkinga gagnvart Iðnó.“
Frami ráð-
leggur upp-
sagnir bíla-
trygginga
FRAMI, stéttarfélag leigubif-
reiðastjóra, hefur ráðlagt öllum
félagsmönnum sínum að segja
upp bifreiðatryggingum, en
þeir hafa verið tryggðir hjá
mismunandi tryggingafélögum.
Að sögn Sigfúsar Bjarnasonar,
formanns Frama, er ástæðan
að baki þessu hækkanir sumra
tryggingafélaga og misjöfn kjör
sem nú eru í boði.
Sigfús segir að þetta séu við-
brögð Frama við mikilli hækkun
nokkurra tryggingafélaga. Hann
segir að ætlunin sé að gera úttekt
á tryggingum og kynna félags-
mönnum um allt land hvaða kjör
séu í boði hjá tryggingafélögunum
í næsta hefti Framablaðsins sem
væntanlegt er á næstunni. „Þá
geta menn dregið sínar ályktanir
sjálfir og valið það tryggingafélag
sem þeim líst best á. Við fögnum
þeirri samkeppni sem nú er loksins
komin. Áður ríkti mikið ófremda-
rástand þegar öll tryggingafélögin
hækkuðu saman og voru öll með
svipuð kjör í boði. Nú fyrst er
komin samkeppni í þetta,“ segir
Sigfús.
Hann segir að mesti munurinn
á milli tryggingafélaga sé í slysa-
tryggingu eigenda og ökumanns
og þar geti munurinn verið mörg
hundruð prósent. „Við teljum að
tryggingafélögin hafí gefíð sér
mismunandi forsendur varðandi
slysatryggingu eigenda og öku-
manns en slysatjón voru áður
greidd af tryggingafélagi hins
slasaða án tillits til hvort hann
olli tjóninu eða ekki. Þetta er það
sem við erum að benda á nú,“
segir Sigfús.
----» ♦ «--
10% dýrara
í sundlaugar
í Garðabæ
BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur
samþykkt tillögu íþrótta- og
tómstundaráðs um allt að 10%
hækkun á gjaldskrá í sund.
Hækkunin tók gildi 1. febrúar
síðastliðinn.
Einstakt gjald fyrir fullorðna
hækkar úr 100 krónum í 110 krón-
ur og fyrir börn úr 50 krónum í
55 krónur. Tíu miðar fullorðinna
hækka úr 900 krónum í 1.000
krónur og tíu miðar fyrir börn
hækka úr 290 krónum í 300 krón-
ur. Þijátíu miðar fyrir fullorðna
hækka úr 2.200 krónum í 2.450
krónur og gufubað hækkar úr 210
krónum fyrir hvert skipti í 230
krónur. Árskort hækkar úr 14.000
krónum í 15.400 krónur. Óbreytt
verð er fyrir leigu á sundfatnaði,
150 krónur og fyrir sólbekki eða
430 krónur fyrir eina klukkustund
en 3.500 krónur fyrir 10 klukku-
stundir.
Rýmum fyrir nýjum vörum
10-50% AFSLÁTTUR
ÚT ÞESSA VIKU
(Ath. áður verslunin KOT)
Verslun með gjafavörur í Borgarkringlunni
Sími 682221