Morgunblaðið - 05.02.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 1992
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 1992
21
JMtatgtpftlftfeife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Vinátta í stað víg-
búnaðarkapphlaups
Er hrun Sovétríkjanna blasti
við á síðasta ári og ljóst
varð að ríkjasambandið yrði ekki
endurvakið tóku vestrænir sér-
fræðingar á sviði öryggis- og
varnarmála að ræða hvernig
bregðast bæri við þessum um-
skiptum. Því var annars vegar
haldið fram að óvissa sú sem
upplausn Sovétríkjanna gæti af
sér gerði það að verkum að sýna
bæri varfærni á sviði vígbúnaðar-
og afvopnunarmála í samskiptum
við Rússland, sem sýnilega yrði
ráðandi innan samveldisins nýja.
Borís N. Jeltsín Rússlandsforseti
væri óráðin gáta og óvíst hversu
lengi stjórn hans yrði við völd. A
hinn bóginn var því haldið fram,
að hrun Sovétríkjanna gæfi ein-
stök tækifæri á þessu sviði. Rúss-
ar gætu ekki haldið áfram hams-
lausum útgjöldum Sovétstjórnar-
innar sálugu á vettvangi vígbún-
aðarmála og raunar ætti stjórn
Jeltsíns allt sitt undir aðstoð frá
Vesturlöndum. Lýræðisríkin
gætu dregið úr framlögum til
vamarmála og treyst öryggi sitt
m.a. í krafti lágmarks kjarnorku-
fælingar.
í síðustu viku kunngerði Ge-
orge Bush, Bandaríkjaforseti, að
Bandaríkjamenn væru tilbúnir til
að stíga róttæk skref í afvopnun-
armálum, ef Rússar og samveldis:
ríkin gerðu slíkt hið sama. í
stefnuræðu sinni lýsti Banda-
ríkjaforseti því yfir, að útgjöld til
varnarmála yrðu skorin niður um
fimmtíu þúsund milljónir Banda-
ríkjadala á næstu fimm árum.
Miðast tillögur Bush einkum við
að fækkað verði svonefndum
langdrægum fjölodda kjarnorku-
eldflaugum, öflugustu gereyðing-
arvopnum, sem smíðuð hafa ver-
ið. Sama dag lýsti Borís Jeltsín
yfir því, að Rússar væru tilbúnir
til að fallast á verulega fækkun
langdrægra eldflauga og nefndi,
að unnt yrði að fækka rússnesk-
um kjamaoddum um 2.000 til
2.500. Á sögulegum leiðtogafundi
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
á föstudag hvatti Jeltsín síðan til
þess að smíðað yrði alþjóðlegt
geimvarnarkerfi er byggði á
geimvamaráætlun Bandaríkja-
manna að viðbættri rússneskri
tækniþekkingu til að unnt væri
að granda eldflaugum á flugi.
Vakti þessi tillaga Rússlandsfor-
seta verðskuldaða athygli ekki
síst sökum þeirra gífurlega hörðu
viðbragða, sem bámst frá Sovét-
stjórninni og talsmönnum hennar
á Vesturlöndum er Ronald Reag-
an, þáverandi Bandaríkjaforseti,
kynnti geimvarnaráætlunina í
frægri ræðu í marsmánuði 1983.
Fyrir Bandaríkjaförina hafði
Jeltsín sagt í sjónvarpsviðtali, að
kjarnorkuvopnum yrði framvegis
ekki beint að borgum í Bandaríkj-
unum. í sameiginlegri yfirlýsingu,
sem birt var um síðustu helgi að
afloknum fundi þeirra Bush og
Jeltsíns sagði m.a: „Rússland og
Bandaríkin líta ekki á hvort annað
sem hugsanlega óvini. Héðan í
frá munu samskipti þeirra ein-
kennast af vináttu og samvinnu."
Yfirlýsingar þeirra Jeltsíns og
Bush forseta marka þáttaskil. I
Bandaríkjunum hefur sú stefna
orðið ofan á að áfram beri að
vinna að fækkun gereyðingar-
vopna umfram það sem kveðið
var á um í START-sáttmálanum
svonefnda sem undirritaður var í
Moskvu síðasta sumar. Með því
gefst kærkomið tækifæri til að
bregðast við efnahagsvandanum
vestra auk þess sem krafa tímans
er sú að horfið verði frá hug-
myndafræði gereyðingarógnar og
vígbúnaðarkapphlaups þó svo
áfram verði treyst á fælingarmátt
kjarnavopna á mun lægra stigi
en áður. í Rússlandi hafa menn
sýnilega komist að þeirri niður-
stöðu, að án aðstoðar og stuðn-
ings Vesturlanda verði landið
aldrei fært í hóp þróaðra ríkja.
Markmið rússneskra ráðamanna
virðist nú um stundir fyrst og
fremst vera að tryggja stöðu
Rússlands sem svæðisbundins
stórveldis í Austur-Evrópu auk
þess sem leitað hefur verið eftir
bættum samskiptum við auðug
Asíuríki.
Það sjónarmið, að upplausn
Sovétríkjanna hafí leitt til enn
meiri óvissu en áður, á vissulega
við rök að styðjast og því fer
fjarri að unnt sé að segja til um
hver þróun mála verður á næst-
unni í Rússlandi og öðrum sam-
veldisríkjum. Ýmislegt bendir til
þess að stjórn Jeltsíns standi höll-
um fæti vegna þeirra harkalegu
efnahagsaðgerða, sem gripið hef-
ur verið til. Deila Rússa og Úkra-
ínumanna um yfirráð yfir Svarta-
hafsflotanum og ummæli ýmissa
undirsáta Jeltsíns að undanförnu,
t.a.m. um „helgan rétt“ Rússa til
að eignast á ný landsvæði er frá
þeim voru tekin, eru ekki til þess
fallin að stuðla að stöðugleika.
Engu að síður fer því fjarri, að
öryggi lýðræðisríkjanna sé ógnað
með sama hætti og áður. Ráða-
menn eystra hafa horfíð frá þeirri
btjálsemislegu ofsóknarhyggju er
einkenndi utanrikis- og varnar-
stefnu Sovétríkjanna allt fram á
daga Míkhaíls S. Gorbatsjovs,
fyrrum Sovétforseta. Geta rússn-
eskra ráðamanna til að hrinda af
stað fyrirvaralítilli landárás inn í
Evrópu er horfín. Efnahags-
þrengingar þær sem sósíalisminn
og hernaðarhyggjan gátu af sér
hafa knúið fram afgerandi stefnu-
breytingu og þeirri þróun verður
tæpast snúið við.
Gróðurhúsaáhrifin:
íslendingar gætu haslað sér
völl á sviði umhverfismála
- segir dr. Baldur Elíasson
Zlirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ALÞJÓÐASTOFNANIR sem íslendingar eru aðilar að munu láta
umhverfismál æ meir til sín taka á næstu árum. Sjóður á vegum
Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna var til dæmis stofnaður í
desember til að styrkja verkefni sem fást meðal annars við takmörk-
un gróðurhúsaáhrifa og hreinsun hafanna. Dr. Baldur Elíasson,
vísindamaður hjá ABB í Sviss, segir sjóðinn aðeins hluta af miklum
fjárhæðum sem verður veitt til rannsókna og framkvæmda á sviði
umhverfismála í framtíðinni. Hann telur Islendinga eiga að nota tæki-
færið og sækjast eftir peningum úr alþjóðasjóðum til að setja á fót
stofnun sem stundar mælingar og rannsóknir á gróðurhúsaáhrifunum.
„Lega íslands var hernaðarlega
mikilvæg í síðustu stytjöld og hún
er ekki síður mikilvæg í stríðinu sem
nú er háð gegn umhverfisvandan-
um,“ sagði Baldur. „Landið er vel
staðsett til að gera mælingar á
landi, legi og lofti sem annars væri
erfitt að stunda og íbúar þess eru
vel menntaðir. íslenska þjóðin gæti
því auðveldlega skapað sér sérstöðu
í umhverfismálum.
Eyðing ósonlagsins, súrregn og
gróðurhúsaáhrifin eru alheims-
vandamál sem verða aðeins leyst
með sameinuðu átaki þjóðanna. Það
er þegar búið að banna efni sem
eru skaðleg fyrir ósonlagið og feng-
ist er við að draga úr súrregni. En
rannsóknum á áhrifum koltvísýr-
ings á hitastig andrúmsloftsins er
ekki lokið. Það mun væntanlega
taka 10 til 20 ár enn þangað til
svokölluð gróðurhúsaáhrif hans
verða sönnuð eða afsönnuð. Eg tel
tilvalið að íslendingar eigi frum-
kvæðið að því að koma á fót alþjóð-
legri rannsóknastofnun undir ís-
lenskri stjórn sem sérhæfir sig í
gróðurhúsaáhrifunum. Það verður
örugglega hægt að fá erlenda styrki
til þess ef sóst er ákveðið eftir því.“
Baldur er sérfræðingur ABB
(Asea Brown Boveri) í gróðurhúsa-
áhrifunum. Fyrirtækið framleiðir
meðal annars orkustöðvar og við-
skiptavinir þess hleypa um 3% alls
koltvísýrings af manna völdum út
í andrúmsloftið. Baldur fylgist náið
með rannsóknum og þróun mála á
þessu sviði og þykir miður a_ð hafa
ekki orðið var við innlegg íslend-
inga í umræðuna. „Það eru einhver
samnorræn verkefni í gangi og ís-
lendingar hafa aðstoðað einhveija
Bandaríkjamenn við þeirra rann-
sóknir en þeir hafa ekki haslað sér
völl á þessu sviði eins og þeir gætu.
íslendingar munu aldrei gegna leið-
andi hlutverki með þátttöku í nor-
rænu eða alþjóðlegu samstarfi eins
og þeir hafa tekið þátt í hingað til
vegna smæðar sinnar. Þeir geta það
hins vegar með því að standa að
hlutunum sjálfir og bjóða erlendum
sérfræðingum til samstarfs við sig.“
Vísindamenn spá því að aukinn
koltvísýringur í loftinu muni hækka
hitastig andrúmsloftsins um 1 stig
fyrir árið 2025 og 3 stig fyrir 2100.
Sjávarmál mun hækka um 20 til
65 cm við það og stór landsvæði
gætu farið í kaf. „Ein ástæðan fyr-
ir því að vísindamenn hafa efast
um gróðurhúsaáhrifin er sú að hita-
stigið í Evrópu hefur ekki hækkað
eins mikið og útreikningar gerðu
ráð fyrir," sagði Baldur. „En hita-
stigið hefur ekki hækkað af því að
Norður- Atlantshaf tekur mikið
magn koltvísýrings í sig og það var
ekki tekið með í reikninginn. Hafið
tekur í sig um helming þess koltví-
sýrings sem náttúran skapar og
góðan hluta þess magns sem verður
til af manna völdum. Stór hluti
koltvísýringsins sekkur í hafið á
svæðinu í kringum ísland og við
Suðurskautslandið. Það er yfir-
borðsstraumur úr Indlandshafi sem
kólnar í Norður-Atlandshafi, verður
að djúphafsstraumi og flytur koltví-
sýringinn niður á hafsbotn. Það er
enn lítið vitað um þessa hluti og
mikilla mælinga og rannsókna er
þörf til að skilja þá til hlítar. íslend-
ingar gætu gegnt þar mikilvægu
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir.
Dr. Baldur Elíasson, vísindamað-
ur hjá ABB í Sviss, telur Island
kjörinn stað fyrir alþjóðlega
rannsóknastofu fyrir gróður-
húsaáhrifin i andrúmsloftinu.
hlutverki."
Alþjóðafundur um gróðurhúsa-
áhrifin verður haldinn í Brasilíu í
júní. Baldur sagði að stjórnmála-
menn myndu þá taka ákvarðanir
uni stjórnun þessara mála. „Þar
verður örugglega samþykkt að
auka rannsóknir á þessu sviði og
ákveðið hvernig þær verða fjár-
magnaðar. Væntanlega verður
lagður skattur á þá sem menga
loftið með koltvísýringi. Fé verður
alla vega fyrir hendi og Islendingar
ættu að stefna hnitmiðað að því að
fá hluta þess til að byggja upp al-
þjóðlega rannsóknastofnun undir
íslenskri stjórn á Íslandi."
Kristján Jóhannsson gerir samning við Metropolitan um tvær óperur:
Hámark þess sem óperu-
söngvari getur hugsað sér
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari hefur undirritað samning við
Metropolitan-óperuna í New York um að syngja aðalhlutverkið í
tveimur óperum þar í febrúar á næsta ári, annars vegar í Cavaleria
Rusticana og hins vegar í II Trovatore. Var samningur þessa efnis
gerður í kjölfar frammistöðu hans við Chicago-óperuna nú fyrir
skömmu. Áformað er að Kristján syngi á að minnsta kosti sjö sýning-
um í Metropolitan. Kristján segir í samtali við Morgunblaðið að hann
hafi með þessu náð hámarki þess sem óperusöngvari getur óskað
sér, en áður hafi hann sungið á Scala á Ítalíu og fyrir liggi opinbert
tilboð frá bresku Covent Garden-óperunni. Krislján er fyrsti Islend-
ingurinn sem kemur fram í aðalhlutverki í Metropolitan-óperunni á
Lincoln Square, en hún er eitt viiTasta og besta óperuhús veraldar.
Kristján kom fyrst fram í
Chicago-óperunni leikárið 1988-89
í óperunni Tosca og segist þar hafa
verið mjög heppinn. Upphaflega
hafi nefnilega staðið til að hann
syngi þar á móti Luciano Pavarotti
og að þeir skiptu á milli sín átta
sýningum. „Eins og alheimi er
kunnugt sinnaðist Pavarotti hins
vegar við stjómendur óperunnar og
var hreinlega sagt upp. Voru í kjöl-
farið gefnar út alþjóðlegar yfirlýs-
ingar um að hann yrði ekki ráðinn
þar aftur. En eins manns dauði er
annars brauð og fyrir bragðið fékk
ég að syngja á öllum sýningunum,“
segir Kristján. „Hlutverkið í Tosca
er eitt af mínum allra sterkustu
trompum og varð þetta til þess að
ég var ráðinn til að syngja eina
óperu á hveiju ári í Chicago allt
fram til ársins 1996.“
í fyrrahaust hóf hann leikárið þar
með hlutverki í óperunni Mefistofele
eftir Boido, þar sem hann söng aðal-
hlutverkið, Faust, og nú nýverið
söng Kristján í Turandot á móti
sóprönunum Evu Marton og Galínu
Savovu.
Hann segir samninga við Metro-
politan-óperuna hafa verið mjög
lengi í burðarliðnum en skort hafi
herslumuninn til að þeir gengju
saman. Síðasta haust var Kristjáni
þannig gert opinbert tilboð um að
syngja í Aídu en hann gat ekki
þegið það sökum þess að þá hefði
hann þui-ft að hætta við marga
aðra góða samninga sem hann hafði
gert, sem hefði komið honum illa.
„Forstöðumenn Metropolitan
komu síðan til Chicago að hlusta á
mig í Turandot og það var eins og
við manninn mælt, daginn eftir var
Alþingi kemur sam-
an að nýju á morgnn
ALÞINGI íslendinga tekur á ný til starfa á morgun að afloknu þing-
hléi. Meðal mála sem verða til umfjöllunar má nefna frumvarp um Lána-
sjóð íslenskra námsmanna, sem væntanlega verður til fyrstu umræðu
næstkomandi þriðjudag.
Starfsáætlun Alþingis hefur und-
anfarnar vikur verið til endurskoðun-
ar. Að sögn Salome Þorkelsdóttur
forseta Alþingis á forsætisnefnd þing-
ins eftir að staðfesta áætlunina en
áformað er að þingfrestun verði um
miðjan maí.
Á morgun verður fundur settur á
Alþingi kl. 10.30 og verða fyrirspurn-
ir á dagskrá fyrir hádegi. Stefnt er
að því að frumvarp um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna verði tekið til
fyrstu umræðu næstkomandi þriðju-
dag. Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir
námslán beri vexti frá námslokum og
reglur um endurgreiðslur eru hertar.
Af öðrum málum sem fyrir þinginu
liggja má nefna frumvarp til laga um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á
búvörum. Það frumvarp verður á dag-
skrá mánudagsins. í athugasemdum
segir m.a. að tilgangur þessa frum-
varps sé einkum sá að gera nauðsyn-
legar lagabreytingar í framhaldi af
svokölluðum „búvörusamningi“ sem
var undirritaður af landbúnaðarráð-
herra og fjármálaráðherra f.h. ríkis-
stjórnar og samningarnefndar Stétt-
arsambands bænda í mars á síð-
astliðnu ári. Einnig má geta um
endurskoðaða vegaáætlun fyrir árin
1991- 94, flugmálaáætlun fyrir árin
1992- 95. Ennfremur frumvarp um
stofnun hlutafélags um Síldarverk-
smiðjur ríkisins. Við stofnun þessa
félags verður ríkissjóður eigandi allra
hlutabréfanna. En þriðja grein þess
frumvarps kveður á um að sjávarút-
vegráðherra fari með eignarhlut ríkis-
ins. Heimilt verður að selja öll hluta-
bréfin í félaginu eða hluta þeirra sam-
kvæmt nánari ákvörðun hluthafa.
Samgönguráðherra mun væntan-
lega einhvern næstu daga leggja fram
frumvarp um að lög um Skipaútgerð
ríkisins séu úr gildi fallin, enda hefur
fyrirtækið hætt starfsemi.
Reglugerð um aukinn kostnað sjúklinga vegna hjálpartækja:
Leiðrétting til að hindra
mikinn kostnað sjúklinga
NÝSETTRI reglugerð um greiðsluhlutfall sjúklinga vegna hjálpartækja-
kaupa verður væntanlega breytt á næstu dögum, en í ljós hefur komið
að samkvæmt henni eykst kostnaður stomaþega og sykursjúkra einstakl-
inga að meðaltali um tugi þúsunda króna árlega. Áð sögn Jóns Sæmund-
ar Sigurjónssonar, formanns Tryggingaráðs, verður Ieiðréttingu á þessu
hraðað svo óhóflegur kostnaður komi ekki á sjúklingana, og segir hann
beinast liggja við að breyta þátttökuhlutfallinu í kostnaðinum.
Breytt reglugerð um þátttöku sjúkl-
inga í kostnaði vegna hjálpartækja tók
gildi um síðustu mánaðamót, og sam-
kvæmt henni jókst kostnaðarhlutur
sykursjúkra úr 10% í 50% og hlutur
stomaþega varð 30% en var enginn
áður. Áð sögn Jóns Sæmundar Sigur-
jónssonar hefur kostnaður ríkisins
vegna hjálpartækja aukist úr 235
milljónum fyrir fjórum árum í um 600
milljónir á síðasta ári, og er ætlunin
að minnka hann um 100 milljónir á
þessu ári.
„Það eru hundruð atriða sem eru á
hjálpartækjalistanum og starfsmenn
Tryggingastofnunar hafa farið yfir.
Þeir skiluðu tillögum sínum til
Tryggingaráðs sem fór yfir þær og
samþykkti samhljóða. Það var auðvit-
að gert með þeim fyrirvara að ef
ábendingar kæmu fram um að þessar
tillögur hölluðu verulega á í kostnaði
á einhveija ákveðna hópa sjúklinga
þá yrði það tekið til endurskoðunar.
Það hefur nú gerst i tveimur tilvikum,
og verður rætt við Samtök sykur-
sjúkra og Stomasamtökin um skyn-
samlega niðurstöðu í þessu máli,“
sagði Jón Sæmundur.
Hann sagði að í samvinnu við of-
angreind samtök yrði reynt að ná nið-
ur kostnaði vegna hjálpartækja með
útboðum, og reyndar hefðu þegar
komið tilboð frá fyrirtækjum um helm-
ingi lægra verð á ákveðnum vörum
en þær eru seldar á í dag.
Reglur um tekj utengingu
elli- og* örorkultfeyris í gildi
TEKJUTENGING elli- og örorkulífeyris almannatrygginga tóku gildi
hinn 1. febrúar með þeirri undantekningu þó að slysaörorkubætur
skerðast ekki. Grunnlífeyrir einstaklings er nú 12.123 krónur á
mánuði. Skattskyldar tekjur aðrar en lífeyrissjóðstekjur og
tryggingabætur skerða grunnlífeyri, ef þær eru hærri en 65.847
krónur á mánuði þjá einstaklingi. 25% af þeim tekjum sem umfram
eru skerða ellilífeyrinn þannig að lífeyririnn fellur niður, ef nettó-
tekjur eru 114.339 krónur á mánuði eða hærri.
Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu frá Tryggingastofnun
ríkisins, upplýsingadeild. Þar segir
ennfremur, að ellilífeyrir hvors
hjóna sé 90% af fullum grunnlíf-
eyri einstaklings og nemur í dag
10.911 krónum á mánuði. Þetta
gildir ef bæði eru komin á ellilíf-
eyri. Sé aðeins annað hjóna með
ellilífeyri greiðist grunnlífeyrir ein-
staklings þ.e. 12.123 krónur á
mánuði. Lífeyririnn skerðist við
eigin tekjur einstaklings (eigin tekj-
ur hvors hjóna) en ekki sameigin-
legar tekjur hjónanna. Ellilífeyrir
hvors hjóna fellur niður ef nettó-
tekjurnar ná 109.491 krónum á
mánuði, vegna þess að grunnlífeyr-
ir þeirra er lægri en einstaklings.
Óskert tekjutrygging ellilífeyris-
þega, einstaklings eða hvors hjóna,
er óbreytt 22.305 krónur á mán-
uði. Tekjutryggingin skerðist um
45% tekna sem eru umfram ákveð-
ið frítekjumark sem er 16.280
krónur gagnvart atvinnu- og leigu-
tekjum, 23.650 krónur gagnvart
tekjum úr lífeyrissjóði hjá einstakl-
ingi. Tekjur maka eða sambýlings
hafa áhrif á upphæð tekjutrygging-
ar. Frítekjumark hjóna eða sam-
býlisfólks er 22.792 krónur gagn-
vart atvinnu- og leigutekjum og
33.110 krónur gagnvart tekjum úr
lífeyrissjóði. Reglur varðandi tekju-
trygginguna eru óbreyttar frá því
sem var fyrir þessa lagabreytingu.
Ekki er lengur unnt að ávinna
sér hækkun ellilífeyris með því að
fresta töku hans eins og áður var.
Þeir, sem hafa áunnið sér rétt til
hækkunar, halda þeirri hækkun
sem áunnist hefur til 1. febrúar
1992. Hún skerðist ekki þó svo að
lífeyrir skerðist.
Ororkulífeyrir einstaklings er
12.123 krónur á mánuði. Hann
skerðist á sama hátt og grunnlíf-
eyrir ellilífeyrisþega, er skerðing
örorkulífeyris hefst ef skattskyldar
tekjur fara yfír 67.236 krónur á
mánuði hjá einstaklingi og fellur
niður ef nettótekjurnar eru 115.728
krónur eða hærri. Skerðingin er
alltaf miðuð við eigin tekjur öryrkj-
ans, tekjur makans breyta þar
engu. Þá falla slysaörorkubætur
ekki undir þetta skerðingarákvæði
eins og áður er sagt.
Örorkulífeyrir hjóna, sem bæði
eru öryrkjar, er 10.911 krónur á
mánuði. Skattskyldar tekjur aðrar
en greiðslur úr lífeyrissjóði og bæt-
ur almannatrygginga, skerða ör-
orkulífeyri, fari þær yfir 67.236
krónur á mánuði hjá einstaklingi
og fellur niður ef nettótekjur eru
110.880 krónur á mánuði eða
hærri, því að grunnlífeyrir hjóna
hvors um sig er lægri en hjá ein-
staklingi.
Tekjutrygging örorkulífeyris-
þega hækkar úr 22.305 krónum á
mánuði í 22.930 krónur. Tekjur
sem skerða tekjutrygginguna og
reglur um skerðingu eru þær sömu
og gilda um tekjutryggingu ellilíf-
eyrisþega.
Selma Guðmundsdóttir í
tónleikaferð til Litháen
SELMA Guðmundsdóttir pianóleik-
ari mun dagana 17.-21. febrúar
halda 5 tónleika í jafnmörgum
borgum í Litháen, m.a. í Vilníus og
Kaunas.
Ferð þessi er í boði opinberra aðila
í Litháen og skipulögð af skrifstofu
sinfóníuhljómsveitar í Vilníus, sem
hefur yfirumsjón með tónleikahaldi í
landinu. Síðastliðið haust óskaði skrif-
stofan eftir upplýsingum um fyölda
íslenskra tónlistarmanna. Úr þeim
hópi voru valdir þrír listamenn. Ferð
Selmu er sú fyrsta að þessu sinni en
auk þess hefur Pétri Jónassyni gítar-
leikara og Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðl-
uleikara verði bpðið í tónleikaferðir í
apríl og maí nk. Áður hefur Reykjavík-
urkvartettinn heimsótt Litháen á síð- Selma Guðmundsdóttir.
astliðnu sumri.
Á efnisskrá tónleika Selmu í Lithá- tónlistar eftir m.a. Schubert, Janacek
en eru verk íslenskra tónskálda auk og Liszt.
Kristján Jóhannsson á óperusviði. Hér er hann í hlutverki Gustavus í
Grímudansleiknum.
ég ráðinn og gengið frá samningum.
Þetta er mjög ánægjulegt því ég
kem inn sem il grande tenore í þess-
um báðum óperum, en þær hafa
verið mjög mikið á mínum verkefna-
lista og ég get því sýnt mínar sterk-
ustu híiðar."
Eins og áður sagði verða sýning-
arnar í febrúar 1993 og verða þær
lágmark sjö en hugsanlega ellefu.
Kristján syngur hlutverk Turido í
Cavaleria Rusticana og hlutverk
Manrico í II Trovatore. Stjórnandi
á sýningunum verður Nello Santi,
en hann stjórnaði einnig uppfærslu
á Turandot sem Kristján söng í í
Tókýó á síðasta ári. Þess má geta
að í einþáttungnum Pagliacci, sem
verður færður upp á söniu sýningu
og Cavaleria Rusticana, mun
Placido Domingo syngja aðalhlut-
verkið.
„Ég lít þannig á að þetta sé há-
mark þess sem maður getur óskað
sér. Ég er þegar búinn að syngja á
Scala og komið er opinbert tilboð
frá Covent Garden. Ég veit hins
vegar ekki enn nákvæmlega hvenær
ég syng þar,“ segir Kristján. Á
þessu ári mun Kristján hins vegar
syngja m.a. í óperuhúsunum í Vín,
Róm, Flórens, Frankfurt, Hamborg,
Veróna og París, alls rúmlega sjötíu-
sýningar. Aðspurður um hvort þetta
væri ekki mæðandi sagði hann svo
vissulega vera. „Það fer mikill kraft-
ur í þetta og ég verð að segja að í
fyrra var ég alveg á nippinu með
alls áttatíu sýningar. Þetta eru allt
hádramatískar óperur sem ég syng
í, sem mjög erfitt er að finna nógu
góðan tenór í, svo þetta mæðir allt
á okkur tveimur eða þremur í
stærstu óperuhúsunum. Én maður
verður samt sem áður að passa sig
og ég einbeiti mér því að því að
hækka launin og fækka sýningum
þessa stundina,“ segir Kristján.
Frumvarp um breyt-
ingu RARIK í hluta-
félag liggur fyrir
DROG AÐ frumvarpi til laga um breytingu á Rafmagnsveitum ríkisins
í hlutafélag hafa verið samin af fulltrúum RARIK og viðskiptaráðuneyt-
is. Er frumvarpið nú lijá ráðherra ásamt drögum að nýrri reglugerð
og einkaleyfi og er búist við að það verði lagt fyrir ríkissljórn og
stjórnarflokka á næstunni. Gert er ráð fyrir að lilutafélag um rekstur
rafmagnsveitnanna verði alfarið í eigu ríkissjóðs fyrst í stað og að
samþykki Alþingis þurfi til sölu hlutabréfa.
Á vegum Rafmagnsveitna ríkisins
voru í tíð fyrri ríkisstjórnar útbúin
drög að frumvarpi sem kynnt voru
fyrir ráðherra og var ákveðið að
vinna áfrarn að þeim. í stefnuyfirlýs-
ingu núverandi ríkisstjórnar kemur
fram að áformað er að auka sjálf-
stæði og rekstrarábyrgð ríkisfyrir-
tækja með breyttu rekstrarformi,
einkum því að breyta þeim í hlutafé-
lög. Þau fyrirtæki, sem m.a. koma
til skoðunar í þessu sambandi, eru
Póstur og sími, Rafmagnsveitur rík-
isins og Landsvirkjun.
„Formbreyting af því tagi sem hér
um ræðir útilokar hvorki frekari
breytingar, svo sem þær að rekstur
og rekstrarþættir framangreindra
stofnana séu boðnir út eða seldir,
né þarf hún nauðsynlega að fela í
sér að hlutur ríkisins verði seldur,“
segir í hvítbók stjórnarinnar. í kjölf-
ar stjórnarskiptanna hófst aftur
vinna við samningu nýs frumvarps
um RARIK og nú í samráði við full-
trúa viðskiptaráðuneytisins. Tillög-
urnar liggja nú fyrir í ráðuneytinu.
Einnig drög að nýrri reglugerð og
einkaleyfi. Björn Friðfinnsson ráðu-
neytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að verið væri að kynna frum-
varpið fyrir starfsfólki RARIK. Jafn-
framt væri verið að leita að nafni á
fyrirtækið og ræða ýmis atriði sem
tengdust þessari breytingu.
Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjóri sagði í gær að breyting á
RARIK úr ríkisstofnun í hlutafélag
væri fyrst og fremst formbreyting.
Hann sagði að margir kostir væru
við hlutafélagsformið, það væri besti
ramminn til að reka fyrirtæki í.
„Við teljum að með því verði fyrir-
tækið sjálfstæðara, að við náum
fram virkari og beinni stjórn og ha-
græðing verði auðveldari,“ sagði
Kristján.