Morgunblaðið - 21.02.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
Ð 3
læknir eru á staðnum. Auk þess
verða Evrópuferðir áfram með skip-
ulagðar ferðir til Madeira.
Urval-Útsýn verður áfram með
skipulagðar ferðir til Portúgals og í
sumar verður flogið vikulega í beinu
leiguflugi þangað. Gististaðir verða
í Algarve, Albufeira/Monteehoro og
Troia. Barnaklúbbur er í Albu-
feira/Montechoro á vegum ferða-
skrifstofunnar og er þátttökugjald í
hann 1.200 krónur. Verð fyrir
tveggja vikna ferð í ágúst, miðað
við tvo í íbúð er á bilinu 64-84 þús-
und krónur og eru föst aukagjöld
þá reiknuð með. íslenskir fararstjór-
ar eru á staðnum.
Grikkland
Korfu heitir nýr áfangastaður hjá
Samvinnuferðum-Landsýn. í sumar
verður reglulegt leiguflug til þessar-
ar grísku eyju, sem hingað til hefur
fyrst og fremst verið sótt af breskum
o g ítölskum ferðamönnum auk
frænda okkar frá hinum Norðurlönd-
unum. Um það bil klukkustund tek-
ur að sigla til meginlandsins, en ein
af þeim skoðunarferðum sem í boði
eru, er einmitt um nærliggjandi eyja
og meginlandsins. Tveggja vikna
ferð í ágúst, miðað við tvo í íbúð,
kostar um 70 þúsund krónur á mann.
Annars er verð á bilinu 58-91 þús-
und eða þar um bil og eru föst auka-
gjöld þá reiknuð með. íslenskir far-
arstjórar eru á staðnum.
Borgir í Evrópu
Ferðaskrifstofan Sólarflug fjölgar
áfangastöðum sínum í leiguflugi til
borga í Evrópu. Nú bætast Amsterd-
am og Glasgow við fyrri áfangastaði
sem voru London og Kaupmanna-
höfn. Leiguflug þessi eru á tímabil-
inu 1. maí til 30. september. Nú eru
farseðlar til Amsterdam og til baka
seldir á 19.300 krónur, en verðið
mun hækka um næstu mánaðamót
að sögn starfsmanns ferðaskrifstof-
unnar. Verð þetta er háð því að
dvalið sé í minnst eina viku og mest
einn mánuð. Auk þess heldur Sólar-
flug áfram leiguflugi til Mallorea,
en enn hefur verðskrá ekki verið
gefin út fyrir þær ferðir.
Erlendar ferðaskrifstofur
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur held-
ur áfram ferðum með beinu leigu-
flugi til Benidorm, en auk þess hefur
hún í boði ferðir í samfloti við hol-
lensku ferðaskrifstofuna Arke Reiz-
en, sem skipuleggur hópferðir til
nánast allra heimshluta. Dæmi um
verð á tveggja vikna ferð til Benid-
orm í ágúst, miðað við að tveir dvelji
í íbúð, er um 71.000 krónur og eru
föst aukagjöld þá reiknuð með. Far-
þegar í ferðum Arke Reizen byija á
að fljúga til Amsterdam og fara
þaðan á áfangastað. Hollenskir leið-
sögumenn eru á viðkomandi stöðum,
en dæmi um áfangastaði eru Portúg-
al, Grikkland, Kýpur, Ibiza og Tyrk-
land.
Flugleiðir hafa einnig tekið upp
ámóta nýjung og selja ferðir í sam-
floti við dönsku ferðaskrifstofuna
Fritidsreiser. Áfangastaðirnir eru
nánast hvarvetna í heiminum og
danskir leiðsögumenn á hverjum
stað. Flogið er í gegnum Kaup-
mannahöfn, og misjafnt eftir áfang-
astöðum hvort hægt er að halda
áfram ferðalaginu samdægurs eða
hvort gista þarf í Kaupmannahöfn.
Meðal áfangastaða Fritidsreiser eru
Ítalía, Tyrkland og Grikkland. ■
Kámskeiö í
svæöisbund-
inni leiösögn
nm AustinM
NÁMSKEIÐ í svæðisbundinni
leiðsögn hefur staðið yflr í vetur
á Austurlandi á vegum Ferða-
málasamtakanna þar og Far-
skóla Austurlands. Þrjátiu
manns víða af svæðinu taka þátt
í námskeiðinu, sem lýkur í maí.
Að sögn Karenar Erlu Erlingsdótt-
ur, ferðamálafulltrúa á Austur-
landi, hittast nemendur eina helgi
í mánuði á einhveijum staðanna á
svæðinu sem nær allt frá Gunnólfs-
víkurfjalli að Skeiðarársandi. Til
dæmis var byijað á Egilsstöðum,
svo haldið til Seyðisfjarðar og þvi
næst til Breiðdalsvíkur.
„Við fáum fyrirlesara á hveijum
stað, bæði úr röðum fróðra heima-
manna og annarra. Helstu náms-
greinamar em saga, gróður- og
dýralíf, þjóðsögur og Islendinga-
sögur, jarðfræði og svo mannleg
samskipti. Við eram ekki með
tungumálakennslu, en gerð er
krafa um að þátttakendur hafi að
minnsta kosti eitt erlent mál á
valdi sínu. Þetta er brautryðjenda-
starf, en okkur hefur þótt það tak-
ast vel og þessi notkun á Farskól-
anum virðist vera skynsamleg
lausn fyrir námskeið í ferðaþjón-
ustu,“ segir Karen Erla. Nám-
skeiðið veitir réttindi til leiðsagnar
fyrir ferðamenn sem sækja Aust-
urland heim. ■
Toyota Camry er glæsilegur bíll.
Nýr Toyota Camry
sýndur um helgina
NÝ OG gjörbreytt Toyota
Camry verður sýnd um helgina
þjá P. Samóelssyni í Kópavogi.
Camry er mikið breyttur, bæði
hvað varðar búnað og útlit. Bíllinn
er að miklu leyti unnin upp úr
Lexus, en það er flaggskip Toyota
í fólksbflaflotanum. Mikil áhersla
er lögð á að hafa bílinn hljóðlátan
og með það í huga er mótorinn
m.a. á vökvapúðum.
Bílinn verður hægt að fá í
tveimur útgáfum. Ódýrari útgáfan
er með fjögurra strokka, 136 hest-
afla vél og kostar 2.190 þúsund
krónur. Dýrari útgáfan er „einn
með öllu“, eins og þeir hjá umboð-
inu orðuðu það. Hann er með V-6
vél, 188 hestafla og allur klæddur
leðri að innan. Báðar útgáfumar
eru með læsivörðum hemlum,
ABS, og í dýrari útgáfunni er full-
komin hljómflutningstæki, m.a.
geislaspilari og sex hátalarar.
Dýrari bfllinn kostar 3.250 þúsund
krónur.
Camry verður til sýnis á laugar-
daginn frá 10-17 og á sunnudag-
inn opna sýningarsalimir í Kópa-
vogi kl. 13 og opið verður til kl. 17.
■
Skandia ís-
land opnar
tjónaskoðun
SKANDIA ísland opnar um helg-
ina tjónaskoðunarstöð í Reykjavík
og verið er að senya við fyrirtæki
á landsbyggðinni um að taka að
gerast tjónafulltrúar fyrirtækis-
ins.
Tjónaskoðunarstöðin sem verið er
að opna í Reykjavík er til húsa í
Skeifunni 9, á sama stað og Bfla-
leiga Akureyrar. Hvað landsbyggð-
ina varðar þá mun fyrirtækið ekki
koma sér upp umboðsaðilum heldur
er ætlunin að semja við ýmis fyrir-
tæki, og þá aðallega verkstæði, um
að þau verði tjónafulltrúar. Þá getur
fólk fengið tjón metið á viðkomandi
verkstæðum. ■
Viper vinsæll vestra
HINN nýi sportbíll frá Dodge,
Viper, virðist heldur betur ætla
að slá í gegn í Bandaríkjunum
ef marka má dóma um bílinn í
erlendum blöðum. Menn eiga
ekki til orð til að lýsa ánægju
sinni með hann enda mjög til
hans vandað i alla staði.
„Ég gat ekki annað en starað á
hann þegar ég sá hann fyrst á
bílasýningu í Detroit. Ég gerði lítið
annað en ganga í kringum hann
þann tíma sem sýningin var. Eftir
að hafa ekið bílnum get ég fullyrt
að hann er eins þægilegur í akstri
og hann er fallegur á að horfa,“
segir bílasérfræðingur Fast Lane
bflablaðsins.
„Það þýðir ekkert að skrúfa hlið-
arrúðumar upp — því það em eng-
ar slíkar. Það era ekki heldur nein
hurðarhandföng að utan. Lítil vöm
gegn veðri og
vindum því það er
aðeins þunn blæja
sem hægt er að
nota sem þak. En
það sem er í Viper
er tíu strokka vél
sem gefur 400
hestöfl. Þegar þú
ekur greitt og
finriur vindinn
þjóta um eyrun þá
hugsar þú ekki um
hliðarrúður, hand-
föng eða neitt ann-
að. Viper er mest spennandi farar-
tæki sem komið hefur fram síðan
Ben Húr uppgötvaði rómverska
tvíþjóla stríðsvagninn," segir bíl-
asérfræðingur Car And Driver.
Viper er enginn venjulegur bíll.
Hann er með stóra og mikla vél
sem gengur að hluta til inn í far-
þegarýmið. „Mér fannst kúplingin
helst til stíf fyrst þegar ég settist
undir stýri, en uppgötvaði síðan
Viper er óneitanlega glæsilegur
Hér má sjá þegar verið er að prófa bílinn áður
en yfirbyggingin er sett á grindina.
Mælaborðið er glæsilegt. Hvítir
mælar og grátt og hrjúft yfirborð.
að þetta var bremsan en ekki kúpl-
ingin sem ég steig á. Vegna stærð-
ar vélarinnar eru kúplingin, brems-
an og bensíngjöfin færð talsvert
til vinstri," segir í dómi um bflinn.
Af framansögðu má ljóst vera
að bflasérfræðingar eiga erfítt með
að lýsa bílnum og oft verða þeir
mjög háfleygir. „Þeir sem kaupa
svona bíl og eiga hann í Iangan
tíma munu aldrei teygja sig fram
til að setja bflinn í gang án þess
að fínna fyrir ákveðinni eftirvænt-
ingu,“ segir einn þeirra.
Til að gefa lesendum aðeins
hugmynd um hvers konar bíl er
um að ræða skal það áréttað að
Dodge gerði hann til að keppa við
Corvette ZR-1 frá Chevrolet. Viper
er kraftmeiri, hann er með sex
gíra áfram og krafturinn og „tork-
ið“ er svo mikið að hægt er að
spóla bflnum áfram í öllum gíram
á malbiki. í reynsluakstri erlendra
blaða er hann um 4,6 sekúndur
úr kyrrstöðu í 100 km hraða. ■