Morgunblaðið - 21.02.1992, Síða 12
12 D
MORGUNBLAÐJÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
Mælaborðið er
einfalt en bíll-
inn er rúmgóð-
ur að innan.
um á verði sem nær allt frá 1,5
upp í 2,2 milljóna króna.
CL bíllinn fæst tveggja eða
íjögurra hurða og er íjögurra
hurða útgáfan sem við skoðum
með samlæsingu. Samlæsingin
er með öryggisvöm þannig að
þegar bflnum er læst með lyklin-
um verður að opna hann á ný
með lykli, þ.e. sé brotist inn í
hann með því að bijóta rúðú
getur þjófurinn ekki opnað með
því að taka upp takkann. Hann
yrði að skríða inn um brotna
rúðuna. Annar búnaður er
vökvastýri, mengunarvöm og
útispeglar stillanlegir innan frá.
Golfinn er 4,02 metra langur,
1,69 m breiður og 1,42 m hár.
Hann vegur 1.030 kg, ber 505
kg, þolir að draga 750 kg þunga
og setja má 75 kg á toppinn.
Farangursrýmið mælist 330 lítra
en 1.162 lítra sé aftursætisbak
BUNAÐUR
Vél: 1800 rúmsenti-
metrar, fjögxirra
stroklta, 75 hestöfl.
Vökvastýri.
Útispeglar stillanlegir
innan frá.
Dag\j ósabú naður.
Mengunarvöm.
Öryggiskerfi.
Samlæsing.
Verð: 1.125 þús. kr.
Umboð: Heklahf.
■
Hljóðlótur
Mjúkur
Rúmgóður
Mjóbuks-
stuðningur
lítill
lagt niður. í CL útgáfunni verður
að leggja allt bakið niður en í
GL er það skiptanlegt.
Hjólhafið er hið sama og á
eldri gerð af Golf eða 2,47 metr-
ar en sporvíddin er meiri. Hún
er 4,9 cm meiri að framan og
3,8 cm meiri að aftan.
Stór bíll
Það finnst engin smábílatil-
fínning við akstur á Golf. Hafi
hún verið áður þá er hún ekki
fyrir hendi hér og virðist öku-
manni fremur að hér sé um
stærri bíl að ræða. Það sem ýtir
undir þá tilfinningu er mýkt
fjöðrunar, hæfilega létt vökva-
stýrið og hljóðlát vél þrátt fyrir
að hún gefi allgott viðbragð ef
á þarf að halda. Þessi tilfinning
finnst eiginlega strax og sest er
inn í bílinn því þar finnur öku-
maður sig strax vel heima, rým-
ið er gott og sérstaklega höfuð-
rýmið. Takið á stýrinu er gott
og það sama má segja um fimm
gíra handskiptinguna, hún er
þægileg og rennur mjúklega milli
gíra. Viðbragð og vinnsla eru
þokkaleg en sá sem kýs heldur
snarpari viðbrögð myndi hiklaust
velja GL útgáfuna með 90 hest-
afla vélinni en hann þarf þá að
greiða rúmlega 100 þúsund
krónum meira. Golfínn er mjúkur
og liggur vel á sléttum sem
ósléttum vegum. Sé hranalega
ekið má fínna dálítinn slátt upp
í stýrið en þess verður ekki vart
í venjulegri meðferð. Sem borg-
arbíll er Golfinn lipur og það er
þægilegt að meðhöndla hann og
umgangast. Farangursrýmið er
sæmilegt og þar er að finna
minni háttar varahjól.
Kostar um 1.10O þúsund
krónur
Tveggja hurða Golf CL kostar
í staðgreiðslu kr. 1.035.840 með
verksmiðjuryðvörn en án skrán-
ingar. Sé hann tekinn fjögurra
hurða og með samlæsingu er
verðið um 1.125 þúsund krónur.
Fyrir sjálfskiptingu þarf að
greiða 98.000 til viðbótar. Þetta
er í sjálfu sér ekki íkja hátt verð
fyrir eigulegan bíl sem þennan
og má hiklaust fullyrða að þarna
fá menn mikið fyrir fjárútlátin.
■
Jóhannes Tómasson
Trufla auglýsingaskilti ökumann?
FYRIR einu og hálfu ári voru settar reglur til að sporna við
að auglýsingaskilti væru sett við götur og fjölfama vegi. Síðan
þá hefur auglýsingaskiltum við fjölfarin gatnamót fjölgað mik-
ið. Nýjasta og stærsta skiltið er við gatnamót Vesturlandsvegar
og Höfðabakka.
Gatnamótin við Vesturlandsveg
og Höfðabakka eru ein fjölfömustu
gatnamótin í Reykjavík og hafa
löngum verið talin með þeim
hættulegri. Stórt auglýsingaskilti
er nú risið þar og blasir við öllum
sem þar fara um. Hjá embætti
byggingafulltrúa Reykjavíkur, en
þangað þarf að sækja um leyfí
fyrir slíku skilti, fengust þær upp-
lýsingar að fyrmefndar reglur
væru í endurskoðun.
Skiltum við fjölfarin gatnamót
hefur fjölgað gífurlega síðan regl-
urnar voru settar og því er talin
þörf á að endurskoða þau. Auglýs-
ingaskiltið á þaki hússins sem
kennt er við Nýjabíó við Lækjar-
torg, skiltið á Kringlunni og fleiri
hafa verið sett upp eftir að reglum-
ar vora settar.
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfírlögrelguþjónn, segir að
margir hafí verið tvístígandi í
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nýja auglýsingaskiltið á gatnamótum Höfðabakka og Vesturlands-
vegar er stórt og mikið. Þar eru ökumenn m.a. hvattir til að aka
varlega.
fyrstu varðandi þessi skilti og talið
þau trafla ökumenn. „Við gerðum
könnun á gat.namótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
skömmu eftir að skiltið var sett á
Kringluna. Við spurðum þá sem
lentu í árekstri við gatnamótin um
ástæður árekstursins og það var
aðeins í einu tilviki sem ökumað-'
ur, sem lenti í aftanákeyrslu, sagð-
ist hafa verið að horfa á auglýs-
ingaskiltið. Ég held að fyrst í stað
horfí menn talsvert á þessi skilti
en síðan hætta þeir að taka eftir
þeim og þá trafla þau ekki öku-
menn,“ sagði Ómar Smári. ■
TT7 m
Golfinn er lipur
Golfinn nýi
sver sig í ættina
þrátt fyrir nýtt
útlit.
- rúmgódur og eigulegur
ÞÁ ER hann kominn til landsins, nýi Golfinn, sem kynntur
var í Þýskalandi á liðnu sumri. Umboðið, Hekla hf., sýndi
bílinn gestum í Perlunni í gær og verður hann sýndur um
helgina í húsnæði fyrirtækisins við Láugaveg. Enn á ný
koma Volkswagen verksmiðjurnar með vandaðan bíl, enn
eina kynslóðina af hinum framdrifna metsöIubU Golf, sem
selst hefur til þessa í 12,7 milljónum eintaka. Nýi Golfinn
er með nýju útliti, nýjum vélum, fjöðrunarbúnaði og nýju
yfirbragði innan stokks og hann er fáanlegur á verði frá
um 1.050 þúsund krónur og upp í um 1.600 þúsund eða jafn-
vel 2,2 miiyónir ef menn kjósa GTi útgáfur með tveggja lítra
vélum og þaðan af stærri. En við höldum okkur við grunn-
gerðina, skoðum í dag Golf CL, bíll með nýjungum sem bygg-
ir á traustum grunni.
Golf ber svip af fyrirrennara
sínum en er þó í raun gjör-
breyttur hið ytra. Hann
virkar stærri útlits, er allur
ávalur, luktir orðnar stærri
og stuðarar efnismeiri.
Hann er nokkuð niður-
byggður að framan og
mjókkar að aftan. Framrúð-
an er stór og hliðarrúður
einnig, sú aftari þó minni
og þar fyrir aftan er nokkuð
breiður kantur áður en kem-
ur að afturrúðu. Hún virðist í
minna lagi en kemur ekki að sök
í akstri. Golf er rennilegur vagn
þótt hann sé nokkuð breiðleitur
og að mínu viti hinn fallegasti
bíll.
Ekki í kot vísað
Það er ekki í kot vísað þegar
inní hann kemur. Bæði fram- og
aftursætin era stíf og góð og
búin hefðbundnum stillingum.
Hæðarstilling er á framsætum í
GL gerðunum. Þótt sætin séu
stíf og góð vantaði samt nokkuð
á betri stuðning við mjóbakið.
Klæðning er áferðarfalleg og
frágangur að innan virkar allur
sannfærandi. Mælaborðið er
miklu líkara því sem gerist í
stærri bílum, það er vel búið með
snúningshraðamæli, hraðamæli,
nauðsynlegum viðvöranarljósum
en rofar era þó vart aðrir en
fyrir aðalljós, stefnuljós, hita á
afturrúðu pg lýsingu í mæla-
borði, auk miðstöðvarrofa. Hillan
ofan á mælaborði og að framrúðu
er nokkuð stór, næstum of stór,
en allt ber þetta þó vott um gott
rými. Hanskahólf er ágætt og
smáhólf í hurðum og í stokki
framan við gírstöng.
Vélin í Golf CL er 1800 rúms-
entimetrar, fjögurra strokka og
75 hestafla, Bíllinn nær 164 km
hámarkshraða, er 14 sekúndur
(A
að ná 100 km hraða úr kyrr-
stöðu, er talinn eyða tæpum 10
lítram í borgaramferð en um 6
til 7 lítram á jöfnum þjóðvega-
akstri. Auk þessarar vélar er
fáanleg 90 hestafla vél og síðan
tveggja lítra vélar sem þá era
orðnar 115 eða 143 hestöfl og
2,8 lítra 174 hestafla vél en þá
eram við komin að GTi útgáfun-
Volkswagen Golf er nú kominn í nýrri mynd, rúmgóður og eigulegur bíll.