Morgunblaðið - 04.04.1992, Síða 6

Morgunblaðið - 04.04.1992, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 Morgunblaðið/Einar Falur MALÞING UM MYNDLIST Vel sótt óing um öreytt viðhorf í íslenskri myndlist síðustu ára FYRIR skömmu efndi Menningarmiðstöðin Gerðuberg til mál- þings um stöðu íslenskrar myndlistar, og var sjónum beint að breyttum viðhorfum til aðferða og hugsunarháttar í myndlist eftir 1970. Þingið var mjög vet sótt, ekki síst af myndlistarmönn- um, og reyndu framsögumennirnir Hannes Lárusson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Rúrí og Þorvaldur Þorsteinsson að gera grein fyrir nokkrum af þeim forsendum sem myndlistarmenn hafa lagt til grundvallar í verkum sínum á tímabilinu, og á eft- ir urðu líflegar umræður um nokkur þau atriði sem fram komu í erindunum. Frummælendurriir. Þorvaldur Þorsteinssön er lengst til vinstri, Hannes Lárusson í pontu og þá koma Helgi Þorgils Friðjónsson og Rúrí. Hannes Lárusson: Glímt við tungumálið Hannes Lárusson var umsjón- armaður málþingsins og opnaði það með erindi sínu. Hann varpaði myndum á tjald og reyndi þar að draga upp mörg þau einkenni sem hann taldi mest áberandi og lýsandi fyrir síðustu áratugi og nútímann í myndlist. Hann talaði fyrst um goðsögur í myndlist síðustu tuttugu ára, póst-módernískri myndlist, og sýndi síðan mynd af merki Reykja- víkur og sagði að þar væri atriði sem sér þætti mjög mikilvægt. „Þarna erum við með táknmynd sem byggir ekki á tilvísun til ytri eða innri veruleika, heldur er þetta mynd sem hefur eingöngu merk- ingu út frá samkomulagi. Við sem hér erum vitum að þetta eiga að vera öndvegissúlur Ingólfs Arnars- . onar, en annars hefur myndin enga merkingu og vísar ekki til neins nema að við þekkjum bakgrunn hennar og höfum gert samkomulag um merkinguna. Það sem við getum sagt að ein- kenni póst-módemíska myndlist, er fyrst og fremst tungumálið. í þeirri myndlist er ekki verið að gera eftir- mynd af einhveijum sameiginlegum veruleika sem menn sjá, það er heldur ekki verið að tjá innri víddir mannshugans, heldur er verið að glíma við tungumálið.“ Þegar Hannes útskýrði þetta nánar þá sagði hann meðal annars að í mynd- list síðustu tuttugu ára væri mikið fengist við að gera þekkingu sýni- lega. ' Eftir spjali um helstu einkenni módemismans og þróun hans, kom Hannes aftur að póst-módernism- anum og tók dæmi úr íslenskum arkitektúr, sýndi mynd af Húsi verslunarinnar. „Hér sjáum við verk eftir Ingimund Sveinsson. Kannski getum við kallað þetta íslenskan póst-módernisma, því hér sýnist mér vera komið stuðlabergið í nýrri útgáfu. Það má segja að landslags- arfurinn sé mjög sterkur í íslenskri myndlist og ef að hann komi ekki til þá vefjist íslendingum tunga um tönn, varðandi það hvað gæti verið íslenskt séreinkenni. Ég held við sjáum þetta mjög oft þegar talað er um íslenska myndlist erlendis. Menn hamra á íslensku landslagi sem einhverskonar séreigind, og ef það dugar ekki til þá koma menn með íslenska birtu inn í það. En hér erum við komin með stuðlaberg í bygginguna, og kannski er þetta eitt besta dæmið um íslenskan póst- módernisma, ef hann gæti verið til í arkitektúrnum." Þá ræddi Hannes um samfélagið: „Við lifum ekki lengur í iðnaðar- samfélagi sem byggir á framförum, við lifum í einhveiju sem heitir neyslu- og upþlýsingasamfélag, og það er líka ein breytingin sem menn hafa þóst sjá, og ein af þeim breyt- ingum sem gerir að verkum að við getum ekki lengur talað um mód- ernískt samfélag. Framfarahyggjan sem var þungamiðja í hugmynd.a- fræði módernismans er ekki lengur fyrir hendi.“ Og þessu til stuðnings sýnir Hannes mynd eftír listakon- una Barböru Krúger, á henni stend- ur: I SHOP - THEREFORE I AM (Ég kaupi - og er þessvegna til). „Myndlistin er að reyna að nálgast •þetta ástand. Hún reynir að hanga í þeim samfélagsbreytingum sem verða, og reynir að skapa sér að- stöðu til að geta túlkað samfélagið." „Annað sjónarmið sem hefur ver- ið varpað fram í sambandi við póst- módernismann, er að amerískir neysluhættir séu orðnir alþjóðlegir. Kannski er það skilgreiningin á póstmódemismanum, kannski er það þetta sem við erum að fást við í myndlistinni; að bregðast við því að heimurinn er allur orðinn eytt neyslusvæði, undir amerískum for- merkjum. Þá geta menn spurt: Hvað með íslenska listamenn? Jú, íslenskir listamenn eru inni í þessu að einhveiju leyti. Mörg einkenni á íslenskri myndlist eru oft þau sömu og erlendis.“ Helgi Þorgils: Norðurlöndin eiga að hafa sérstöðu Helgi Þorgils Friðjónsson fjallaði um íslenska myndlist í víð- um skilningi og minntist á skilin sem urðu með poppi og annarri list upp úr 1960. „Þar fór myndlistin að nota kits-hluti og fleira sem var og er flokkað undir lágmenningu. Jafnframt var erlend list notuð sem tilvitnun eða hugmynd. Þarna verð- ur í heildarstefnu til eitthvað sem ég kalla hugmyndalíkingu, en það er tengt því tungumáli sem Hannes talaði um, þ.e. formræn bygging verks getur staðið á hugmyndinni einni, eða röðum hugmynda, tilvitn- ana eða leikja." Helgi Þorgils talaði um að lítið rými væri fyrir meira en eina list- stefnu hér í einu, þannig hefði SUM verið allsráðandi þegar hann hóf nám við Myndlista- og handíðaskól- ann á sínum tíma. „Maður tók þessu athugasemdarlaust og vegna upp- lýsingaleysis var allt frumlegt og fínt. Einkennandi var að menn vildu helst ekki kannast við eldri list, nema fáeina listamenn, þar á meðal Duchamp. Gallinn við slíka einsýni er að sjónarhornið er ekki rétt mið- að við það sem gerist erlendis. Þannig uggðu menn ekki að sér þegar póst-módernisminn birtist. Utlendingar sem ég hef talað við og þekkja nokkuð til íslenskrar list- ar síðari ára, nefna helst stikkorð eins og þessi þegar þeir reyna að verajákvæðir: Ijóðræn, skrýtin, frá- sagnarkennd, laus við hefðir, und- arleg birta og svo framvegis. Þetta er allt einhvernveginn mjög opið, en þó óstærðfræðilegt eða óheim- spekilegt. Flestir eru sammála um að hér sé ekki mikið um frumlega list, í þess orðs fyllstu merkingu, en hér verður til ágæt list.“ Helgi segir að sú list sem hann kynntist hvað mest á námsárum sínum í Hollandi á árunum 1976 til 1979 hafi verið lítt kynnt hér heima, og gagnrýnendur hafí greinilega verið illa upplýstir um þær hræringar. „Þetta sýnir því miður oft stöðu mála varðandi gagnrýni hér, gagnrýnendur vita ekki hvað um er að vera og ein- hvernveginn giska á hvað er á seyði." Og Helgi Þorgils talaði um póst- módernismann: „Margir andstæð- ingar hans hafa haldið því fram að ekkert nýtt hafi gerst á þessum tíma. Það hlýtur þó að teljast rangt, þótt ekki væri miðað við annað en tímann, og varla hefði þetta vakið jafn mikil viðbrögð og raun ber vitni ef einungis hefði verið um eftir- myndir að ræða. Eftirmyndir eru nefnilega gerðar á öllum tímum. Tíminn gerir það að verkum að það sem er nýtt, öðlast nýja merkingu. Segja má að suman frumleika sjái maður ekki vegna þekkingar- skorts, og annað áh'tur maður vera frumlegt vegna þekkingarskorts. Ég hef í sjálfu sér ótrú á endan- legri niðurstöðu. Um og upp úr 1980 voru menn hér enn óviðbúnir hugsunarhætti póst-módernismans. Þeir fáu sem voru farnir að veita þessari hreyf- ingu eftirtekt urðu mest varir við eina hreyfingu af bylgjunni, eins og fyrri daginn, og fyrir valinu urðu Berlínarmálararnir sem máluðu ex- pressjónískt og fígúratíft. Úti í heimi voru þetta hinsvegar margir óiíkir hópar formrænt séð. Allir stíl- ar þessarar aldar voru notaðir sem einhverskonar tungumál, en með tungumálinu myndast þessi hug- myndalega myndbygging sem ég drap á áður. Það er tiifinningalegt samspil með efni og form, frekar en rök- fræðilegar niðurstöður sem ráða ríkjum hér á landi - það næst viss mögnun þegar vel gengur, en virk- ar oft frekar hjáróma vegna þess að útlitslegu áhrifin eru sótt í heimslistina. Þetta er sú sýn sem margir menn sunnar í álfu tala um, og hún hefur fengið á sig stimpil fyrir að vera sveitó og skorta sjálfs- traust. Þessi sýn nær yfir Norður- löndin öll.“ Helgi segist ekki hafa neinar áhyggjur af því hvort myndlist hafi eitthvert „heimsútlit" eða sæki ein- kenni til heimalandsins, en hinsveg- ar finnst honum að Norðurlöndin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.