Morgunblaðið - 05.04.1992, Síða 16
!
16 B
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGIMIR
SUNNUDAGUR 5. APRIL 1992
Drangahraun
/
: ■; i— - ' /r ;lll lílíi 'Tiíl '
Iðnaðarhúsnæði 530 fm samtals á stórri malbikaðri
lóð. Hornhús á áberandi stað. Húsnæðinu er í dag skipt
í 170 fm einingu, 260 fm einingu og 100 fm milliloft.
Húsnæðið er í dag í 3 ára leigu. Góðar og traustar leigu-
tekjur. Verð 19,5 millj.
29077
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A,
VIÐAR FRIÐRIKSSON,
LÖGG. FASTEIGNASALI,
HEIMASÍMI 27072.
Símatími í dag 13-15
FASTEIGNAMIÐLUN.
Síðumúla 33 - Símar: 679490 / 679499
Símatími í dag, sunnudag, Ármann H. Benediktss., sölustj.,
frá kl. 13.00-15.00 Geir Sigurðsson,
lögg. fasteigna- og skipasali.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar
gerðir fasteigna f sölu.
Fyrir eldri borgara
Snorrabraut
Nýkomnar í sölu miösv. 2ja og 3ja herb.
íb. fyrir 55 ára og eldri. Sérhannaöar íb.
Stutt í alla þjónustu. Afh. fullfrág. í sept. nk.
Einbýli
Gerðhamrar - einb.
Leifsgata - 4ra
Nýkomin i sölu glæsil. íb. á 2.
hasð. Ath. allar innr. og lagnir nýj-
ar. Áhv. byggsjóöur ca 2,8 millj.
Verð 8,8 millj.
Vorum að fá í sölu nýl. 273 fm hús á tveim-
ur hæðum. Auk þess ca 80 fm rými sem
mögul. sóríb. Innb. bílsk. Stórkostl. út-
sýni. Áhv. ca 10,3 millj. hagst. langtima-
lán. Verð 18,6 millj.
Blesugróf - einb.
213 fm timburh. á tveimur hæðum. Mögul.
á tveggja herb. íb. á neðri hæð m. sér-
inng. Stór garður. Verð 9,8-10 millj.
Stekkjahverfi - einb.
isfií
Nýkomið í sölu vel staðsett á hornlói
mjög gott ca 300 fm einbhús ásamt óinnr.
ca 90 fm rými. Innb. bílsk. Einstaklíb. á
jarðhæð. Mikið útsýni.
Raðhús - parhús
Kleppsvegur - 5 herb.
Mjög góð ca 100 fm íb. á 1. hæð. Park-
et. Nýl. þak. Endurn. rafmagn. Áhv. 500 þ.
Miðstræti - 5 herb.
Góð 117 fm 5 herb. Áhv. ca 1,5 millj.
Grafarvogur - 6 herb.
Góð ca 150 fm íb. á tveimur hæðum. 4
svefnherb. Gott útsýni. Bflsk. Mikið áhv.
Flúðasel - 4ra
Falleg ca 92 fm íb. á 3. hæð. Parket.
Mikið útsýni. Áhv. 3,9 millj. Skipti mögul.
á 2ja herb. íb. Verð 7,3 millj.
Nýjar íbúðir
Grafarvogur - 6-7 herb.
126 fm íb. án bílsk. 145 fm m. bílsk. Eigna-
skipti möguleg. íb. afh. fullb.
Eyrarholt - Hf. 3ja, 4ra
íb. afh. tilb. u. trév. og máln. Til afh. nú
þegar. Mögul. að fá íb. fullfrág.
3ja herb.
Sæviðarsund - raðh.
Vorum að fá i sölu vandaö 160 fm
raðh. á einni hæð. 4 svefnherb.,
sjónvhol, arinn, blómaskátí, gest-
asnyrting. Suðurgarður. Bilsk. Ákv.
sala.
Kleifarsei - 3ja
Vorum að fá í sölu góða ca 75 fm
endaib. á 2. haeð. íb. fyigir ca 48
fm óinnr. ris. Áhv. ca 1650 þús.
Engjasel - raðh.
Ca 225 fm raðh. 4-5 svefnherb. 2 bað-
herb. Bílskýli. Lítið áhv.
Leiðhamrar - parhús
Nýl. ca. 195 fm parhús á tveimur hæðum.
4-5 svefnherb. Garðskáli. Bílskúr. Mögul.
skipti á 4ra herb. íb. Áhv. ca. 5 millj.
byggingarsj. Verð 13,7 millj.
Einarsnes - parhús
í sölu vandað ca 200 fm parhús. Bílskúr.
Verð 16 millj.
Bústaðahverfi - raðh.
Ca 110 fm raðh. á tveimur hæðum ásamt
kj. Áhv. ca 3,8 millj. Verð 8,2 millj.
Hrísrimi - parh.
í sölu fallegt tveggja hæða parhús ásamt
bílsk. Húsið skilast fullb. utan og málað,
tilb. u. trév. og málað að innan. Verð
10,5 millj.
Sérhæðir- hæðir
Hagaland - Mosbæ
Glæsil. ca 150 fm efri sérhæð í tvíb. ásamt
35 fm bílsk. Parket. Stórar svalir._
4ra-7 herb.
Engjasel - 4ra herb.
Nýkomin í sölu mjög góð og vel staðsett
ca 100 fm íb. á 2. hæð. Sérþvottherb. í
íb. Útsýni. Stæöi í bjlgeymslu. Verð 8,5
millj.
Engihjalli - 3ja
Vönduö ca 80 fm íb. Parket. Áhv. langtlán
ca 1800 þús.
Karfavogur - 3ja
Vorum að fá í sölu ca 55 fm risíb. Verð
4,9 millj.
Nýbýlavegur - 3ja
Falleg ca 76 fm íb. á 1. hæð ásamt 28 fm
bílsk. Áhv. veðd. ca 2,3 millj.
Garðabær - 3ja
Björt 92 fm íb. á 9. hæð. Sérþvherb. í íb.
Ljósar innr. Flísar á gólfum. Tvennar sval-
ir. Glæsii. útsýni. Áhv. byggsj. 1.800 þús.
Ákv. sala. Laus nú þegar.
2ja herb.
Dúfnahólar - 2ja
Mjög góð 63 fm íb. á 3. hæð í litlu fjölb-
húsi. Verð 5,6 millj.
Asparfell - 2ja
í sölu mjög góð ca 65 fm íb. á 4. hæð.
Verð 4,8 millj.
Hvassaleiti
Tvær ósamþ. íb. í kj. 25 fm íb. Verð 2,3
millj. 45 fm íb. Verö 3,7 millj.
Njörvasund - 2ja
Góð íb. á jarðhæð ásamt sérgeymslu.
Áhv. ca 1750 þús. byggsjóöur. V. 3,6 m.
Atvinnuhúsnæði
Suðurlandsbraut - Faxafen
Aðeins ein 100 fm skrifstofueining á 2.
hæð. Verð 5,0 millj.
Kleppsvegur
Ca 145 fm geymsluhúsnæðí. Áhv. 1,5
millj. Verð 3,4 millj.
Qóðfasteign - gntfi Setri.
Talsverd efUr-
spurnefUr
sumarbústöóum
SUMARBÚSTÖÐUM hefur farið ört fjölgandi hér á landi á síðustu
áratugum. Eigendur þeirra eru ýmist einstaklingar eða fagfélög
og starfsmannafélög, en þessi félög hafa reist fjölda orlofshúsa
víða um land. Vaxandi löngun í útvist og margs konar áhugamál
tengd henni eins og skógrækt eiga dijúgan þátt í þessari þróun.
Á sumum stöðum hafa risið heil sumarhúsahverfi t. d. í Grímsnesi.
Á öðrum stöðum eins og í Flatey á Breiðafirði fór upphaflega
byggðin í eyði svo að húsin lágu undir skemmdum. Framtaksamir
aðilar keyptu húsin og gerðu þau síðan upp og nýta þau nú til
orlofsdvalar á sumrin.
eftir Magnús
Sigurðsson
skrá hjá Fasteignamati ríkis-
eru um 6.000 sumarbú-
staðir, en sennilega eru þeir um
7.000 alls í landinu, því að sumir
þeirra eru reistir án leyfis. Orlofs-
hús starfsmannafélaga eru um 600
og á riálendinu
mun vera 300-500
skálar og alls ekki
allir þeirra á skrá.
Við þetta bætast
veiðihús og hús á
sveitabæjum og í
þorpum, sem nýtt
eru af kaupstaða-
fólki. Þegar allt
er talið, eru þetta um 9.000-10.000
bústaðir, sem er nær því eins mik-
ið og íbúðaljöldinn í Kópavogi og
Akureyri samanlagt.
Tvöföld búseta er því orðinn
srtar þáttur í lífsháttum íslendinga
og það þeim mun frekar, þar sem
þessi hús eru orðin miklu betri og
vandaðri en var, þannig að unnt
er að nýta þau miklu lengur á ári
hveiju, en áður tíðkaðist. I flestum
hinna nýrri eru rafmagn og heitt
vatn sjálfsagðir hlutir. Þegar svo
er komið, er hægt að vera í þessum
húsum nær ailan ársins hring.
Bættir vegir eiga að sjálfsögðu
þarna mikinn þátt. Akstur á góðum
bíl í 1-2 klukkustundir þykir ekki
mikið tiltökumál til þess að komast
í sumarbústað, þó að vetur sé og
heitið sumarbústaður er þá varla
réttnefni lengur.
Þýðing sumarbústaðanna og or-
lofshúsanna fyrir viðkomandi
s'veitarfélög er mikil. Sem dæmi
má nefna, að Grímsneshreppur fær
vel yfir 10 millj. kr. í gjöld af um
1.000 bústöðum á ári. Ibúar
hreppsins eru um 260, svo að tekj-
urnar eru um 100.000 kr. á hverja
fjölskyldu. Fyrir utan þetta koma
tekjur af sölu bústaðalanda
(200.000-500.000 kr. á lóð) eða
gjald eftir leigulóð. (20.000-30.000
kr.) á ári. Þá skapar smíði bú-
staða, lögn vega, hita og vtnsveitu
mikla atvinnu og þegar húsin eru
risin og fólk farið að búa í bústöð-
unum, þá kaupir það ýmsa aðra
þjónustu í sveitinni.
Smíða sumarhús í staðinn fyrir
báta
Smíði sumarhúsa er líka mikil
atvinnugrein. Á stöðum eins og
Selfossi, sem liggur mjög vel við
sumarhúsasvæðinu í Grímsnesi, er
sumarhúsasmíðin snar þáttur í
starfsemi sumra byggingarfyrir-
tækja og annars staðar fjær helztu
sumarhúsasvæðunum eru fyrir-
tæki, sem byggja nær alfarið á
sumarhúsasmíðinni. Eitt þeirra eru
Básar hf. við Hvaleyrarbraut í
Hafnarfirði. Það var upphaflega
bátasmíðastöð, en þegar bátasmíð-
in lagðist að mestu af fyrir um 10
árum, var ekki um annað að ræða
en snúa sér að öðru. Á þeim tíma,
sem síðan er liðinn, hafa Básar
smíðað um 100 sumarhús og ekk-
ert lát er á þeirri smíði.
Hjá fyrirtækinu starfa nú fjórir
menn, sem eru jafnframt eigendur
þess. Þeir félagar bjuggu allir í
Vestmanneyjum, en fluttu eins og
margir aðrir í land eftir gos. —
Það er fyrir hendi töluverð eftir-
spurn eftir sumarbústöðum, en það
er eins og fólk vilji ekki taka
ákvarðanir eins og er, sagði Bárð-
ur Auðunsson, einn úr hópi fjór-
menningana. — Það stafar vafa-
laust af þeirri óvissu, sem nú er
ríkjandi út af kjarasamningum og
ef til vill samdrættinum í þjóðfélag-
inu yfirleitt. Nú erum við með þrjú
sumarhús í smíðum og.af þeim er
þegar búið að selja tvö.
En hverjir eru það, sem kaupa
nýja sumarbústaði? — Það er eink-
um einstaklingar, bæði ungir og
gamlir, segir Bárður. — Það er
greinilega breiður hópur, enda er
áhugi á því að eiga sinn eiginn
bústað þér mikill og fer sízt minnk-
andi. Yms fagfélög hafa einnig
keypt sumarhús af okkur, en meiri
hluti viðskiptavina okkur eru samt
einstaklingar. Þau hús, sem við
smíðum, eru yfirleitt 45 -50 fer-
metrar. Við höfum hannað þau
sjálfir, en þau er mjög stöðluð, þó
að það séu smábreytingar frá einu
húsi til annars t. d. útlitsbreytingar
á gluggum.
Húsin eru úr furu og við skilum
þeim oftast fullbúnum. Verðið get-
ur verið misjafnt enda mismun-
andi, hvað fólk vill léggja í húsin
og það er hægt að fá þau á ýmsum
byggingastigum. Verðið á fullbún-
um bústað er þó yfirleitt 3-3,3
millj. kr. og það er oftast stað-
greitt. Inni í þessu verði eru steypt-
ar undirstöður og flutningur, þann-
ig að þá er bústaðurinn kominn á
staðinn, þar sem hann á að vera.
Húsin eru smíðuð inni í smiðjunni
hér í Hafnarfirði og þeim síðan
rennt út á bílpall fyrir utan og flutt
þannig með vörubíl á ákvörðunar-
stað. Yfirleitt hafa þessir flutning-
ar gengið mjög vel. Flest hafa
þessi sumarhús farið í sumarbú-
staðahverfin austur í Grimsnesi og
í Borgarfirði en þau hafa einnig
risið eitt og eitt á fjarlægari stöð-
urn eins og í Dýrafirði og við Mý-
vatn.
Miklu vandaðri hús en áður
— Eftirspurn eftir sumarhúsum
hefur verið að aukast, enda er
vorið sá tími, sem áhugi á þeim
er hvað mestur, sagði Elías Har-
aldsson, sölumaður hjá Fasteign-
amiðstöðinni. — Aðalsölutíminn er
því að ganga í garð. Við hér höfum
Fasteignamiðstöðin auglýsti nýverið tvo sumarbústaði á Flúðuin á 6,5 millj. kr. hvorn. Þeir eru 60 fer-
metrar með 25 fermetra baðstofulofti. Það er einkum félagasamtök, sem hafa áhuga á bústöðuni sem
þessum. Algengasta verð á sumarhúsum nú er annars 3-4 millj. kr.