Morgunblaðið - 05.04.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.04.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1992 B 17 Starfsmenn Bása hf., en þeir eru jafnframt eigendur fyrirtækisins. Talið frá vinstri: Þorsteinn Runólfs- son húsasmíðameistari, Bárður Auðunsson skipasmíðameistari, Ragnar Runólfsson húsasmiður og Þor- steinn Sigurðsson smiður. Mynd þessi er tekin í smíðastöð Bása hf. við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. I baksýn má sjá tvo sumarbústaði í smíðum. Mynd þessi er tekin inni í einum af bústöðum Bása hf. Þeir eru úr furu og smíðaðir á stálgrind, sem fylgir þeim og tryggir, að þeir liðast ekki til í flutningum. Þar að auki eykur stálgrindin styrk þeirra. lagt okkur fram við að sinna þess- um markaði og sendum lista til sem flestra starfsmannafélaga, verka- lýðsfélaga og fagfélaga. Það hefur orðið mikil breyting á sumarhúsum frá því sem var. Þetta eru yfirleitt orðin mun vandaðri hús en áður. Nú erum við að auglýsa tvo sumar- bústaði á Flúðum á 6,5 millj. kr hvorn. Þeir eru 60 fermetrar með 25 fermetra baðstofulofti. Það er einkum félagasamtök, sem hafa áhuga á bústöðum sem þessum og búast má við tilboðum fljótlega. Algengasta verð á sumarhúsum nú er annars 3-4 millj. kr. Elías sagði það orðið miklu al- gengara nú, að sumarbústaðir væru heils árs hús með rafmagni, sjónvarpi, hita, sturtubaði og ýmsu öðru t. d. heitum pottum. — Sum- ir fara í bústaðinn sinn um flestar helgar árið í kring og þá eru þetta ekki lengur bara sumarhús. Að vetrarlagi taka þeir með sér gönguskíði og vélsleða. Hjá öðrum er nýtingin líka orðin miklu meiri. Þeir byrja að stunda sumarbústað- inn sinn miklu fyrr á vorin en áður og nota hann lengur fram á haust- ið. En þeir eru vissulega til, sem nota sumarbústaðinn lítið. Að sögn Elíasr eru eftirsóttustu svæðin Flúðir og Grímsnes. Þá er Svarfliólsskógur í Borgarfirði orð- inn mjög vinsæll og góðir bústaðir þar fljótir að fara, ef þeir koma í sölu. Elías kvaðst álíta, að bættir vegir hefðu orðið til þess að auka sumarhúsaáhuga fólks verulega. Segja mætti, að allir góðir staðir, sem væru innan eins og hálfs tíma aksturslengdar frá höfuðborgar- svæðinu væru eftirsóttir og seldust vel. Þegar aksturstíminn væri orð- in lengri, færi eftirspurnin minnk- andi og verðið um leið lækkandi. Að sjálfsögðu skiptir sumarbú- staðalandið sjálft miklu máli t. d. hvott þar er vatn eða gróður eins og skógarkjarr og hvort góðir möguleikar eru fyrir hendi til skóg- ræktar. En bústaðirnir mega ekki held- ur vera of nærri. — Ahugi á bústöð- um í næsta nágrenni við höfuð- borgarsvæðið er ekki tiltakanlega mikill, miðað við hvað það er stutt og þægilegt að komast til þeirra, sagði Elías. — Það er eins og fólk vilji fara aðeins lengra til þess að skipta um umhverfi. Þar við bæt- ist, að margir af þessum bústöðum eru orðnit' gamlir og komnir að miklu viðhaldi. Þessi sumarhúsa- hverfi er ekki heldur eins heil- steypt og sumarhúsahverfin ann- ars staðar, sem eru gjarnan miklu nýrri. Elías kvaðst ekki verða var við það, að útlendingar væru farnir að sækjast eftir sumarhúsum hér á landi. Að vísu kæmu af og til fyrirspurnir frá útlendingum í jarð- ir en þá væru gjarnan til staðar einhver tengsl við landið, makinn t. d. íslenzkur. Það væri hins vegar alls ekki óalgengt, að flugmenn eða veiðifélagar hér innanlands spyrðust fýrir um kaup á heilum jörðum fyrir áhugamál sitt. Það væru þá yfirleitt jarðir með engum fullvirðisrétti, en væri hann til staðar, þá mætti auðvitað selja hann frá jörðinni. Oft hefðu starfs- mannafélög líka áhuga á heilu jörðunum til þess þá að geta byggt sín sumarhúsasvæði upp sjálf. En það væri líka fyrir hendi mikil eftir- spurn eftir jörðum til búskapar. Ef góð jörð með miklum mjólkurk- vóta kæmi í sölu, væri nrikið um fyrirspurnir. Engar verðhækkanir Elías sagði að lokum, að verð á sumarhúsum hefði frekar staðið í stað og greiðslur væru þar með öðrum hætti en í venjulegum íbúðakaupum. — Það er ekki hægt að stofna til húsbréfa út af sumar- húsakaupum, en það er auðvitað hægt að nota húsbréf sem gjaldmiðil þar líkt og önnur skulda- bréf. Það er lítið um að nýir bústað- ir séu keyptir á teikningum. Fólk vill fá þá tilbúna og komna á stað- inn. Algengast er að borga unt helming kaupverðs á árinu og af- ganginn rneð veðskuldbréfi til ein- livers tíma. Annars eru alls konar eignaskipti til og bílar jafnvel tekn- ir upp í kaupverðið. En auðvitað koma betri tilboð í bústaðina eftir því, sem þeir eru nýrri og beztu bústaðirnir eru borgaðir ’út á skömmum tíma. Þegar um 10 til 15 ára gömul hús er að ræða eða þaðan af eldri eru greiðslukjörin sveigjanlegri. Hárgreiðslustofa til sölu Til sölu er á Stór-Reykjavíkursvæðinu hárgreiðslustofa í verslunarmiðstöð. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á auglýsinga- deild Mbl. fyrir 12. apríl merkt: „Hár - 11876“. V 1 BÚSETI ENDURSÖLUÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR í APRÍL1992: Staður: Stærð: m2 Hæð: Laus í: Frostafold 20, Reykjovík 4ra 88,0 7 maí '92 Frostafold 20, Reykjavík 4ra 88,0 6 maí '92 Frostafold 20, Reykjavík 3ja 78,0 7 júní '92 Frostafold 20, Reykjavik 3ja 78,0 3 feb. '93 Trönuhjalli 17, Kópavogi 3ja 87,0 2 maí '92 Trönuhjalli 17, Kópavogi 3ja 87,0 3 maí '92 NÝJAR ÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR í APRÍL1992: Staður: Stærð: m2 Hæð: Laus í: Eiðismýri 26, Seltjarnarnesi 4ra 96,7 3 maí '92 Berjarimi l, Reykjavik 2ja 68,4 l ógúst '92 Upplýsingar um þessar. íbúðir veitir Guðríður í síma 25788 milli kl. 14 og 16. UMSÓKNIR ÞURFA AÐ BERAST FYRIR 15. APRÍL '92 Aðeins tekið við umsóknum á tímabilinu 1.-15. hvers mánaðar, þá eru veittar upplýsingar um skoðunardaga íbúða. Hvernlg sótt er um íbúð: Umsóknir um íbúðir þurfa að berast skrifstofu félagsins fyrir 15. hvers mánaðar á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan úr gildi. Félagsmaður, sem sækir um nú og fær ekki íbúð, veröur að sækja um á ný. Til að umsókn sé gild, þarf umsækjandi að fá staðfesta yfirlýsingu skattstjóra síns umdæmis á þar til gert eyðublað (bakhlið á umsókn) um eignir og tekjur sl. þriggja skattára. Fái viðkomandi umsækjandi ekki úthlutað nú, mun skrifstofa Búseta geyma yfirlýsingu skatt- stofu þar til næsta skattár byrjar, eða til 1. ágúst 1992. ATHUGIÐ UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 15. APRÍL ’92. • Allir félagsmenn Búseta geta sótt um íbúð. • Farið verður eftir númeraröð við úthlutun. • Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Búseta, einnig upp- lýsingar um skoðunardag íbúða. Umsjón með kaupum og sölu hefur Guðríður Haraldsdóttir. Munið félagsgjöldin. Athygli er vakin á því, að þeir, sem ekki greiða féiagsgjöldin, geta fallið út af félagaskrá Bú- seta og hafa þá ekki rétt á því að sækja um íbúð hjá félaginu, nema ganga í félagið á nýjan leik. Þá fara viðkomandi aftast í röðina. BÚSETI Laufásvegi I7, 101 Reykjavík, simi 91-25788. BÚSETI Mosfellsbæ Búseti er að byggja 6 íbúðir í Miðholti 13, Mosfellsbæ. Ein íbúð 4 herb. 107 fm. Tvær íbúðir 3ja herb. 95,5 fm. Ein íbúð 3ja herb. 94 fm. Tvær íbúðir 2ja herb. 80,10 fm. Afhendingartími í október 1992 Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. apríl nk. á eyðublöð- um sem fást á skrifstofu félagsins. Farið verður eftir númeraröð félagsmanna við úthlutun. Félagsmenn: Ef þurfa þykir mun verða auglýst í fasteigna- blaði Morgunblaðsins fyrsta sunnudag hvers mánaðar. BÚSETI Búseti, Mosfellsbæ, Miðholti 9,270 Varmá. Sími 666870 (simsvari). Skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.00-19.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.