Morgunblaðið - 05.04.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.04.1992, Blaðsíða 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGiNSIR SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1992 ARKITEKTUR ' Byggingalisl. a rín- kennalausiim tímum ÞEGAR ég var í arkitektaskóla voru nemendur sendir á þann stað sem við skyldum teikna hús, til þess að kanna Ióðina og meta kosti hennar og galla. Gerð var nákvæm úttekt á einkennum lóðarinnar og rannsakað með hvaða hætti mætti minnka galla lóðarinnar og auka kosti hennar. Þá var leitað eftir skilaboðum úr nágrenninu sem gætu verið áhrifavaldar um hvernig húsið skiidi líta út. Þessi hluti vinnunn- ar var metin að hálfu þegar til- lögurnar voru teknar til dóms. Þetta segir nokkuð um þá áherslu sem lögð var á að nem- endur gætu lesið umhverfi sitt, og í framhaldi hannað hús sem væri í harmoníu við það. Þetta voru sennilega að einhverju leiti viðbrögð til að sporna við þeirri jilþjóðahyggju sem ríkti að vissu marki í byggingalistinni. Helstu áhrifavaldar bygginga- listarinnar í heiminum á fyrri hluta aldarinnar voru arkitektarnir Le Courbusier, Walter Gropius og Mies van der Rohe. Þeir unnu allir um tíma á teiknistofu þýska arki- tektsins Peter Behrens. Tveir þeirra flúðu Þýskaland nazismans til Bandaríkjanna og höfðu ásamt Luis Sullivan og Frank Lloyd ^-Wright veruleg áhrif á arkitektúr um heim allan fram á okkar daga. Le Courbusier var í Evrópu og starfaði í Frakklandi. Áhrif frá ameríkuförunum sjást í ríkum mæli um allan heim. Hér á landi sjást áhrif þessara manna á íjöida bygginga, t.d. húsinu milli Reykja- víkurapoteks og Hótel Borgar, húsaröðinni við Lágmúla og víðar. Á seinustu árum hefur nokkuð borið á nýjung í aðferð arkitekta til þess að nálgast verkefni sitt. Aðferðin felst í því að líta framhjá umhverfinu sem byggja á í og búa til forsendur sem ekki eru til stað- ar þegar hafist er handa. Þarna er um að ræða nokkuskonar gerfi- --*forsendur. Frægasta dæmið er La Villette eftir Bernard Tscumi í Par- is þar sem iögð voru „modulnet, sem garðurinn var svo hannaður eftir með þeim rökstuðningi að Sumarhús Utzon fjölskyldunnar á Mallorka. þetta væri „borgar garður (Urban Park). Nýlegt íslenskt dæmi má finna_ í verðlaunatillögu um skipu- lag Álftarness þar sem höfundar logðu eina línu úr nótnablaði ís- lenska þjóðsöngsins yfir landið og byggðu útlit skipulagsins að hluta á því. Þetta er sérstaklega um- hugsunarverð hugmynd þegar hugsað er til orða arkitektsins Luis Khan, sem sagði að teikning arki- tektsins gengndi sama hlutverki fyrir neytanda umhverfisins og nótnablaðið fyrir þann sem hlustar á tónlistina. Luis Khan sagði að teikningin (nóturnar) væri auka- atriði en byggingin (tónlistin) aðal- atriði. Þetta snerist við á Álfta- nesi, nóturnar urðu aðalatriði og landslagið (tónlistin) aukaatriði. Það er eins og höfundum Álftanes- tiHögunnar hafi ekki tekist að finna séreinkenni landslagsins á nesinu og þar af leiðandi ekki fundið kosti þess og galla. Þegar svoleiðis er ástatt er gripið til þess að búa til gerfiforsendur og nótur þjóðsöngs- ins notaðar. Sömu höfundar gerðu tillögu að afgreiðslusal Búnaðar- banka Islands. Þar tókst þeim að fínna séreinkenni ímyndar bankans og draga fram kosti hennar í fal- legri tillögu sinni fyrir bankann þar sem umhverfið og bankinn eru for- sendurnar. Jörn Utzon segist láta bygging- ar sínar spretta úr umhverfinu. Hann byrjar alltaf með autt blaðið og svo skoðar hann og skilgreinir staðinn sem byggja á . Niðurstöð- urnar eru ávallt til fyrirmyndar. Þekktast verk hans er Operan í Sydney í Ástralíu. Operubyggingin er framúrskarandi þar sem hún stendur á tanganum við höfnina í borginni miðri. Ef sama hús hefði verið reist í t.d. Hide Park í Lond- on væri það mislukkað. Utzon byggði sér sumarhús á miðjaðrar- hafs eyjunni Mallorka. Húsið er Þetta er prýðilegar byggingar í í París. byggt úr byggingarefni staðarins með múi-verki sem þekktist þar á árum áður. Kunnugir segja að þetta sé það spánskasta hús sem byggt hafi verið seinustu áratugina á eynni. Bygging Mannfreðs Vilhjálms- sonar arkitekts við tjaldstæði í Laugardak-er af sama toga. Það er sprottið úr íslenskum bygginga- hefðum fyrri tíma og smellur inn í umhverfið og þá ímynd sem ferða- langa vænta að sjá í íslenskri bygg- ingu hér á þessum stað. Húsið er framúrskarandi gott af því að höf- undi hefur verið ljóst verkefni sitt og sett sér markmið, _ sem hann náði á rökrænan hátt. Ég er þeirr- ar skoðunnar að eftir því sem sam- skifti milli þjóða eykst verður æ mikilvægara að hlúð sé að sérein- kennum staða og þjóða hvarvetna, og þá líka í byggingalistinni. Eins og nú horfir, er stefnt að einhvers- konar „buisnissklassa fagurfræði bandaríkjunum en væru ömulegar þar sem allt er einkennalaust. Þetta er mest áberandi í hótelbyggingum. Nú er svo komið að það er sama hvar maður er staddur í heiminum á fyrsta flokks hóteli. Allt er all- staðar eins. Móttakan, herbergin, húsgögnin, gardínurnar, drykkirnir í mínibarnum, allt er eins. Hvort heldur er í London, París, Róm eða Hong Kong og Singapore. Inni á herbergjunum er ómögulegt að sjá hvar þú ert staddur, og þegar hveikt er á sjónvarpinu hellist yfir mann CNN eða SKY CHANNEL. Krafa „buisnissklassa-kynslóð- arinnar um að allt skuli vera ljóst og vinalegt og samkvæmt stöðlum meðalsmekksins er leiðinlegt og verður þreytandi til lengdar. Á ís- landi er enginn arkitektaskóli. Þess vegna þurfum við öðrum fremur að halda vöku okkar svo sérein- kenni byggingalistarinnar á íslandi hverfi ekki. ® 62 55 30 OPIÐIDAGKL. 13-15 Einbýlishús og raðhús HJARÐARLAND - MOS. Vel staðsett, fallegt eínbhús á tvelmur h»ðum 290 fm ásamt 40 fm bílsk. 6 svefnherb., stofa, borð- stofa. Heegt að sklpta I tvær Ib. Áhv. 3.7 millj. veðdeíld. V. 16 m. VfÐITEIGUR - MOS. Nýtt eínbýlíshús 121 fm ásamt 36 fm bllskúr og gðlfplötu fyrir 17 fm sólstofu. Húsið er fullb. utan, tílb. U. tréverk innan. Áhv. húsbréf 4,7 millj. V. 10,8 mlBj. FURUBYGGÐ - MOS. Til sölu nýtt reðhús 1 lOfm 3ja herb. ásamt garðskála. Sérinng. Sérlóð. v. e,a miiij. BUGOUTANGI - MOS. Glæsil. einbhús á tveimur hæðum, 320 fm ásamt 40 fm bllsk. 9 herb. Stór útiverönd. Hægt að skipta í tvaer íb. Áhugaverö elgn. Góð staðs. Ákv. sala. HULDULAND - RAÐH. Vorum að fá í einkasölu 194 fm fal- legt raðhús ásamt 20 fm btlskúr. 4-5 herb. Stórar suðursvalir. Mjög fallegur gerður. Mögul. sklpti á minnt eign. Ákveðin sala. BIRKIGRUND - KÓP. Vorum að fá f eínkasölu gott þríl. endaraðhús 197 fm ásamt 25 fm bílsk. 4 svefnherb. Lftll ib. gæti ver- tð I kj. Góóur garóur. Ákv. sala. V. 14,0 mlilj. REYKJABYGGÐ - MOS. Til sölu nýbyggt einbhús á tveimur hæðum 173 fm ásamt bilskplötu. 4 svefnherb., stofa. borðstofa. Góð staðsetn. Áhv. 4,3 millj. V. 12 m. BYGGÐARHOLT - RAÐH. Á þessum vinsæla stað, fallegt endaraðhús, 143 fm. 4 svefnherb. Parket á gólfum ásamt 33 fm bílsk. Áhv. 4,0 millj. V. 11,5 mltl). ESJUGRUND - KJALARN. Tii sölu elnbhús 135 fm ésamt 45 fm bllsk. 5 svefnherb. Parket. Góð staðs. Áhv. 3,5 millj. V. 11,5 mlllj. LINDARBYGGÐ - MOS. Til sölu nýl. raðh. 4ra herb. með sólstofu. 160 fm ásamt 22 fm bflskýli. Áhv. 3,3 millj. veðd. V. 12 mlllj. I smiðum BJARTAHLÍÐ - MOS. Til sölu nýtt raðhús 116 fm með 24 fm bílsk. Afh. fullfrág. að utan, fokh. að inn- an. V. frá 6,9 millj. MURURIMI Einbljús í byggingu. í dag uppsteyptir sökkl- ar. Húsinu skilað fullfrág. utan, fokh. inn- an. Lóð ójöfnuð. Bílastæöi frág. m. frostfríu efni. Skipti á 4ra herb. íb. I Grafar- vogi. Teikn. á skrifst. Sérhæö BJARGARTANGI - 5 HERB. Björt og rumg. 5 herb. ib. 152 fm á 1. hæð í tvíbhúsl. Sér inng. Parket á gólfum. 26 fm rými f. bllskúr. Fal- legur garður. Áhv. 5,8 mlllj. V. 10,8 millj. 2ja herb. íbúðir GRETTISGATA - 2JA Til sölu nýstands. 2ja herb. íb. á 3. hæð I mlkið endurn. stelnh. Ákv. sala. Laus strax. DVERGHOLT - MOS. - 2JA Til sölu 2ja herb. ib. á jarðhæð 51 fm. Sérinng. V. 2,9 millj. VALLARÁS - 2JA Til sölu 2ja herb. íb. í lyftublokk. Áhv. veðdeild 1,6 millj. V. 3,8 m. ENGIHJALLI - 2JA Rúmg. björt 2ja herb. ib. á jarðh. 64 fm l litlu fjöib. Sérsuðurgarður. V. 4,8 mllfj. ÞVERHOLT - MOS. Til sölu ný 2ja h erb. Ib. á 3. hæð í litlu fjötbýliSh. Á V. 6,6 mlllj. -iv. 3,5 millj. veðd. NORÐURÁS - 2JA Til sölu falleg 2ja-3ja herb. íb. 75 fm ásamt stórum suöursv. Skipti á 2ja herb. íb. miðsv. í Rvík. Áhv. 1,8 millj. veðd. V. 6,7 millj. 3ja-5 herb. LYNGMÓAR - M/BÍLSK. Glæsil. 4ra herb. endaíb. 100 fm á 1. hæð ásamt 24 fm innb. bílsk. Stofa. 3 svefn- herb. Parket á gólfum. Stórar suðursv. Áhv. 3 millj. V. 9,3 millj. VEGHÚS - 4RA-6 HERB. Vorum að fá i sölu á þessum vin- sæla stað nýja 4ra-6 svefnherb. Ib. á tveimur hæðum 164 fm. Suður- svellr. 25 fm bdsk. Sklpti á minnl eign kemur til greina, Góð lán áhv, V. 10,7 miflj. SKIPHOLT - 5 HERB. Til sölu rúmg. sérhæð 112 fm á 1. hæð i þribhús. 5 harb., forstharb. Suðurev. Bllskréttur. Sérbílastæði. Laus strax. V. 7,9 millj. ÁRKVÖRN - ÁRTÚNSH. Giæsil. ný 5 herb. ib. 118 fm á 2. hæð. Sérínng. Góð staðsetn. Afh. rúml. tilb. u. tróv. I aprít ’92. URÐARHOLT - WIOS. Rúmg. björt 3ja-4ra trerb. ib. 95 fm á 2, hæð ásamt 22 fm bflsk. Áhv. 2,3 millj. veðd. V. 8,2 mlllj. HOLTSGATA - 4RA Mjög góð rúmg. og björt 4ra herb. ib. 100 fm á 1. hæð. Parket, Vönduð eign. Verð 7,4 mlllj. SAFAMÝRI - 3JA Mjög gðð 3ja herb. fb. 82 fm á jarðh. í þríbh. Sérblla3tæðl. Sérlnng. Fœst I sklptum fyrlr 2ja herb. Ib. ca 60 fm. Ýmislegt FLUGUMÝRI - MOS. 257 fm atvhúsn. með stórum innkdyrum og skrifstofuherb. STÓRHÖFÐI - ATVHÚSN. 530 fm gott atvinnuhúsn. m/skrifstherb. á jarðhæð. Tvennar stórar innkdyr. Góð staðsetn. HESTHÚS - MOS. Til sölu nýtt 10 hesta hús. Kaffistofa og sérgerði. Ytri-Njarðvik HOLTSGATA - 3JA Til sölu góð 3ja herb. (b. á jarðhæð I tvíbhúsi. V. 2,7 millj. Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali, Skúlatúni 6, hs. 666157

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.