Morgunblaðið - 09.04.1992, Síða 1
FJÖLMIÐLAR Stríösvindar blása um Stöö 2 /6-7
VERSLUN: Erlent lánsfjármagn til bjargar Asiaco? /8
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
Sjávarútvegur
Stjórnun veiða skilargóðum
hagnaði hjá Þormóði ramma
RÚMLEGA 85 milijóna króna hagnaður varð á rekstri Þormóðs
ramma hf. á Siglufirði á síðasta ári á móti 58 milljóna króna hagn-
aði árið áður. Eigendur tveggja fyrirtækja á Siglufirði keyptu ineiri-
hluta hlutabréfa í fyrirtækinu af ríkissjóði og tóku við rekstrinum
í ársbyijun 1991. Á aðalfundi félagsins sem haldinn verður síðar í
mánuðinum áformar stjórnin að óska eftir heimild til aukningar
hlutafjár til sölu á almennum hlutabréfamarkaði og skráningu hluta-
bréfanna hjá verðbréfafyrirtækjum.
Þormóður rammi hf. er sjávarút-
vegsfyrirtæki á Siglufirði, það gerir
út tvo ísfisktogara (Stálvík og
Sigluvík) og rekur frystihús, rækju-
verksmiðju og reykhús. Rekstrar-
tekjur félagsins á síðasta ári voru
888 milljónir kr. og rekstrargjöld
688 milljónir þannig að hagnaður
án afskrifta og fjár'magnskostnaðar
var 200 milljónir kr. eða 22,5% af
tekjum. Árið 1990 var hagnaður
SÖLUGENG! ÐOLLARS
Síðustu fjórar vikur
61.00 kr.
r.nnn\iT-> F v
VlA
59,50
59,00
58,50 00,10
58,00
57,50
11.april 18. 25. 1. apríl 8.
án afskrifta og fjármagriskostnaðar
117 milljónir kr. sem er 11,5% af
tekjum þess árs. Á síðasta ári var
hagnaður eftir að afskriftir og fjár-
magnsgjöld höfðu verið dregnar frá
85,5 milljónir kr. á móti 58,3 millj-
ónum árið áður. Bókfært eigið fé
var um áramót 365 milljónir kr.,
þar af 240 milljónir hlutafé.
í upphafi síðasta árs keyptu eig-
endur rækjuverksmiðjunnar Drafn-
ar og reykhússins Egilssíldar meiri-
hluta hlutabréfa í Þormóði ramma.
Síðan voru þessi þijú fyrirtæki sam-
einuð og voru á síðasta ári rekin
sem ein heild. Róbert Guðfinnsson
framkvæmdastjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið að á síðasta ári
hefði tekist að reka fyrirtækið eftir
þeim áætlunum sem gerðar voru
við eigendaskiptin. Þar skipti mestu
fyrir útkomuna að fyrirtækið hefði
einbeitt sér að þeirri framleiðslu
sem það næði bestum árangri í
burtséð frá því hvernig kvóti skipa
félagsins væri samansettur eftir
tegundum. Því hefði verið skipt á
kvóta við fyrirtæki sem náð hefðu
góðum árangri í vinnslu annarra
tegunda eins og til dæmis karfa og
grálúðu og fengið þorsk, ýsu og
ufsa í staðinn. „Til þess að þetta
sé hægt þarf að vera markviss
stjórnun á veiðum skipanna. Þau
mega aðeins sækja í þann fisk sem
gefur fyrirtækinu í heild bestu
framlegð. Það getur stundum verið
erfitt, til dæmis þegar miklar afla-
hrotur í öðrum tegundum koma,“
sagði Róbert.
Eftir eigendaskiptin í fyrra var
hlutafé félagsins aukið um 40 millj-
ónir kr. sem skilaði 77 milljónum
kr. inn í félagið og sagði Róbert
að það gefði breytt rekstrinum. Það
hefði til dæmis gjörbreytt aðstæð-
um til stjórnunar, nú væri hægt að
einbeita sér að framleiðniskapandi
verkefnum í stað fjárútvegunar til
að greiða laun og önnur útgjöld.
Hann bætti því við að með nýju
eigendunum hefði komið nýr kraft-
ur inn í fyrirtækið. „Við vissum að
til þess að öðlast traust á almenna
hlutabréfamarkaðnum yrðum við
að sanna okkur og því hefur verið
unnið af miklu kappi,“ sagði Róbert.
Nýju eigendurnir eiga nú um 60%
hlutafjár, ríkissjóður á 20% og aðr-
ir aðilar, meðal annars_ verðbréfa-
sjóðir, eiga um 20%. Á aðalfundi
félagsins mun stjórnin leggja til að
greiddur verði 10% arður.
Þormóður rammi hefur nú keypt
frystitogarann Sunnu.-sem áður hét
Vaka og var gerð út frá Reyðar-
firði. Fjárfesting félagsins vegna
þessa er 440 milljónir. Róbert sagði
að skipið yrði gert út á rækjufryst-
ingu en hugmyndin væri að reyna
síðar fyrir sér með djúpkarfaveiðar.
Sagði hann að skipið myndi standa
sjálft undir fjárfestingunni en þörf
væri á auknu rekstrarfé til þess að
halda sterkri lausafjárstöðu og því
væri stefnt að því að bjóða út hlut-
afé. í byijun þessa árs var togarinn
Stapavík seldur á 46 milljónir.
BLAÐ
S
Islenski lífeyrissjóðurinn
- Séreignasjóður í umsjá Landsbréfa hf.
öilum íslendingum ber skylda til að greiða í lífeyrissjóð. Þeir sem ekki verða lögum samkvæmt að vera í ákveðnum
lífeyrissjóði, geta greitt allt framlag sitt í íslenska lífeyrissjóðinn. Allir einstaklingar, sem samkvæmt lögum greiða
í aðra lífeyrissjóði, geta greitt viðbótariðgjald í sjóðinn.
Framlag hvers sjóðfélaga og mótframlag atvinnurekenda, auk vaxta og verðbóta,
er séreign hans og nýtist honum einum eða erfingjum hans.
Árið 1991 skilaði sjóðurinn 8,11% ávöxtun umfram iánskjaravísitölu.
Sótt er um aðild að íslenska lífeyrissjóðnum á sérstökum eyðublöðum
sem liggja frammi hjá Landsbréfum og umboðsmönnum Landsbréfa
í útibúum Landsbanka íslands um allt land.
LANDSBRÉF H.F.
Lcindsbankinn stendurmeð okkur
Sudurlandsbraixt 24, 108 Roykjavík. sími 91-679200, fax 91-678598
LöggiJt verðbréfnfyrirtæki. Aðili Qð Verðbréfaþingj íslands.