Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 3

Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992 B 3 Sparisjóðir: Heildarinnlán SPRONjuk- ust um 11,5% á síðasta ári INNLÁN Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis jukust úr 4.320 millj- ónum kr. í 4.765 milljónir á siðasta ári, eða um 10,3%. Ef verðbréf- aútgáfu er bætt við innlán nema þau samtals 5.462 milljónum kr. og hafa hækkað um 564 milljónir eða 11,5% á árinu. Hlutdeild SPRON i heildarinnlánum innlánsstofnana er nú 3,3% en var 2,2% fyrir ára- tug. Þetta kom fram á aðalfundi Sparisjóðsins sem haldinn var á Hótel Sögu síðastliðinn föstudag. Á fundinum flutti formaður SPRON, Jón G. Tómasson, skýrslu um starfsemi sjóðsins á árinu 1991 og Baldvin Tryggvason sparisjóðs- stjóri skýrði reikninga sjóðsins og rekstur. Fram kom hjá þeim að heildarútlán sparisjóðsins voru í árslok 1991, án afskriftareiknings útlána, 4.896 milljónir kr. og jukust um 17% á árinu. Stærsti hluti útlán- anna er sem fyrr til einstaklinga. Rekstrarhagnaður SPRON fyrir skatta var 86,5 milljónir kr. á móti tæplega 80 milljónum kr. árið áð- ur. Hagnaðurinn hafði því aukist um 8,3% milli ára. Áætlað er að tekju- og eignarskattur verði 36 milljónir og rekstrarhagnaður eftir skatta því 50,5 milljónir kr. í lok síðasta árs var eigið fé sparisjóðsins 583 milljónir kr., 89 milljónum eða 18,1% hærra en árið áður. Hækkun- in er 9,7% umfram hækkun láns- kjaravísitölu, samkvæmt upplýsing- um SPRON. Eiginíjárhlutfall sjóðs- ins samkvæmt lögum um sparisjóði var um 11,2%, eða rúmlega tvöfalt áskilið lágmark. Stöðugildi við sparisjóðinn voru í lok ársins 88. Á aðalfundinum kom fram að umsvif sparisjóðsins hafa aukist mjög undanfarin þrjú ár en á þeim tíma hafi stöðugildum aðeins Qölgað um 3. Sem dæmi um aukin umsvif var nefnt að niðurstöðutölur efnahagsreiknings auk ábyrgða hafa hækkað um 2,3 milljarða kr. á þessum árum, eða um 52,9% og færslumagn sparisjóðsins í Reikni- stofu bankanna vaxið um 64,6%. Þá hefði eigið fé aukist um 237 milljónir kr. að raungildi á sama tímabili eða 68,7%. í ræðu formanns kom meðal ann- ars fram að SPRON verður 60 ára á þessu ári og að þann 28. apríl verður haldið hátíðlega upp á af- mælið en þann dag verða liðin 60 ár frá því sparisjóðurinn opnaði fyrstu afgreiðslu sína á Hverfisgötu 21. Á aðalfundinum voru Jón G. Tómasson, Hjalti G. Kristgeirsson og Gunnlaugur Snædal endurkosnir í stjórn. Þá var tilkynnt um að borg- arstjórn Reykjavíkur hefði kosið Hildi Petersen og Siguijón Péturs- son sem sína fulltrúa í stjórnina. Skoðunarmenn sjóðsins voru kjörnir Tryggvi Jónsson og Ingi Ú. Magn- ússon. Sparisjóðsstjóri er Baldvin Tryggvason og aðstoðarsparisjóðs- stjórar Benedikt Geirsson og Ólafur Haraldsson. SPRON er með fimm afgreiðslu- staði, á Skólavörðustíg 11, Hátúni 2b, Álfabakka 14, Kringlunni 5 og Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi. SPRON — Nokkrir stofnfjáreigendur á aðalfundi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. K Y N N I N G Publisher fyrir Windows í dag kl.13 á 2. hæb. —....... i , í -----,--4-- EINAR J.SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000 Um allan heim með Samvinnuferðum - Landsýn NY FYRIRTÆKJADEILD Ný fyrirtækjadeild Samvinnuferða - Landsýnar hefur á að skipa færustu sérfræðingum á sviði viðskiptaferða innanlands og utan. Reynsla þeirra og þekking skilar sér beint til viðskiptavina okkar í lágu verði og besta mögulega ferðamáta hvert sem er í heiminum. Aðal áherslan er á að sinna þörfum hvers og eins með því hugarfari að „afgreiða" ekki viðskiptavinina - heldur þjóna þeim. Samvinnuferðir- Landsýn er samstarfsaðili hinnar heimsþekktu Thomas Cook ferðaskrifstofu sem starfar út um allan heim. Ótrúlega hagstæðir samningar við hótelkeðjur, bílaleigur og flugfélög eru m.a. ávöxtur þess samstarfs. Njóttu þess! Kynnið ykkur þessi dœmi: Við sjáum um viðskiptaferðir erlendis. SumarleyfisfargjöliT Kaupmannahöfn, Gautaborg, Osló, Amsterdam 20.900 kr. Stokkhólmur, Helsinki, París, Zurich, Frankfurt, Munchen, Hamborg, Vínarborg, Salzburg 24.200 kr. London 20.100 kr. Glasgow 15.900 kr. Luxemborg 22.900 kr. ‘Skemmst sjö dagar/lengst mánuður. Sölutími út apríl. Miða þarf að bóka einum mánuði fyrir brottför. Gildir fyrir ferðir til 30. september. Barnaafsláttur er 20%. Egilsstaöir Ef þú kaupir viðskiptaferð Samvinnuferða - Landsýnar til Egilstaða: Flugfar, flugvallarskattur, bílaleigubíll með 100 km. akstri, skatti og kaskótryggingu 15.930 kr. Flugfar 15.390 kr. Kynnið ykkur sambærileg tilboð til ísafjarðar, Akureyrar og Vestmannaeyja. Skipuleggjum ráðstefnur og fundi fyrir fyrirtæki og félög. F.v.: Elín Eiríksdóttir, Auður Björnsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Rebekka Þráinsdóttir, Ása Baldvinsdóttir, Margrét Helgadóttir, Unnur Helgadóttir. Fremri röð, f.v.: Sigríður Einarsdóttir og Harpa Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Guðbjörgu Stephensen. Söluskrifstofa Hótel Sögu: F.v.: Ágústa Árnadóttir, Gyða Sveindóttir og Inga Erlingsdóttir. mmm R/lakaafsláttur á Nyjung!,,Jokerfargjöld"**B Saga - Class Kaupmannahöfn, Gautaborg, Osló, Stokkhólmur, Bergen, Norrköping, Stavangur, Kristiansand, Vaxjö, Vesteras 29.000 kr. Hamborg, Hannover 38.300 kr. Stuttgart 43.000 kr. Búdapest, Munchen, Prag, Riga.Tallin, Vínarborg, Vilnius, Varsjá 47.600 kr. Aþena, Róm, Istanbul, Madrid 56.900 kr. ** Bóka þarf 7-14 dögum fyrir brottför. Lágmarksdvöl: Aðfararnótt sunnudags. Hámarksdvöl: Einn mánuður. Barnaafsláttur er 50% að 18 ára aldri. 100% á öllum leiðum Flugleiða utan Norðurlandanna og 90% til Norðurlandanna. Farseðillinn gildirtil 31.05. Hjón verða að ferðast saman. Innanlandsferðir: F.v.: Þóra Hallgrímsson, Hildur Jónsdóttir, Úlfar Antonsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Ragnheiður Aradóttir og Kalla Björg Karlsdóttir. FLUGLEIÐIR -ve&i ijzipl Saininimtei'ðir-Laiulsi/n Reykjavik: Austurstræti 12- S. 91 - 6910 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Sfmbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.