Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 7

Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 7
MÖRGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992 B 7 haldið hópinn allt síðan og mynduðu með sér fjárfestingarfélagið Aramót. Heimildir Morgunblaðsins innan fé- lagsins benda hins vegar ekki til þess að Áramót sem slíkt sé í hlutaf- járkaupahugleiðingum nú. Aftur á móti er ekki tekið fyrir það að ein- stakir aðilar í hópnum séu á þessum buxunum og eru Hekiu-bræður eink- um nefndir til sögunnar. Þetta fæst þó ekki staðfest. Góður árangur í rekstri á sl. ári Óhætt er að fullyrða að góður árangur hafi náðst í rekstri íslenska útvarpsfélagsins á sl. ári. Hagnaður nam um 104 milljónum sem er um 8% af 1.338 milljóna veltu saman- borið við röskar 19 milljóna hagnað árið áður. Þennan bata í rekstrinum má rekja til þess að á sama tíma og heildartekjur jukust um 131 millj- ón eða tæp 11% frá árinu á undan jpkust rekstrargjöld einungis um 2%. Á tekjuhliðinni munar mest um auknar áskriftartekjur að Ijárhæð 126 milijónir en einnig jukust aug- lýsingatekjur um rúmar 40 milljónir. Áð hluta má rekja tekjuaukninguna til 8% hækkunar á áskriftargjöldum þann 1. september. Að sögn Páls Magnússonar, útvarpsstjóra, jókst einnig fjöldi áskrifenda verulega og voru virkir áskrifendur um 43 þús- und talsins í desember sem er nýtt met. Aðrar tekjur voru alls 26 millj- ónir og lækkuðu úr 62 milljónum m.a. vegna lækkunar á framlagi úr Menningarsjóði útvarpsstöðva. Gjaldamegin má sjá að beinn út- sendingarkostnaður jókst einungis um tæp 3% á milli ára en hann er í raun heildarkostnaður við dagskrá auk kostnaðar við tæknideild. Að- spurður segir Páll Magnússon að þrátt fyrir aðhald í rekstri hafi sömu innkaupastefnu á sjónvarpsefni verið fylgt eins og áður. Því eigi sparnað- urinn ekki að hafa bitnað á gæðum eða framboði erlends sjónvarpsefnis. Aftur á móti hafi sparnaðurinn kom- ið niður á innlendri dagsskrárgerð, einkum vegna greiðslna í Menningarsjóð útvarpsstöðva. Sífellt minna fé komi til baka af því fé sem greitt sé í sjóðinn. Af öðrum gjaldaliðum má nefna sölu- og markaðskostnað sem lækk- aði um tæp 26% og sömuleiðis lækk- aði skrifstofu- og stjórnunar- kostnaður um 2,2%. Veigamikill lið- ur í sparnaðaraðgerðum og hagræð- ingu hjá Islenska útvarpsfélaginu hefur falist í fækkun starfsmanna. Þannig voru á sl. ári 169 starfsmenn hjá félaginu samanborið við 188 starfsmenn árið áður þannig að fækkað hefur um 29 starfsmenn eða tæp 16%. Fækkunin varð einkum í tæknideild, dagskrárdeild og hjá Bylgjunni. Hagnaður áætlaður 150 millj. á þessu ári í ársskýrslu íslenska útvarpsfé- lagsins er birt fimm ára yfirlit yfir ýmsar kennitölur sem sýnir glöggt þá jákvæðu þróun sem átt hefur sér stað í rekstrinum frá árinu 1989. Það ár var fjárhagsstaðan og rekst- urinn algjörlega í molum eins og sést á meðfylgjandi yfirliti. Tap nam alls um 278 milljónum og eiginfjár- staðan var neikvæð um 403 milljón- ir í lok ársins miðað við verðlag árs- ins 1991. Þá var útsendingarkostn- aður um 71,4% af veltu og hlutfall sölu- og markaðskostnaðar nam 12,2%. Tapinu hefur nú verið snúið í hagnað eins og áður segir og eiginfjárstaðan batnað en hún var neikvæð um 165 milljónir um síð- ustu áramót. Á sl. ári batnaði eiginij- árstaðan um 66 milljónir og rýrði það nokkuð batann að félagið keypti hlutabréf í sjálfu sér fyrir 24 milljón- ir. Áætlanir fyrir yfirstandandi ár gera ráð fyrir að eiginfjárstaðan verði komin upp fyrir núllið í árslok og er stefnt að því að hagnaður nemi ríflega 150 milljónum eða rúm- lega 10% af áætlaðri veltu. Þá nam hlutfall útsendingarkostnaðar á sl. ári 45,8% og hlutfall sölu- og mark- aðskostnaðar um 6,3% af veltu. íslenska úrvarpsfélagið er þó enn mjög fjárhagslega veikt þó stefnt hafi í rétta átt í þeim efnum. Heildar- skuldir námu alls um 1.291 milljón í árslok en þar af námu skammtíma- skuldir 839 milljónum. í ræðu sinni á aðalfundi félagsins benti Jóhann J. Olafsson, stjórnarformaður, að vanskil væru nú að mestu horfin, staðið væri við allar skuldbindingar og verið væri að semja um betri dreifingu langtímaskulda sem FILMA Á GLUGGANA 0G ÞAÐ VERÐUR ALLT ANNAÐ LÍFINNANDYRA • 3M "Scotchtint" sólarfilma endurkastar allt að 80% af hitageislun sólarinnar, en ■ hleypir samt nær allri birtunni í gegn. Fólki Ifður betur og vinnuafköst aukast. • "Scotchtint" filman endurkastar allt að 99% af UV geislum sólarinnar. Hún kemur þvf (veg fyrir að munir upplitist í sýningargluggum verslana. • "Scotchtint" filman er einnig til sem öryggisfilma. Ef rúðan brotnar, heldur filman glerinu saman. • Þeir sem hafa sett “Schotchtint" filmuna á gluggana sjá ekki eftir þvf. "Scotchtint" i filman er seld ákomin. Verðtilboð og allar frekari upplýsingar veitir: ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 68 72 22 • TELEFAX 68 72 95 myndu liðka ennfrekar fyrir rekstri félagsins. En líkingamál Páls Magnússonar í ræðu hans á aðalfundinum lýsir e.t.v. betur ástandinu í ijármálum fyrirtækisins um þessar mundir: „Sjúklingurinn er úr lífshættu, þrátt fyrir talsverða „ekonomiska“ fæð- ingargalla, og þarf því ekki lengur að vera tengdur við hjarta- og lungnavél — líffærin starfa nú af eigin afli. Hann hefur verið fluttur af gjörgæsludeild yfir í endurhæf- ingu og virðist braggast bærilega. Ekki verður annað séð en að hann nái fullri heilsu innan skamms.“ ...vel aðeins það besta“ SœvarKarl Ólason Bankastræti 9, s í m i 1 3 4 7 0 / A tímum aðhalds í rekstri ...er nauðsynlegt að hafa rekstrarafkomuna á hreinu. Bústjóri er viðskiptahugbúnaður sem gefur þér í sjónhendingu allar upplýsingar um gang mála í rekstrinum. Þessar upplýsingar eru settar fram í gluggum á auðskilinn og einfaldan hátt. Bústjóri er kjörið vopn í harðnandi samkeppni og á vaxandi markaði. Hann er öflugt stjómtæki sem býður upp á heildarlausn í rekstri fyrirtækja í öllum geirum atvinnulífsins. Notkunarmöguleikamir em óþrjótandi, en Bústjóra má móta eftir þörfum og kröfum hvers notanda: Almennt bókhald Útvegsbankinn Útflutningskerfi Innflutningskerfi Innheimtukerfi Launakerfi EDI samsldpti Tíma- og verkbókhald Sveitarfélagakerfi Framleiðslukerfi Viðhaldscftiriit BAR-tenging Gírókerfi Uppskriftakerfi Dreifingarkerfi Verslanakerfi Skýrslugjafi Fjárhags- viðsldpta- og lánadrottnabókhald, innkaupa-, sölu- og birgðabókhald. Fiskviimsia og útgerð. Útflutningsfyrirtæki. Heildsalar. Smásalar. Lögfræðingar. Launagreiðslur. Hentar einnig í útgerð- og fiskvinnslu. Skjalalaus samskipti. Ný lausn í viðsldptum. Fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki. Alla sem selja út túna- eða verk. Aðlögun Bústjóra að bókhalds og reikningsskiluni sveitarfélaga. Framleiðslufyrirtæki. Ætlað fyrirtækjum með tækjakost. Ædað rikisfyrirtækjum. Innheimtuskil fyrirtækja. Eýrir framleiðslufyrirtæki. Fyrir útgáfúfyrirtæid og framleiðendur. Smásöluverslun og þjónusta. (Sjóðvélakerfi) Hönnun útskrifta. Bústjóri er ömggur og hraðvirkur. Hann er lipurt stjómtæki í rekstrinum. Sýniútgáfur (Demo), persónuleg ráðgjöf og glæsilegar handbækur gera væntanlegum notendum kleift að skilgreina nákvæmlega hvemig þeir vilja hafa sitt Bústjórakerfi. Bústjóri skilar strax árangri sökum þess hve einfaldur og lipur hann er í notkun. Notendaskil em þau sömu í öllum kerfum þannig að notandi í einu kerfi nær strax tökum á öðmm. Bústjóri er hagkvæmur kostur sem er í takt við kröliir nútúnans. Hann er tilbúinn að mæta síbreytilegum rekstrarskilyrðuni sökum sveigjanleikans sem á ekld sinn líkan. Bústjóri____________ - sveigjanlegur í samstarfi STRENGUR verk- og kerfisfrceðistoía Stórhöföa 15 • 112 Reykjavík Sími 91-685130 • Fax 91-680628 Strengur er samstafsaðili IBM 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.