Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VlÐSKIPTI/ATVrWWlJLlF .FtMMTURAGUR 9..APRÍL 1992
TÖLVUR
Marinó G. Njálsson
Nýjungar hjá Microsoft
Hugbúnaðarrisinn bætir enn við skrautfjöður
Vor COMDEX tölvusýningin í
Bandaríkjunum er að jafnaði tími
frumsýningar á nýjum tölvubún-
aði. Sýningin, sem nú stendur yfir,
er engin undantekning á því hvað
Microsoft tölvufýrirtækið varðar.
Þegar þessi grein er skrifuð á
fyrsta degi sýningarinnar ber hæst
ný útgáfa af Windows notenda-
skilanna. Flestir sem fylgst hafa
með hugbúnaðarrisanum hafa
lengi vitað af þessari nýju útgáfu,
en nú er hún loksins komin.
Allt frá því að Windows 3.0 kom
á markaðinn á vordögum 1990
hefur verið talað um að Windows
3.1 kæmi næst. Microsoft lofaði
strax að útgáfa 3.1 mundi bæta
úr mörgum af þeim atriðum, sem
þótti ábótavant í útgáfu 3.0. Og
við fyrstu sýn virðist það ætla að
ganga á eftir.
Windows umhverfið er fyrir
löngu orðið staðall fyrir tölvur
byggða á Intel-örgjörvunum,
þannig að nú er lengur talað um
IBM- samhæfðar tölvur heldur
Windows-samhæfðar tölvur. (Það
er kannski tími til kominn að
menn hætti að tala um IBM-sam-
hæfðar tölvur, því IBM er löngu
hætt að framleiða þær. PS-línan
er allt öðru vísi upp byggð.)
Þegar Windows 3.0 kom út
sögðu margir að nú hefði Micros-
oft loksins komið með notenda-
skil, sem gerðu gluggavinnslu jafn
sjálfsagða á Pésum eins og hún
er á Mökkum. Og það gekk eftir.
Með Windows 3.0 ruddi Microsoft
veginn fyrir hugbúnaðarfyrirtæki
að koma með staðlað gluggaum-
hverfi. Umhverfi, sem allir gætu
sætt sig við og vissu að mundi ná
nægilegri útbreiðslu til að það
borgaði sig að aðlaga hugbúnað
sinn að. Nú er svo komið að allir
helstu framleiðendur hugbúnaðar
hafa annað hvort þegar komið með
Windows-útgáfur af forritum sín-
um eða eru að koma með þær.
Sum þessarra fyrirtækja hafa ein-
mitt verið að bíða eftir Windows
3.1, sem mun víst gera það auð-
veldara að breyta forritum yfir í
gluggaumhverfíð.
Meðal nýjunga í Windows 3.1,
eru:
- kerfið er einfaldara í uppsetn-
ingu,
- sérstakt kennsluforrit fylgir
fyrir nýja notendur,
- endurbætur hafa verið gerðar
á stjómborðinu,
- hljóð og nýjar leturgerðir eru
innbyggð,
- útprentun hefur verið endur-
bætt svo og skráastjórnun.
Microsoft hefur lagt mikið upp
úr því að Windows 3.1 nái til sem
flestra og að það sé laust við vill-
ur. Þess vegna setti fyrirtækið í
gang mikið prófunarátak vorið
1991 og fékk um 15.000 aðila
utan fyrirtækisins til að reynslu-
keyra forritið. Jafnframt tryggði
það flestum framleiðendum vin-
sælla hugbúnaðarpakka góðan
aðgang að upplýsingum um kerfið,
svo vinsælir pakkar yrðu sem fyrst
eftir útgáfu Winows 3.1 komnir
með nýjar og endurbættar útgáfur
af sínum hugbúnaði. Þannig munu
Lotus, Borland og WordPerfect öll
vera að senda frá sér nýjar útgáf-
ur af sínum hugbúnaði næstu daga
og vikur.
Aðrar nýjungar
Microsoft lætur ekki staðar
numið þó Windows 3.1 sé komið
á markaðinn. Næsta útgáfa,
Windows 4.0, er væntanleg um
mitt næsta ár og líka stýrikerfisút-
gáfa af forritinu, sem nefnd hefur
verið Windows NT. Raunar er sú
nýjung á Windows 3.1 pakkanum,
að forritið er sagt vera stýrikerfi.
Með þessu er Microsoft bara að
staðfesta grun undirritaðs, að
Windows32 (eldra þróunarnafn á
Windows NT) væri ætlað að koma
í staðinn fyrir gamla DOSið og
fullkomna þar með færsluna úr
stýrikerfi, sem notendur elskuðu
að hata, yfír í kerfi sem jafnvel
Hillukerfi
Heildarlausn
fyrir lagerinn
Fljótlegt og einfalt í uppsetningu.
Fáanlegt í mörgum stæröum með
mismunandi þyngdarþol.
Stækkar í takt við vökst
fyrirtækisins
Hentugt kerfí á hagstædu verdi |
Leitið upplýsinga!
UMBODS-OGHEHDVEfíStJUNIN 5
BtioSHófÐA iesiuisfnu mteFAxsrsseo
hörðustu gagnrýnendur PC-tölva
geta verið ánægðir með.
Nú hugsa margir en Apple gerði
þetta fyrir 8 árum. Og vissulega
er það satt að Microsoft stefnir
að því að gera á næstu árum það
sama og Apple gerði fyrir langa
löngu. Windows NT er byggt á
OS/2 3.0 stýrikerfinu, sem Micros-
oft og IBM unnu að í sameiningu
áður en slitnaði upp úr. Því er
ætlað að keppa ekki bara við DOS
heldur líka UNIX, VMS og Pat-
hWorks og mun koma í þremur
megin útgáfum. Eina fyrir 386-
og 486-örgjörva, aðra fyrir RISC-
örgjörva og þá þriðju fyrir fjöl-
gjörva tölvur.
Fleiri nýjungar eru væntanlegar
og má þar nefna nýjar SQL teng-
ingar, Microsoft Project útgáfa 3.0
fyrir Windows og hjálparforrit fyr-
ir Visual Basic svo eitthvað sé
nefnt. Ef spáð er í framtíðina má
reikna með Excel 4.0 og nýrri
útgáfu af Word fyrir Windows.
Gagnagrunnur bætist við
Microsoft hefur lengi vel vantað
nothæfan gagnagrunn til að geta
keppt á öllum vígstöðum og þar
með boðið viðskiptavinum sínum
upp á heildarlausn fyrir viðskipta-
umhverfið. Hafir þú verið að bíða
er biðin á enda. í síðustu viku til-
kynntu Microsoft og Fox Software
Inc. ásetning fyrirtækjanna að
s.ameinast.
Með sameiningunni lokar
Microsoft hringnum og tryggir sér
um leið afbragðs gagnagrunn.
Microsoft hefur verið að vinna að
gagnagrunni fyrir Windows, sem
gekk undir nafninu Cirrus, en nú
getur fyrirtækið nýtt sér þá þekk-
ingu og vinnu sem starfsmenn Fox
hafa þegar unnið.
FoxPro gagnagrunnurinn hefur
Tölvur
Lucy Baney, markaðsstjóri hjá
IBM, sem reyndar er af íslensku
bergi brotin, sagði að hvatningin
væri í því fólgin að starfsmenn yrðu
verðlaunaðir í samræmi við þá
áherslu sem þeir legðu á sölu-
mennskuna. Að sögn Lucy verða
verðlaunin allt frá viðurkenningar-
skjölum upp í tölvubúnað og
reiðufé. Starfsfólkinu er þannig
ætlað að lofsyngja OS/2 í eyru
nágranna, í foreldrafélaginu í skól-
anum, við tannlækninn sinn og
hreinlega sem allra flesta.
Ennfremur ætlar IBM að draga
úr öllum hömlum í auglýsingakostn-
aði og verðlagningu. Með þessu
móti vonast IBM til að hafa betur
í því sem væntanlega verður ein-
hver alharðasta markaðsbarátta
sem orðið hefur í einkatölvugeiran-
um.
Fyrirfram hafði verið við því
búist að auglýsingaherferð IBM
yrði með árásargjarnasta móti.
Nýlega kom þó fram hjá forsvars-
mönnum markaðsdeildar IBM að
MlCROSOFT.
WlNDOWS.
OperatingSystem Version 3.1
verið í nokkur ár á markaðnum
og þegar sannað sig. Hann hefur
veitt Paradox og dBase gagna-
grunnunum frá Borland (og áður
líka Aston-Tate) harða keppni, en
hefur mátt sín lítils vegna smæðar
Fox Software Inc. Sameining Mic-
rosoft og Fox kemur til með að
blása eld í glæðurnar og fyrirsjá-
anlegt er að baráttan um fyrsta
sætið á gagnagrunnsmarkaðnum
verður jafn hatrömm og baráttan
milli WordPerfect og Word á rit-
vinnslumarkaðnum og Lotus
1-2-3, Quattro Pro og Excel á
tölfureiknamarkaðnum. Verður
fróðlegt að fylgjast með, því varla
lætur Borland þessu ósvarað.
Breytt stjórnun
Hvað sem öllu öðru líður getur
Bill Gates, stofnandi Microsoft og
einn ríkasti maður í heimi, haldið
áfram að brosa. Hann hefur náð
að byggja upp hugbúnaðarrisa,
sem á ekki sinn líka. En það er
vandasamt að halda svona fyrir-
tæki gangandi. Nýlega ákvað Gat-
es að láta daglega stjórn fyrirtæk-
isins í hendur þriggja manna, sem
starfað hafa með honum um ára-
bil. Verkefni þeirra verður að reka
Microsoft á meðan Gates einbeitir
sér að framtíðarverkefnum.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
öllu meiri áhersla yrði lögð á upplýs-
andi auglýsingar. Það þýðir þó ekki
að á Windows verði tekið með ein-
hveijum silkihönskum, þvert á móti
má búast við að auglýsingastyijöld-
in sem líklega hefst í byijun apríl
verði hörð og óvægin.
í baráttunni mun IBM leggja
mikla áherslu á verðlagningu.
Margir sem eiga eldri gerðir af
OS/2 munu fá nýju gerðina ókeyp-
is, jafnvel sumir sem hafa Windows
frá Microsoft. Ljóst er að IBM ætl-
ar að sætta sig við allnokkuð tap
af sölu OS/2 til að byija með, en
markið er sett hátt. Markmiðið er
að selja milljónir eintaka þegar í
ár, en í ljósi þess að innan við millj-
ón eintök hafa selst þau fímm ár
sem OS/2 hefur verið á markaðnum
verður að teljast hæpið að það tak-
ist. Til lengri tíma er ætlunin að
selja fleiri eintök en Windows, en
sérfræðingar áætla sölu Windows
tíu til tólf milljónir eintaka á þessu
ári, og allt að 17 milljónir á því
næsta.
UÍLUdMteiWÍ
ÍLlliLUJWIÁ
í erílsömu viðskiptalífí, þar sem áreiðanleiki oggæði
þuría að skila sér til viðtakenda bréfasendinga, er
Canon myndrítinn það sem þú getur treyst á. Hann
notar venjulegan A4 pappír, er tölvutengjanlegur og
einfaldur í notkun. Einnig tekur bann á móti og
sendir samtímis. Kynnist Canon myndrítanum af
eigin raun. Veríð velkomin.
SKRIFVELIN HF
SUÐURLANDSBRAUT 22 SÍMI 91-685277
Söluátak hjá
IBM vegna OS/2
IBM undirbýr nú gífurlegt söluátak til að kynna hið nýja stýrikerfi
OS/2 sem ætlað er að keppa við Windows frá Microsoft. Aðferð IBM
er óvenjuleg að því leyti að allir starfsmenn eru hvattir til að taka
beinan þátt í söluherferðinni.