Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 1
adidas
••• annað ekki
■ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL
HANDKNATTLEIKUR
* - iviorgunoiaoio öjarni
Urslitakeppnin um Islandsmeistaratitilinn í handknattleik hófst í gærkvöldi. Hér sjást leikstjórnendur landsliðsins, Gunnar Gunnarsson, Víkingi og Gunnar Andrésson, Fram - eigast við í Víkinni,
þar sem Víkingar fóru með sigur af hólmi, 26:21. Allt um leikina í úrslitakeppninni: B2, B3, BIO, B12.
FRJALSIÞROTTIR
Vésteinn aftur
yfir lágmarkinu
Vésteinn Hafsteinsson, kringlu-
kastari, kastaði 63,02 metra
á móti í Bandaríkjunum um helgina
og er þetta í annað sinn á tveimur
vikum sem hann nær Ólympíulág-
markinu. 011 sex köstin mældust
yfir 60 metrar og segist Vésteinn
nokkuð ánægður með árangurinn
sem dugði honum í annað sætið.
Ég var búinn að koma hlutunum
þannig fyrir að ég færi i lyfjapróf
ef ég næði að kasta 63,20 eins og
ég hélt að Ólympíulágmarkið væri.
Ég hafði samband við bandaríska
sambandið og þeir tóku vel í að
taka mig í lyfjapróf, en til þess kom
ekki þar sem ég hélt að ég hefði
ekki náð lágmarkinu. Þegar ég
náði sambandi við formann FRI
fékk ég að vita að íslenska lágmark-
ið er 63 metrar sléttir og því hefði
ég getað farið í próf. Ég fer í lyfja-
próf á mánudaginn, og vona að það
verði tekið gilt,“ sagði Vésteinn á
sunnudagskvöldið.
Vésteinn sagði að köstin hefðu
verið jöfn og öll yfir 60 metra.
„Fyrst kastaði ég 61,88, þá 60,96,
62,30, 63,02, 62,96 og 61,36 í síð-
asta kasti. Þetta er svipað og um
síðustu helgi þegar ég náði lág-
markinu. Köstin voru öll gild og
jöfn þannig að ég er ánægður með
hvernig tímabilið byrjar hjá mér,“
sagði Vésteinn.
KNATTSPYRNA
Liverpool á Wembley
Liverpool tryggði sér farseðilinn
í úrslitaleik bikarkeppninnar á
Wembley 9. maí, þar sem félagið
mætir Sunderland, tneð því að
leggja Portsmouth, 3:1, í víta-
spyrnukeppni á Villa Park í gær-
kvöldi. Liverpool leikur sinn fjórða
bikarúrslitaleik á Wembley á sjö
árum. Ef Portsmouth hefði unnið
hefði tvö lið úr 2. deild leikið til
úrslita - í fyrsta skipti í 120 ára
sögu ensku bikarkeppninnar.
Leikmenn Portsmouth veittu
leikmönnum Liverpool harða keppni
og áttu þeir þversláarskot rétt fyrir
leikslok, en leiknum lauk með jafn-
tefli, 0:0, eftir framlengingu. Colin
Clark hjá Poitsmouth handleggs-
brotnaði á 73. mín.
40.077 áhorfendur sáu Martin
Kuhl, fyrirliða Portsmouth, misnota
fyrstu vítaspymuna - skaut fram-
hjá, en John Bames skoraði, 1:0,
fyrir Liverpool. Symons jafnaði,
1:1, en Ian Rush skoraði, 2:1. Bruce
Grobbelaar varði vítaspymu frá
Warren Neill, en síðan skoraði Dean
Saunders, 3:1. John Beresford mis-
notaði fjórðu spyrnu Poitsmouth -
skaut framhjá, þannig að leikmenn
Liverpool fögnuðu.
Jan Mölby tók stöðu Ray Houg-
ton í leiknum og var sagt að Gra-
eme Souness, framkvæmdastjóri
Liverpool, hafi valið lið sitt frá
sjúkrahúsi því sem hann er á eftir
að hafa gengið undir hjartaþræð-
ingu.
Middlesbrough tapaði heima, 0:1,
fyrir Barnsley í 2. deild.
SUIMD: SEXISLANDSMET FELLUIEYJUM / B4