Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐ.JUDAGUR 14. APRÍL 1992
HANDKNATTLEIKUR
Öruggt
Frábærstemmning íKA-húsinu þar
sem Eyjamenn voru lagðiraðvelli
Skapti
Hallgrimsson
skrifarfrá
Akureyri
KA vann sanngjarnan sigur á
ÍBV í fyrsta leik liðanna í úrsli-
takeppninni á Akureyri í gær-
kvöldi, 28:21. IMorðanmenn
höfðu undirtökin allan tímann,
og sigurinn var í raun aldrei í
hættu, en það mega Eyjamenn
eiga að þeir gáfust ekki upp
fyrr en endanlega var Ijóst að
leikurinn var tapaður. Leikur-
inn var stórskemmtilegur og
stemmningin í KA-húsinu
aldeilis frábær.
Lið KA byijaði af miklum krafti,
sóknin var öguð og vörnin
geysilega sterk; samheldin og
hreyfanleg, þannig
að skyttur Eyja-
manna áttu mjög
erfitt uppdráttar.
KA-menn beittu 5/1
vörn þar sem Pétur Bjarnason var
fyrir framan varnarlínuna og trufl-
aði sóknaraðgerðir Eyjamanna, og
hinir fimm tóku vel á móti þegar
gestirnir náiguðust. Hinum megin
má segja að vörnin hafi verið hrip-
lek, það var sama hvað Sigurður
Gunnarsson og lærisveinar hans
reyndu, ekkert gekk upp. Þeir komu
jafnvel langt út á völl með hálf-
gerða 3/3 vörn, en þá gengu KA-
menn í gegn og gerðu fjögur mörk
eftir gegnumbrot fyrir hlé, og alls
átta mörk í leiknum, en ÍBV aðeins
éitt, sem segir meira en mörg orð
um varnaraðgerðir liðanna.
Staðan í hálfleik var 13:9, og
fljótlega eftir hlé juku KA-menn
forskotið í sex mörk. En hin gríðar-
lega barátta Eyjamanna skilaði sér,
og þegar tæpar tíu mín. voru búnar
af hálfleiknum höfðu þeir minnkað
muninn í tvö mörk. Þá tók Alfreð
Gíslason af skarið, eftir að KA hafði
ekki gert mark í nokkrar mín., og
skoraði eftir gegnumbrot. Munur-
inn varð fljótlega fímm mörk á ný,
en þá kom enn góður kafli ÍBV, sem
gerði þrjú mörk í röð. En þá fór
heimaliðið í gang á ný, náði loks
að hrista Eyjamenn endanlega af
sér og sigurinn var öruggur þegar
upp var staðið.
Liðsheild KA var geysisterk sem
fyrr segir. Vörnin frábær á köflum
- þó ef til vill full gróf á stundum,
þar sem óþarfa bakhrindingar kost-
uðu brottvísanir - og sóknin í góðu
lagi. Erlingur Kristjánsson og Al-
freð voru bestu menn varnarinnar,
geysilega sterkir og það reyndist
Gylfa Birgissyni og öðrum aðal
skyttum Eyjamanna erfitt að bijót-
ast fram hjá þeim. í sókninni voru
Stefán og Sigurpáll Árni í aðalhlut-
verkinu, auk Erlings og Alfreðs sem
voru dijúgir. Þá var Árni línumaður
Stefánsson duglegur við að opna
skyttunum leið.
Lið ÍBV getur mun meira en það
sýndi í gær. Vörnin og markvarslan
voru slök og sóknaraðgerðir liðsins
ómarkvissar. Það er hætt við að
Eyjamenn ætli sér að taka „vel“ á
móti KA-mönnum í Eyjum á morg-
un, og óhætt er að reikna með gríð-
arlegum baráttuleik tveggja sterkra
liða - og ekki síður einvígi stuðn-
ingsmanna liðanna, sem var
skemmtilegt í gærkvöldi og verður
eflaust aftur.
Markaskor-
un / B10
Morgunblaöið/Rúnar Þór
Stefán Kristjánsson á auðum sjó og þá var ekki að sökum að spyija -
knötturinn hafnaði í netinu hjá Eyjamönnum.
Morgunblaöiö/Rúnar Þór
Erlingur Kristjánsson er búinn að bijótast í gegnum vörn Eyjamanna og
skorar framhjá Sigmari Þresti Óskarssyni.
Þannig vörðu þeir
Hér er listi yfir varin skot hjá markvörðum (innan sviga skot sem
fóru aftur til mórtheija):
Axel Stefánsson, KA - 12 (7 langskot, 5 úr hornum).
Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV - 6 (4 langskot, 1 af línu, 1 úr
horni).
Ingólfur Arnarson, ÍBV - 3 (2 gegnumbrot, 1 langskot).
Hrafn Margeirsson, Víkingi - 8(4) (4(1) langskot, 2(2) úr horni,
1(1) gegnumbrot, 1 af línu).
Reynir Þ. Reynisson, Víkingi - 6(1) (4 langskot, 1(1) gegnum-
brot, 1(1) úr horni).
Sigtryggur Albertsson, Fram - 5(1) (3(1) langskot, 1 úr horni, 1
af línu).
Einar Þorvarðarson, Selfossi - 12(5) (7(2) langskot, 2(1) úr
horni, 2(2) hraðaupphlaup, 1 af línu).
Gílsi Felix Bjarnason, Selfossi - 9(1) (6(1) langskot, 2 úr horni, 1
af línu).
Magnús Óskarsson, Haukum - 8 (3 langskot, 3 gégnumbrot, 2
úr horni).
Þorlákur Kjartansson, Haukum - 1 (1 hraðaupphiaup).
Bergsveinn Bergsveinsson, FH - 14(7) (8(1) langskot, 3(3) úr
horni, 1(1) af línu, 1(1) vítakast, 1(1) hraðaupphlaup).
Brynjar Kvaran, Stjörnunni - 5 (5 langskot).
Ingvar Ragnarsson, Stjörnunni - 10(3) (4(1) langskot, 4(1) úr
horni, 2(1) af línu).
SUND
Kom til að
taka titlana
- sagði Ragnheiður Runólfsdóttir, sem
keppti í síðasta sinn á íslandsmótinu
Kærkominn slgur
liðsheildarinnar
sagði Alfreð Gíslason KA-maður
Ragnheiður Runólfsdóttir,
íþróttamaður ársins 1991,
kom gagngert til íslands til að setja
punktinn yfir i-ið hvað þátttöku á
Islandsmóti í sundi innanhúss varð-
ar. Hún kvaddi með glæsibrag, sigr-
aði í öllum greinum sínum og varð
stigahæst kvenna á mótinu j Vest-
mannaéyjum um helgina. „Ég kom
bara til að taka titlana," sagði sund-
drottningin við Morgunblaðið.
Ragnheiður hefur æft stíft að
undanförnu, en átti að vera í fríi
þessa dagana. „Ég vildi s'amt Ijúka
keppni hérna heima á viðeigandi
hátt og kom því til að sigra en
ekki til að setja met. Álagið hefur
verið mikið að undanförnu og til
dæmis synti ég 14 kílómetra mið-
vikudaginn fyrir mótið — því var
ég mjög þung í vatninu. Svo fékk
ég 40 stiga hita á fyrsta keppnis-
degi og með þetta í huga er ég
nokkuð ánægð með árangurinn."
Ragnheiður útskrifast sem lífeðl-
isfræðingur í byijun maí og sagðist
því vera önnum kafin, en undirbún-
ingurinn fyrir Ólympíuleikana í
Barcelona væri samkvæmt áætlun.
„Ég geri ráð fyrir að far á sterkt
Morgunblaöið/Sigfús G. G.
Ragnheiður Runúlfsdóttir á ferð-
inni í Eyjum.
mót í Flórída í lok maí og svo verð
ég í æfingabúðum í Ekvador í júní.“
Eg er mjög ánægður með úrslitin
og leikinn. Við lékum sem
heild - þetta fór aldrei út í vitleysu
hjá okkur þó þeir næðu að gera
þijú mörk í röð í seinni hálfleiknum
og draga á okkur. Þetta var kær-
kominn sigur liðsheildarinnar,"
sagði Alfreð Gíslason, þjálfari og
leikmaður KA, eftir sigurinn á ÍBV.
„Þetta var sá fyrsti af þremur,"
bætti Alfreð við, og sagðist þar
með reikna með að liðin þyrftu að
mætast þriðja sinni á Akureyri á
laugardag, enda lið ÍBV erfítt
heima að sækja. „Annars finnst
mér alltaf gaman að spila í Eyjum
- þeir eru með næst bestu áhang-
endur á landinu þar!“
Sigurður Gunnarsson, þjálfari og
leikmaður ÍBV, tók tapinu vel. „Ég
bjóst við þessu í fyrsta leik. Úrslit-
in koma mér því ekki á óvart og
ég hlakka til að mæta KA hér á
laugardaginn.“ Hann sagði ekki
meiri pressu á Jeikmönnum ÍBV en
KA-mönnum, þó þeir þyrftu að
vinna á heimavelli á morgun, til að
fá möguleika á þriðja leik. „Við
getum ekki spilað verr en í kvöld -
hefðum örugglega tapað fyrir hvaða
liði sem er með svona franunistöðu.
Þeir (KA-menn) voru ekki að spila
neinn stjörnuhandbolta heldur vor-
um við mjög slakir, bæði í sókn og
vörn, og mistökin allt of mörg.“