Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992
SUND / MEISTARAMOT ISLANDS INNANHUSS
Sex íslandsmet
féllu í Eyjum
SEX Islandsmet féllu á Meist-
aramóti ísiands í sundi innan-
húss sem fór fram í Vest-
mannaeyjum um helgina.
Keppt var í 32 greinum og
árangur ágætur, sérstaklega
þegar haft er i huga að þrjá
af okkar sterkustu sundmönn-
um vantaði, Eðvarð Þór Eð-
varðsson, Magnús Már Ólafs-
son og Arnþór Ragnarsson, en
þeir hvíldu fyrir mót sem fram
fer í Edinborg um næstu helgi.
Stigahæstu sundmenn mótsins
urðu Arnar Freyr Ólafsson og
Ragnheiður Runólfsdóttir. Arnar
Freyr hlaut 885 stig
Sigfús Gunnar fyrir 4x100 metra
Guðmundsson flórsund og Ragn-
skrifar frá heiður 848 stig fyrir
Eyjum 200 metra bringu-
sund.
Sundsveit SFS komst best frá
mótinu, sigraði í 13 greinum af 32
en sundsveit Ægis kom næst með
10 vinninga. Ingibjörg Arnardóttir
næidi sér í fern gull í einstaklings-
greinum og ein gullverðlaun með
boðsundssveit Ægis.
Gunnar Ársælsson SFS setti ís-
landsmet í 50 metra flugsundi þeg-
ar hann synti á 26,39 sek. Eldra
ymetið var komið til ára sinna en
það setti Eðvarð Þór árið 1986,
26,62. Þetta var millitími Gunnars
í 100 metra flugsundi sem hann
synti á 59,75.
Arnar Freyr Ólafsson setti ís-
landsmet í 400 metra ijórsundi,
synti á 4:25,21. Eldra metið var
4:28,34. Þetta var einnig undir lág-
markinu fyrir Edinborgarmótið sem
er 4:31,90 en Ólympíulágmarkið í
50 metra laug sem Arnar Freyr
mun reyna við er 4:33,03.
A-kvennasveit SFS setti íslands-
met í 4x100 metra fjórsundi, syntu
á 4:29,44. Ægir átti metið sem var
4:33,76. Sveitina skipa þær Eydís
Konráðsdóttir, Berglind Daðadóttir,
Elín Sigurðardóttir og Bryndís Ól-
afsdóttir.
A-kvennasveit Ægis sló botninn
í mótið í síðustu grein þegar þær
settu glæsilegt íslandsmet í 4x200
metra skriðsundi. Stúlkurnar bættu
metið um hvorki meira né minna
en 13,95 sekúndur, syntu á 8:49,26.
Eldra metið var 9:03,21. Sveitina
skipa þær Ingibjörg ísaksen, Krist-
gerður Garðarsdóttir, Arna Þórey
Sveinbjörnsdóttir og Ingibjörg Arn-
ardóttir.
Ólafur Eiríksson KR setti ís-
lands- og Norðurlandamet í 100
metra flugsundi í flokki hreyfihaml-
aðra, synti á 1:04,22. Eldra metið
var 1:04,43. Hann setti svo og met
í 2Ó0 metra flugsundi, synti á
2:26,04.
Halldór S. Guðbergsson KR setti
íslandsmet í flokki sjónskertra þeg-
ar hann synti 200 metra fjórsund
á 2:38,52 og bætti eldra metið rétt
um 7 sekúndui'. Hann tvíbætti einn-
ig metið í 100 metra flugsundi,
synti fyrst í undanrásum á 1:10,35
Ingibjörn Arnardóttir, Ægi, krækti sér í fimm gullpeninga í Eyjum um helgina.
Morgunblaöið/Sigfús
og í úrslitum á 1:09,86.
Rut Sverrisdóttir Óðni tvíbætti
metið í 200 metra baksundi í flokki
sjónskertra þegar hún synti á
2:57,26 og í úrslitum á 2:54,87 en
metið ar 2:59,66. Hún bætti síðan
metið í 100 metra baksundi er hún
synti á 1:20,33.
Birkir Rúnar Gunnarsson UBK
setti met í flokki blindra í 100
metra bringusundi, synti á 1:28,5$
en metið var 1:29,34. Hann bætti
metið í 50 metra skriðsundi, synti
á 334,96 en metið var 34,33 og
hann lét ekki þar við sitja heldur
bætti einnig metið í 200 metra
bringusundi, synti á 3:08,39.
Eydís Konráðsdóttir setti telpna-
og stúlknamet þegar hún synti 200
metra baksund á 2:27,44 en metið
var 2;29,60. Þegar hún synti fyrsta
sprettinn fyrir SFS í 4x100 metra
fjórsundi setti hún telpnamet í 100
metra baksundi, synti á 1:08,32 en
metið var 1:09,26. Hún bætti síðan
um betur í 100 metra baksundinu
og bætti metið aftur, synti nú á
1:07,87.
Magnús Konráðsson SFS, bróðir
Eydísar, lét sitt heldur ekki eftir
liggja á mótinu. Hann setti piltamet
í 200 metra bringusundi þegar hann
synti á 2:27,16. Óskar Örn Guð-
brandsson átti eldra metið sem var
2:27,93. Þetta er undir lágmarki
fyrir Evrópumeistaramót unglinga
í Leeds sem fram fer í ágúst.
B-sveit Ægis skipuð þeim Söru
B. Guðbrandsdóttur, Evu Þorgeirs-
dóttur, Hildi B. Kristjánsdóttur og
Sigríði Valdimarsdóttur, tvíbætti
stúlknametið í 4x200 metra skrið-
sundi, synti fyrst í undanrásum á
9:21,50 og í úrslitum á 9:17,85.
Logi Jes Kristjánsson gerði ógilt
í 200 metra baksundi karla en þar
fékk hann tímann 2:05,14 og var
þar vel á undan Ævari Erni Jóns-
syni sem synti á 2:09,57 og þar
með missti Logi af sínum þriðja
íslandsmeistaratitli. En Ævar sýndi
mikinn íþróttaanda þegar hann fór
og færði Loga gullpeninginn eftir
afhendinguna og viðurkenndi þar
með að Logi hefði synt best.
Sveit SFS var lang fyrst í 4x200
metra skriðsundi en þeir voru
dæmdir úr leik þar sem einn úr
sveitinni stakk sér til sunds eftir
að þeir voru búnir að ljúka sundinu
en hinar sveitirnar sem kepptu til
úrslita höfðu ekki lokið sínu sundi
og SFS var því dæmt úr leik.
Urslit/BIO
Arnar Freyr stigahæstur
ARNAR Freyr Olafsson var
stigahæsti sundmaðurinn í
flokki karla á íslandsmeistara-
mótinu í sundi innanhúss, sem
fórfram íVestmannaeyjum um
helgina. Arnar sigraði ífjórum
greinum og vann besta afrek
mótsins í 4x100 metra fjór-
sundi, en fyrir það fékk hann
885 stig.
Arnar Freyr sagði við Morgun-
blaðið að takmarkið hefði ver-
ið að synda undir lágmörkum fyrir
mótið í Edinborg um næstu helgi.
Morgunblaöið/Sigfús
Þau efnilegustu. Sara B. Guðbrandsdóttir, Ægi og Ómar Þorsteinn Árna-
son, Óðni.
Bjóst ekki við að
verða valin efnilegust
- sagði sú efnilegasta, Sara Björg Guðbrandsdóttir
m
Jjjg trúi þessu varla. Ég bjóst við
að Eydís Konráðs, sem mér
finnst langefnilegust í dag, yrði
valin en hún var að vísu valin í
fyrra. Þetta er annað innanhúss-
meistaramótið mitt. Ég tók einnig
þátt í því í fyrra. Nú tók ég þátt í
200, 400 og 600 metra skriðsundi
og gekk mjög vel í 800 og 400
GIOKGIO \R\I \M
FÓT
Sœvar Kcirl Olason
Bankastræti 9.
S í m i 1 3 4 7 0
metrum en náði ekki í úrslit í 200
metrunum. Aðalgreinin mín er 800
metra skriðsund. Tíminn verður að
leiða það í ljós hvort og hvenær ég
næ Ingibjörgu Arnardóttur í 800
metrunum en hún er búin að vera.
í þessu í mörg ár og er gríðarlega
sterk. Takmarkið hjá mér nú er að
komast á Evrópumeistaramótið í
Leeds en ég á eftir að ná lágmörk-
um fyrir það en það er gott að
hafa sér eitthvert takmark. Þá get-
ur maður einbeitt sér. betur.
Laugin hérna er alveg frábær.
Það vantar fleiri laugar með svona
saltblöndu og alveg nauðsynlegt
fyrir sundíþróttina að við fáum
svona 50 metra laug,“ sagði Sara
Björg og var varla enn búin að ná
því að hafa verið valin efnilegust.
„Þetta kom mér ekkert frekar á
óvart,“ sagði Ómar Þorsteinn Árna-
son sem kjörinn var efnilegasti pilt-
urinn í sundinu. „Eg var í úrslitum
í fimm sundgreinum, sleppti reynd-
ar einni þeirra en varð í fjórða sæti
í þremur. Aðaláhersluna legg ég á
100 metra flugsund en nú varð ég
í fjórða sæti í því sundi. Stefnan
er að komast á verðlaunapall í þessu
sundi á næsta innanhússmeistara-
móti,.
Ég hef æft sund núna í rúmlega
6 ár og þetta er í annað sinn sem
ég keppi á þessu móti. Nú á næst-
unni er stefnan að standa sig vel á
Evrópumeistaramóti unglinga í
Leeds á Englandi i ágúst og halda
áfram að bæta mig. Svo væri
óskandi að sá draumur rættíst að
komast á Ólympíuleikana eftir 4
ár.“
Arnar Freyr Olafsson
„Ég stefndi fyrst og fremst að því
og mér tókst að ná settu marki.
Nú set ég stefnuna á að synda
undir ólympíulágmörkunum, en það
er stutt á milli móta go það getur
haft áhrif til hins verra.“
Arnar Freyr sagðist hafa hvílt í
tvær vikur fyrir mótið í Eyjum og
því verið vel upplagður. „Eg hvíli
áfram fram að keppninni í Edin-
borg, en ef dæmið gengur ekki upp
þar verð ég að reyna við lágmörkin
í sumar."
Naudsynlegt að
fá 50 m innilaug
- segir formaður Sundsambands íslands
Mótið tókst ágætlega. Margir
hafa bætt sig hjá félögun-
um, mikið er af ungu sundfólki
að gera góða hluti. Það vantar
Eðvarð, Magnús Má og Arnþór,
okkar sterkustu sundmenn, en
samt eru slegin mörg met. Það
er mikið af nýju fólki sem er að
sýna hvað í þeim býr og eftir eitt
ár þegar allir verða búnir að hvíla
fyrir mót verða mörg met slegin.
Þeir átta bestu sem eru að .reyna
við Ólympíulágmörkin hvíla fyrir
Edinborgarmótið um næstu helgi
en hvíldu ekki fyrir þetta mót svo
sem þau Arnar Freyr, Bryndís
Ólafs og Ingibjörg Arnardóttir.
Ekki er hægt að segja annað en
framtíðina sé björt. Maður var
ekkert rosalega bjartsýnn fyrir
stuttu en það hefur sýnt sig að
þau félög sem hafa verið að ráða
sér þjálfara í fullu stari'i hafa sýnt
að það borgar sig með bættum
árangri. Eydís slær til að mynda
met í hvert skipti sem hún skellir
sér í laugina í baksundi sem er
náttúrlega mjög gott og Sara B.
Guðbrandsdóttir er að bæta sig
mikið. Til að mynda um 20 sek.
í 800 metra skriðsundi.
Það er nauðsynlegt fyrir sund-
íþróttina að við eignumst góða 50
metra innilaug. Það er ætlast til
þess að við náum ÓL-lágmörkum
í 50 metra laug og sundlaugin í
Laugardal er ekki boðleg. Það er
komið að okkur að halda Smáþjóð-
aleikana 1997 en þar höfum við
ávallt verið framarlega og unnum
meðal annars I Andorra. Það er
hálf neyðarlegt að ekki er meira
hugsað um sundið. Okkur hefur
oft verið lofað 50 metra innilaug
en lítið verið um efndir. íþróttafor-
ystan og bæjarféiög verða að fara
ákveða hvort við höldum Smáþjóð-
aleikana sem stórþjóð meðal smá-
þjóða eða hvort við höldum þetta
sem kotungar," sagði Guðfínnur.