Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI ffl?ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992 B 5 IÞROTTIR FATLAÐRA / ISLANDSMOTIÐ Ég barðist fyrir mömmu - sagði Elsa Stefánsdóttir, sem sigraði ífjórum greinum í borðtennis ELSA Stefánsdóttir, ÍFR, kom sá og sigraði á íslandsmóti fatl- aðra, sem fór f ram um helgina. Elsa, sem er 51 s árs, sigraði í öllum fjórum greinum borðtenniskeppni kvenna og fór heim með fjóra bikar í safnið, sem var mikið fyrir. „Ég átti alls ekki von á þessu, en það var kominn tími til að bæta sig,“ sagði Elsa við Morgunblaðið. Aðspurð um hvað nú tæki við sagði meistarinn: „Komin á þennan aldur er ég auðvitað hálfdauð eftir keppnina. Þetta er í fyrsta og eina sinn, sem ég fæ fjögur gull í sömu keppni, en ég veit ekki hvað ég geri í ellinni!" Fyrsta íslandsmótið var haldið 1979, en þetta mót var það fjölmennasta frá byijun, 257 þátt- takendur frá 21 félagi. Keppt var í borðtennis, boccia, bogfimi og lyft- ingum og var mikil barátta á mörg- um vígstöðvum. Elsa keppti í flokki hreyfihaml- aðra í borðtennis, sigraði í sitjandi og standandi flokki, opnum flokki kvenna og opnum flokki í tvíliðaleik ásamt Guðrúnu Guðmundsdóttur. „Ég hef lengi vel verið amman í hópnum, en félagi minn í tvíliða- leiknum er eldri. Flestir hinna eru um og yfir tvítugt og auðvitað verða þeir spældir, þegar kerlingin vinnur þá. En þetta er gaman og það er fyrir öllu. Maður verður að hafa gaman af þessu, en íþróttin gefur manni mikið. Ég er með sykursýki og kransæðastíflu og því er mér lífsnauðsynlegt að hreyfa mig, en það geri ég í þessari íþrótt.“ Elsa byijaði að æfa, þegar félag- Þröstur Steinþórsson sigraði í ið var stofnað 1974 og hefur verið opnum flokki í bogfimi. sigursæl síðan. „Við æfum tvisvar Morgunblaðiö/Biarni Morgunblaðið/Bjarni Elsa Stefánsdóttir hafði mikla yfirburði í borðtennis og er hér á leiðinni að gullinu. Til hliðar er Elma Finnbogadóttif, sem sigraði í 1. deild í boccia. í viku og mér hefur gengið vel á mótum. Nú er vorið að koma og þá fer ég að dútla í garðinum, en held æfingunum einnig áfram. En þetta var skemmtilegt og ég barð- ist fyrst og síðast fyrir mömmu, sem er á elliheimilinu Grund.“ Samhliða íslandsmótinu í bog- fími var haldið opið mót, þar sem ófatlaðir einstaklingar, karlar, kon- ur og unglingar, tóku þátt ásamt fötluðum bogfimiskyttum. Bocciakeppnin var deildarskipt og var mikil spenna í öllum deild- um, en keppnin í 1. deild vakti mikla athygli. í lyftingum var keppt í tveimur flokkum, flokki hreyfihamlaðara og þroskaheftra. ■ Úrslit / B10 JÚDÓ / OPNA BRESKA MEISTARAMÓTIÐ || KÖRFUKNATTLEIKUR Sigurður Berg- manní ffjórða sætinu SIGURÐUR Bergmann júdó- kappi varð ífjórða sæti á Opna breska meistaramótinu sem fram fór um helgina. Bjarni Friðriksson varð í sjöunda sæti en aðrir íslenskir keppendur komu minna við sögu. Sigurði Bergmann gekk vel, vann tvær fyrstu glímurnar á ippon og mætti síðan Elvis Gordon frá Bretlandi. Þá tapaðj hann og Gordon glímdi síðan til úrslita og sigraði. Sigurður glímdi hins vegar við Múller frá Þýskalandi um þriðja sætið og tapaði þeirri viðureign. „Þetta gekk svona sæmilega hjá mér, en ég er langt frá því að vera ánægður,“ sagði Bjarni Friðriksson við Morgunblaðið eftir mótið. „Ég fann mig vel fyrir mótið en síðan gekk ekkert þegar í glímurnar var komið. Ég komst aldrei í gang og þetta var greinilega ekki minn dag- ur,“ sagði Bjarni sem vann þijár glímur en tapaði tveimur. Bjarni hefur tekið þátt í þessu móti í mörg ár en aldrei tekist að sigra. Hann hefur verið í öðru til þriðja sæti síðustu fjögur til fimm árin. „Ég ætlaði að vinna þetta ein- hvern tíma og það hefði verið gott að gera það núna, en það gengur ekki allt eins og ætlað er,“ sagði hann. Sigurði Bergmann gekk vel á Opna breska meistaramótinu. ÍRmeðfarseð- ilinn í augsýn Verði liðinjöfn ræðurstigamunur „ÞETTA var erfitt en hafðist með góðum stigamun. Seinni leikurinn verður erfiður því Kaninn þeirra verður með en við vinnum þá samt,“ sagði Björn Steffensen, fyrirliði ÍR, eftir 85:64 sigur á Snæfelli í fyrri leik liðanna um sæti í úr- valsdeild. Gæði leiksins voru lítil en baráttan þess meiri. Aðeins eru leiknir tveir leikir og stigamunur látinn ráða ef hvort lið vinnur einn leik. Snæfellingar ætluðu að taka leikinn strax í sínar hendur og byijuðu með miklum látum sem ■■■■■■ bom heimamönnum Stefán alveg í ojina sköldu. Stefánsson Það tók IR hins veg- skrifar ar aðejns þrjár mín- útur að ná sér á strik, ná forystunni og halda henni til leiksloka. ívar Webster var góður og hirti fráköst grimmt. Róðurinn gæti hins vegar orðið erfiður þegar hann mætir Tim Harvey í Stykkishólmi. Hilmar Gunnarsson, Gunnar Þor- steinsson og Björn Bollason stóðu sig nokkuð vel. Liðið lék ekki vel en strákarnir eru háir og setja alla baráttuna í leikinn, og það skilaði sér. Snæfellinga vantaði illilega Tim Harvey sem var í leikbanni. Þeir náðu aldrei að sýna sitt besta, röfluðu þess meira í dómurunum sem voru að vísu ekki góðir en mótmælin skiluðu engu. Bárður Eyþórsson, Hreinn Þorkelsson og Rúnar Guðjónsson voru ágætir. Liðin mætast aftur í Stykkis- hólmi í kvöld. KNATTSPYRNA / FRKKLAND Arnor og samherjar náðu settu marki Arnór Guðjohnsen og samhetjar í Bordeaux unnu St. Seurin 3:0 á laugardaginn og endurheimtu þar með sætið í 1. deild frönsku knattspyrnunnar. Strasbourg, sem tapaði 4:2 fyrir Istres, er þremur stigum á eftir, en síðasta umferðin verður um næstu helgi. „Óhætt er að segja að þungu fargi sé af okkur létt,“ sagði Arnór við Morgunblaðið. „Við lékum einn besta heimaleik okkar á tímabilinu og stemmningin var frábær. Reglu- lega var sagt frá stöðunni hjá Strasbourg og hafði það góð áhrif.“ Arnór fiskaði eina vítaspyrnu, en Þjóðveijinn Rainer Ernst gerði öll mörk heimamanna úr vítaspyrnum. Arnór, sem er samningsbundinn Bordeaux út tímabilið 1994, sagði að ljóst væri að styrkja þyrfti liðið fyrir næsta tímabil. „Við náðum settu marki að þessu sinni og ég verð sennilega hérna næsta vetur. en félagið verður að kaupa þijá til fjóra menn fyrir baráttuna í 1. deild næsta ár.“ Bordeaux fer í æfingaferð til Suður-Ameríku í byijun maí, en Arnór sagði að ekkert ætti að koma í veg fyrir að hann gæti verið með íslandi gegn Grikklandi 13. maí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.