Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 7

Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓI I IRþRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992 B 7 ■ TÓMAS Holton þjálfari og'leik- maður Vals fékk dæmda á sig ásetningsvillu eftir aðeins þriggja mínútna leik. Keflvíkingar breyttu stöðunni í þeirri sókn úr 2:6 í 5:6. ■ SVALI Björgvinsson fékk einnig ásetningsvillu í leiknum. Það var þegar 13 mínútur voru eftir af síðari hálfleik og staðan var 40:43 fyrir Val. ÍBK skoraði sex stig í þeirri sókn og komst 46:43 yfir. ■ VALSARAR lentu í talsverðum villuvandræðum í leiknum. Bræð- urnir Magnús og Matthías Matthí- assynir fengu sínar fjórðu villur þegar um 13 mínútur voru til leiks- loka og einnig Svali Björgvinsson. ■ JON Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK tók af skarið þegar rúmar sjö mínútur voru til leiksloka og allt í járnum. Jón tók sig þá til og gerði tvær þriggja stiga körfur í röð af löngu færi. ■ KRISTINN Fríðriksson fékk dæmda á sig tæknivillu þegar íjórar mínútur voru eftir af leiknum og staðan 63:60. Franc Booker skor- aði ekki úr skotunum sem hann fékk og því nýttist tækifærið illa. ■ ELLERT Eiríksson bæjar- stjóri í Keflavík afhenti leikmönn- um Vals glæsilega blómvendi eftir leikinn með kveðju frá íbúum bæjar- ins og þakklæti fyrir drengilega keppni. Reuter Fred Couples tekur hér við hamingjuóskum frá fyrrum meistara, Ian Woos- nam, sem bregður á leik til að vera jafnstór Couples. Couples bestur Morgunblaðið/Einar Falur in var í höfn. Hér sjást nokkrir leikmenn fagna ógurlega. FRED Couples, 32 ára gamall kylfingurfrá Bandaríkjunum, sigraði á Bandaríska meistara- mótinu (US Masters) i golfi sem lauk í Augusta um helg- ina. Þetta var fyrsti sigur Coup- les á risamóti en menn hafa lengi beðið eftir því að hann næði þessum áfanga enda hef- ur hann verið talinn einn efni- legasti kylfingur heimsins um nokkurt skeið. Nú tókst það hjá honum og hann sannaði að hann er ekki lengur efnilegur, hann er orðinn góður — trúlega sá besti. Það var ekki sama spennan yfir þessu móti og síðustu meist- aramótum. Couples náði tveggja högga forskoti á 13. holu og lék það sem eftir var á pari. Þar með batt hann endi á fjögurra ára einok- un Evrópumanna á hinum eftirsótta græna jakka. Hann var reyndar nókkrum sinnum nærri því að koma sér í verulegt klandur en tókst með smá heppni og sterkum taugum að bjarga sér. Sem dæmi um heppnina og um leið færni hans má nefna 12. hol- una, sem er ein erfiðasta hola vall- arins. Hún er um 140 metra löng og vatn er rétt hjá flotinni. Couples húkkaði aðeins, ienti í slakkanum milli vatnsins og flatarinnar og það munaði ekki nema nokkrum senti- metrum að boltinn færi í vatnið. Á einhvern óskiljanlegan hátt rann boltinn ekki niður hallann og í vatn- ið og Couples gekk að, tók fley- gjárn og laggði boltann upp við pinna. „Það sást ef til vill ekki, en ég var alveg ferlega taugaveiklaður þegar ég kom á teiginn á 12. holu. Það er kraftaverk að boltinn rann ekki í vantið, en það er líka krafta- ‘verk að vinna Meistarmótið," sagði Couples. Mikill vinur Couples og einn fjöl- margra sem hefur leiðbeint lionum í golfinu í gegnum árin, Raymond Floyd, lék ágætlega og varð í öðru sæti, ellefu höggum undir pari og tveimur höggum á eftir Couples. „Ég er ekki svekktur. Ég spáð Freddie [Fred Couples] sigri og það gekk eftir. „Augusta völlurinn er sniðinn fyrir Couples og hann á að geta fyllt heilan fataskáp með grænum jökkum. Hann leikurþann- ig að hann á eftir að skáka Nick- laus og Palmer," sagði Floyd en þeir félagar hafa samtals sigrað tíu sinnum í þessu móti. Floyd sigraði sjálfur í mótinu 1976 og tapaði í bráðabana fyrir Nick Faldo fyrir tveimur árum. Gekk á ýmsu Það gekk á ýmsu á meðan á mótinu stóð. Á laugardaginn, sem var þriðji dagur keppninnar, varð að fresta leik vegna rigningar í tæpar þijár klukkustundir. Þegar loks stytti upp var orðið það dimmt að ekki var hægt að leika. Sex kylfingar urðu því að hefja leik kl. sex á sunnudagsmorguninn og ljúka því sem eftir var af þriðja hring. Meðal þeirra sem það gerðu var meistarinn sjálfur, sem átti fjór- ar holur eftir þegar frestað var. Árangur kylfinganna var misjafn eins og gengur. Couples sigraði á 275 höggum, lék á 69-67-69-70, og varð fystur til að komast í gegn- um keppnina án þess að leika hring- inn á yfir 70 höggum. Severino Ballisteros vili örugg- lega gleyma síðasta deginum sem fyrst, og ef til vill allri keppninni. Hann lék á 294 höggum, þriðja dagin iék hann á 70 höggum en síðasta daginn fór allt úrskeiðis sem farið gat og hann kom inn á 81 höggi! Það voru hæstu tölur sem sáust á skorkortunum þann daginn. Besti kylfingurinn? Árangur Couples er glæsilegui og kórónar frábæran árangur hans að undanförnu. Síðustu tíu mánuði hefur hann leikið 40 hringi af 43 undir pari og er 135 höggum undir pari á þessu ári. Ekki slæmur árangur og auk þess hefur hann unnið sér inn rúmlega eina milljón dollara, um 58 milljónir ÍSK, það sem af er árinu. naður meistaranna „Það er mjög erfitt að gæta hans, og hann er einn sá erfiðasti sem ég hef leikið á móti. Hann er fljótur, getur skot- ið hvar sem er og svo verður að stíga hann út líka því hann er sterkur í sókn- arfráköstunum. Hann er mjög góður leikmaður og það eina sem má setja útá er varnarleikurinn hjá honum. Fimmti úrslitaleikur ^ islandsmótsins i körfuknattleik i íþróttahúsinu i Keflavík 11. apríl 1992 Þessi leikur gat dottið á báða vegu og það gætu alveg eins verið Valsmenn sem væru að fagna, en ekki við. Þeir eru búnir að leika mjög vel að undan- förnu og það var alls ekki heppni að þeir skyldu ná svona langt. Það eru ekki mörg iið sem leggja Njarðvíkinga á heimavelli tvisvar í röð,“ sagði Albert. ■ KARLA og kvennalið ÍBK urðu bæði íslandsmeistarar í körfuknatt- leik. Leikmönnum liðanna og mök- um þeirra ásamt stjórn körfuknatt- leiksráðs var boðið að snæða á veit- ingahúsinu Þotunni á laugardags- kvöldið. ■ LEIKMENN karlaliðsins voru orðnir dálítið loðnir um liöfuðið í síðasta leiknum. Eftir leikinn gátu þeir snyrt hár sitt og skegg með góðri samvisku. ■ KEFL VÍKINGAR voru að von- um ánægðir með sigur sinna manna og strax að leik loknum vat' víða flaggað í bænum. ■ KRISTJÁN Möller og Leifur Garðarsson ætla ekki að reyna við FIBA-dómararéttindin í ár. Prófið er á þeim tíma sem þeir eru í próf- um og því komast þeir ekki. ■ SIGURÐUR Valgeirsson var alveg viss þegar yalur og ÍBK léku íjórða leikinn að ÍBK yrði meistari. „Ég á hann þennan,“ sagði hann um leið og hann tók íslandsbikarinn traustataki. Morgunblaðið/Einar Falur ús Matthíasson og Sigurður Ingimundarson vefja hér knöttinn örmum með aðstoð GOLF / MEISTARAMOTIÐ SœvarKarl Ólason Bankastræt i 9 , 38/26 Víti 12/6 13/3 3ja stiga 14/4 24 Fráköst 42 11 (varnar) 23 13 (sóknar) 19 7 Bolta náð 18 17 Bolta tapað 5 17 Stoðsendingar 10

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.