Morgunblaðið - 03.05.1992, Page 8

Morgunblaðið - 03.05.1992, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK siMnuíjágupí I. maí 1992 8 ___________ IT\ \ er sunnudagur 3. maí, 124. dagur ársins -L'-ÉVvJ 1992. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 6.36 og síðdegisflóð kl. 18.54. Fjara kl. 0.32 og kl. 12.45. Sólarupp- rás í Rvík kl. 4.52 og sólarlag kl. 21.59. Myrkur kl. 23.13. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.25 og tunglið er í suðri kl. 14.04. (Almanak Háskóla íslands.) Enginn er sem Guð Jesjúrúns, er ekur yfir himininn til að hjálpa þér og á skýjunum í tign sinni. ÁRNAÐ HEILLA Q pT ára afmæli. Á morgún, í/U 4. þ.m., er 95 ára Bjarni Ándrésson frá Hrappsey á Breiðafirði, Vesturgötu 12, Rvík. Hann er fyrrum skipstjóri og út- gerðarmaður. Kona hans er Karen Andrésson. /\ára afmæli. Á morgun, t) U 4. maí, er fimmtugur Eiríkur Hans Sigurðsson frá ísafirði, Brekkutanga 28, Mosfellsbæ. Hann hefur starfað mikið að félagsmál- um. Hin síðari ár einkum að málefnum tengdum Rotary- hreyfingunni, var umdæmis- stjóri hreyfingarinnar á Is- landi 1990-1991. Kona hans er Sigrún Árnadóttir. Þau taka á móti gestum í Hlé- garði í Mosfellsbæ, í dag, sunnudaginn 3. maí, kl. 16-18. l\ára afmæli. Hinn 5. I \/ maí er sjötug Ólafía Guðbjörnsdóttir, Mýrar- götu 2, Hafnarfirði. Eigin- maður hennar er Móses Guð- mundsson. Þau taka á móti gestum í veitingastofunni Gafl-Inn í dag, sunnudaginn 3. maí, kl. 15-18. FRÉTTIR I DAG er Krossmessa á vori., „Haldin í niinningu þess að kross Krists hafi fundist þennan dag á þeim degi árið 326“, segir I Stjörnufræði/Rímfræði. SAMTÖK tungumálakenn- ara á Islandi halda fræðslu- fund í Norræna húsinu nk. þriðjudag kl. 20.30. Fyrirlest- ur flytur Jacquelin Friðriks- dóttir: Tungumálakennsla í Evrópu nútímans. Karl Krist- jánsson, menntamálaráðu- neytinu, fjallar um Nordplus fyrir nemendur á framhalds- skólastigi. FÉLAGIÐ Svæðameðferð heldur aðalfund á morgun, mánudag, kl. 20 í Holiday Inn veitingahúsinu. FÉLAG eldri borgara. Fé- lagsvist í dag í Risinu kl. 14. Dansað í kvöld kl. 20 í Goð- heimum. Opið hús mánudag kl. 13-17. Lögfræðingur fé- lagsins er til viðtals á þriðju- dögum. LÁRÉTT: - 1 óþokka, 5 stækka, 8 sýður, 9 fleyg ófreskja, 11 halda föstu, 14 mjó, 15 hundruð ára, 16 ákveð, 17 leðja, 19 andvari, 21 flyt sönglag, 22 blómun- um, 25 sefi, 26 erfiði, 27 pen- ingur. LÓÐRÉTT: - 2 ástfólginn, 3 óþétt, 4 klífa, 5 neitar, 6 heiður, 7 hreysi, 9 svallar, 10 eldspýtur, 12 renna fram, 13 ríkur, 18 sæla, 20 kyrrð, 21 einkennisstafir, 23 leit, 24 óþekktur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 óhæfa, 5 ólæst, 8 áræði, 9 hæpið, 10 ang- an, 14 ill, 15 vanin, 16 ilina, 17 náð, 19 rann, 21 munn, 22 gýgurin, 25 kýs, 26 ára, 27 ger. LÓÐRÉTT: - 2 hræ, 3 fái, 4 arðinn, 5 óðalið, 6 lin, 7 sóa, 9 hæversk, 10 penings, 12 griðung, 13 nóarnir, 18 áður, 20 ný, 21 mi, 23 gá, 24 Ra. Nei, nei, Guð. Okkur vantar ekki tyggjó. Bara atvinnu ... FRÍKIRKJAN í Reykjavík. Kvenfélagið heldur fund 5. maí í safnaðarheimilinu. Spil- að bingó. Kaffiveitingar. VÍÐISTAÐASÓKN. Árlegur hattafundur kvenfélagsins er annað kvöld í safnaðarheimil- inu kl. 20.30. Gestir félagsins verða konur úr Seljasókn. FÉLAG austfirskra kvenna heldur fund á Hallveigarstöð- um á mánudagskvöld kl. 20. Myndasýning og rætt verður um sumarferðalagið. ITC-deildin Ýr heldur fund í Síðumúla 17 kl. 20.30 á mánudagskvöld. Fundurinn er öllum opinn. Nánari uppl. veita Elsa, s. 71507, og Krist- in, s. 24159. KVENFÉLAGIÐ Fjallkon- urnar heldur síðasta fundinn á þessu starfsári þriðjudags- kvöldið kemur í safnaðar- heimili Fella- og Hólakirkju kl. 20.30. Gestir fundarins verða konur úr Kvenfélagi Langholtssóknar. VESTURGATA 7, þjónustu og félagsmiðstöð aldraðra. I sambandi við fyrirhugaða leikhúsferð í Þjóðleikhúsið 15. þ.m. á „Elín Helga Guðríður" koma leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Pálmi Gestsson á mánudag kl. 15 til að kynna leikritið ásamt leikstjóranum, Þórunni Sig- urðardóttur. SELTJARNARNES. Orlof húsmæðra. Dagana 30. maí til 6. júní verður dvalið á Hvanneyri í Borgarfirði. Ekki verður farið að Laugarvatni að þessu sumri. Nánari uppl. hjá Ingveldi Viggósdóttur, s. 619003, og Gunnfríði'Ólafs- dóttur s. 612006. BARNADEILD Heilsu- verndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Opið hús fyrir foreldra ungra barna á þriðju- daginn kl. 15-16 og verður rætt um mataræði barna. KVENFÉLAG Keflavíkur heldur fund á mánudags- kvöldið í Kirkjulundi og verð- ur þar tískusýning. LAUGARNESSÓKN. Fund- ur verður í kvenfélagi sóknar- innar í safnaðarheimilinu mánudagskvöld kl. 20. FÉLAG breiðfirskra kvenna heldur fund mánu- dagskvöld kl. 20.30 í Breið- firðingabúð í Faxafeni. NÝ DÖGUN, Samtök um sorg og sorgarviðbrögð stend- ur fyrir fræðslukvöldi í safn- aðarheimili Laugarneskirkju á þriðjudagskvöldið 5. þ.m. kl. 20.30. Sr. Ólöf Ólafsdóttir í umönnunar- og hjúkrunar- heimilinu Skjóli, fjallar úm efnið „Missir á eftirlauna- aldri“. GARÐABÆR, Kvenfélagið heldur fund í Garðaholti nk. þriðjudagskvöld kl. 19. Þetta er hatta- og matarfundur. Skemmtiatriði. SELJASÓKN. í dag er kirkjudagur kvenfélagsins og annast kvenfélagskonur guðsþjónustuna í dag kl. 14. Kór félagsins, „Syngjandi seljur“, syngur. Að messu lokinni verður kaffisala í kirkjumiðstöðinni og þar læt- ur kórinn líka til sín heyra. Næstkomandi þriðjudags- kvöld er vorfundur félagsins í kirkjumiðstöðinni kl. 20.30 og verður m.a. spilað bingó o.fl. BRJÓSTAGJÖF, ráðgjöf fyrir mjólkandi mæður. Hjálparmaeður „Barnamáls" eru: Aðalheiður, s. 43442, Dagný, s: 680718, Fanney, s: 43188, Guðlaug, s: 43939, Guðrún, s. 641451, Hulda Lína, s: 45740, Margrét, s: 18797, og Sesselja, s. 680458. GRAFARVOGSSÓKN. Safnaðarfélagið heldur fund á mánudagskvöld kl. 20.30 í Hamraskóla. Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur ætlar að tala um vorverkin í garðinum. Kaffiveitingar. KIRKJUSTARF REYKJAVÍKURPRÓ- FASTSDÆMI: Hádegisverð- arfundur presta í eystra- og vestra prófastsdæmum verð- ur í Bústaðakirkju mánudag- inn 4. maí kl. 12. ÁRBÆJARKIRKJA: Vor- ferðalag barnastarfs kirkj- unnar til Grindavíkur verður sunnudaginn 3. maí. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 13. Heimkoma um kl. 17. Foreldramorgunn þriðjudag kl. 10.-12. FELLA- og Hólakirkja: Starf fyrir 11-12 ára börn kl. 18 mánudag. Fundur í æskulýðsfélaginu kl. 20.30. Söngur, leikir, helgistund. KÁRSNESPRESTAKALL: Mömmumorgunn í safnaðar- heimilinu Borgum, þriðjudag ki. 10-12. SELJAKIRKJA. Fundur hjá Æskulýðsfélaginu SELA mánudag kl. 20, helgistund. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN. í gær fóru á ströndina Kistu- fell, Selfoss, Stapafell og Arnarfell. Á mánudag koma að utan Laxfoss og Valur. Pétur Jónsson kom inn í gær af rækjumiðunum og danska eftirlitsskipið Beskytteren kom inn. ÞESSAR ungu dömur, sem eiga heima á Siglufirði, efndu til hlutaveltu til að safna peningum til kaupa á sjúkrabíl fyrir bæjarbúa. Þær söfnuðu 6.300 kr. Þær heita Svala Júlía Ólafsdóttir, Katrin Kristinsdóttir, Sigi’íður Ósk Sal- mannsdóttir og Þórunn Jóhannesdóttir. ÞESSAR hnátur héldu hlutaveltu til ágóða fyrir hjálpar- sjóð Rauða krossins og söfnuðu 948 krónum. Þær heita Harpa Hannesdóttir, Jóna Björk Bjarnadóttir og Sólborg Ösp Bjarnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.