Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 11
Gætt sé grundvallarreglna. um mannréttindi og mannúð við með- ferð fanga. Þó svo að refsivist sé ekki vænleg til að byggja upp af- brotamanninn þá beri hinu opin- bera að skapa skilyrði til þess eins og unnt sé. Ur niðurbrotsáhrifum refsivist- ar skuli dregið með markvissri uppbyggingu til að breytinga megi vænta á lífsstíl afbrotamanna þannig að þeir séu eftir megni undir það búnir að verða nýtir þjóðfélagsþegnar, jafnframt því sem það hljóti að vera markmið að draga úr líkum fyrir áframhald- andi afbrotum og að koma í veg fyrir endurkomur í fangelsi. Að- staða og aðbúnaður þurfi að vera með þeim hætti að unnt sé að vinna að þessum markmiðum. Vanda þurfi val starfsfólks og menntun þess og starfsþjálfun VPK(i;,l:N'P»l.AI:)II) S.lVVNl.UAGt Ji notað til vistunar langtímafanga sem geta og vilja vinna eða stunda nám. Eftir breytingar sem felist í því, meðal annars, að hætt verði að vista fanga í elstu byggingunni og hún skipulögð fyrir aðstöðu fanga og starfsfólks, verði fangar á Litla-Hrauni 28 en ekki 52 eins og nú og fangelsinu skipt í fjórar deildir. Breytingar verði gerðar á Kvía- bryggju sem geri kleift að fjölga föngum þar úr 11 í 14 og fangels- inu í Kópavogi verði breytt í opið fangelsi. Þar vistist eingöngu af- plánunarfangar sem heimilað sé að stunda nám eða vinnu utan fangelsis. Áhugaleysi og seinvirkni hefur einkennt kerfið Fangelsismálanefnd leggur til að starfsemi Fangelsismálastofn- unar verði efld verulega og stofn- u unin byggð upp til að sinna betur verkefnum sinum og framtíðar- hlutverki. Fram kemur að dóms- málaráðuneyti hafi ekki falið stofnuninni öll þau ver^cefni sem hún á að sinna og bera ábyrgð' á samkvæmt iögum. Ágreiningur sé um valdsvið stofnunarinnar, boð- leiðir kerfisins séu óljósar og flóknar. Skapast hafi togstreita og jafnvel árekstrar sem bitnað - hafi á starfsemi fangelsiskerfisins. Engin efnisleg rök hafi komið fram fyrir því að lögin séu fram- kvæmd með þeim hætti. Afleiðing þessa sé meðal annars að stefnumörkun í fangelsismálum hafi ekki verið sinnt. Áhugaleysi, skortur á frumkvæði og seinvirkni hafi um of einkennt æðstu yfir- stjórn fangelsismála. í skýrslunni segir að óforsvar- anlegt sé og gegn anda löggjafar um fangelsi og fangavist og gegn Um Síðumúla- fangelsið, sem upphaflega var ætlað sem bíla- geymsla og -þvott- astöð fyrir lögregl- una í Reykjavík, segir í skýrslunni að öll aðstaða þar beri því upphafi vitni. þurfi að sníða að fyrrgreindum markmiðum. Þær breytingar sem fram kem- ur í stefnumörkun fangelsismála- nefndar að æskilegt sé að gera á skipan fangelsismála fyrir árið 1996 í því skyni að þoka fangelsis- málum í átt að nútímalegu vest- rænu fangelsiskerfi, varða breyt- ingar á fangelsum, starfsemi og aðbúnaði, stjórnskipulagi fangels- ismála, fjármálum og menntun starfsfólks en síðastnefnda atriðið telst þó til' stefnumörkunar til lengri tíma. Nefndin vill að húsnæðismálum fangelsa verði komið í mannsæm- andi og lögmælt horf, en fyrr var tæpt á nokkur atriði úr lýsingu hennar á ástandinu nú. Fanga- plássum á landinu fjölgi úr 117 í 139. Fangelsum verði skipt í deild- ir og þeim fækkað úr sex í fjög- ur, eftir að nýtt fangelsi hefur verið reist á höfuðborgarsvæðinu. Það verði deildaskipt og rúmi alls 85 fanga, 65 afplánunarfanga, þar á meðal konur og þá sem af- plána vararefsingu fésekta, og einnig 20 gæsluvarðhalds- og geymslufanga og fanga sem hætta stafar af. í fangelsinu verði gert ráð fyrir sjúkradeild og aðstöðu tannlæknis og þjóni sú starfsemi öllum fangelsunum, auk þess sem þar verði aðstaða meðal annars fyrir heimsóknir, tómstundir, vinnu og nám. Leggja beri áherslu á vinnu fanga og nám, bæði innan fangelsis og utan og tekin verði upp skipulögð fræðsla og vímu- efnameðferð fyrir fanga. Eins og fyrr segir á bygging þessa fangels- is að mati nefndarinnar að vera forgangsverkefni og það á að taka í notkun eigi síðar en í árslok 1996. Fram að þeim tíma verði fang- elsin á höfuðborgarsvæðinu áfram starfrækt með óhjákvæmilegum lagfæringum en þegar nýtt fang- elsi verði tekið í notkun verði Hegningarhúsið, Síðumúlafang- elsið og ríkisfangelsisdeildin í lög- reglustöðinni á Akureyri aflögð og fangelsinu á Litla-Hrauni breytt samhliða byggingu nýja fangelsins þannig að það uppfylli nútímakröfur um aðbúnað og ör- yggi varðandi fanga og starfsfólk. Litla-Hraun verði í framtíðinni HEIMSKLUBBUR Skipulag og fararstjórn: B Ingólfur Guðbrandsson INGÓLFS KYNNIR LISTA, ÓPERU OG SÆLKERAFERÐ - ÞAÐ BEZTA Á ÍTALÍU ÍTALÍAIHEIMSREISUSTÍL 2ja vikna listskodun oglífsnautn í fegurstu héruöum og horgum Italíu. Brottför 17. ágúst. FERÐAMÁTI: Flug til MÍLANÓ og til baka frá Róm. Akstur um Ítalíu í glæsilegustu gerð farþegavagna. GISTING: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum með tilliti til gæða og staðsetningar. Hlaðborðsmorgunverður. HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: 1. MÍLANÓ, m.a. LA SCALA-óperan, dómkirkjan, BRARI- safnið og Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci í Santa Maria delle Grazie. Gisting: BAGLIONE DORIA. 2. VERONA, hin heillandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu og óperan AIDA í ARENUNNI með frægustu söngvurum heimsins. Gist á splunkunýju glæsihóteli, LEON D’ORO. 3. GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum SIRMIONE, BARDOLINO, GARDA, TORBOLE, RIVA. Siglt á vatninu. 4. Listir og líf í FENEYJUM. Þar sem gist verður á HOTEL LUNA við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG til að upplifa töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi. 5. ítalska hjartað - listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er 3 nætur á BERNINI PALACE, mitt í heimslistinni til að sjá með eigin augum snilld endurreisnarinnar, mestu listfjársjóði veraldar í söfnunum UFFIZI og PITTI. 6. PISA, SIENA OG ASSISI, borgirnar, sem eru sjálfar eins og undurfagurt safn aftan úr öldum, ótrúlegri en orð fá lýst. Gist á PERUGIA PLAZA. 7. RÓM, borgin eilífa, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur engu tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að ferðamenn fá öllum heimshornum í 2000 ár. Gist 4 nætur á REGINA BAGLIONE hótelinu við sjálfa VIA VENETO. Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð sem þú mátt ekki missa af. Allur viðurgerningur, matur og vín eins og bezt gerist í gósenlandi sælkera. ENDURTEKIIM, ENDURBÆTT FRÁ í FYRRA. Margarferðir HEIMS- KLÚBBSINS í ár eru uppseldar. REYNSLA FARÞEGA: „Fyrir öllu hafði vcrið hugsað af slíkri kunnáttu, útsjónarscmi og snickkvísi, að ferðin var óblandin ánægja og draunti líkust. Það var scm við fcrðuðumst um í landslagsmálverki, og nutum alls hins besta sem Ítalía hefur aö bjóða. Hvílík stemmning og lífsnautn! Listin og lífið allt fá annað samhengi við reynslu af þessi tagi. Þaö cr list að gera ferðir svona úr garði og á fárra færi. Mér fannst hún nokkuð dýr í fyrstu en komst að raun um að líklega væri hún ódýrasta ferðin að raungildi, sem ég hef nokkurntima fariö, ég heyröi feröafélagana taka í sama streng. Eg vil þakka fyrir mig, og hlýt að ráóleggja þeim, sem vilja kynnast því besta að velja sér fcrð með Heimsklúbbnum.“ Ur lesendabréfi Morgunblaðsins, sept. 1991. Athygli er vakin á að hámarksfjöldi þátttakenda í þessari ferð er 40. Fá sæti óseld. Vinsamlega staðfestið strax. ^ r«a at FERÐAKYninillUG^ sunnudag 3. maf.kl.ie. Aogangur ókeypjs. HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS AUSTURSTR&T111, 4. hxi 101 REYKJAVÍR.SÍMI 620400.FAX 626564

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.