Morgunblaðið - 03.05.1992, Page 14

Morgunblaðið - 03.05.1992, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1992 AF INNLENDUM VETTVANGI HELGI BJARNASON Tuttugu smábátar sokkið eða hlekkst á frá ársbyriun í fyrra: Flest óhöppin má rekja til mannlegra mistaka TUTTUGU smábátar hafa farist eða hlekkst svo alvarlega á að áhöfnin hefur þurft að yfirgefa þá á síðasta ári og það sem af er þessu. Þar af hafa 14 sokkið eða strandað í vetur. Er þetta veru- leg aukning frá því sem verið hefur. A þessum tuttugu bátum voru 28 menn, 2 fórust en 26 var bjargað, mörgum naumlega af nærstöddum bátum. í mörgum tilvikum hefur ekki tekist að skýra óhöppin með fullnægjandi hætti. Algengast er að skipverjar telji sig hafa brotið gat á bátana með því að sigla á trjádrumba. Páll Hjartarson siglingamálastjóri segir að flest slysin megi rekja til mannlegra mistaka. Kristinn Ingólfsson slysaskráningamaður hjá Siglingamálastofnun segir að eigendur smábáta ofmætu stundum sjóhæfni þeirra. Orn Pálsson framkvæmdasljóri Landssambands smábátaeigenda sagði að samtökin hafi verulegar áhyggjur af fjölg- un óhappa, ekki síst þar sem rannsóknaraðilum hefði ekki tekist að leiða í ljós viðhlítandi skýringar. Fimm tilvik af þeim tuttugu óhöppum með smábáta sem talin eru upp hér á síðunni eru rakin til þess að siglt hafi verið á rekald í sjónum, tijádrumba eða annað. í fæstum tilvikum er hægt að sann- reyna hvað gerst hefur þar sem erfitt er að ná bátunum upp og skoða þá. Hjá Siglingamálastofnun er sú skoðun uppi að í sumum til- vikum geti verið að menn hafí ekki lent á rekaldi heldur steytt á skeijum. Bent er á nýlegt dæmi um skipstjóra sem dottaði á heim- leið úr róðri og strandaði báti sín- um. A þessum hraðskreiðu bátum þurfi menn ekki að gleyma sér nema örfáar mínútur til að lenda uppi í skeijum. I nokkrum tilvikum hefur rannsókn í sjóprófum leitt í ljós galla eða slæman frágang á bátum og tækjabúnaði sem leiddi til þess að sjór komst í þá. Fjölgun smábáta Smábátum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Um 1.700 lögðu upp afla á síðasta ári en talið er að bátar undir 10 tonna stærð séu yfir 2.000. Þar er bæði um að ræða opna báta og þilfars- báta. Páll Hjartarson siglingamála- stjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að ekki væri óeðlilegt að slysum og óhöppum fjölgaði í takt við stækkun smábátaflotans, en það væri þó allt of mikið um að smábátar sykkju eða þeim hlekkt- ist alvarlega á. „Við erum alla daga að vinna að því að tryggja öryggi báta og sjófarenda en ár- angurinn er ekki betri en þetta,“ sagði Páli. Hann sagðist ekki geta séð hvað stofnunin gæti gert til að draga úr slysunum, umfram það sem starfsmenn hennar væru að gera á hveijum degi. Páll sagði að mannleg yfirsjón ætti í flestum tilvikum þátt í óhöppunum. Reynt væri að ná tii manna með ráðstefnum og með því að tala við þá en erfitt væri að ná athygli þeirra. Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda sagði að samtökin hefðu verulegar áhyggjur af fjölgun óhappa, ekki síst þar sem rannsóknaraðilum hefði ekki tekist að leiða í Ijós við- hlítandi skýringar. Þetta væri sér- staklega slæmt ef galli á bátunum væri ástæða slysa og þar af leið- andi ekki hægt að lagfæra hann. Örn sagði brýnt að kanna nánar ástæður þess að sjór kæmist í bát- ana, svo hægt sé að bæta úr. Þá þyrftu eigendur bátanna að halda þeim í góðu lagi og huga sérstak- lega að hlutum sem þessum óhöpp- um hafa valdið. Örn sagði að meira væri um það en áður að trillukarlar væru einir á bátunum. Það stafaði af kvótas- amdrættinum, afkoman leyfði ekki að þeir hefðu menn með sér. Það drægi úr örygginu, því betur sæu augu en auga. Bátar ofhlaðnir? I sumum þeirra tilvika sem bát- ar hafa sokkið hefur leikið grunur á að bátarnir væru ofhlaðnir en ekki hefur sannast að það hafi valdið slysinu. Kristinn Ingólfsson sem annast slysaskráningu hjá Siglingamálastofnun sagði í gær að hætt væri við að eigendur smá- báta ofmætu sjóhæfni þeirra. Það kæmi kapp í menn í góðu fiskiríi og erfitt að hætta en menn yrðu að gera sér grein fyrir því að bát- arnir bæru ekki nema það sem þeir væru gefnir upp fyrir. Sjó- mennirnir kæmu stundum af stór- um skipum og teldu sig geta yfir- fært eiginleika stóru skipanna yfir á þá litlu. Núna væri til dæmis farið á sjó í miklu verra veðri en eldri trillukarlarnir hefðu treyst sér til. Örn Pálsson sagði að menn vissu vel hvað þeir mættu hlaða bátana og færu almennt eftir því. Það væri vissulega freisting að hlaða bátana eitthvað meira í mikl- um afla en menn yrðu þá að taka tillit til aðstæðna. Hann sagðist ekki vita nein dæmi um það frá undanförnum árum að komið hefði í ljós að ofhleðsla hafi valdið slysi. Ekki hefur sannast í neinum málum á undanförnu ári að eig- andi smábáts hafi viljandi sökkt honum til að bjarga sér út úr íjár- hagsörðugleikum. Örn sagði að menn sem misstu báta sína fengju gjarnan að heyra þessar ásakanir en hann sagðist engar vísbending- ar hafa um að eitthvað væri hæft í þessum orðrómi. „Það er engin ástæða til að ætla að menn séu að leika sér þannig með líf sitt,“ sagði Örn og bætti því við að þeir sem yrðu fyrir því að missa báta sína töpuðu alltaf á því. SOKKNIR SMABATAR HÉR á eftir fer yfirlit yfir þá smábáta sem farist hafa á síð- asta ári og því sem af er þessu. Sumum bátanna hefur tekist að bjarga eftir að skipverjar hafa yfirgefið þá og eru þau at- vik tekin með. Upplýsingarnar eru fengnar hjá slysakráningu Siglingamálastofnunar ríkisins og úr fréttum Morgunblaðsins. Tölurnar vísa í meðfylgjandi kort. 1991 1) Eyfell ÞH 62 strandaði utarlega i' Eyjafirði 20. janúar. Einn maður var á bátnum og fórst hann. I sjóprófunum kom fram að hann hafði átt í vandræðum með siglingatækin í þessum róðri. 2) Þröstur GK 88 brann í Grindavíkurhöfn 25. febrúar. 3) Gummi í Nesi SH 231 sigldi á rekald og sökk skammt út af Barðanum við mynni Dýraijarðar 6. maí. Tveir menn voru á bátnum. Komust þeir í gúmbjörgunarbát og var bjargað í Hafdísi ÍS 25. 4) Trausti SH 372 sigldi á rekald og sökk á Breiðafirði 30. maí. Eigandinn, sem var einn um borð, komst í gúmmítuðru og var bjargað um borð í Gust eftir tólf tíma volk. 5) Fáfnir VE 181 sigldi á rekadrumb og sökk vestur af Vest- mannaeyjum 3. júní. Einn maður var um borð og var honum bjarg- að um borð í Gauja gamla. 6) Már SH 71 strandaði við Snæfellsnes 14. júní. Eigandinn bjarg- aðist. 7) Ragnar GK 233 fylltist af sjó út af Reykjanestá 5. septem- ber. Skipverjinn komst í gúmbjörgunarbát og var bjargað um borð í Borgar GK 76. Botnstykki fyrir hraða- og hitamælingu fór úr og þannig komst leki að-bátnum. 8) Hornstrendingur HF 117 sigldi á rekald og sökk út af Drit- víkurtöngum á Snæfellsnesi 9. september. Skipveijinn komst í gúm- björgunarbát og var bjargað um borð í Auðbjörgu SH 197. 9) Sverrir BA 89 sökk á legunni á Patreksfirði 16. september. Illa var gengið frá slöngum frá austurdælu og komst leki að bátnum. 10) Sunna ÍS 215 sigldi aftan á togara og sökk fyrir utan höfnina í Bolungarvík 1. október. Skipveijinn fórst. 11) Lukka RE 86 sigldi á rekald og sökk suður af Hornafirði 12. október. Skipveijanum var bjargað um borð í Láru HF. 12) Jóhannes Gunnar GK 74 strandaði og sökk vestur af Reykja- nesi 12. október. Skipstjórinn sofnaði eða fékk aðsvif og sigldi á sker. Tveir menn voru um borð. Komust þeir í gúmbjörgunarbát og var síðan bjargað af björgunarbátnum Oddi V. Gíslasyni í Grinda- vík. 13) Sigrún SK 21 fylltist af sjó á leið inn til Hofsóss 17. nóvem- ber. Björgunarsveitin á Hofsósi bjargaði mönnunum tveimur um borð- í hraðbát. Báturinn fékk sjó yfir borðstokk og fylltist. 14) Sæli RE 31 lenti í hafvillum á Faxaflóa og strandaði í Garði 21. desember. Skipveijinn komst sjáifur í land og spurði til vegar. 1992 15) Máni AK 73 varð vélarvana og komst sjór í bátinn við Akra- nes 11. janúar. Skipveijunum tveimur var bjargað. 16) Neptúnus AK 113 sökk við Þormóðssker 3. febrúar eftir að fylla reið yfir bátinn að aftan. Bresi AK 101 bjargaði skipveijunum tveimur úr gúmbjörgunarbát. 17) Jói ÞH 108 fylltist af sjó norðvestur af Garðskaga 26. mars. Þrír menn voru um borð og var þeim bjargað í Albert Ólafsson KE. Sjór flæddi inn í vélarrúm um miðstöðvarstút sem ekki var gengið rétt frá. 18) Magnús ÍS 126 sökk í ísafjarðardjúpi 7. apríl. Einn maður var um borð. Komst hann í gúmbjörgunarbát og var bjargað af björgunarbátnum Daníel Sigmundssyni á ísafirði. Talið er að skelís hafi skorið gat á byrðing bátsins. 19) Sigurveig ÁR 195 varð vélarvana og strandaði rétt austan Eyrarbakka. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, bjargaði þremur mönnum sem voru á bátnum. Þeir voru grunaðir um ölvun. 20) Ingþór Helgi BA 103 fylltist af sjó norðvestur af Blakk, út af Patreksfirði, 28. apríl. Skipveijunum tveimur var bjargað um borð í Garra BA. Við sjópróf kom fram að allt bendir til að báturinn hafi verið hlaðinn langt yfir uppgefið hámarksburðarþol. Tónleikar í Hafnarborg: Árstíðimar eftir Ólaf B. Olafsson frumfluttar ÞANN 6. og 7. maí verða haldn- ir tónleikar í Hafnarborg í Hafnarfirði klukkan 20.00 og verður frumflutt verk eftir Ólaf B. Ólafsson, Arstíðimar, en það samdi Ólafur á árunum 1990- 1991. Kennarasamband íslands, styrkti Ólaf til verkefnisins. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Tónleikar í Norræna húsinu ÁRLEGIR vortónleikar nemenda Tónlistarskólans í Reykjavík verða í Norræna húsinu mánudaginn 4. maí og hefjast kl. 20.30. hefur unnið að þessu í samvinnu við grunnskólana í Hafnarfirði í tengslum við ár söngsins og mun flutningur verksins á þennan hátt vera framlag Hafnarfjarðar til þess. Sönglög verksins eru átta talsins en einnig verða ýmsar list- rænar uppákomur. Börn úr grunn- skólum Hafnarfjarðar hafa unnið ýmis myndverk og önnur verkefni þar sem texti sönglaganna átta er lagður til grundvallar. Þessi myndverk og verkefni verða einnig til sýnis í Hafnarborg dagana 6.—11. maí nk. Á efnisskránni eru píanóverk- in Noktúrna í e-moll op. 72 eftir Chopin, 3 prelúdíur eftir Gers- hwin, Suggestion diabolique eftir Prokofieff, Toccata eftir Poulenc og Impromptu í As-dúr eftir Chopin, ennfremur Klarínettuk- vintett eftir Weber, Allegro app- assionato fyrir selló og píanó eftir Saint-Saens, Polonaise fyrir fiðlu og píanó eftjr Wieniawski og Syrinx fyrir einleiksflautu eftir Debussy. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.