Morgunblaðið - 03.05.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1992
15
Háskólafyrirlestur
JONNA KJÆR, lektor í frönsku
við Kaupmannahafnarháskóla,
flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla
Islands þriðjudaginn 5. maí kl.
16.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist Tristan og
Indíana — nýjar íslenskar skáldsög-
ur frá 18. og 19. öld um Tristan
og ísold, hina frægu elskendur mið-
alda.
Jonna Kjær ætlar að segja frá
rannsóknum sínum á því hvernig
Norræn tón-
list í skólum
SUNNUDAGINN 3. maí verða
tónleikar í Norræna húsinu kl.
17.00 á vegum verkefnis um nor-
ræna tónlist í skólum.
Verkefni um norræna tónlist í
skólum er þriggja ára samvinnuverk-
efni milli tónlistarkennara frá Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og
Svíþjóð. Verkefnið er tilkomið að
frumkvæði norrænu ráðherranefnd-
arinnar og styrkt af henni. Yfirum-
sjón með verkefninu er í höndum
Tónvísindastofnunar Gautaborgar-
háskóla, en tónlistarkennarar annast
framkvæmdina í hveiju landi fyrir
sig.
Verkefnið á meðal annars að efla
norræna tónlist, þróa kennsluaðferð-
ir sem byggja á norrænum hefðum
og sjónarmiðum, mynda raunhæfan
grunn í skólum fyrir norrænt
kennsluefni og mynda tengsl milli
skóla og kennara á Norðurlöndunum.
Um 500 börn á Norðurlöndum eru
virkir þátttakendur í verkefninu. Þau
eru frá Stavangri í Noregi, frá Kalm-
ar í Svíþjóð, Esbo og Helsingfors í
Finnlandi og Svinninge á Sjálandi í
Danmörku, auk íslensku barnanna
sem eru frá Akranesi, Garðabæ og
Reykjavík.
Hér á landi eru þrír bekkir í jafn-
mörgum skólum virkir þátttakendur
í verkefninu og eru nemendurnir á
aldrinum 8-10 ára.
A tónleikunum syngja nemendurn-
ir og leika lög frá þeim löndum sem
taka þátt í verkefninu. Ennfremur
sýna þau þá íslensku dansa sem þau
hafa lært í vetur. Félagar úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur undir stjórn
Kolfinnu Sigurvinsdóttur sýna dansa
frá hinum Norðurlöndunum; sænskir
hljóðfæraleikarar sem starfa hér á
landi leika á fiðlur, sænska „nyckel-
hörpu“ og „selpípu" og segja frá
hljóðfærunum; harmonikkuleikar-
arnir Reynir Jónasson og Þorvaldur
Björnsson leika með og Óm Magnús-
son leikur lög eftir Sveinbjörn Svein-
bjömsson og Jón Leifs.
Tónleikarnir em öllum opnir.
(Úr fréttatilkynningu)
íslendingar á síðari tímum tóku við
goðsögninni gömlu um Tristan. Í
upphafi verður gerð grein fyrir frá-
sögnum af Tristan og íscjld á mið-
öldum í Frakklandi og íslandi en
aðalefnið eru íslenskar sögubækur
samdar eftir danskri almúgabók frá
1775 sem heitir: „En Tragoedisk
Historie om den ædle og tappre
Tistrand, Hertugens Son af Burg-
undien, og den skienne Indiana, den
store Mogul Kejserens Daatter af
Indien."
Þótt atburðarásin sé þekkjanleg
eru bæði danska almúgabókin og
íslensku sögurnar eftir henni harla
ólíkar miðaldasögunni. Auk þess
eru íslensku gerðirnar ekki bara
ólíkar þeirri dönsku, þótt þær séu
greinilega eftir henni samdar, held-
ur einnig hver annarri frábrugðin.
Tilbrigðin eru áhugaverð og sýna
mikið hugmyndaflug, og fyrirlestr-
inum er ætlað að gera grein fyrir
þeim.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku og fyrirlesari mun tala
hægt og skýrt, og blaðalaust.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
SUMARBUÐIR
SKÁTA Olfuótsvatni
Frábærar sumarbúðir
fyrir öll böm á
Markmið:
- að komast (
snertingu við
aldrinum 8 til 12 ára.
félaga úr
Sími
91-23190
fjölbreyttum hópi
- að taka þátt í
þroskandí
starfi og leik.
CmUF
FRUMKYQQIASTÖRF
ÞRAUTABRAUT
BÁTSFERDIR
SILUNQSVEIÐ!
fjArsjódsleit
náttOruskoðun
IÞRÓTTIR t LEIKIR
KVÓLDVÓKUR
QRÓÐURSETNINQ
VARDELDAR
FÖNDURVINNA
TIMABIL
I.
II.
III.
03-.09. júní
10.-16. júní
19.-25. júní
V. 07-.13. júlí
VI. 16.-22. júlí
VII. 24.-30. júlí
IV. 30. júní - 6. júlí VIII. 04. -10. ágúst
SKRÁNINQ
Skráning hefst 4. mal og fer hún
fram f Skátahfeinu vid Snonabraut
alla virka daga á milll kL 10.00-13.00.
Sfminner 91-23190.
Dvalaigjald er óbreytt ftá s.l. sumri
þ.e. 13.900.- lyrir viku dvöl.
SUMARFRII
SKOTLANDI
— átta daga ferð,
44.500 kr. *
Loch Achray hótelið stendur [ fögru umhverfi
við rætur hins tignarlega Ben Venue fjalls í
hjarta Skotlands. Hótelið er umkringt óspilltum
skógi á bðkkum Achray stöðuvatnsins. Allt í
kring eru víðar lendur, ótal skógarstígar og
þægilegar gönguleiðir meðfram vatninu.
Innifalið í ferðinni er:
• Flug báðar leiðir milli Keflavíkur og Glasgow
með Flugleiðum.
• Flugvallarskattur.
• Gisting í sjö nætur á Loch Achray hótelinu.
• Hlý og notaleg svefnherbergi með baði.
• Akstur.
• Skoðunar- og verslunarferðir á hverjum degi.
• Skemmtisigling.
• Ríkulegur morgunverður að skoskum hætti
• Þríréttaðar kvöldmáltíðir að eigin vali.
Ferðaáætlun:
1. dagur
Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Glasgow.
Þaðan flytur rúta farþegana til Loch Achray
hótelsins.
2. dagur
Morgunsigling á hinu fagra Katrine vatni á
gufuskipinu Sir Walter Scott sem hefur siglt um
vatnið í næstum heila öld. Að henni lokinni
bíður hádegisverður á Inversnaid hótelinu.
Síðdegis liggur leiðin um tígulegar fjallshlíðar,
til Aberfoyle
þorps. Loks
verður komið við
í bænum
Callander, hliði
skosku
hálandanna.
3. dagur
Dagsferð til St.
Andrews sem
stendur úti við
ströndina í hinu
forna konung-
dæmi Fife með
viðkomu í ýmsum
sögufrægum
smábæjum.
4. dagur
Dagsferð um Hálöndin, um þorpin Dunblane
og Doune, og staðnæmst í Crieff. Þar í bæ er
Glenturret, elsta brugghús í Skotlandi sem
verður skoðað og gestum boðið að bragða á
framleiðslunni. Að loknum hádegisverði verður
farið um Killin þorp, en þar steypist Dochart
fossinn niður eftir aðalgötunni með miklum
gný.
5. dagur
Dagsferð til Edinborgar, hinnar virðulegu og
þokkafullu höfuðborgar. Þar gefst færi á að
skoða sig um og versla að vild. Rúta ekur
farþegunum í miðborgina og bíður þeirra þar.
6. dagur
Ekið um Strathyre, Lochearnhead og Brander
skarð, og áð í Lochawe þorpi. Rústir Kilchurn
kastala skoðaðar. Haldið áfram um bæinn
Inverraray en þar stendur annar kastali líkt 6g
sprottinn úr ævintýri. Loks verður ekið aftur til
Achray meðfram bökkum Lomond vatns.
7. dagur
Dagsferð til Stirling. Yfir bæinn gnæfir
glæsilegur kastali á snarbrattri hæð. Þar gefst
góður tími til a skoða sig um og líta í búðir.
8. dagur
Um morguninn verður farið til Glasgow en
þaðan verður flogið aftur til Keflavíkur.
Brottför / heimkoma:
23. júrií - 30. júní og 28. júlí - 4. ágúst
FERDASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
Söluaðili: Ferðaskrifstofa Islands - Skógarhlíð 18 -
101 Reykjavík - slmi 91-623300
* Miðað við gengi 01.04. 1992
AUKAFERÐIR TIL
BENIDORM
Við bætum við nokkrum terðum til Benidorm í sumar vegna mikillar eftirspurnar.
Frábærir gististaðir og tararstjórn.
Tveggja og þriggja vikna ferðir: 28. maí, 4. júní, 18. júní, 9. júlí,
30. júlí og 20. úgúst.
S;iiiiYii!iiiifei'úii'-Lfiiiílsi/ii
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 / 691095 • Telex 2241
Hótel Söflu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 24087