Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 18
18 MORGlJNBLAÐIÐ SÚNNUDÁGUR 3. MAÍ 1992 Seltjarnarnes, Framnes FRAMNESIÐ Á SELTJARNARNESI Inn á uppdráttinn er felld tillaga sem gerir ráð fyrir vegi milli Bakkatjarnar og Nesstofu og nýbygginga utan við núverandi byggð á Seltjarnarnesi. Þetta er sú tillaga sem lengst gengur og gerir ráð fyrir allt að 90 nýjum húsum. Norðurtangi Gróttuviti -£ / vV 'Suðurnes- Uældir ^varða ' Suðurnes Golfskáli Helguvík Búðatjörn Búðir Búðagrandi Suðurnestangi Smábátahöfn 500 m „GRÓTTA er eina friðlýsta svæðið á Seltjarnarnesi, en Valhúsahæð, Seltjarnarnes- fjörur og Suðurnes hafa verið á náttúruminjaskrá síðan 1981. Óbyggðu svæðin hafa mikið útivistargildi og njóta sífellt meiri vinsælda af íbú- um nessins. Framnesið er eina heilsteypta, opna svæðið, sem eftir er á Seltjarnamesi. Lagt er til að stofnaður verði fólk- vangur yst á Nesinu sem teng- ir byggðina og friðlýsta svæð- ið í Gróttu betur saman“, stendur í nýútkominni skýrslu um náttúrufar á Nesinu sem Náttúrufræðistofnun hefur unnið fyrir Seltjarnarnesbæ. En komin er upp hörð deila um skipulag, sem unnið er að, á mörkum þessa opna svæðis. Svo hörð að nokkrir sjálfstæð- ismenn, þar á meðal tveir fyrrverandi forsetar bæjar- stjórnar og formaður fulltrú- aráðs flokksins, hafa skrifað flokksfélögum sínum í bæjar- stjóm og farið fram á að þeir stöðvi og endurskoði áform um byggingar og vegalagn- ingu á þessum stað. Ef þeir geri það ekki, þá stefni það meirihluta sjálfstæðismanna í tvísýnu. Segja þeir viðhorfs- breytingar hafa orðið og fólk sé almennt komið í andstöðu við meiri byggð í vesturátt. í tillögunum eru hugmyndir uppi um allt að 90 húsa byggð vestan núverandi byggðar og vegalagningu milli Nesstofu og Bakkatjarnar. Til að lesendur Morgun- blaðsins geti áttað sig á um hvað málið snýst og hvar það er statt ræddi fréttamaður við bæjarstjórann Sigurgeir Sigurðsson og stuttlega við þá Guðmar Magn- ússon, sem sat í bæjarstjórn frá 1978-90, síðast sem forseti, Jón Hákon Magnússon, sem lengi hefur verið formaður fulltrúaráðs Sjálf- stæðisflokksins á Seltjamarnesi, og Aðalstein Sigurðsson fískifræðing, sem fyrrum átti sæti í náttúruvernd- arnefnd Seltjarnarness. Bn þeir hafa allir lýst andstöðu sinni við þessi áform. Að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra á Seltjamarnesi snýst málið um endurskoðun á aðalskipu- lagi á Nesinu frá 1981, en það bygg- ir að grunni til á aðalskipulagi sem staðfest var 1969. Hafa verið lagðar fram sex hugmyndir. Skv. upplýs- ingum bæjarstjórans gengur engin likt því eins nærri opna svæðinu og upphaflegar hugmyndir gerðu ráð fyrir. Á þeim tíma var þetta svæði allt eign landeigenda, en síðan hefur bærinn smám saman keypt upp mik- ið af þessu landi, þ.e. Ráðagerðis- land, Nýjabæjarland, mestan hluta af landi Ness hf., alls fyrir um 100 milljónir króna. Þó hefur ekki allt land verið keypt, eftir á Vestursvæð- inu Nes 2 ( Seltjörn) og hluti af Nesi 1, sem að fasteignamati er metið á 95 milljónir. Segir Sigurgeir að í þessu skyni hafi verið tekin lán, alltaf með þá hugsun að baki að eitthvað ætti að koma á móti í bæjar- kassann, svo hægt sé að koma á þeirri friðlýsingu sem allir stefni að. T.d. sé ætlunin að í Ráðagerðislandi og Nýjabæjarlandi verði skipulagt útivistarsvæði. Bæjarsjóður Ieggi upp með 340 miljónir á ári og hafi 30-40 milljónir króna til ráðstöfun- ar. En fé sé að sjálfsögðu bundið í þessum landakaupum. Nú hefur bæjarstjórn tekið til umljöllunar sex tillögur að skipulagi og byggingu á mörkunum við ystu byggð á Suðurnesinu, unnar af arki- tektunum Ormari Þór Guðmunds- syni og Örnólfí Hall, en þeir urðu á sínum tíma hlutskarpastir í sam- keppni á afmælisári Seltjarnarness. Þær gera ráð fyrir mismunandi mik- illi byggð, frá 30-40 húsum upp í 90. En vegurinn umdeildi neðan Nesstofu, sem verður þá hluti af hringvegi um Nesið, er á fjórum þeirra. Frá upphafi var gert ráð fyr- ir þessum vegi í skipulagi. Engin byggð lengra út á Nesið Guðmar Magnússon og Jón Há- kon Magnússon eru alfarið á móti þessum áformum. Guðmar kveðst vera á móti húsabyggð á auða svæð- inu þarna vestur á Nesinu. Ekki eigi að hreyfa við þessu landi núna. Bærinn hafi næg önnur aðkallandi verkefni. Kynslóðir komi á eftir okk- ur og þær eigi að fá að hafa eitt- hvað um þetta að segja. Mikil við- horfsbreyting hafi orðið síðan slíkar hugmyndir voru uppi og í dag vilji hinn breiði fjöldi ekki að byggð verði látin ná lengra út á Nesið en nú er. Kvaðst Guðmar hafa fundið víðtæk- an stuðning við það sjónarmið eftir að þetta kom upp. Fólk sé að verða mun meðvitaðra og vill ekki að geng- ið sé of nærri náttúrulegu umhverfi. Jón Hákon tekur undir það, kveðst daglega sjá fólk þarna að skokka og ganga. Bendir á að þetta sé úti- vistarsvæði og náttúruperla og vest- asti hlutinn á höfuðborgarsvæðinu. Það varði því höfuðborgarbúa alla. Menn vilji einfaldlega halda þessu náttúrusvæði sem eftir er ósnortnu. „Við lofuðum því, sjálfstæðismenn, í síðustu kosningum að byggja ekki fyrir vestan Nesstofu," segir hann og vísar í 6. liðinn í 16-loforðalista þeirra til ársins 2000, þar sem heit- ið er: „Verndun lands og náttúru- gæða vestan Nesstofu." Jón Hákon segir auk þess enga þörf á að bæta á byggðina nú. Mörg hundruð íbúðir standi óseldar á höfuðborgarsvæð- inu og í hans huga verði að fara að líta á þessi mál í heild og sameinast um framtíðaráætlanir. „Ég vil að gengið verði um þetta svæði með fullri virðingu og í sam- ráði við þá sem vit hafa á, þ.e. náttúruvísindamenn. Við eigum að gefa okkur góðan tíma - fram á næstu öld. Því sem þarna yrði gert verður ekki aftur breytt. Ein kynslóð á ekki að fá að ráðstafa öllu land- inu, ekki síst þar sem ekki er þörf á því. Ef við björgum þessu ekki nú, hvað munu komandi kynslóðir þá segja um okkur? Viðhorfin hafa breyst. Áður voru menn uppteknir af því að byggja og malbika. Nú vill fólkið sem hér býr hafa fallegt í kring um sig, geta skokkað, hjólað og verið úti. Og hvað er fallegra en þetta náttúrulega umhverfi. Maður sér orðið feikimargt útivistarfólk á ferðinni þarna og í sívaxandi mæli. íbúarnir á Seltjarnarnesi eru nú 4.200 og það er alveg nægilega þétt byggð. Nú má staldra við. Auðvitað kostar það fé. En Vestursvæðið og Nesið þola ekki meiri umferð.“ Guðmar segir það rétt vera, sveit- arfélagið hafi lagt í miklar ljárfest- ingar við að kaupa þarna land, sem sé opið og nýtist öllum. Og þá gæti vaknað sú spurning hvort sanngjarnt sé að Sellirningar beri þær einir. Aðspurður hvort hann hafi skipt um skoðun síðan hann var forseti bæjar-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.