Morgunblaðið - 03.05.1992, Síða 29

Morgunblaðið - 03.05.1992, Síða 29
för til hjálpar stríðshijáðum og ferð- irnar voru orðnar svo margar, þess vegna er þrátt fyrir allt óvænt þeg- ar örlögin grípa svo harkalega í taumana og gera þessa síðustu sendiför hina hinstu. Jón Karlsson greip ekki athyglina þegar leiðir okkar lágu fyrst saman í Menntaskólanum á Akureyri haustið 1969, ekki meira en svo að við vissum hvor af öðrum. Næsta vetur í sama bekk og málkunningj- ar eins og hveijir aðrir bekkjar- bræður. Síðustu tvo veturna lukk- aðist hins vegar svo til, að við urð- um nábýlingar í samliggjandi kjall- araherbergjum við Laugargötuna. Þá fékk ég að kynnast nýjum manni sem ég hafði ekki þekkt áður í kunningsskap áranna á undan. Jón var hæglátastur manna í hinu daglega amstri og lét ekki mikið fyrir sér fara. Mér fannst hann vera feiminn við fyrstu kynni og seinn til viðkynning-ar líkt og undirritaður sjálfur. Ur fjarlægð kunningsskaparins var ekki að sjá stórræði búa í þessum dreng eða ævintýramennsku af nokkru tagi, síst af öllu hægt að ímynda sér hann í miðri hringiðu heimsvið- burða. Svo gerðumst við nágrannar og þá kynntist ég sama rólega manninum, en hinum hliðunum líka. Þegar kvöldrápi var lokið og báð- ir komnit' heim, var ekki alltaf tíma- bært að leggjast í svefn. Þá var heitt á katlinum hjá Jóni og gott að fá sér tesopa og rabba um bók- menntir fornar eða hlusta á Zappa eða spjalla um heima og geima. Og ekki þraut umræðuna. Jón var góður sögumaður og hafði kímni- gáfu í lagi. Helgarnar voru gleðitími sem von var. Þá var nágranninn í herberginu við hliðina ekki sá ein- fari sem mér hafði upphaflega sýnst, heldur vinmargur gestgjafi og hrókur alls fagnaðar, selskaps- maður. Ekki þurfti löng kynni til að kom- ast að raun um að Jón var ekki allur þar sem hann var séður við fyrstu sýn. Þótt hann virtist hlé- drægur og feiminn var hann í reynd áræðinn og tilbúinn til að prófa eitt- hvað nýtt, kanna nýjar slóðir. Þann- ig réðist hann til atlögu við leyndar- dóma ljósmyndunarinnar með all- góðum árangri. Hann kannaði nýja tónlist með opnum huga, kannaði ný lönd með öllum hugsanlegum ferðamáta og ruddi brautina á því sviði sem varð honum lífsstarf þeg- ar hann var í hópi fyrstu karla í stétt hjúkrunarfræðinga hér á landi. Honum líkaði ekki vistin í Há- skólanum að loknu stúdentsprófi og fór að vinna í höfuðborginni. Þar kom að hann sagði mér frá nýju starfi sem hann hefði fengið og fékk mig til að verða hissa. Hann gerðist vaktmaður á Kleppi. Hann hafði ekki lengi unnið þar, þegar hann fór að tala um það í fullri alvöru, að leggja hjúkrunar- störf fyrir sig og sérhæfa sig í að hjúkra geðsjúkum. Nú hafði Jón fundið sér lífsbraut sem ekki var af snúið. Hjúkrunarfræði. Við sem urðum fyrst hissa hættum því fljót- lega þegar ljóst varð að full alvara bjó að baki og undir niðri blundaði aðdáun: Hann þorði að ganga nýja braut og gerði ekki mikið með það, þótt einhveijir vanafestumenn gerðu sig hissa. Svo kom Rauði krossinn. Hjálp- arstörf meðal flóttamanna og stríðshijáðra, jafnvel á miðjum átakasvæðum. Eftir fyrstu förina út í heim fyrir Rauða krossinn var ljóst að ekki yrði aftur snúið ef hann fengi einhveiju um ráðið, þetta vildi hann gera og fór ekki dult með það að hann biði spenntur eftir að vita hvort hann yrði sendur aftur af stað. Og hann fór aftur og aftur. Það var ekki tilviljun, þar réðu verðleikar og mannkostir. Á þessum tíma urðu fundir okkar stijálari, hann úti í heimi og ég að stofna til heimilis. Hann kom stund- um í heimsókn milli ferða og sýndi okkur Herdísi með lifandi frásögn sinni inn í þann undraheim sem hann kynntist á ferðum sínum. Ekki þurfti meira en fyrstu heim- sóknina til að hún fyndi að hann uppfýllti fyllilega þær lýsingar sem eiginmaðurinn hafði gefið á félaga sínum, heimilið hafði eignast vin. Oft hafði Herdís á orði við mig, MÓRGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1992 að hana undraði það tómlæti kven- þjóðarinnar að Jóni skyldi líðast að ganga ókvæntur. Líklega hefur hann þó skynjað, að fjölskyldulíf færi illa saman við hans lífsstarf, kannski lá honum einfaldlega ekk- ert á. Það var því skemmtilegt þeg- ar við hittum hann á förnum vegi í Reykjavík í fyrra og hann kynnti okkur fyrir Jenny, sem hann sagði af hógværð sinni að væri vinkona sín en engum gat dulist að þar bjuggu stærri tilfinningar að baki. Hann hafði fundið sinn lífsförunaut. Jón Karlsson var hæglátur maður og rólyndur, lét ekki koma sér úr jafnvægi, hann var kurteis og hátt- vís, hófsamur, fullur með kímni og hlýju, umfram allt góður vinur. Sorg okkar er mikil yfir skyndilegu og ótímabæru fráfalli hans. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og eig- inkonu sem svo allt of skamman tíma naut samvista við hann og við biðjum þeim huggunar og styrks í þessari miklu raun sem á þau er lögð. Jón Karlsson lifir þó áfram í minningu okkar. Þar er maður, sem helgar sig köllun, þeirri að líkna öðrum, þeim sem eiga um sárt að binda og í engin hús að venda. Nú er hann kominn heim úr hinstu för. Hér var hans heima, hingað kom hann milli sendiferða, heim á landið sitt og í sveitina sína. Eyjafjörður var sveitin hans, en dagsláttan ver- öidin öll. Þórhallur Jósepsson. Kveðja frá Kór Langholts- kirkju „Wir setzen uns mit Tránen nied- er“ — Við setjumst niður með tár á hvarmi. Þessi hending úr lokakór Mattheusarpassíunnar eftir Bach ómaði enn í hugum kórfélaga eftir tónleika okkar um bænadagana er fregnin um lát Jóns Karlssonar barst okkur. Sú fregn, er svo óþyrmilega sýnir fánýti og tilgangs- leysi stríðsátaka, sló ekki einungis fjölskyldu hans og vinahóp heldur vakti hún óhug víða um heim. Frið- helgur starfsmaður líknarsamtaka fellur í valinn, afleiðingarnar eru ófyrirsjáanlegar bæði fyrir hjálpar- starfsmenn og þá sem þjónustu þeirra njóta. Jón Karlsson gekk til liðs við Kór Langholtskirkju árið 1983. Hann var þá þegar reyndur söngmaður, hafði meðal annars sungið með 24 MA-félögum og Háskólakórnum. Hann hafði hljómmikla og þýða bassarödd sem hann beitti af smekkvísi og öryggi og setti falleg- an blæ á allan samsöng. Jón tók þátt í ýmsum stórverkefnum kórs- ins, svo sem Jólaóratoríunni og Jó- hannesarpassíunni eftir Bach, Messíasi eftir Handel og Missa Sol- emnis eftir Beethoven. Árið 1985 fór hann með kórnum í mikla tón- leikaferð til Austurríkis og Ítalíu. Það er hins vegar dapurleg stað- reynd að hann er sá fimmti sem fellur frá úr hópi ferðafélaga úr þeirri för. Jón var hógvær maður og lítillát- ur en traustvekjandi framkoma hans og hlýleg nærvera áunnu hon- um hvarvetna einlæga vináttu og virðingu samferðamanna hans. Þótt þátttaka hans í kórstarfinu væri nokkuð slitrótt hin síðari ár vegna starfa hans erlendis - við sögðum þá gjarnan að hann væri „okkar maður“ í Tælandi, Pakistan eða Afganistan - hélt hann ávallt góðu sambandi við kórinn og söng með okkur þegar því varð við komið, síðast jólasöngva fyrir síðustu jól. í dag fylgir söngur okkar Jóni Karlssyni í hans hinstu för. Þannig viljum við votta minningu látins félaga einlæga virðingu og þökk og auðsýna dýpstu samúð öllum þeim sem um sárt eiga að binda. Wir setzen uns mit Tránen nieder. Ruhet sanfte, ruhet wohl. Við setjumst niður með tár á hvarmi. Hvíl hægt, hvíl rótt. Fleiri greinar um Jón Karlsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minning: Pálmi Sigurðs- son húsasmiður Pálmi Sigurðsson húsasmiður frá Skagaströnd er látinn. Hann fórst í bílslysi 21. apríl. Pálmi var fæddur á Steiná í Svartárdal í Austur-Húna- vatnssýslu 22. febrúar 1914. Hann var sonur Ingibjargar Sigurðardótt- ur og Sigurðar Jakobssonar er þar bjuggu. Pálmi var þriðja barn for- eldra sinna en átti eldri hálfbróður, Pétur Pétursson, síðar bónda á Höll- ustöðum. Als-ystkini Pálma voru Stefán bóndi á Steiná, Lilja hús- freyja á Akureyri, Friðrik verkamað- ur á Sauðárkróki, Sigríður húsfreyja á Hólabaki og Jakob bóndi á Hóli. Pálmi ólst upp á Steiná en fór ungur að heiman, stundaði vinnu- mennsku fyrst, en árið 1936 flytur hann til Skagastrandar og stofnar þar heimili með konu sinni, Hólm- fríði Hjartardóttur. Hólmfríður hafði áður verið gift Einari Péturssyni og átti með honum fjögur börn, Þóri Hauk, Ástu, Öldu og Rögnu. Pálmi og Hólmfríður eignuðust fjögur börn, Ingibjörgu Perlu ljósmóður, Gunnar' byggingameistara, Sigurð sjómann og Súsönnu. Pálmi var róttækur í skoðunum og gerðist á þessum árum liðsmaður sósíalista. Valdist hann fljótlega til forystu í verkalýðsbaráttu á Skaga- strönd, enda var hann vel til forystu fallinn, skarpgreindur, stefnufastur málafylgjumaður og gjörþekkti lífs- baráttu stéttar sinnar. I stríðslok hófst mikil uppbygging á Skaga- strönd. Þar var ráðist í miklar hafn- arframkvæmdir, reist síldarverk- smiðja og menn bundu vonir við uppgang vegna síldveiða. Pálmi varð formaður verkalýðsfélagsins 1945 og stjórnaði verkalýðsbaráttunni á Skagaströnd á miklum umbrotatím- um. Hann var formaður verkalýðs- félagsins um 12 ára skeið og síðar allmörg ár formaður deildar land- verkafólks. Pálmi sat í hreppsnefnd í fjögur kjörtímabil og skipaði nokkr- um sinnum sæti ofarlega á fram- boðslistum Alþýðubandalagsins við kosningar til Álþingis. Síldin hvarf og uppbyggingin á Skagaströnd stöðvaðist um langa hríð. Þessu íylgdi mikið og viðvar- andi atvinnulaysi. Heimilisfeður urðu að leita sér að vinnu þar sem hana var að fá. Pálmi brá á það ráð að sækja vinnu suður, bæði vertíðar- vinnu svo og smíðavinnu. Fjölskyld- an gekk frá nýlegu húsi sínu á Skag- aströnd og bjó í Reykjavík árin 1956-61 en flutti þá aftur til Skaga- strandar. Pálmi stundaði þó smíða- vinnu í Húnaþingi meira og minna öll þessi ár, byggði m.a. félagsheim- ilið Húnaver. Síðar stjórnað Pálmi byggingaflokki á vegum Búnaðar- sambands Austur-Húnvetninga mörg sumur. Mér er nær að halda að byggingar eftir Pálma séu á flest- öllum bæjum í sveitum Austur- Húnavatnssýslu. Þá voru uppgangs- tímar í landbúnaði héraðsins og búum við mjög að verkum hans. Segja má að hann hafi breytt hérað- inu. Pálmi öðlaðist réttindi húsa- smiða enda mjög fær smiður. Árið 1973 fluttu Pálmi og Hólm- fríður til Reykjavíkur. Gerðist Pálmi smiður á vegum Olíufélagsins og vann þar næsta áratug en lét þar af störfum sjötugur. Ég átti þess kost að kynnast Pálma náið bæði sem föðurbróður, húsbónda og samstarfsmanni. Ég vann hjá honum eitt sumar við bygg- ingu Húnavers og betri yfirmann og ósérhlífnari félaga er vart hægt að hugsa sér. Við vorum lengst af tveir í verki og bjuggum i tjaldi. Síðar hjálpaði hann mér margsinnis við byggingar eða byggði fyrir mig. Það sem einkenndi Pálma öðrum fremur var ákaflega staðfastur heið- arleiki og trúmennska ásamt mjög næmri réttlætiskennd. Hann vildi hag þeirra sem voru með honum í verki eða fólu honum umboð sitt sem bestan, jafnframt því að allir sem hann skipti við eða vann hjá fengju það sem þeir greiddu vel útilátið. Starfsþrek Pálma var mikið ásamt ótrúlegri kappsemi og elju að hvaða verki sem hann gekk. Þar að auki var Pálmi ákaflega skemmtilegur í samtali og háttvís í umgengni. Pálmi átti einlægan vilja til að bæta heim- inn og tókst alls staðar að koma fram af drengskap, öðlast traust manna. Eftir að Pálmi hætti störfum hjá Olíufélaginu hjúkraði hann konu sinni Hólmfríði sem orðin var sjúkl- ingur. Annaðist hann hana af mik- illi umhyggjusemi og þolinmæði. Hólmfríður dó 15. desember sl. Nú er Pálmi látinn. Eftir lifir í hugum samferðamanna minningin um heiðarlegan, göfugan og góðan mann. Ég er stoltur af að hafa átt hann að frænda, félaga og vini og votta börnunum hans hluttekningu mína. Páll Pétursson. Á morgun verður lagður til hinztu hvílu föðurbróðir minn og gamali verkastjóri, Pálmi Sigurðsson smið- ur. Við ótímabært fráfall hans fýsir mig að minnast nokkrum orðum þess manns, sem kenndi mér ýmis- legt það, sem síðar hefur einna bezt gagnazt mér á lífsleiðinni í námi og starfi. Kynni okkar Pálma heitins hófust strax og ég var barn að aldri. Hann kom oft á heimili mitt og vann þar stundum að byggingum, því þótt hann væri ekki réttindamaður í hús- asmíði, þótti hann í starfi jafnoki hvaða trésmiðs sem var. Pálmi var prúður maður, barngóður og ræðinn. Hann var gæddur ágætri kímnigáfu og laus við alla ertni. Á skólaárunum þótti mér það því góður kostur að vinna undir verkstjórn hans, en þá stjórnaði hann byggingaflokki Bún- aðarsambands Húnvetninga, sem ferðaðist milli bæja og reisti penings- hús fyrir bændur. í því starfí sem öðrum gat hann sér hið bezta orð fyrir heiðarleik, afköst og velvirkni. Pálmi var ágætur verkstjóri, sem ekki stjórnaði með hávaða, kjafta- vaðli eða hörðum aga. Hann stjórn- aði fyrst og fremst með fordæmi sínu; fádæma ósérhlífni, vinnusemi, og harðfylgi við sjálfan sig. Þetta hafði þau áhrif á okkur undirsáta hans, sem oft vorum að meiri hluta unglingar, að aldrei var slegið slöku við og gjarnan hlaupið við vinnuna. Þó ríkti oftast nær gáski og glað- værð á vinnustað, því Pálmi var maður dagfarsprúður og vel lyntur. Þó átti hann það til að verða þegj- andalegur, þegar áætlanir hans og áform stóðust ekki, því hann var maður kappsfullur og stundum bjartsýnn um of í vinnu. Þá var haft á orði, að hann væri í steypu- skapi, því oftast var það í sambandi við undirbúning steypuvinnu, sem áætlanir fóru úr böndunum. Samt sem áður minnist ég ekki eins ein- asta styggðaryrðis af vörum hans þau sumur, sem við unnum saman. Svo vel tamdi hann geð sitt. Pálmi var ákaflega vandfýsinn á eigin verk og vildi ekki láta sjást eftir sig hroðvirknislega eða mis- heppnaða smíð. Það var eitt af 29 mörgu, sem af honum mátti læra. Þegar við minntumst liðinna daga á síðast Iiðnu sumri, var honum ofar- lega í huga veggjarsprunga vestur í Vatnsdal, sem þá hafði angrað hann í aldarfjórðung. Nagaði hann sig þá enn í handarbökin fyrir að hafa ekki haft vit fyrir verk- fræðingnum, sem gerði járnteikn- ingu hússins. Slík var hlutvendni hans og skyldurækni. Heiðarleiki hans og drenglyndi í samskiptum við annað fólk aflaði Pálma vinsælda, enda var hann fé- lagslyndur og kunni vel að gleðjast með glöðum, þótt allrar hófsemi gætti hann í þeim efnum sem öðrum. Söngrödd hafði hann ágæta líkt og systkini hans. Hann hafði mikinn áhuga á félagsmálum og þjóðfélags- umbótum, og helgaðist það af sterkri réttlætiskennd hans. Hann var heill í öllu og átti auðvelt með að átta sig á kjarna hvers máls og taka einarða afstöðu í samræmi við siðgæðis- vitund sína og réttlætiskennd. Allt þetta aflaði honum þeirrar lýðhylli, að erfiðisfólk á Skagaströnd fól hon- um forsjá stéttarfélags síns í 12 ár og hreppsnefndarsetu 5 4 kjörtíma- bil. Enda þótt ég heyrði hann oft rökræða stjórnmál, var hann laus við alla tilfmningasemi og það of- stæki, sem oft einkennir hugsjóna- menn. Aldrei heyrði ég' hann æstan í rökræðum. Mér þótti hann einna ólíklegastur þeirra manna, sem ég hef kynnst um dagana, til að selja sannfæringu sína. Samvizkusemi og trúmennska voru þeir eðlisþættir, sem ég hygg að hafi öðrum fremur skapað Pálma örlög og lagt grunninn að gæfu hans sem ógæfu. Segja má, að þeir hafi einkennt allar hans athafnir. Einkar ljóslega birtist það í einkalífí hans. Jafnan minnist ég Pálma, þeg- ar ég rifja upp sögu Hergilseyj- arbóndans, sem reiðubúinn var að fylgja vini sínum og frænda, Gísla Súrssyni, í dauðann og slíta þar með fötum sínum eigi gerr. Pálmi kaus að fórna hugðarefnum sínum fyrir það, sem samvizka hans sagði hon- um, að væri þeim mikilvægari. Hann var ekki þeirrar gerðar að níðast á neinu því, sem honum var til trúað, fremur en Kolskeggur Hámundar- son forðum daga. Þar sem vík var milli vina urðu samskipti okkar minni en skyldi síð- ustu áratugina. Ég minnist með ánægju síðasta fundar okkar á liðnu sumri á ættarmóti á Steiná í Svart- árdal, þar sem rætur hans lágu alla tíð. Þrátt fyrir háan aldur sinn hélt hann þar ennþá skerpu sinni og reisn og naut samverunnar við ættfólk sitt til fullnustu í söng og gleðskap. Þegar hann svo að morgni reis fyrst- ur á fætur að vanda, vakti það okk- ur fyrirheit um, að hans biðu góðir dagar í ellinni. En Pálmi réð ekki. sínum næturstað fremur en aðrir dauðlegir menn. Hðndin, sem hamrinum lyftir, er hafin af innri þörf, af liknsamri lund, sem þráir, að létta annarra störf. Sá fagri framtíðardraumur er falinn í verkum hans, að ðbornir njóti orku hins ókunna verkamanns. (Davíð Stefánsson.) Ég kveð þennan mikla drengskap- armann með virðingu og þökk og votta aðstandendum hans dýpstú samúð mína. Pétur Pétursson. BLÓM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.