Morgunblaðið - 03.05.1992, Síða 40

Morgunblaðið - 03.05.1992, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ S.UNNUDAGUR 3. MAl 1992 Þórður Maríasson, Suðureyri - Minning Fæddur 5. nóvember 1896 Dáinn 22. apríl 1992 Laugardaginn 2. maí var borinn til grafar á Suðureyri afi minn, Þórður Maríasson, er lést á Hrafn- istu í Reykjavík 22. apríl sl. á 96. aldursári, og var hvíldinni áreiðan- lega feginn þegar kallið kom. Afi var sonur hjónanna Herdísar Þórðardóttur frá Vatnadal í Suður- eyrarhreppi og Maríasar Þórðarson- ar, en hann lést um aldamótin. Herdís var þá ein með þijú ung börn. Síðar giftist hún Guðmundi Júlíusi Pálssyni frá Látrum í Mjóa- firði og eignuðust þau átta börn saman. Afi og amma, Margrét Svein- björnsdóttir, fædd 31. desember 1901, dóttir hjónanna Sveinbjörns Pálssonar og Guðmundínu Jónsdótt- ur frá Laugum, Suðureyrarhreppi, gengu í hjónaband árið 1921 og bjuggu þau á Suðureyri allt til árs- ins 1984 er þau fluttu á Hrafnistu í Reykjavík sökum heilsubrests ömmu. Hún lést þar þremur árum síðar eða 23. október 1987 þá rúm- lega 85 ára að aldri. Afí og amma eignuðust átta börn, en aðeins fimm þeirra komust á legg og eru þau öll á lífí í dag. Þau eru: Páll Janus, f. 23. febrúar 1925, maki Sigrún Þorleifsdóttir, búsett í Reykjavík. Marías, f. 17. júní 1930, ókvæntur, búsettur á Suðureyri. Elísabet, f. 24. apríl 1932, maki Guðjón Jónsson, búsett í Reykjavík. Björgvin, f. 30; mars 1934, maki Jónína Ásbjarnardóttir, búsett á Flateyri. Guðrún, f. 8. júlí 1942, maki Óli M. Lúðvíksson, búsett á ísafirði. Afí og amma voru mjög samhent og þegar afi varð níræður áttu þau 65 ára hjúskaparafmæli sama ár. Ástin sem skein úr augum þeirra þá sagði sína sögu um það hvemig þessi 65 ár hefðu verið. Afí var mikil félagsvera og mikill tónlistarunnandi. Einnig var hann bókhneigður í betra lagi. Hann var mjög hjartahlýr og gefandi maður. Hann var göður hlustandi en um leið var hann óspar á ráðleggingar til unga fólksins. Allar hans ráðlegg- ingar fólu í sér að við ættum að rækta okkur sjálf og fjölskyldur okkar,’ því fjölskyldan væri það mik- ilvægasta sem við ættum. Afí var sjálfur dæmi um þetta því hann lagði mikla rækt við að efla fjölskyldu- tengslin og ef nýr fjölskyldumeðlim- ur var í vændum var afi ekki langt undan. Hann elskaði börn og varð stoltur í hvert skipti sem fjölgaði í fjölskyldunni og leit á barnabörnin og barnabarnabörnin sem sín eigin. Afi var mjög trúaður maður og voru þau amma mjög virk í öllu starfi er tengdist kirkjunni. Afi var í sóknamefnd og bæði voru þau í kirkjukómum í fjölda ára. Afi var sjálfmenntaður í skóla b'fsins og var þvílíkur hafsjór af fróðleik að það var með ólíkindum. Hann var vel að sér um allt sem laut að sjómennsku og veðurfari, enda var hann á sjó á sínum yngri árum og fylgdist síðan vel með afla- brögðum og öllu því sem tengdist sjónum allt til dauðadags. Afi var veðurathugunarmaður á Suðureyri í fjölda ára og var svo veðurglöggur að ef einhver úr fjölskyldunni ætl- aði í ferðalag þótti vissara að hringja til afa áður en farið var af stað. Eg vil að lokum þakka afa sam- fylgdina. Hans verður sárt saknað en minningin um hann lifir áfram. Ég veit að nú líður honum vel þar sem þau amma hafa sameinast að nýju, því það var það sem hann þráði. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífíð. Sá sem trúir á mig mun Iifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja." (Jóh. 11, 25:26.) Margrét Þóra Óladóttir. TYÍ HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI Innritun á haustönn 1992 stendur nú yfir í Tölvuháskóla VÍ. Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að vinna við öll stig hugbúnaðargerðar, skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og sjá um kennslu og þjálfun starfsfólks. Námið tekur tvö ár og er inntökuskil- yrði stúdentspróf eða sambærileg menntun. Verið er að endurnýja tölvubúnað skólans. Á haustönn verður kennt á tölvur af gerðinni Victor 386MX, IBM PS/2 90 með 80486 SX örgjörva, IBM RS/6000 340 og IBM AS/400 B45. Nemendur við Tölvuháskóla VI verða að leggja á sig mikla vinnu til þess að ná árangri. Þeir sem vilja undirbúa sig í sumar geta fengið ráðleggingu hjá skólanum. Mikil áhersla er lögð á forritun og er því gagnlegt ef nemendur hafa kynnst forritun áður. Á fyrsta ári eru kennd tvö námskeið í viðskiptafög- um sem nýtast best þeim sem áður hafa lært bókfærslu. Aðrar greinar fjalla annars vegar um vinnubrögð við hugbúnaðargerð. Eftirtaldar greinar verða kenndar auk raunhæfra verkefna sem unnin eru í lok hverrar annar: Fyrsta önn: Forritun í Pascal Kerfisgreining og hönnun Stýrikerfi Fjárhagsbókhald Þriðja önn: Gluggakerfi Kerfisforritun Hlutbundin forritun Fyrirlestrar um valin efni Önnur önn: Fjölnotendaaumhverfi og RPG Gagnasafnsfræði Gagnaskipan með C++ Rekstrarbókhald Fjórða önn: Staðbundin net Tölvugrafík Hugbúnaðargerð Umsóknarfrestur fyrir haustönn 1992 er til 26. júní. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar eftir því sem pláss leyfir. Kennsla hefst 31. ágúst. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu Verzlunarskólans frá kl. 8-16 og í síma 688400. TÖLVUHÁSKÓLIVÍ, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík. Bjöm Jónsson, Ytra- Hóli - Kveðjuorð Sumarið var rétt ókomið sam- kvæmt íslenskri hefð þegar mér barst fregnin um andlát Björns Jónssonar frá Ytra-Hóli og það skyggði. Um all langan tíma hafði Björn mátt finna mátt sinn dofna æ meir. Nú hefur öldungur kvatt sem var gæddur þeim eiginleikum að virðing og vinahugur lifir áfram þegar hans er minnst. I huga mín- um er mikið þakklæti til vökuls manns sem mér fannst gott að kynnast og mega telja til vina. Það eru örlátir einstaklingar sem megna að veita öðrum mildi þrátt fyrir sársauka í eigin brjósti og sem geta leitt hugi hærra þrátt fyrir að hallar á eigið þrek. Björn var gædd- ur slíku örlæti. Reynsla langra og strangra líf- daga og auðmýkt gegn yfirburðum óvæginnar náttúru, gerðu vonina meiri, gleðina ríkari, þakklætið meira í fari Björns. Allt þetta streymdi frá honum til þeirra er nálægt honum voru. Fyrir mig, sem glími við það h'kt og fjölmargir aðrir að eiga í kapp- hlaupi við tíma og amstur svo of lítið verður um kyrrð hugans, var það ætíð eftirsóknarvert að geta rætt við Björn um menn og mál- efni. Þá varð kyrrð og auðvelt að gleyma sér við að hlusta á hann segja frá. Mál hans heiðskírt og ríkt, skoðanir ljósar og settar fram af sannfæringu en stillt frásögnin bar vott um djúpa hugsun fróðleiks- manns. Galsi og glettin tilsvör hans rifu upp hláturinn en næmnin og viðkvæmnin voru ekki langt undan. Þá var hann líkt og tengiliður þess sem er liðið og þess sem koma skal og Iíðandi stundin spannaði innsýn í hvort tveggja. Stundum flaug mér í hug að ef til vill gæti ég orðið ögn vitrari ef ég hlustaði nóg vel og lengi. Ég hef heyrt um daga Björns þar sem gleði og sorg tókust á, oft með litlum hléum. Ég hef heyit um ábyrgðar- og trúnaðarstörf sem Birni voru falin lengst af. Ég hef heyrt um trygglyndi hans, vinarþel og greiðvikni við vini og vanda- lausa. En ég hef séð stolt hans og gleði vegna barnabarna sinna nær og ijær og ég hef fundið þakklæti hans og kærleika til fjölskyldu sinn- ar. Þessi vetur sem nú hefur kvatt færði minni vetrar'nörkur en þeir sem á undan voru. En þennan vetur varð mæðin og máttleysið kröfu- harðara og rúmlega Björns varð meiri og lengri en áður. Það hindr- aði samt ekki það að bóndinn á Ytra-Hóli fylgdist grannt með mál- efnum líðandi stundar hvort heldur var í blöðum, bókum, útvarpi eða sjónvarpi og sem fyrr var margt skeggrætt. Nú, þegar ástríkur faðir og afi er ekki lengur til að taka lófa í heita hönd sína, stofan er tóm og ómur málróms hans þagnaður, eru minningarnar perlur sem aldrei glatast. Björn naut mikillar ástúðar og umhyggju nánustu fjölskyldu sinn- ar að Ytra-Hóli sem nú harma góð- an föður og afa. Gráttu ekki af því að ég er dáin ég er innra með þér alltaf, segir í erlendu ljóði. Ég sendi kærum vinum á Ytra- Hóli og öðrum ástvinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Björns Jónssonar. Rannveig Jóhannsdóttir. Einar Guðmunds- son — Kveðjuorð Einar Guðmundsson, Heiðargerði 18, Reykjavík, andaðist að heimili sínu 22. apríl sl. Þegar vetur kveð- ur fagnar maður sumri, en þegar góður vinur frá bernsku kveður setur að manni sorg og hjartað fyll- ist söknuði. Þegar fjölskylda Einars fluttist í Arnarbælishverfið kom hún með vor og sumar í það samfélag sem þar var og hefur fylgt okkur öllum sem þar vorum fyrir æ síðan. Við andlát Guðmundar, föður Einars, hætti Guðrún móðir hans búskap og þau fluttu til Reykjavík- ur. Einar stundaði bifreiðaakstur, keypti sér sendibíl og það var hans átvinna mörg síðastliðin ár. Hann tók þátt í félagsstörfum síns félags og var þar í stjórn. Ég, eins og Éinar, flutti úr þessu góða samfélagi sem var í Arnarbæl- ishverfinu og skildu því leiðir um sinn. En þegar við hjónin fluttum til Reykjavíkur leið ekki langur tími þar til við endurnýjuðum okkar góðu kynni frá bernskuárunum. Einar og fjölskylda hans voru alveg einstakt sómafólk og ég hlakkaði alltaf til að hitta þessa fjölskyldu, V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! hún var svo einstaklega hlý og góð svo að maður fann alltaf fyrir vellíð- an af að vera í návist hennar. Eins og áður er getið tókum við upp þráðinn frá fyrri árum þegar við áttum báðir heima hér í Reykja- vík. Guðrún móðir Einars og móðir mín urðu miklar vinkonur og Einar kom alltaf með móður sína á hveiju ári í heimsókn í Kirkjufeijuhjáleigu, þeim báðum til mikiliar ánægju. Einar var ávallt léttur í lund og hann kom oft með vörur til Hrefnu á Grundarstíginn. Við hlógum oft að því sem kom upp á þegar hann kom þar. Einu sinni sem oftar þeg- ar hann kom með vörur þurfti Hrefna að bregða sér frá og bað Hrefna hann að standa fyrir sig í sjoppunni á meðan. Þá kom maður inn og spurði hann Einar hvort hann var að afgreiða. Einar sagðist vera hér í forföllum því hann væri sonur Hrefnu, en á þeim var tveggja ára aldursmunur. Svona var Einar alltaf, fullur af léttu gríni og það er einmitt svona fólk sem maður saknar mest. Einar var með afbrgðum dugleg- ur, alltaf sívinnandi og það var al- veg furðulegt hvað hann vann, eins veikur og hann var sl. 2 ár. Hann lét ekki mikið eftir sér en greiðvikn- ari maður var ekki til, um það get- um við hjónin vel borið. Þegar aldur færist yfir finnst manni lífið svo ótrúlega stutt, en þegar svo góður vinur sem Einar var okkur hjónum, kveður, gerir maður sér ljóst að allt tekur enda. Við þökkum fyrir alla góða viðkynn- ingu, bæði Einari og hans íjöl- skyldu. Megi hann hress og glaður fara á fund feðra sinna. Ég vil fyrir hönd okkar hjóna votta eiginkonu, systrum og öðrum vandamönnum okkar dýpstu sam- úð. Sigurður Gísli Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.